NT - 01.11.1985, Page 3
fíi? Föstudagur 1. nóvember 1985 3
LW Fréttir
Abstrakt andlit, olía á striga 64x46 sm.
Kvitturinn um Kjarvalsfalsanirnar:
Erfitt að
Bubbi Morthens:
Skaðabætur fyrir
brot á höf undarrétti?
-lögum af tónleikum hans ólöglega sjónvarpað
■ „Við erum búnir að fara fram á
skaðabætur, ég vona að við þurfum
ekki að fara út í málshöfðun fyrir brot
á höfundarrétti, en það verður hik-
laust gert ef skaðabætur fást ekki að
fullu greiddar," sagði Viðar Arnarsson
umboðsmaður Bubba Morthens í
samtali við NT eftir aö lögum af
tónleikum með Bubba, sem haldnir
voru á Akureyri var sjónvarpað um
kapalkerfi á Akureyri í vikunni.
„Tónleikar þeir sem um er að ræða
voru haldnir í félagsmiðstöðinni Dyn-
heimum á Akureyri sl. sunnudag, og
forstöðumaður félagsmiðstöðvarinn-
ar fékk að taka þá upp á myndband
með því skilyrði að opinber birting á
þeim væri stranglega bönnuð. Síðan
fcr maðurinn með þctta í kapalkerfi
sem nær til fjölda manns um alla
Akureyri án þess að spyrja kóng né
prest. Þetta er alveg skýlaust brot á
lögum, bæði er verið að brjóta höf-
undarrétt fyrir plötuútgefanda Bubba
og einnig er búið að gera samning um
að gerð kvikmyndarum hann þarsem
svona atriði eru notuð. Þetta er því
mjög alvarlegt brot.“
NT hafði samband við Steindór
Steindórsson forstöðumann félags-
miðstöðvarinnar Dynheima og spuröi
hvort greiddar yrðu skaðabætur.
„Ég kannast ekki við að liafa hcyrt
minnst á skaðabætur," sagði Stein-
dór. „Borguð verða höfundarlaun
fyrir þessa birtingu, sem var raunar
bara kynning á efni sem kannski er
mögulegt að fá að birta seinna. Auk
þess náðist hvorki í Bubba eða um-
boðsmann til að spyrja um leyfi á
þessari kynningu, sem ég hefði haldið
að væri alveg sjálfgefiö. Þessvegna
koma orð eins og skaðabætur eða
málshöfðun eins og þruma úr heið-
skíru lofti, ég tcl að þarna hafi ekki
veriö um lögbrot að ræða."
Ekki tókst að ná í Bubba Morthens
sjálfan til þcss að spyrja hann út í
málið, hann er nú farinn út til Sví-
þjóðar þar sem hann vinnur að gerð
nýrrar hljómplötu.
Leiðrétting
■ NT biðst velviröingar á
meinlegri prentvillu í nivndu-
texta undir mynd á forsíðu
blaðsins í gær. Geir Hall-
grímsson, utanríkisráð-
lierra, heitir Geir, en ekki
Geiri eins og prentast hafði.
sannreyna
■ Listfræðingar þeir sem NT ræddi
við vegna fullyrðinga um að 3 olíu-
málverk, á sýningu í Háholt í Hafnar-
firði á 155 Kjarvalsmyndum, væru
falsaðar voru á einu máli um það að
erfitt væri að segja af eða á um
réttmæti þessara fullyrðinga.
Myndirnar sem haldið er fram að
séu falsaðar eru olíumálverkin
Abstrakt andlit, 64x46 sm, Drauma-
landslag, 93x 103 sm og Fossar og fjöll
36x44 sm.
Halldór Björn Runólfsson list-
fræðingur sagðist í samtali við NT
hafa séð þessa sýningu, en einungis
myndin Abstrakt andlit gæfi sér tilefni
til efasemda og í því tilviki væri
signatúr myndarinnar nokkuð vafa-
samur. Ónefndur listfræðingur sem
ekki vildi láta nafns síns getið tók í
sama streng og sagði að úr því að
Kjarval hefði verið eins mistækur og
raun bæri vitni byði staðan upp á að
fúskarar reyndu að gera hann sér að
féþúfu. Sýningin í Háholti væri góð
og því væri svolítið glannalegt að
stilla þar upp svo vafasamri mynd
sem abstrakt andlit.
Ólafur Kvaran listfræðingur sagði í
samtali við NT að dóm um hvort
málverkin væru fölsuð eða ekki væri
ekki hægt að fella á íslandi þar eð alla
rannsóknaraðstöðu til prófa t.d. lita-
samsetningar og efnið sem unnið væri
úr og gera á því kemískar rannsóknir
skorti á fslandi. Sjálfur sagðist hann
ekki hafa séð sýninguna.
Gunnar B. Kvaran listfræðingur
sagðist heldur ekki hafa séð sýning-
■ Fossar og fjöll, olía, 36x44 sm.
una í Háholti en bætti því við að það
væri ekkert í dag sem benti til þess að
Kjarvalsmyndir væru falsaðar. Lítill
vandi væri hins vegar að rekja eig-
endasögu málverka í jafn smáu samfé-
lagi og Islandi, eigendur að Kjarvals-
myndum væru ekki nema ein eða
tvær kynslóðir, en sú saga gæti gefið
nokkra vísbendingu um hvort mynd-
irnar væru eftir meistarann eða ekki.
Hins vegar væru alltaf að koma upp
svona sögusagnir um falsaðar Kjar-
valsmyndir og að sínu mati væri þetta
bara hluti af stóru mýtólógíunni um
Kjarval. Enginn Kjarvalssérfræðing-
ur væri til hvorki á íslandi né annars
staðar. Engin heildarúttekt hefði
heldur verið gerð á ferli Kjarvals og
stílfræði hans og formskrift hans. Ef
slík úttekt lægi fyrir væri hægt með
henni að viðbættum vísindalegum
vinnubrögðum að komast að sann-
leiksgildi fullyrðinga sem þessara.
AA-samtökin:
Halda kynningarfund
■ AA-deildirnar munu halda opinn
kynningarfund á morgun, laugardag-
inn 2. nóvember í Háskólanum kl.
14.00.
Á fundinum verður leitast við að
gefa mynd af starfsemi xamtakanna
og þeim aðferðum sem AA-menn
beita til að losna úr viðjum alkóhól-
ismans, einnig munu aðstandendur
alkóhólista kynna starfsemi sína
Til þess að gerast AA-félagi þarf
aðeins eitt; löngun til að hætta að
drekka. Inntöku-eða félagsgjöld eru
engin en með innbyrðis samskotum
er reynt að sjá samtökunum efnalega
farborða.
Magnús og Birgir: tveir frábærir matreiðslumenn með nýjan og breyttan matseðil.
Hlýlegur staður
í hjarta borgarinrtar!
boröðpantanir í
síma
26906