NT


NT - 24.10.1985, Side 8

NT - 24.10.1985, Side 8
 Málsvari Irjálslyndis, samvinnu og félagshyggju Úlgefandi: Nútíminn h.f. Ritstj.: Helgi Péfursson Ritstjórnarfulltr.: Niels Árni Lund Framkvstj.: Guðmundur Karlsson Auglýsingastj.: Sfeingrímur Gíslason Innblaðsstj.: Oddur Ólafsson Skrifstofur: Síðumúli 15, Reykjavik. Simi: 686300. Auglýsingasími: 18300 Kvöldsímar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjórn 686392 og 686496, tæknideild 686538. Setning og umbrot: Tæknldelld NT. Prentun: Blaðaprent h.l. Kvöldsímar: 686387 og 686306 - Verð I lausasölu 35 kr. og 40 kr. um helgar. Áskrift 360 kr. Konur þurfa ekki að vera hræddar ■ í dag - 24. október, á degi Sameinuðu þjóðanna - eru 10 ár liðin frá því íslenskar konur lögðu niður vinnu til að vekja athygli á mikilvægi vinnuframlags síns í þjóðfélaginu. Þær hættu að hræra í pottunum, tóku ekki hlífarnar af ritvélunum.svöruðu ekki í símann á skrifstofunni, unnu ekki heimilisstörfin o.s.frv. og meðan karlarnir voru með börnin hjá sér í vinnunni söfnuðust konurnar saman á Lækjartorgi þar sem haldinn var einn stærsti útifundur í sögu þjóðarinnar - 25.000 konur. Þessi stórkostlegi atburður - kvennafríið - og þessi stórkostlega samstaða vakti heimsathygli. Hvílík sam- staða, sögðu konur og karlar erlendis og einmitt nýlega bárust íslenskum konum þær fréttir að konur í Bretlandi, Indlandi, Hollandi, Trinidad og Ghana ætluðu að fara að dæmi þeirra og leggja niður vinnu. En hvað hefur áunnist á íslandi á þessum 10 árum sem liðin eru? Þó nokkuð. Konur hafa fengið lagaleg réttindi, ný jafnréttislög þar sem meðal annars var kveðið á um að konur og karlar skuli hafa sömu laun fyrir sömu vinnu, og ekki megi mismuna kynjunum við mannaráðningar. Fleiri konur hafa farið út á vinnu- markaðinn, fleiri konur hafa farið út í langskólanám, fleiri konur sitja nú á þingi og í bæjar- og sveitarstjórn- um en áður. En víða er pottur brotinn. Ein ástæðan fyrir því að konur hafa leitað í auknum mæli út á vinnumarkaðinn er efnahagsleg nauðsyn því eins og málum er háttað verða tvær fyrirvinnur að vera á hverju heimili. Konur hafa einkum sótt í svokölluð kvennafög í langskóla- námi og færri konur sitja á þingi og í bæjar- og sveitarstjórnum á íslandi en á hinum Norðurlöndun- um. Og launamismunur kynjanna er gífurlegur. Árið 1983 voru meðallaun karla 60,7% af heildar- meðallaunum og meðallaun kvenna 38,7% af heild- armeðallaunum en á sama tíma var atvinnuþátttaka kvenna 69,3% en karla 87,9% á aldrinum 15-74 ára. Og þótt jafnréttislögin kveði skýrt á um að karlar og konur skuli fá sömu laun fyrir sömu vinnu er það sorgleg staðreynd að karlar fá í auknum mæli fríðindi eins og bílastyrki eða annað starfsheiti svo hægt sé að borga þeim hærri laun en konunni sem vinnur við hlið þeirra við nákvæmlega sömu störf en hefur annað starfsheiti. Kvennastéttunum svokölluðu eða þar sem konur eru í meirihluta er haldið niðri í launum enda hefur það jafnan verið metið til hærri launa að bera ábyrgð á beinhörðum peningum en að bera ábyrgð á lífi, limum og velfarnaði barna og fullorðinna sem þó skapa peningana sem þjóðfélagið hefur milli handanna. Við hljótum að knefjast þess að lagt verði nýtt verðmætamat á störf karla og kvenna í þjóðfélaginu. Við hljótum að krd|ast þess að karlar og konur njóti sömu virðingar, sömu kjara, sömu tækifæra. Við hljótum að krefjast hillkomins réttlætis - fullkominnar jafnstöðu kynjanna. Konur standið saman, þið þurfið ekki að vera hræddar! Jafnréttisbaráttan er lengri og erfiðari en margan grunaði, en konur, látið ekki deigan síga. Konur, þið hafið allt að vinna en engu að tapa. Standið saman því ef einstaklingurinn er virkur verður fjöldinn allur styrkur, og tökum okkur frí frá vinnu í dag. Áfram stelpur; válji er allt sem þarf! ■ Fyrir nokkru birtist í Austra, leiðari eftir Jón Krist- jánsson alþingismann. Jón ræðir þar um æskulýðsmál og þann vanda sem steðjar að ungu fólki vegna lífsgæða- kapphlaups og notkun vímu- efna. Jón segir m.a. „„Þvílíkir tímar, þvílíkur ungdómur," sagði vís maður eitt sinn. Alltaf er nóg til af siðapostulum. Þeir telja að heimur fari síversnandi og æsk- an sé verri í dag en í gær. Æskan er áreiðanlega ekki verr af guði gerð nú en áður hefur verið. Hitt er víst að hún lifir í viðsjárverðum heimi sem hinir fullorðnu hafa skapað. Nýir vímugjafar fara sem eldur yfir löndin, og heimilið sem áður var kjölfestan er í mörg- um tilfellum ekki það sama og áður var. Ytri aðstæður gera það að verkum að foreldrarnir eyða löngum vinnudegi utan heimilisins, ýmist til þess að vinna fyrir lífsnauðsynjum eða til þess að stunda lífsgæða- kapphlaupið, það fer eftir að- stæðum hvers og eins hver tilgangur vinnunnar er. Við þessar aðstæður er þróttmikið æskulýðsstarf nauðsynlegt, og ekkert er eins líklegt til þess að forða æsku- fólki frá því að verða vímugjöf- um að bráð, hverju nafni sem þeir nefnast.“ Þvínæst víkur Jón að æskulýðsstarfi á Austurlandi, en þar er mest allt æskulýðs- starf í höndum Ungmenna-og íþróttasambands Austurlands. „Því er þetta nefnt hér að á Austurlandi hefur verið rekið mjög öflugt æskulýðsstarf og er vert að vekja athygli á því. Ungmenna- og íþróttasam- band Austurlands er mjög öfl- ugt ásamt þeim félögum sem eru innan þess vébanda. Einn- ig hefur þjóðkirkjan tekið vax- andi þátt í æskulýðsstarfi. Á þeim vettvangi hafa þau tíðindi Fimmtudagur 24. október 1985 8 Æskulýðsstarf Jón Kristjánsson alþ. maður skrifar í Austra gerst að prestarnir eru farnir að vinna saman í vaxandi mæli á vettvangi Prestafélags Aust- urlands. Þeir hafa rekið öflug- ar sumarbúðir á Eiðum við góða aðsókn og vinsældir yngri þeim vettvangi til þess að sinna þessum málum og samræma starfið. Þessa starfsemi ber að styðja með ráðum og dáð, því hér er um ómetanlegt starf að ræða fyrir æsku Austurlands. „Þvílíkir tímar, þvílíkur ungdómur," sagði vís maður eitt sinn. Alltaf er nóg til af siðapostulum. Þeir telja að heimur fari síversnandi og æskan sé verri í dag en í gær. Við þessar aðstæður er þróttmikið æsku- lýðsstarf nauðsynlegt, og ekkert er eins líklegt til þess að forða æskufólki frá því að verða vímugjöfum að bráð, hverju nafni sem þeir nefnast. Æskan í dag þarfnast trúarlegs uppeldis og lífsfyllingar í iðkun íþrótta, þannig að kirkjan og íþróttahreyfingin eiga þarna fullkomna samleið. Æskulýðsstarfið hefur verið styrkt nokkuð af opinberum aðilum, ríki og sveitarfélög- um, en opinberu fé hefur áreiðanlega verið verr varið í ýmsum tilvikum, en með því að efla þennan stuðning að mun. kynslóöarinnar. Þessar sumar- búöir hafa verið reknar um árabil. Vaxandi æskulýðs- starfsemi er innan kirkjunnar á Austurlandi og hefur nú ver- ið ráðinn æskulýðsfulltrúi á Starf Ungmenna- og íþrótta- sambands Austurlands hefur verið mjög þróttmikið á undanförnum árum, og starf einstakra íþróttafélaga einkum í stærstu þéttbýlisstöðunum er ómetanlegt fyrir þá sem þess njóta. Ungmennafélagsandinn er síður en svo úrelt fyrirbæri ef hann er ræktaður og UÍA og aðildarfélög þess hafa leitast við að gera slíkt með starfi sínu. Því er vakin athygli á starfi þessara aðila hér, að með því að leitast við að skapa heil- brigða sál í hraustum líkama. Æskan í dag þarfnast trúarlegs uppeldis og lífsfyllingar í iðkun íþrótta, þannig að kirkjan og íþróttahreyfingin eiga þarna fullkomna samleið. Það er vert að geta þess sem er ekki veigaminnsti þátturinn í þessu starfi, það er að leiða saman unglinga frá hinum ýmsu byggðarlögum. Þannig skapast kunningja- og vináttu- bönd og gagnkvæmur skilning- ur sem hjálpar til, þegar til lengdar lætur, að eyða tor- tryggni og skapa samstöðu meðal Austfirðinga. Aukin samvinna og samstarf innan landshlutans eftir því sem sam- göngur batna er forsenda þess að blómleg byggð og gott mannlíf verði í þessum lands- hluta. Hlutur bættra og greið- ari samgangna í starfi þeirra aðila sem hér hafa verið gerðir að umtalsefni er ekki svo lítill, þótt mest muni um áhuga og dugnað þeirra einstaklinga sem í því standa. Æskulýðsstarfið hefur verið styrkt nokkuð af opinberum aðilum, ríki ogsveitarfélögum, en opinberu fé hefur áreiðan- lega verið verr varið í ýmsum tilvikum, en með því að efla þennan stuðning að mun.“ Það er fagnaðarefni að al- þingismenn skuli hugleiða æskulýðsmál og segja skoðanir sínar um þau. Æskulýðsstarfið þarf að njóta skilnings og stuðnings opinberra aðila eftir ákveðn- um reglum en þó verður alltaf að hafa það í huga að afskipti hins opinbera má aldrei skerða réttindi og ákvarðanatöku frjálsu æskulýðsfélaganna. Er kjölturakkinn þin ■ Það hefur vakið furðu og kvíða margra árvökulla íslend- inga hversu tegundum hunda og katta hérlendis hefur fjölg- að á undanförnum árum. Furðu vegna þess að allur inn- flutningur á slíkum gæludýrum er stranglega bannaður og kvíða vegna þess að brot á því banni getur haft hörmulegar afleiðingar í för með sér. Torkennilegustu tegundir hunda og katta Það er liðin sú tíö hér á landi að íslenskur fjárhundur og ís- lenskur köttur voru samnefn- arar fyrir það sem nefndist í daglegu tali hundur og kisa. Eins og gerist var feldur þess- ara dýra misjafnlega litur og það var eini þátturinn sem skildi að einstaklinga sömu tegundar. Allur misskilningur unr uppruna og rétt tegundar- heiti þessara sjálfsögðu heimil- isdýra var óhugsandi og þar fyrir utan hefði fáum dottið til hugar að leggja fyrir sig slíkar vangaveltur. Hundur var ein- faldlega hundur og köttur var köttur. En nú er tíðin önnur. Ýmis málarekstur er varðar hunda og ketti, svo og fjölda- margar sýningar á slíkum dýrum, hefur leitt í ljós að margir Islendingar hampa nú hinum torkennilegustu teg- undum hunda og katta. Það þarf ekki samanburðargetu hvíthærðs öldungs til þess að sjá að mörg þessara dýra voru ekki til hérlendis fyrir 20 árum síðan. Getur hugsast að um stórfellt smygl gæludýra til landsins hafi verið að ræða? Tja, svari því hver sem vill. Eitt er víst að innlendir rækt- endur eiga ekki heiðurinn, svo mikils eru þeir ekki megnugir þó margt geti. Að dýrka heimsk dýr Setjum svo að þeir Islend- ingar sem hafa kynnst erlend- um lifnaðarháttunr hafi tamið sér þá siðu margra erlendra þjóða að dýrka heimsk dýr sem mannleg væru, þá er alls ekki ólíklegt að þeir hinir sömu hafi neytt allra ráða til þess að flytja hingað þessar skynlausu skepnur ásamt meðfylgjandi ættartölum og öðru glingri. Illa niönnuð og vanbúin toll- gæsla hefur sannarlega gefið fullt tilefni til þess. Ef fágætum fuglum og eggjum er smyglað úr landi er ekki svo fráleitt að ætla að ferfætlingar fari inn. En gera hinir ábyrgu sér grein fyrir því hvað er í veði? Frá lokum síðustu heirns- styrjaldar hefur hundaæði breiðst frá A-Evrópu allt vestur að Ermasundi og norður að Eystrasalti. Fjöldi íslend- inga er kunnugur á Jótlands- skaga og þar verður sjúkdóms- ins vart sífellt norðar með hverju árinu sem líður, þráttVJy fyrir umtalsverðar gagnráð- stafanir Dana. Það þarf víst ekki að fjölyrða um eðli sjúk- dómsins sem er bráðsmitandi og bráðdrepandi. Hvaða spendýr sem er getur borið sjúkdóminn með sér og langur tími getur liðið án þess að einkenna hans verði vart. Hundaæðitilfelli í Bretlandi hafa verið blessunarlega fá og Bretar telja að þeim hafi hing- að til tekist að koma í veg fyrir útbreiðslu sjúkdómsins til villtra dýra. Breskir tollgæslu- nrenn hafa haft sérstakt eftirlit með flutningi gæludýra. Eru íslendingar betur í stakk búnir til að hrista af sér hundaæðis- slen en engilsaxneskir frændur þeirra? Fjölgun tegunda hunda og katta hérlendis á undan- förnum árum virðist benda til þess að það sé útbreiddur mis- skilningur.

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.