NT - 26.10.1985, Blaðsíða 24
Vid tökum við ábendingum um fréttirallan solarhringinn. Greiddarverða 1000 krónurfyrirhverja ábendingu sem leiðir til
fréttar i blaðinu og 10.000 krónur fyrir ábendingu sem leiðir til bitastæðustu fréttar mánaðarins. Fullrar nafnleyndar er gætt
NT, Síðumúla 15, Reykjavík, sími: 686300, auglýsingar 18300
Kvðldsímar: áskrift og dreifing 686300 • ritstjórn 686392 og 687598 • íþróttir 686495
—i
—
Aðalfundur fiskvinnslustöðva:
Krefjast „réttrar“
gengisskráningar
- en ráðherrar hafna gengisfellingu
■ „Gengislækkun er engin
galdraformúla." Þetta má segja
aö hafi verið skilaboð Þorsteins
Pálssonar fjármálaráðherra til
aðalfundar Sambands fisk-
vinnslustöðva sem haldinn var í
gær. Þorsteinn sagði að gengis-
lækkun ein sér myndi ekki leysa
vanda sjávarútvegsins, heldur
yrðu að koma til víðtækari og
almennari hagstjórnaraðgerðir.
Hann sagði ennfremur að ríkis-
stjórnin væri að vinna að þess-
um málum, sbr. þá ákvörðun að
taka ekki crlend lán á næsta ári
umfram það sem þarf til afborg-
ana á þeim lánum sem þegar eru
fyrir hendi. Markaðsskráningu
á gengi taldi Þorsteinn ckki
heldur fýsilegan kost.
Halldór Ásgrímsson sjávarút-
vegsráöherra tók í sama strcng,
en í ávarpi sínu gerði hann
markaðsmál, fiskveiðistjórnun
og tekjuskiptingu milli atvinnu-
greina að umtalsefni.
Halldór sagðist meðvitaður
um vanda fiskvinnslunnar, en
þann vanda yrði að skoða í
samhengi við þjóðfélagsaðstæð-
ur í heild og skyndilausnir eins og
gengislækkun gætu haft alvar-
legar afleiðingar í för með sér.
Hann minnti á kjarasamninga
sem framundan væru og taldi
víst að sjávarútvegurinn gæti
ekki staðið undir miklum launa-
BSRB-þingið:
Samþykkt
að reisa
hljóðver
■ Þing BSRB samþykkti í gær
tillögu um að samtökin komi
upp hljóðveri í þeim tilgangi að
framleiða fræðslu- og útvarps-
efni, auk þess sem í hljóðveri
þessu geti farið fram þjálfun
fólks í dagskrárgerð. Einnig var
samþykkt að öðrum samtökum
launafólks verði boðin aðild að
hljóðverinu.
Með þessu tekur BSRB frum-
kvæði í þeim viðræðum sem
hafa átt sér stað milli samtak-
anna, ASÍ og SlS. Vilja ýmsir
meina að þarna hafi verið kveð-
inn upp dauðadómur yfir þeim
samræðum sem þessir aðilar
hafa átt í.
Hljóðver af þessu tagi þarf
ekki að kosta mjög mikið, en
þegar búið er að koma því upp
vantar ekkert nema sendi til að
hægt sé að byrja útsendingar.
„Það verður að byrja smátt,
síðan mun koma í ljós hvert
framhaldið verður,“ sagði ög-
mundur Jónasson, fréttamaður,
sem á sæti í Útgáfu og fjölmiðla-
nefnd BSRB þingsins.
Tillaga á Iðnþingi:
Breytt iðnlöggjöf
- starfsgreinar ekki lögverndaðar heldur „meistaratitillinna
■ Löggjafar- og skipulags-
nefnd Landssambands iðnað-
armanna lagði í gær fram tillögu
á þingi landssambandsins þess
efnis að iðnaðarlögum verði
breytt. í stað þess að starfsrétt-
indi verði lögvernduð verði
starfsheiti lögvernduð, þannig
að enginn megi kalla sig meist-
ara nema að ákveðnum skilyrð-
um uppfylltum.
Tillagan verður lögð fyrir
þingið í dag, þar sem hún fær
umfjöllun. Verði hún samþykkt
verður hún væntanlega felld inn
í stefnuskrá landssambandsins
sem er til endurskoðunar á þing-
inu. Sigmar Ármannsson lög-
fræðingur Landssambands iðn-
aðarmanna sagði í samtali við
NT í gær að eftir það yrði
tillögunni komið á framfæri við
opinbera aðila. Ástæðan fyrir
tillögunni mun vera sú að þessi
þáttur iðnlöggjafarinnar mun
vera hálf dauður bókstafur og
stjórnvöld hafi ekki framfylgt
ákvæðum varðandi brot á lög-
vernduðum starfsréttindum sem
skyldi.
Fari svo að þessi tillaga verði
síðar meir að frumvarpi og síðar
lögum, getur hver sem er sett
upp bakarí, rakarastofu og einn-
ig tekið að sér verkefni í málm
og skipasmíðaiðnaði. En hins-
vegar geta einungis þeir sem
hafa réttindi kallað sig meistara.
Sverrir Hermannsson
menntamálaráðherra talaði á
þinginu í gær. Meðal þess sem
hann sagði var að hann velti
fram þeirri spurningu hvort rétt
væri að færa fagmenntun í iðn-
aði undir fagráðuneytin, í stað
þess að allt heyrði undir
menntamálaráðuneytið. Að
iðnmenntun yrði færð undir
iðnaðarráðuneytið, fiskvinnslu-
skólinn og menntun stýrimanna
og skipstjórnarmanna yrði fært
undir sjávarútvegsráðuneytið.
Hátka á HeHisheiði:
hækkunum. Halldór sagði jafn-
framt að með hagkvæmni og
betri skipulagningu gæti sjávar-
útvegurinn skapað jákvæðara
almenningsálit, um leið og hann
ynni sig út úr vandanum.
Yfirskrift aðalfundarins í gær
var, „stefnumörkun í sjávarút-
vegi”, en aðal áherslan var þó á
rekstrarskilyrðum fiskvinnsl-
unnar.
Starf fundarins var með
tvennum hætti, fyrri hlutinn
fólst í venjulegum fundarstörf-
um að viðbættum ávörpum
þeirra Þorsteins Pálssonar og
Halldórs Ásgrímssonar.
Síðari hlutinn fólst í hópvinnu
um stefnumörkum greinarinnar
og voru viðfangsefni hópanna
eftirfarandi: Rekstrarskilyrði
fiskvinnslunnar; innra skipulag
sjávarútvegsins; fiskveiðistefn-
an 1986-1988; staða og hlutverk
hagsmunasamtaka.
Samband fiskvinnslustöðva
hefur að undanförnu lýst yfir
áhyggjum sínum vegna þeirra
skilyrða sem greininni er búin,
en þar hefur átt sér stað tap-
rekstur og stórfelld rýrnun á
eigin fé. Talsmenn fiskvinnsl-
unnar telja að úrbóta sé þörf nú
þegar en lagðar voru fyrir for-
sætis-, viðskipta- og sjávarút-
vegsráðherra s.l. sumar tillögur
■ . Menningarstofnun íslands og Bandaríkjanna - Fullbright-stofnunin bauð styrktarfélögum sínum til samkvæmis í gxrkvöldi. Meðal
þeirra gesta sem sérstaklega voru boðnir var Forseti íslands Vigdís Finnbogadóttir. Á myndinni sést þegar hún heilsar
sendiherrahjónunum bandarísku í gærkvöldi. NT.mvnd: Ámi Biama.
velta
■ Tvennt var flutt á
slysadeild eftir bílveltu
sem varð á Hellisheiðinni
í gærkvöldi. Fólksbifreið
valt í efri Hveradala-
brekkunni og er hálku
kennt um. Sjúkrabíll frá
Selfossi flutti hina slösuðu
á slysadeild Borgarspítal-
ans í gærkvöldi um klukk-
an 21. Þegar NT fór í
prentun var ekki vitað
hversu alvarleg meiðsli var
um að ræða.
til úrbóta. Ráðherra hefur nú
brugðist við þessu eins og grein-
ir frá annars staðar í blaðinu.
Tvö atriði ber hæst í hugmynd-
um fiskvinnslunnar, en það eru
erlend lán annars vegar og
gengisskráning hins vegar. I
ályktun sem var einróma sam-
þykkt á fundinum í gær segir
meðal annars:
„Láta verður skilyrðislaust af
skuldasöfnun erlendis. Sjávar-
útvegur á Islandi neitar að
standa lengur undir erlendum
lánum stjórnvalda. Koma verð-
ur í veg fyrir, að hið opinbera
og aðrar atvinnugreinar geti í
krafti erlends Iánsfjár yfirboðið
útflutningsgreinarnar á vinnu-
markaðinum.
Það er frumskilyrði, að
gengisskráning íslensku krón-
unnar og stjórn peninga- og
lánsfjármála miðist við, aö út-
flutningsgreinarnar standi undir
gjaldeyriseyðslu þjóðarinnar."
■ Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra í ræðustól í gær.
Aðalfundi Sambands fisk-
vinnslustöðvanna var ekki slitið
eins og gert hafði verið ráð fyrir
NT-mynd: Róbert
heldur frestað. Þetta var gert til
að leggja áherslu á þörfina fyrir
úrlausn í málum greinarinnar.