NT - 24.10.1985, Qupperneq 3
24. október
í Reykjavík
- yfirlit yfir viðburði dagsins
■ Kl. 11.00: Kvennasmiðj-
an opnar í Seðlabankabygg-
ingunni. Flutt verða ávörp
og viðstöddum boðið að
skoða sýninguna. Helga Pór-
arinsdóttir víóluleikari og
Rósa Guðmundsdóttir selló-
leikari leika fyrir gesti.
Kl. 14.00: Utifundur hefst
á Lækjartorgi. Ræður og
ávörp flytja: Guðrún Árna-
dóttir meinatæknir, Póra
Kristín Jónsdóttir kennari,
Hildur Kjartansdóttir
saumakona og Málhildur
Sigurðardóttir fiskvinnslu-
kona. Einnig munu Helga
Thorberg og Rósa Pórsdóttir
flytja leikþátt eftir Helgu
Thorberg saminn í tilefni
dagsins. Bergþóra Árnadótt-
ir syngur að auki nokkur lög.
Fundarstjóri er Guðríður El-
íasdóttir, varaformaður
A.S.Í.
Kl. 20.30: Stutt skemmti-
dagskrá í Seðlabankabygg-
ingunni. Bergþóra Árnadótt-
ir syngur og leikur fyrir sýn-
ingargesti. Kynnir og um-
sjónarmaður er Edda Björg-
vinsdóttir.
Kl. 22.00: Skemmtun hefst
á Hótel Borg. Þar koma
fram: Kór Kársnesskóla und-
ir stjórn Þórunnar Björns-
dóttur, Helga Thorberg o.fl.
flytja frumsaminn leikþátt
Helgu Thorberg „Að vera
eða vera ekki“. Katrín Sig-
urðardóttir óperusöngkona
syngur. Anna Guðný Guð-
mundsdóttir píanóleikari,
Sigurður Ingi Snorrason
klarinettuleikari og Páll Ein-
arsson kontrabassaleikari
flytja Vínarmúsík.
Áð loknum skemmtiatrið-
um verður stiginn dans við
leik Dúkkulísanna frá Egils-
stöðum. Húsið opnar kl. 21
en skemmtuninni lýkur kl.
01.00.
Fimmtudagur 24. október 1985
Launin hækka umfram lánskjaravísitölu:
Launavísitalan
hækkar um 6,9%
- en lánskjara um 2,8%
■ Launavísitalan, sem Hag-
stofan reiknar út til greiðslu-
jöfnunar, er 1115 stig fyrir nó-
vembermánuð, sem er 6,9%
hækkun frá launavísitölu okt-
óbermánaðar. Launavísitalan
hefur hækkað um 47,3% á einu
ári, nóv./nóv. Útreikningur
hennar byggist á upplýsingum
frá Kjararannsóknarnefnd og
Þjóðhagsstofnun.
Lánskjaravísitalan fyrir nóv-
ember er 1301 stig, sem er
hækkun um 2,8% frá október-
vísitölu. Hækkun hennar á einu
ári er 38,7%.
Hið mikla - og margumrædda
- misvægi þessara vísitalna, sem
myndaðist á tímabilinu nóv.
1982 til október 1983 þegar
lánskjaravísitalan var orðin
28,3% hærri en hin, hefursíðan
farið minnkandi. Þessi munur
er nú kominn niður í 16,7%.
Til útskýringar má taka dæmi
um 10.000 kr. frá nóvember
1983. Verðtryggð með láns-
kjaravísitölu væri upphæðin nú
í nóvember 1985 orðin 15.850
kr.,en með launavísitölu 16.490
kr. á sama tíma. Lánskjaravísi-
talan hefði því verið hagstæðari
24. október 1985:
Konur um land allt
sameinast í dag
fyrir skulduga á þessum tveim
árum.
Sama upphæð frá því í nóv-
ember 1982 - þegar misvægið
byrjaði - væri nú 29.300 tryggð
með lánskjaravísitölu, en
25.570 með launavísitölu.
Hækkun launavísitölu og láns-
kjaravísilölu:
Hækkun okt./nóv. 6,9% 2,8%
Hækkun s.l. 3 mán. 10,5% 8,0%
Hækkun s.l. 6 mán. 22,1% 16,3%
Hækkun áramót-nóv. 33,5% 29,3%
Hækkun á einu ári 47,3% 38,7%
Hækkun s.l. 2 ár 64.9% 58,5%
Launavísitalan hefur jafnað-
arlega hækkað umfram láns-
kjaravísitölu hvaða tímabil sem
tekin eru s.l. tvö ár, sem sjá má
af tölunum hér að ofan. Mesti
munur þessara tveggja vísitalna
var í október 1983, þegar láns-
kjaravísitalan var 28,3% hærri
en launavísitalan. Sá munur er
nú kominn niður í 16,7% rniðað
við nóvembervísitölur 1985.
í dag á degi Sameinuðu
þjóðanna munu konur um allt
land koma saman til að minnast
10 ára afmælis kvennafrídagsins
og leggja um leið áherslu á
launakröfur sínar og minna á
mikilvægi vinnuframlags
kvenna.
Konur á Akranesi ætla að
fjölmenna með Akraborginni
til Reykjavíkur og taka þar þátt
í baráttunni með reykvískum
kynsystrum sínum.
Að sögn Margrétar Tryggva-
dóttur í Borgarnesi ætla konur
að hittast á hótelinu í Borgar-
nesi yfir kaffibolla og sagði hún
að mjög margar konur ætli að
taka sér frí og um kvöldið
verður skemmtidagskrá sem
jafnréttisnefndin og ýmsar kon-
ur standa að. Þar verður fluttur
leikþáttur af félögum í leikdeild
Ungmennafélagsins Skalla-
gríms. Margrét sagði að aðal-
áhersla yrði lögð á launakjör
kvenna og þá launamismunun
sem ríkir i þjóöteiagmu.
Konur í Ólafsvík og Stykkis-
hólmi verða ekki með skipu-
lagða dagskrá, nema þær ætla
að hittast á hótelum staðanna
um miðjan daginn, ræða málin
og fylgjast með rás tvö en þar
verða eingöngu konur við
stjórnvölinn.
fsflrskar konur ætla að koma
saman í Þinghól og borða kvöld-
verð og sagði símastúlka Pósts
og síma þar að talsverð sam-
staða væri um að leggja niður
vinnu en skipulögð dagskrá
verður ekki um daginn, nema ef
það væri að konur hittist í kaffi
einhversstaðar.
í Bolungarvík munu konur
hittast í Verkalýðshúsinu og
þær ætla að taka með söngbæk-
ur og ræða málin, mest launa-
málin yfir kaffibolla.
Á Akureyri verður heljar-
mikil dagskrá að sögn Úlfhildar
Rögnvaldsdóttur. Dagskráin
byrjar í Alþýðuhúsinu kl. 9 um
morguninn og þar verður opið
hús allan daginn. Launamálin
og launamisréttið verður í al-
gjörum brennidepli og ýmis
skemmtiatriði verða flutt, m.a.
frumsamdir leikþættir eftir kon-
ur á Dalvík og á Akureyri. Þá
munu 9 konur kynna stéttarfé-
lögsín kl. 11 ogkl. 5 verðaúrslit
kynnt í smásögu- og ljóðasam-
keppni sem efnt var til meðal
kvenna í sumar. Um kvöldið
verður létt skemmtidagskrá sem
leikkonur úr Leikfélagi Akureyr-
ar flytja ásamt fleirum. Úlfhild-
ur bjóst við að þátttaka yrði
mjög góð og sagði hún að yfir-
skrift dagsins hjá þeim væri:
Sýnum, kynnum, krefjumst.
Þess má geta til gamans að
Akureyrarkonur eiga í raun
heiðurinn að því að endurvekja
þennan dag, þær byrjuðu að
undirbúa sig í janúar í vetur og
voru þá ákveðnar í að gera
daginn eftirminnilegan.
í Neskaupstað munu konur
ganga í kröfugöngu frá Bræðsl-
unni að Egilsbúð og þar verður
uppi höfð ýmiskonar skemmtun
og dagskrá. ína Gísladóttir gat
þess að megináherslan yrði á
launakjör kvennastétta í land-
inu og starfshópur um Samtök
kvenna á vinnumarkaðinum
mun verða stofnaður í tilefni
dagsins.
Konur á Höfn í Hornafírði
munu koma saman í Miklagarði
milli 2 og 6 munu ræða leiðir til
úrlausnar á launamisréttinu.
Konur á Selfossi fara að öllum
líkindum í hópferð til Reykja-
víkur eins og konur af Akranesi.
Sama munu einhverjar gera í
Keflavík, en þar verður annars
dagskrá í Holtaskóla.
Því miður tókst NT ekki að
ná í fleiri staði til að fá fréttir af
þessum degi en óskar konum
alls staðar góðs gengis.
Samband fisk-
vinnslustöðva
Aðalfundur
■ Aðalfundur Sam-
bands fiskvinnslustöðva
1985 verður haldinn á
Hótel Sögu, á morgun
föstudag. Meginviðfangs-
efni fundarins verður frek-
ari stefnumótun í málefn-
um fiskvinnslunnar. Starf-
að verður í fjórum starfs-
hópum; um reksrarskil-
yrði fiskvinnslunnar, innra
skipulag sjávarútvegsins,
fiskveiðistefnuna, og
stöðu hagsmunasamtaka.
Á fundinum munu einnig
ráðherrarnir Þorsteinn
Pálsson og Halldór Ás-
grímsson halda erindi.
r
BLAÐBERA
VANTAR í EFTIRTAUN HVERFI:
Suðurlandsbraut, Síðumúla, Birkimel, Grenimel, Hofsvalla
götu og Háaleitisbraut. Einnig vantar börn á biðiista í öll
hverfi.
Dúkkulísurnar og dömufrí
■ Hljómsveitin Dúkkulísurnar
(Muniði ekki eftir Pameiu í
Dallas?) er nú komin frá Egils-
stöðum til Revkjavíkur til að leika
á dansleik á Hótel Borg í kvöld.
Það verður dömufrí á dansleikn-
um, svo karlar geta nú óhræddir
haldið að sér höndum.
Áður en Dúkkulísurnar syngja
og leika verður flutt skemmtidag-
skrá. Kór Kársnesskóla mun
syngja undir stjórn Þórunnar
Björnsdóttur, Helga Thorberg og
fleiri flytja frumsaminn leikþátt
Helgu „Að vera eða vera ekki",
Katrín Sigurðardóttir syngur ein-
söng, Anna Guðný Guðmunds-
dóttir, Sigurður Ingi Snorrason og
Páll Einarsson munu leika Vín-
armúsík. Kynnir verður Bríet
Héðinsdóttir.
Húsið opnar kl. 21 en dansleikn-
um lýkur kl. 01.
SíðumúlM 5. Sími 686300
Hagkaup
lokar
ídag
■ Hagkaup sendi NT
frétt þess efnis að fyrirtæk-
ið mun gefa öllum konum
frí í dag 24. október á
fullum launum og vill með
því sýna stuðning sinn í
verki við konur, en fyrir-
tækið reiðir sig að mestu á
vinnuafl kvenna.
Starfsemi Hagkaups
mun því lamast og verslan-
ir í Reykjavík, á Akureyri
og í Njarðvík verða lokað-
ar í dag.
Lestunar-
áætlun
Hull/Goole:
Jan.................27/10
Dísarfell .......... 4/11
Jan................ 10/11
Dísarfell ......... 18/11
Jan.................24/11
Dísarfell .......... 2/12
Jan ................ 8/12
Rotterdam:
Disarfell .......... 5/11
Dísarfell ......... 19/11
Disarfell .......... 3/12
Antwerpen:
Disarfeil .......... 6/11
Dísarfell ..........20/11
Dísarfell .......... 4/12
Hamborg:
Dísarfell ..........25/10
Disarfell .......... 8/11
Dísarfell ..........22/11
Dísarfell .......... 6/12
Helsinki:
Hvassafell......... 16/11
Larvik:
Jan ............... 28/10
Jan.................11/11
Jan ................25/11
Jan ................ 9/12
Gautaborg:
Jan.................29/10
Jan.................12/11
Jan.................26/11
Jan ............... 10/12
Kaupmannahöfn:
Jan.................30/10
Jan.................13/11
Jan ................27/11
Jan ............... 11/12
Svendborg:
Jan.................31/10
Jan................ 14/11
Jan................ 28/11
Jan ............... 12/12
Aarhus:
Jan.................31/10
Jan.................14/11
Jan ............... 28/11
Jan.................12/12
Gloucester, Mass.:
Jökulfell...........30/10
Jökulfell........... 2/12
New York:
Jökulfell...........31/10
Jökulfell........... 3/12
Portsmouth:
Jökulfell........... 1/11
Jökulfell........... 4/12
SKIMDEIUD
SAMBANDSINS
Sambandshúsinu
Pósth. 180 121 Reykjavík
Sími 28200 Telex 2101