NT - 16.10.1985, Page 23
Miðvikudagur 16. október 1985 27
Sjónvarp kl. 21.05:
Verður erfðaskrá
in dæmd ógild?
- í Dallas í kvöld
■ Dallas verður á dagskrá
sjónvarps í kvöld eins og vera
ber og mun væntanlega snúast
um þá spurningu hvort Miss
Ellie fær ógildingu á erfðaskrá
Jocks eður ei, til að binda enda
á hatramma samkeppni þeirra
bræðra.
Pað ætti. vel að vera niögu-
legt, með þeim annmörkum
þó, að þá þarf að lýsa því yfir
•að Jock hafi veriö gcðveikur
þegar hann sanrdi han;i. og
það er Miss Ellie að sjálfsögðu
ekki sérlega Ijúft.
Bobbie ætlar að sjá við bens-
ínsölu hins klóka J.R.. rneð
því að dæla upp aukinni olíu,
en hvort leysist úr öllum þess-
um flækjum í kvöld fá áhorf-
endur að vita kl. 21.05.
■ Pamela Ewing með Christopher litla, en hún stendur með
Miss Ellie í gegnum þykkt og þunnt.
Barnaútvarpið
- karnivaltónlist
og framhaldssaga
Útvarp kl. 13.30:
Heimili og skóli
- í dagsins önn
■ Bogi Arnar Finnbogason
mun fjalla um heimili og
skóla í þættinum „f dagsins
önn", á dagskrá útvarps í dag.
Gestur Boga í þættinum
verður Wolfgang Edelstein,
en hann er að vinna að rann-
sókn á högum ungra barna, á
íslandi fyrir Menntamála-
ráðuneytið og var staddur
hér á landi fyrir nokkru þar
sem hann flutti erindi á ráð-
stefnu um íslenska skóla-
stefnu, en sú ráðstefna var
haldin á vegum Bandalags
kennarafélaga.
Wolfgang hefur lengi unnið
fyrir vísindasstofnunina Max
Planck, í Vestur-Þýskalandi,
og fengist við rannsóknir á
skólamálum þar í landi. í
þættinum í dagfá áheyrendur
væntanlega að heyra álit
■ Bogi Amar Finnbogason
stjómandi þáttarins „í dagsins
önn“, í dag, og mun hann
fjalla um heimili og skóla.
Wolfgangs á íslenska skóla-
kerfinu, um hvert stefni í
þeim skólamálum og hvert
beri að stefna, þá átt við
grunnskólakerfið.
■ Barnaútvarpið verður á
sínum stað í útvarpinu í dag og
er stjórnandi í forföllum Krist-
ínar Helgadóttur. Kolbrún
Halldórsdóttir.
1 dag verður karnivaltónlist
leikin í barnaútvarpinu og
framhaldssagan „Bronssverð-
ið“, eftir Johannes Heggland í
þýðingu Ingólfs Jónssonar frá
Prestbakka lesin. af Knúti R.
Magnússyni.
Bronssverðið fjallar um tvo
unglinga, Örn, sem missti for-
eldra sína í bernsku og Nönnu
dóttur höfðingjans Gauta sem
féll er Herðir, þjóðflokkur
sunnan úr löndum gerði innrás
á heimaey þeirra, As, og veiði-
stöð Ásverja á eynni Hvítserk.
Flestir manna Gauta féllu með
honum en fáeinir komust und-
an til meginlandsins ásamt
konum og börnum.
Atburðir þessir ge.rast á
Bronsöldinni, og er sagan
þrungin spennu og ýmsir ógn-
vekjandi atburðir gerast sem
reyna á þolrifin í unglingunum
tveimur sem eru ekki mjög
ólíkir unglingum okkar tínia ef
vel er að gáð.
Sagan er önnur í röðinni af
þriggja bóka skáldverki um
Örn og Nönnu, en sú fyrsta var
lesin í útvarpi í fyrra og bar
nafnið „Hvítu skipin". Þriðja
bókin heitir Eyjan helga. Hver
bók er sjálfstæð saga þótt aðal-
persónurnar sér þær sömu í
þeini öllum. Bækurnar hafa
fengið mörg verðlaun í landi
höfundar, Noregi, en þar er
hann vel þekktur rithöfundur
og hefur árum saman verið
formaður norsku rithöfunda-
samtakanna.
■ Kolbrún Halldórsdóttir,
stjórnandi Barnaútvarpsins að
þessu sinni.
Miðvikudagur
16. október
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn.
7.15 Morgunvaktin.
7.20 Morguntrimm.
7.30 Fréttir. Tilkynningar.
8.00 Fréttir. Tilkynningar.
8.15 Veðurfregnir.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
„Saetukoppur“ eftir Judy Blume.
Bryndís Víglundsdóttir les þýðingu
sina (15).
9.20 Morguntrimm. Tilkynningar.
Tónleikar, þulur velur og kynnir.
9.45 Þingfréttir.
10.00 Fréttir.
10.05 Daglegt mál Endurtekinn þátt-
ur Siguröar G. Tómassonar frá
kvöldinu áður.
10.10 Veðurfregnir.
10.25 Lesiö úr forustugreinum dag-
blaðanna.
10.40 Land og saga. Umsjón: Ragn-
ar Ágústsson.
11.00 Ur atvinnulífinu - Sjávarút-
vegur og fiskvinnsla. Umsjón:
Gisli Jón Kristjánsson.
11.30 Morguntónleikar. Þjóðlög Irá
ýmsum löndum.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Fréttir.
12.45 Veðurfregnir. Tiikynningar,
Tónleikar.
13.30 í dagsins önn - Heimili og
skóli. Umsjon: Bogi Arnar Finn-
bogason.
14.00 Miðdegissagan: „A strónd-
]“
innl“ eftir Nevil Shute. Njörður P.
Njarðvik les þýðingu sína (18).
14.30 Óperettutónlist. a. Lög úr
óperettunum „Nótt í Feneyjum"
eftir Jóhann Strauss yngri og
„Brosandi landi" eftir Franz Lehar.
Söngvarar og kór Rikisóperu Vin-
arborgar og Filharmoníusveit Vin-
ar flytja undir stjórn Wilhelms Lo-
ibners. b. „Sögur úr Vinarskógi",
vals op. 325 eftir Johann Strauss
yngri. Filharmoniusveit Lundúna
leikur. Antal Dorati stjórnar.
15.15 Sveitin mín. Umsjón: Hilda
Torfadóttir (Frá Akureyri).
15.45 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Síðdegistónleikar. a. Kvintett
i a-moll éftir Friedrich Kalkbrenner.
Mary Louise Bohem leikur á pianó,
Howard'-Howard á horn, Fred
Sherry á selló og Jeffrey Levine á
bassa. b. Trió i G-dúr fyrir þrjár
flautur eftir Ludwig van Beethoven.
Jean Pierre Rampal og Christian
og Alain Marion leika.
17.00 Barnaútvarpið „Bronssverð-
ið“ eftir Johannes Heggland. Knút-
ur R. Magnússon les þýðingu Ing-
ólfs Jónssonar frá Prestbakka (4).
Stjórnandi: Kristín Helgadóttir.
17.40 Síðdegisútvarp. - Sverrir
Gauti Diego. Tónleikar. Tilkynning-
ar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvölds-
ins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.45 Málræktarþáttur. Heigi J. Hall-
dórsson flytur.
19.50 Eftir fréttir. Bernharður Guö-
mundsson sér um þátt um mann-
réttindamál.
20.00 Hálftrminn. Elin Kristinsdóttir
kynnir tónlist.
20.30 íþróttir. Umsjón: Ingólfur
Hannesson.
20.50 Hljómplöturabb. Þáttur Þor-
steins Hannessonar.
21.30 Flakkað um Ítalíu. Thor Vil-
hjálmsson lýkur lestri ferðaþátta
sinna (7).
22.00 Fréttir. Dagská morgundags-
ins.
22.15 Veðurfregnir. Orö kvöldsins.
22.25 Bókaþáttur. Umsjón: Njörður
P. Njarðvík.
23.05 A óperusviðinu. Leifur Þórar-
insson kynnir óperutónlist.
24.00 Fréttir. Dagskrárlok.
Én
Miövikudagur
16. október
10:00-12:00 Morgunþáttur Stjórn-
andi: Kristján Sigurjónsson
14:00-15:00 Eftir tvö Stjórnandi: Jón
Axel Ólafsson.
15:00-16:00 Nú er lag Gömul og ný
úrvalslög að hætti hússins. Stjórn-
andi: Gunnar Salvarsson.
16:00-17:00 Dægurflugur Nýjustu
dægurlögin. Stjórnandi: Leopold
Sveinsson.
17:00-18:00 Úr kvennaburinu Ton-
list flutt og/eða samm af konum.
Stjórnandi: Andrea Jónsdóttir
Þriggja mínútna fréttir sagðar
klukkan: 11:00, 15:00, 16:00 og
17:00.
Miðvikudagur
16. október
19.25 Aftanstund Barnaþáttur með
innlendu og erlendu efni Sögu-
hornið - Drengurinn og norðan-
vindurinn. Sögumaður Anna Sig-
riður Árnadóttir. Maður er manns
gaman og Forðum okkur háska
frá - teiknimyndaflokkur frá Tékk-
óslóvakiu um það sem ekki má i
umferðinni. 'Sögumaður: Sigrún
Edda Björnsdóttir.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Kvikmyndahátið Listahátíð-
ar kvenna Kýnningarþáttur.
Umsjón: Margrét Rún Guðmunds-
dóttir og Oddný Sen. Stjórn upp-
töku: Kristin Pálsdóttir.
21.05 Dallas Dómur Bandarískur
framhaldsmyndaflokkur. Þýðandi
Björn Baldursson.
21.50 Þjóðverjar og heimsstyrjöld-
in síðari (Die Deutschen im Zweit-
en Weltkrieg) Lokaþáttur- Þriðja
ríkið hrynur Nýr þýskur heimild-
amyndaflokkur i sex þáttum sem
lýsir gangi heimsstyrjaidarinnar
1939-1945 af sjónarhóli Þjóðverja.
Þýðandi Veturliöi Guðnason. Þulir:
Guðmundur Ingi Kristjansson og
Maria Maríusdóttir.
23.15 Fréttir i dagskrárlok
Þeir komu
- þeir sáu
- þeir skruppu í búðir
Stjörnuglópar
★★^
(Morons froni Outer Space)
Aðalhlutverk: Griff Rhys
Jones, Mel Smith, Joanne Pe-
arce, Jirnutv Nail o.fl.
Leikstjóri: Mike Hodges
Lengd: 90 mínútur.
Bretland, 1984.
■ Fjórir íbúar stjörnunnar
Blob taka sér geimskip á leigu
og halda í skemmtiferð. Vegna
smábilunar í stjórntækjum
geimskipsins nema þau staðar
til að átta sig á staðsetningu
sinni. Bernard, sá eini sem
kann að stjórna skipinu, notar
tækifærið og laumast út til að
spila geimbolta. Á meðan ræsa
hin geimskipið óvart og þjóta
stjórnlaust af stað, Bernards-
laus eins og gefur að skilja.
Þau nauðlenda á næstu
stjörnu, sem er jörðin, nánar
tiltekið á hraðbraut rétt utan
við London.
. Koma þeirra vekur að von-
um mikla athygli og ungur
sjónvarpsmaður gerir þau að
einum skærustu stjörnum
poppheimsins. Frægðin stígur
geimbúunum til höfuðs og
þegar Bernard, sem lent hefur
á jörðinni upp á eigin spýtur,
reynir að ná fundi þeirra, er
honum vísað frá.
Væri það ekki makalaust að
fyrstu geimverur sem lentu á
jörðinni væru hálfgerðir van-
vitar? Mel Smith og Griff Rhys
Jones leggja út af þeirri hug-
mynd í þessari stjórnlausu
grínmynd og þeim tekst næst-
um að halda uppi húmor í 90
mínútur.
Þeir félagar sömdu ekki ein-
ungis handrit- heldur leika
einnig aðalhlutverk - Smith
sem hinn óásjálegi leiðtogi
geimveranna, sem verður við-
skila við sína þunnu samstarfs-
menn og Rhys Jones sem
hlaupadrengur á sjónvarps-
stöð, er gerir geimverurnar að
stjörnum.
Myndin inniheldur dauð atr-
iði, atriði þar sem gengið er út
í öfgar og svo óborganleg atriði
inn á milli. Smith fer á kostum
þegar hann hnerrar í hjálminn
sinn og þegar hann reynir að
rökræða við ruslatunnu er
hann lendir á jörðinni; „Take
me to your leader“ biður hann
og lokið slæst til í golunni.
Nokkur atriði draga dár af
„Close encounters", t.d. þegar
jarðarbúar reyna að ná sam-
bandi við geimverurnar, sem
að sjálfsögðu tala ensku og
eiga við drykkjuvandamál að
stríða eins og við hin. Önnur
samlíking á sér stað í lok
myndarinnar þegar geimskipa-
leigusalinn lendir á svipmikinn
hátt á íþróttaleikvangi og
krefst þess að fá geimskipið
sitt aftur.
Jimmy Nail gerir það gott
sem hinn drykkjusjúki Des-
mond svo og Paul Brown sem
hinn persónulausi Julian.
Dinsdale Landen og James B.
Sikking skila sínum hlutverk-
urn nieð prýði.
Stjörnuglópar er ýkt útgáfa
af dæmigerðum breskum
húmor, ófágað skop en bráð-
skemmtilegt á köflum.
MJA
■ Mel Smith er aldeilis
óborganlegur í hlutverki Bern-
ards Blobbúa.
■ Er hann ekki lúdalegur (Griff Rhys Jones)