NT - 01.11.1985, Page 21

NT - 01.11.1985, Page 21
Föstudagur 1. nóvember 1985 21 Frægasta parið nú í Hollywood Liz T aylor og Frank Sinatra: „Upp af gamalli vináttu blossaði ástin!“ ■ f>ær fréttir berast frá Holly- wood, að nýjasta ástasamband- ið sem mesta athygli veki þar sé samdráttur þeirra Frank Sinatra og hinnar fögru og marggiftu Elizabeth Taylor. Þau sjást alls staðar saman og virðast mjög hamingjusöm. I>au hafa svarað spurningum blaðamanna um samband þeirra á þá leið,- að það sé möguleiki að þau gifti sig þegar á þessu ári! Þetta yrði þá 5. hjónaband Sinatra, en átt- unda hennar! „Frankieboy“ verður 70 ára í desember n.k. og giska margir á að þau hafi ráðgert að gifta sig þá, en til þess yrði brúðguminn að hafa gengið áður frá skilnað- armálum sínum. Það eru aðeins nokkrar vikur síðan Sinatra trúði vinum sínum fyrir því, að hann væri að reyna að fá „hrað-skilnað“ frá Bar- böru, sem var ekkja eftir grín- leikarann Zeppo Marx þegar Frank kvæntist henni 1976. Hann segir að hjónaband þeirra hafi „aðeins verið til á pappírn- um“ upp á síðkastið. Liz Taylor var gestur hjá Frank á búgarði hans í Palm Springs í Florida snemma í liaust og þá blossaði ástin upp úr hinum gamla og góða kunn- ingsskap sem með þeim hefur verið um mörg ár. Síðan hafa þau sést oft saman eins og nýtrúlofuð á mannamótum, t.d. nýlega á næturklúbbi, þar sem Frank settist við píanóið og söng ástarsöngva til „elsku Liz“. Þá voru þau boðin saman til Rainiers fursta í Monaco, óg Liz ætlar á kvikmyndahátíð í Deauville, en Frank segist ætla að koma aðeins við í Monte Carlo, en annars á þetta að verða eins konar brúðkaupsferð hjá þeim, -eða að minnsta kosti „generalprufa“. Fréttina um ástarsamband Liz og Franks höfum við úr þýsku kvennablaði, ásamt með- fylgjandi mynd, en satt best að segja höfum við ekki aðrar heim- ildir og „seljum það því ekki dýrar en við keyptum það“! ■ Frank Sinatra og Liz Taylor eru óaöskiljanleg þessa dagana. Sinatra hefur boöið eiginkon- unni, Barböru, 30 millljónir dollara ef hún gefi honuni eftir skilnað á stundinni! Feðgar á ferð: Upphaf skólagöngu er merkisviðburð- ur fyrir alla krakka ■ Karl Bretaprins og Diana hafa farið fram á það við fjöl- miðla í Bretlandi, að þeir veiti syni þeirra frið til að vera sem venjulegt barn í skóla, þ.e.a.s. í leikskóla, þar sem hann er aðeins þriggja ára, en litli prins- inn er að byrja í leikskóla um þessar niundir. Foreldrarnir sendu bréf til fréttastjóra á blöðum og öðrum fjölmiðlum, þar sem sagt var að taka mætti rnyndir og fylgjast með þegar William prins væri að hefja skólagöngu sína, en síðan ætluðust þau til, að hann væri látinn í friði, svo hans skólavist yrði sem eðlilegust og lík annarra barna. Bréfið var undirritað - Charles og Diana. Karl Bretaprins var aldrei í leikskóla, en liafði einka- kennara í Buckingham-höll frá 5 ára aldri þangað til hann varð 8 ára að hann fór í skóla og síðar stundaði hann sögunám í há- skólanum í Cambridge. Þegar hann fór í skóla bað drottningin móðir hans fjölmiðla um að láta hann sem mest afskiptalausan, og það sama er að gerast nú, þegar sonur hans byrjar í skólanum.

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.