NT - 26.10.1985, Síða 15
8í_____8Éð(' ts«S4No .dfi tueM■it-rgitBJ
E Laugardagur 26. október 1985 19
M ng
Jóhann Skaptason
fyrrverandi sýslumaður
Jóhann Skaptason fyrrver-
andi sýslumaður í’ingeyjarsýslu
og bæjarfógeti Húsavíkur
andaðist að heimili sínu þann
17. október s.l.
Nokkur ár eru liðin frá því að
hann hætti embættisstörfum, en
þau hjónin Sigríður og Jóhann
nutu efri áranna á sínu myndar-
lega heimili Túni Húsavík, tóku
þar með rausn á móti vinum og
ættingjum, nutu haustdaga lífs-
ins við minningar um fjölbreytt
og litríkt ævistarf.
Þar sem Fnjóskáin brýst í
gegn um Dalsmynnið vestur til
Eyjafjarðar er sérkennilegt og
fagurt landslag, spilar þar sam-
an áin, brattar hlíðar fjallanna
og birkiskógurinn. t þessu um-
hverfi var og er frændgarður
JóhannsSkaptasonar. ÁSkarði
í Dalsmynni bjó afi hans Jóhann
Bessason og Sigurlaug Einars-
dóttir, þau merku hjón, og á
bökkum Fnjóskár, þar sem hún
steypist fram úr gljúfrunum
stendur bærinn Litlagerði. Þar
bjuggu upp úr aldamótunum
foreldrar Jóhanns, Skapti Jó-
hannsson og Bergljót Sigurðar-
dóttir, ættuð frá Kollastaða-
gerði á Völlum.
í Litlagerði fæddist Jóhann 6.
febrúar 1904 og var eini dreng-
urinn í systkinahópnum. Þaðan
minntist hann oft fyrstu
æskudaganna í litríku landslagi
heima hjá foreldrum og systkin-
um. En dvölin var þar stutt og
glöðu æskudagarnir fengu skjót-
an enda. Þegar Jóhann var að-
eins þriggja ára dó faðir hans frá
sjö ungum börnum og var það
hinum unga dreng og fjölskyld-
unni mikil raun.
Móðir hans reyndi að halda
barnahópnum saman, en lífs-
baráttan var erfið, mögu-
leikarnir takmarkaðir, svo að
flestum barnanna varð að koma
í fóstur. Eitt sinn sagði Jóhann
mér að hann hefði stöðugt geng-
ið með þann ótta í brjósti að
móðir hans mundi ætla að koma
sér í fóstur til vandalausra, en
það gat hann ekki hugsað sér að
skilja við móður sína. í þessu
sambandi sagði hann mér frá
því að eitt sinn þegar hann var
um fimm ára gamall, hafi móðir
hans tekið hann með sér til að
heimsækja frændfólk sem þau
áttu á Seyðisfirði. Þessi ferð
varð Jóhanni eftirminnileg, því
hann var hræddur um að hún
færi frá Seyðisfirði án þess að
hann vissi og mundi skilja hann
eftir í fóstri þarna til langframa.
Eitt sinn tapaði litli drengur-
inn af móðurinni, líklega vegna
þess að hún hafi brugðið sér í
næsta hús. En þá varð Jóhann
óttasleginn og hélt að hún væri
farin norður, en hann einn eftir
hjá vandalausum. Þá tók litli
drengurinn til sinna ráða og
ætlaði að strjúka norður til
heimahaganna í Dalsmynni, og
stefndi hröðum skrefum upp á
Fjarðarheiði. Þegar drengurinn
var týndur var hafin af mörgum
miki'i leit og fannst hann neðar-
lega á Fjarðarheiðinni á leiðinni
heim. Ef til vill hefur þetta atvik
orðið til þess að aldrei síðar var
um það talað að hann þyrfti að
yfirgefa móður sína, nema sem
sumardrengur í sveit.
Ég segi frá þessari bernsku-
sögu hér vegna þess að ég veit
að föðurmissirinn og erfiðleikar
fjölskyldu hans og hin mikla ást
Jóhanns til móðurinnar, settu
þegar í upphafi varanlegt svip-
mót á skaphöfn hans og lífsstíl
allan.
En þó að fátækt og erfiðleika
bæru að garði fjölskyldunnar,
var Jóhann Skaptason fæddur
inn í hóp aldamótakynslóðar-
innar. Þegar á æskuárum, eign-
aðist hann sína drauma um
skólagöngu og að verða þátttak-
andi að byggja upp betra mann-
líf í landi okkar.
Jóhann hóf skólagönguna á
Akureyri, en þá var fjölskyldan
flutt þangað, en tók stúdents-
próf frá Menntaskólanum í
Reykjavík vorið 1927 og lög-
fræðipróf frá Háskóla íslands
1932, hann var um tíma við
framhaldsnám erlendis.
Um þetta leyti, eða árið 1930
giftist Jóhann, Sigríði Víðis
Jónsdóttur, ættaðri frá Þverá í
Láxárdal, mikilli mannkosta-
konu og góðum lífsförunaut.
Nú voru bjartir dagar fram-
undan, og ungu hjónin trúðu á
lífið og framtíðina. Fyrir Jó-
hann voru erfiðleikar æskudag-
anna að líða hjá og þau fylgdu
hinum stóra ötula hópi alda-
mótafólksins á vit nýrra og
mikilla verkefna.
Þegar Jóhann Skaptason var
31 árs gamall er hann skipaður
sýslumaður Barðastrandar-
sýslu, segja má því að þegar
Jóhann og Sigríður flytja til
Patreksfjarðar byrji lífsstarfið
fyrir alvöru. Auk embættis-
starfa kom Jóhann mjög við
sögu um framfarir og félagsmál.
Hann var í stjórn Eyrarspari-
sjóðsins, stóð að uppbyggingu
Hraðfrystihússins og hafði for-
ystu um byggingu sjúkrahúss-
ins, svo að nokkuð sé nefnt.
Hann ritaði fyrir Ferðafélag
íslands, Árbók um Barða-
strandarsýslu og náttúrufar
hennar, enda var hann orðinn
vel kunnugur héraðinu, því
marga ferðina voru þau hjónin
búin að fara á hestunum sínum
um sveitirnar allar og áttu vin-
um að mæta. Þau hjónin töluðu
oft um dvölina fyrir vestan, en
þar voru þau í tuttugu og eitt ár.
Þar voru hnýtt vinabönd sem
ekki slitnuðu.
Árið 1956 rættist leyndur
gamall draumur Jóhanns
Skaptasonar. Þá var hann
skipaður sýslumaður Þingeyjar-
sýslu og bæjarfógeti Húsavíkur,
hann var þá 52 ára. Jóhann var
mikill Þingeyingur, sveitamaður
Afmælis- og
minningargreinar
Þeim, sem óska birtingar á afmælis- og
eða minningargreinum í blaðinu, er
bent á, að þær þurfa að berast a.m.k.
tveim dögum fyrir birtingardag. Þær
þurfa að vera vélritaðar.
í húð og hár, og málsvari þeirrar
menningar sem hér hefur ríkt,
með sterkar rætur meðal frænda
og vina frá æskudögum. Það var
honum því mikil hamingja að fá
tækifæri til að vinna með þessu
fólki sem byggði héraðið og
vera aftur kominn heim. Sigríð-
ur átti líka upphaflegu ræturnar
í Laxárdalnum, svo að heim-
koman til Húsavíkur, var heim-
koma þeirra beggja.
Þegar Jóhann Skaptason tók
við sýslumannsembættinu í
Þingeyjarsýslu flutti hann með
sér mikla starfsreynslu sem
reglusamur embættismaður úr
gamla skólanum og lagði mikla
og nákvæma vinnu í skyldustörf-
in , og svo tók hann til óspilltra
mála að sinna áhugamálum
sínum, sem urðu að lokum stór
þáttur af ævistarfi hans.
Hann kom með sér full-
mótaðar teikningar að stóru og
vönduðu íbúðarhúsi og við-
byggingu fyrir embættið, hann
kom þessu upp á stuttum tíma
og nefndi Tún, stór lóð var
umhverfis þar sem nú er mikill
trjágróður.
Jóhann var merkur náttúru-
fræðingur, þá þekkingu aflaði
hann sér með lestri bóka um
þau efni, hann bar með sér
mikla ást til íslenskrar náttúru,
ferðaðist töluvert um landið,
safnaði stöðugt steinum,
fuglum, ýmsu úr jarðfræði og
þekkti vel til flóru íslands. Af
öllu þessu kom hann með all-
mikið að vestan frá Patreksfirði,
og varð það síðar uppistaðan að
söfnunum, sem hann stóð fyrir
að koma upp á Húsavík.
Jóhann Skaptason hafði mik-
inn áhuga að efla þingeyska
menningu, og hann var ekki
lengi að framkvæma þær hug-
sjónir sínar. Hann stóð fyrir
þeirri merkilegu framkvæmd,
sem er bygging Safnahússins á
Húsavík. Hann fékk stóra lóð í
miðbænum sem rúmar fleiri
stórbyggingar, svona var bjart-
sýni hans, áhugi og reisn.
Bygging Safnahússins hófst
1967 og stóð yfir í 12 ár. Jóhann
var formaður byggingarnefndar
allan tímann, og það er skoðun
allra að án hans dugnaðar hefði
ekki orðið af þessum fram-
kvæmdum. Hann fékk til liðs
við sig um 170 einstaklinga, sem
allir lögðu fé til byggingarinnar,
sumir stórfé.
Á vígsludegi Safnahússins 24.
maí 1980 þegar söfnin voru
opnuð almenningi afhenti Jó-
hann eignaraðilum S-Þingeyjar-
sýslu og Húsavík, Safnahúsið
skuldlaust með öllu, en inni-
stíeðu á byggingarreikningi,
þessi saga er eins og ævintýri.
Á þessum degi voru þau glöð
Jóhann og Sigríður, mikill
draumur hafði ræst. Þingeying-
ar fjölmenntu og þökkuðu þeim
af heilum hug, glæsilega forystu
um byggingu Safnahússins, sem
fyrst og fremst er þeirra verk.
Þegar Jóhann skilaði af sér
þessum framkvæmdum hafði
hann skipulagt í aðalatriðum
náttúrugripasafnið, byggða-
safnið og að nokkru leyti skjala-
safnið. Bókasafnið var tekið í
notkun fyrr. Þetta stóra verk
þeirra sýslumannshjónanna, og
samstarfsfólks þeirra er mikill
og veglegur minnsivarði, sem
setur svip á héraðið allt og eflir
þingeyska menningu.
Jóhann ritaði um þetta leyti
Árbók F.í. um S-Þingeyjarsýslu
austan Skjálfandafljóts.
Árið 1958 stóð hann fyrir að
gefa út nýtt tímarit, Árbók
Þingeyinga, ritaði hann upp-
hafsorð og lýsti því að þetta ætti
að vera rit sem geymir ýmis
menningarmál, atburði og
hverskonar sögulegar heimildir
sem snerta Suður- og Norður-
Þingeyjarsýslu. Þetta rit hefur
komið út árlega og er eitt út-
breiddasta átthagarit sem gefið
er út á landinu. Sjálfur skrifaði
Jóhann töluvert í Árbókina, var
lengi í ritstjórninni og sá um
allar fjárreiður til 1979.
Þegar sýslumannshjónin
hættu störfum gáfu Þingeyingar
þeim fagurt málverk frá æsku-
byggð Jóhanns, Dalsmynninu.
Þar sést Fnjóskáin liðast, silfur-
tær í hinu fallega umhverfi,
gjöfinni fylgdu þakkir fyrir
merkileg menningarstörf í þess-
ari byggð.
Hjá frændfólkinu í Skarði
fékk hann land undir sumar-
bústað, sem hann byggði og
nefndi Skaptahlíð. Þar var hans
uppáhalds gróðurreitur, þar
kunni hann við sig, í sambýli við
skóginn, blómin og fuglana,
enda lágu þar hin léttu spor
smaladrengsins. Þarna var gott
að dvelja í önn dagsins.
Ég hefi áður sagt að Jóhann
nefndi íbúðarhús þeirra hjóna
Tún. Það fór vel á því, hann var
ræktunarmaður mikill, vann
töluvert að skógræktarmálum
og kom sér upp stórum trjágarði
við íbúðarhúsið. Grenitrén
skarta að sjálfsögðu fagurgræn
en núna á síðustu haustdögun-
um, þegar laufin eru nær öll að
falla af alaskaöspinni í garðin-
um þeirra hjóna, féll þessi sterki
stofn Jóhann Skáptason, hann
var allur, hann skildi eftir sig
menningarsögu, sem Þingeying-
ar gleyma ekki og þakka
lionum.
í fölva haustlitanna leggur
hann nú á heiðina í átt til
landamæranna eilífu til móts
við móður sína og föður, sem
hann unni svo mjög.
Við hjónin þökkum Jóhanni
Skaptasyni fyrir vináttu og sam-
starf og sendum Sigríði Víðis
samúðarkveðjur og óskum
henni blessunar í skjóli góðra
frænda og vina.
Finnur Kristjánsson
Emma Guðrún Karlsdóttir
Fædd 16. oktúber 1922
Dáin 18. oktúber 1985
Eftir löng og ströng veikindi
hefur Emma nú hlotið hvíldina
eilífu. Einhvernveginn er það
svo að aldrei verður maður
minni og varnarlausari en ein-
mitt þegar dauðinn knýr á dyr.
Efst í hgua mínum er þakklæti
fyrir að hafa kynnst Emmu,
þakklæti fyrir góða samfylgd
sem verið hefur mér mikils
virði.
Náin kynni okkar Emmu hóf-
ust um það leyti sem skyldunámi
okkar Jónu dóttur hennar var
að Ijúka. Alltaf hafði hún
brennandi áhuga á því sem við
vorum að starfa, hvort sem það
voru íþróttirnar eða námið.
Seinna eftir að við Jóna héldum
til framhaldsnáms og leiðir
skildu, hélt hún áfram að fylgjast
með af sama áhuganum. Þó svo
að við hittumst orðið æ sjaldnar,
var alltaf jafngaman að koma til
Emmu ogspjalla. Umræðuefnin
voru óþrjótandi. Því við hana
var hægt að tala um allt; heims-
málin, stjórnmál, íþróttir og
ekki síst öll manns hjartans
mál. Emma átti við erfiðan
sjúkdóm að glíma. En sá vilja-
styrkur og það þrek sem hún
sýndi í veikindum sínum er
aðdáunarvert og hjálpar
manni sjálfum að trúa á og meta
lífið. Emma með sinn sterka
persónuleika á alltaf eftir að
verða mér minnisstæð.
Ég og fjölskylda mín biðjum
góðan guð að styrkja Jónu vin-
konu mína, lngva og Erlu og
veita þeim huggun harmi gegn.
Erla Gunnarsdúttir
Minning
Ólöf Jónsdóttir
Egilsstöðum
Fædd 23. júní 1896
Dáin 22. október 1985
Ólöfvar fædd á Egilsstöðum
á Völlum 23. júní 1896. dóttir
hjónanna Jóns Bergssonar
bónda, kaupmanns og póstaf-
greiðslumanns á Egilsstöðum f.
21. maí 1855 - d. 9. júlí 1924 og
konu hans Margrétar Péturs-
dóttur fædd á Brimnesi á Seyðis-
firði 28. mars 1865 d. 16. júlí
1944, Sveinssonar bónda og al-
þingismanns í Vestdal á Seyðis-
firði.
Börn þeirra hjóna voru 9.
fimm drengir og fjórar stúlkur.
Ólöf var sjötta barn þeirra
hjóna. Systkini hennar voru Sig-
ríður fædd á Seyðisfirði 24. maí
1888 og dó barn að aldri á
Seyðisfirði, Þorsteinn f. 20. júlí
1889 á Egilsstöðum, kaupfélags-
stjóri á Reyðarfirði, Sigríður f.
26. maí 1891, stöðvarstjóri póst
og síma á Egilsstöðum, Sveinn
bóndi Egilsstöðum f. 8. janúar
1893, Egill héraðslæknir á Seyð-
isfirði f. 17. júlí 1894, Bergur
bóndi Ketilsstöðum á Völlum f.
6. apríl 1899. Öll eru þessi
systkini Ólafar nú látin, en á lífi
eru Pétur bóndi á Egilsstöðum
f. 23. október 1904 og Unnur
íþróttakennari í Reykjavík f.
17. ágúst 1907.
Ólöf ólst upp hjá foreldrum
sínum á Egilsstöðum í stórum
systkinahóp og á mjög fjöl-
mennu heimili, þær sem foreídr-
ar hennar, auk þess að reka
stórt bú, höfðu með höndum
verslun, póst og símaafgreiðslu
og gistihús og greiðasölu. Voru,
oft á heimili nær fjórir tugir
manna.
Ung að árum fór Ólöf í Gagn-
fræðaskólann á Akureyri og síð-
er í Kvennaskólann í Reykja-
vík, í hússtjórn og síðan sigldi
hún til Kaupmannahafnar að
afla sér frekari menntunar. Er
hún kom heim var hún í fyrstu
hjá foreldrum sínum á Égils-
stöðum þeim til styrktar og
hjálpar við verslunina, sem þar
var rekin.
Eftir að bróðir hennar Þor-
steinn varð kaupfélagsstjóri á
Reyðarfirði, réðist hún til
Kaupfélagsins við skrifstofu- og
verslunarstörf. Var þetta laust
eftir 1920 og hjá Kaupfélaginu
á Reyðarfirði starfaði hún allt
þar til Kaupfélag Héraðsbúa
flutti á Egilsstaði, eftir að þorp
fór að myndast 1944, og við
vefnaðarvörudeild Kaupfélags
Héraðsbúa starfaði hún allt til
sjötugs.
Ég er þessar línur rita, kynnt-
ist Ólöfu föðursystur minni,
barn að aldri, en hún var í
heimili foreldra minna allan
þann tíma er ég var í foreldra-
húsum. Ólöf var vel gerð kona,
vel að sér las mikið, orðheppin
og fræddi okkur systkinin um
margt er áður var, en nokkuð
afskiptasöm og vildi aga okkur
og siða, sem við systkinin þau
eldri, kunnum ekki alltaf að
meta. Hún vildi okkur þó alltaf
vel og áhugi hennar var að
koma okkur til þroska, en hún
var kona ógift, barnlaus og átti
því ekki að önnur börn en
bræðrabörn sín, sem hún var
öllum góð. Við störf sín við
verslunina var hún vel kynnt,
enda var fjöldi viðskiptavina
Kaupfélagsins víðsvegar á Hér-
aði er skrifaði henni og bað
hana um aðstoð við val á einu
og öðru er konur þurftu með til
fatnaðar á heimilum og ekki
hvað síst að velja smekklega
svuntu og slifsisefni til íslenska
búningsins er konur þá
klæddust.
Ólöf hafði næmt fegurðar-
skyn, vinnusöm, ströng við
sjálfa sig og vann oft langan
vinnudag án þess að hirða um
að það færi fram yfir eðlilegan
og tilskildan vinnutíma. Þessu
kynntist ég vel, er ég starfaði
með henni við verslunina á
Reyðarfirði. Eftir að verslunin
kom á ný á Egilsstaði, og hún
fór að starfa þar, átti Ólöf
heimili með systur sinni Sigríði
og var svo allt til Sigríðar missti
við.
Ólöf var þá orðin fullorðin.
hætt störfum vegna aldurs og
heilsan farin að bila. Fór hún þá
fyrst til systur sinnar Unnar í
Reykjavík, var þar vetrarlangt,
en fór síðan aftur til síns heimilis
á Egilsstöðum. En heilsu henn-
ar hrakaði svo að hún varð að
vistast á heilsugæslustöðina á
Egilsstöðum og þar var hún þar
til yfir lauk að kveldi þriðju-
dagsins 23 þ.m. að hún fékk
langþráða hvíld.
A sjúkrahúsinu naut hún
góðrar umönnunar lækna,
hjúkrunarfólks og alls
starfsfólks, og var því öllu
þakklát. Ólöf var bundin Egils-
stöðum og gladdist yfir að mikið
og blómlegt kauptún var risið á
heimaslóðum hennar á hinu
heillandi og fagra Héraði.
Gengin er góð og trúuð kona,
en hún hafði það fyrir fasta
venju að lesa í Biblíunni á
hverju kvöldi að leita sér styrks
og huggunar meðan hún mátti.
Við systkinin þökkum sam-
fylgdina.
Utför Ólafar fer fram frá
Egilsstaðakirkju mánudaginn
28. október k. 14.00.
Margrét Þorsteinsdóttir.