NT - 24.10.1985, Síða 23
Fimmtudagur 24. október 1985 23
sjónvarp
Rás2 kl. 10.
Konuveldi á kvennafrídegi
■ Konurnar á Rás 2 í dag
ætla aö halda upp á kvenna-
frídaginn með nokkuð
óvenjulegum hætti, þ.e. gefa
körlunum frí og setjast við
stjórnvölinn á Rás 2.
Þess vegna verða allir þættir
á Rás 2 í umsjón kvenna í dag,
sem og öll tæknivinnsla. Ekki
nóg með það heldur fá karlarn-
ir ekki einu sinni að komast að
í Gestagangi Ragnheiðar
Davíðsdóttur í kvöld, þar
verða tveir gestir, kvenkyns að
sjálfsögðu, þær Laufey Jak-'
obsdóttir húsmóðir og Ijóð-
skáld og Valgerður Þórsdóttir
17 ára nemi við Menntaskól-
ann í Hamrahlíð.
Það verður því fátt um djúp-
ar raddir á Rásinni í dag,
sannarlega er þetta áhrifarík
aðferð til að undirstrika
kvennafrídaginn.
■ Þær láta sér fátt fyrir brjósti brenna konurnar á Rás 2. Standandi frá v.: Ásta Ragnheiður
Jóhannesdóttir, Andrea Jónsdóttir, Ragnheiður Davíðsdóttir. Aðalheiður ísleifsdóttir, Valdís
Gunnarsdóttir, Heiðbjört Jóhannsdóttir, Ellý Vilhjálms, Inger Anna Aikman, Elín Kristinsdóttir
og Kristín Valgeirsdóttir. Sitjandi f.v.: Aðalheiður D. Sigurðardóttir, Nanna Gunnarsdóttir,
Margrét Blöndal og Ragnheiður Þórðardóttir. Á myndina vantar tæknimenn.
Utvarp kl. 11.10:
Tengsl vinnuskil-
yrða og heilsu-
fars verkafólks
- í þættinum Úr atvinnulífinu
■ Vöðvabólga meðal kvenna sem vinna í frystihúsum er m.a. ■ ýr atvinnulífinu - Vinnu-
mjög algengur atvinnukvilli. Hlustendur fá góðar leiðbeiningar staðir og verkafólk, verður á
um rétta líkamsbeitingu við vinnu í þættinum „vinnustaðir og dagskrá útvarps í dag í umsjón
verkafólk“, í dag. Harðar Bergmann. Hörður
Ærsladraugurinn
- eftir Noel Coward
■ í útvarpi í kvöld verður
flutt hið góðkunna gaman-
leikrit „Ærsladraugurinn", eft-
ir Noel Cowarad, í þýðingu
Torfeyjar Steinsdóttur. Leik-
stjóri er Inga Bjarnason.
Leikritið segir frá rithöfundi
nokkrum sem efnir til anda-
fundar með þekktum miðli
sem hann ætlar að nota sem
fyrirmynd að svikulli persónu í
næstu bók sinni. Honum
bregður hinsvegar í brún þegar
andi fyrri konu hans, sem látin
er fyrir allmörgum árum, lætur
í sér heyra og virðist hafa fullan
hug á að taka upp samband við
fyrri eiginmann sinn. Seinni
kona rithöfundarins kemst nú
brátt að því hvað sú framliðna
hefur í hyggju, en jafnvel
draugum geta orðið á mistök.
I aðalhlutverkum eru: Þor-
steinn Gunnarsson, Þórunn
Magnea Magnúsdóttir, Sigur-
veig Jónsdóttir og Anna
Kristín Arngrímsdóttir. í öðr-
um hlutverkum eru Viðar
Eggertsson, Jónína Ólafsdóttir
og Sigurjóna Svcrrisdóttir.
Tæknimenn eru Friðrik
Stefánssor, og Rúnólfur Þor-
láksson.
Leikritið verður endurtekið
laugardaginn 26. október kl.
20.15.
ætlar í þættinum að fjalla um
mikilvægi réttrar líkamsbeit-
ing við vinnu og þá um leið
tengsl á milli vinnuskilyrða
verkafólks og heilsufars þeirra.
Þórunn Sveinsdóttir sjúkra-
þjálfari mun í þættinum flytja
pistil með hagnýtum leiðbein-
ingum um líkamsbeitingu við
vinnu einnig verður spjallað
við Unni Guttormsdóttur
sjúkraþjálfara um námskeið í
starfsstöðum og líkamsbeit-
ingu, sem hún hefur annast
fyrir Verslunarfélag Reykja-
víkur og fleiri aðila. Lögð
verður áhersla á að inn í þctta
komi, ekki bara fræðsla heldur
einnig leiðbeiningar fyrir út-
varpshlustendur, þá sérstak-
lega verkafólk og þá sem vilja
huga að réttri líkamsbeitingu
við vinnu.
Fimmtudagur
24. október
7.00 Veöurfregnir. Fréttir. Bæn.
7.15 Morgunvaktin
7.20 Morguntrimm.
7.30 Fréttir. Tilkynningar.
8.00 Fréttir. Tilkynningar.
8.15 Veöurfregnir.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
„Hættuferð í frumskógum Afr-
íku“ Þórir S. Guðbergsson les
frásögn sína (3).
9.20 Morguntrimm. Tilkynningar.
Tónleikar, þulur velur og kynnir.
9.45 Þingfréttir.
10.00 Fréttir.
10.05 Daglegt mál. Endurtekinn þátt-
ur Helga J. Halldórssonar frá
kvöldinu áður.
10.10 Veðurfregnir.
10.25 Lesið úr forustugreinum dag-
blaðanna.
10.40 Ég man þá tíð. Hermann
Ragnar Stefánsson kynnir lög frá
liðnum árum.
11.10 Úr atvinnulífinu - Vinnustað-
ir og verkafólk. Umsjón: Hörður
Bergmann.
11.30 Morguntónleikar. Píanósón-
ata í E-dúr D.459 eftir Franz
Schubert. Ingrid Haebler leikur.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Fréttir.
12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar.
Tónleikar.
13.30 í dagsins önn - Umhverfi.
Umsjón: Ragnar Jón Gunnarsson.
14.00 Miðdegissagan: „Skref fyrir
skref“ eftir Gerdu Antti. Guðrún
Þórarinsdóttir þýddi. Margrét
Helga Jóhannsdóttir les (3).
14.30 Á frívaktinni. Þóra Marteins-
dóttir kynnir óskalög sjúklinga.
15.15 Suðurland í dag. Umsjón:
Hilmar Þór Hafsteinsson.
15.40 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 „Tónlist tveggja kynslóða.“
Þáttur Sigurðar Einarssonar.
17.00 Barnaútvarpið. Stjórnandi:
Kristín Helgadóttir.
17.40 Listagrip. Þáttur um listir og
menningarmál. Umsjón: Sigrún
Björnsdóttir. Tónleikar. Tilkynning-
ar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir.
19.40 Tilkynningar.
19.45 Daglegt mál. Sigurður G. Tóm-
asson flytur þáttinn.
20.00 Leikrit: „Ærsladraugurinn"
eftir Jioel Coward. Þýðandi: Torf-
ey Steinsdóttir. Leikstjóri: Inga
Bjauíason. Leikendur: Þorsteinn
Gunnarsson, Þórunn Magnea
Magnúsdóttir, Sigurveig Jónsdótt-
ir, Anna Kristín Arngrímsdóttir,
Viðar Eggertsson, Jónína Ólafs-
dóttir og Sigurjóna Sverrisdóttir.
Leikritið verður endurtekið laugar-
daginn 26. október kl. 2.0.15.
21.45 Clara Wieck-Schumann. a.
Scherzo nr. 2 í c-moll op. 14. b.
„Quatre piéces fugitives" (Fjögur
hverful smálög). Michael Ponti leik-
ur á pianó.
22.00 Fréttir. Dagskrá morgundags-
ins.
22.15 Veðurfregnir. Orð kvöldsins.
22.30 Fimmtudagsumræðan. Stjórn-
andi: Ásdis J. Rafnar.
23.00 Túlkun í tónlist. Umsjón:
Rögnvaldur Sigurjónsson.
24.00 Fréttir. Dagskrárlok.
Fimmtudagur
24. október
10:00-12:00 Morgunþáttur Stjórn-
andi: Arnþrúður Karlsdóttir.
14:00-15:00 í fullu fjöri Stjórnandi:
Heiðbjört Jóhannsdóttir.
15:00-17:00 Með siðdegiskaffinu
Stjómendur: Inger Anna Aikman
og Ásta Ragnheiður Jóhannes-
dóttir.
17:00-18:00 Gullöldin Lög frá 7.
áratugnum. Stjórnandi: Andrea
Jónsdóttir.
Þriggja mínútna fréttir sagöar
klukkan 11:00, 15:00, 16:00 og
17:00.
HLÉ ,
20:00-21:00 Vinsældalisti hlust-
enda Rásar 2 10 vinsælustu lögin
leikin. Stjórnandi: Margrét Blöndal.
21:00-22:00 Gestagangur Stjórn-
andi: Ragnheiður Davíðsdóttir.
22:00-23:00 Nú má ég Stjórnandi:
Ellý Vilhjálms.
23:00-24:00 Kvöldsýn Stjórnandi:
Valdís Gunnarsdóttir.
Föstudagur
25. október
19.10 Á döfinni Umsjónarmaður
Maríanna Friðjónsdóttir.
19.25 Svona gerum við Tvær
sænskar fræðslumyndir. Önnur
sýnir hvernig rólukeðjur eru búnar
til en hin salerni. Þýðandi og þulur
Bogi Arnar Finnbogason. (Nord-
vision - Sænska sjónvarpið)
19.40 Bjarni fer á bókasafnið Norsk-
ur barnamyndaflokkur í fjórum
þáttum. Þýðandi Jóhanna Jó-
hannsdóttir. (Nordvision - Norska
sjónvarpið)
19.50 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Þingsjá Fréttaþátturfrá Alþingi.
Umsjónarmaður Páll Magnússon.
20.55 Kastljós Þáttur um innlend
málefni. Umsjónarmaður Einar
Sigurðsson.
21.25 Skonrokk Umsjónarmenn Har-
aldur Þorsteinsson og Tómas
Bjarnason.
22.00 Derrick Annar þáttur. Þýskur
sakamálamyndaflokkur. Aöalhlut-
verk: Horst Tappert og Fritz
Wepper. Þýðandi Veturliði Guðna-
son.
23.00 Leppurinn (The Front) Banda-
risk gamanmynd frá 1976. Leik-
stjóri Woody Allen. Aðalhlutverk:
Woody Allen, Zero Mostel og And-
rea Marcovicci. Myndin gerist á
árum kalda striðsins I Bandarikj-
unum þegar ýmsir rithöfundar voru
teknir til bæna fyrir stjórnmála-
skoðanir sinar.
00.35 Fréttir i dagskrárlok
flokksstarf
Framsóknarvist
Framsóknarfélag Reykjavíkur heldur Framsóknarvist n.k.
sunnudag, 27. október, aö Hótel Hofi kl. 14.
Veitt veröa þrenn verðlaun karla og kvenna.
Aögangseyrir er kr. 200 og eru kaffiveitingar innifaldar í því
verði.
Jón Helgason dóms- og landbúnaðarráðherra flytur stutt
ávarp í kaffihléi.
Allir velkomnir.
Framsóknarfélag Reykjavík
Menntamálanefnd SUF
Fundur verður haldinn í menntamálanefnd SUF mánudaginn
28. október n.k. kl. 17.30. Fundurinn er öllum opinn.
Stjórnin
Matreiðslumaður
Óskum að ráða matreiðslumann til starfa í
Skagfirðingabúð, vöruhúsi félagsins á Sauð-
árkróki. Upplýsingar gefur Þorkell Guð-
brandsson í síma 95-5200.
Kaupfélag Skagfirðinga
Auglýsing frá
fjárveitinganefnd Alþingis
Fjárveitinganefnd Alþingis mun sinna viðtölum vegna af-
greiðslu fjárlaga 1986 frá 28 okt. -15. nóv. n.k. Beiðnum um
viðtöl við nefndina þarf að koma á framfæri við starfsmann
nefndarinnar, Jón R. Pálsson, I síma 11560 eftir hádegi eða
skriflega eigi siðar en 9. nóvember n.k.
Skrifleg erindi um fjárveitingabeiðnir á fjárlögum 1986 þurfa
að berast skrifstofu Alþingis fyrir 15. nóvember n.k. ella er
óvíst að hægt verði að sinna þeim.
Innilegar þakkir sendi ég öllum þeim sem
glöddu mig með heimsóknum, gjöfum, blóm-
um og heillaskeytum á sjötugsafmæli mínu
þann 20. október. Guð blessi ykkur öll.
Kristján Teitsson
Skólagerði 61
t
Maðurinn minn og faðir okkar
Magnús Sigurbjörnsson
bóndi
Glerárskógum í Dalasýslu
verður jarðsunginn frá Hvammskirkju í Dölum, laugardaginn
26. október kl. 14.00 Ferð verður frá Umferðarmiðstöðinni kl.
9 sama dag.
Eðvaldína M. Kristjánsdóttir
Kristrún M. Waage
Björk Magnúsdóttir
Bjarnheiður Magnúsdóttir
t
Eiginkona mín og móðir okkar
Emma Guðrún Karlsdóttir
Víðivöllum 18
Selfossi
sem lést 18. október sl. verður jarðsungin frá Selfosskirkju
laugardaginn 26. október kl. 13.30. Blóm eru vinsamlegast
afþökkuð, en þeir sem vildu minnast hennar er bent á
líknarstofnanir.
Ingvi Ebenhardsson
Guðrún Erla Ingvadóttir
Jónína ingvadóttir
t
Þökkum hjartanlega samúð, vináttu og hlýhug við andlát og
jarðarför konu minnar, móður okkar, tengdamóöur og ömmu.
Önnu Sigríðar Sigurjónsdóttur
Torfastöðum, Fljótshlið.
Sérstakar þakkir fyrir öll minningarskeytin og blómin, svo og
til lækna og hjúkrunarfólks á Borgarspítalanum í Reykjavík.
Baldur Árnason
Ólafur B. Baldursson Jóna S. Guðmundsdóttir
Sigurdís B. Baldursdóttir
Árni Baldursson
Marsibil Baidursdóttir Þorsteinn Hafsteinsson
Jóhann Baldursson Guðbjörg Sigurþórsdóttir
og barnabörn