NT - 01.11.1985, Síða 27
Sjónvarp föstudag kl. 23.
Það er erfitt að starfa
í utanríkisþiónustunni!
■ Vinir vorir og frændur
Norðmenn hafa gert gaman-
þátt um utanríkisþjónustu sína
og starfsmenn hennar heima
og erlendis, sem verður sýndur
í sjónvarpinu í kvöld kl. 21.25
undir íslenska nafninu í þjón-
ustu föðurlandsins (Diplo-
matix). Pýðandi er Guðni Kol-
beinsson.
Norska utanríkisþjónustan
rnun ekki aldin að árum og
valda því sögulegar ástæður.
En skv. þættinum í kvöld var
ekki kastað til þess höndunum.
þegar henni var hleypt af
stokkunum, heldur var stofnað-
ur virðulegur skóli til að kenna
væntanlegum starfsmönnum
hennar hvernig þeir skyldu
hegða sér í návist útlendinga
heima og heiman. Sýnishornið
sem brugðið var á skjáinn sl.
sunnudag bendir til að það sé
allstrangur skóli, enda enginn
barnaleikur að halda sínum
hlut (og höfðinu kláru) í scl-
skapslífinu og leynimakkinu
sem utanríkisþjónustan snýst
um. Enda hafa ekki allir kom-
ist klakklaust frá því erfiða
starfi eins og dæmið um Arnc
Treholt sýnir hvað best.
Rás 2 laugardag kl. 20.
Föstudagui oer 1985
Útvaiv —sfónv rp
■ Þeir bræður David og Jason þurfa margt að ræða í sambandi við framtíðina, þegar sá síðarnefndi
er laus úr fangelsinu.
Ævintýraeyjan 4. þáttur:
Hvað er Jói
að bralla?
■ Á morgun kl. 17 verður í
útvarpi fluttur 4. þáttur Ævin-
týraeyjunnar eftir Enid Blyton
í útvarpsleikgerð Steindórs
Hjörleifssonar.
í síðasta þætti fóru þau
Anna, Finnur og Jonni í báts-
ferð með Villa vini sínum út að
Myrkey þar sem Jonni kom
auga á lendingarstað sem hann
ákvað að kanna seinna. Hann
sagði hinum krökkunum að
hann ætlaði að fara þangað á
bát Jóa einhvern dag þegar Jói
væri ekki heima. Nokkru síðar
varð Jonni var við dularfullan
Ijósagang úti í Myrkey um
miðja nótt. í sama mund sá
hann annað ljós sem birtist uppi
á hömrunum nálægt húsinu.
Hann ákvað þegar að rannsaka
þennan dularfulla ljósagang og
rakst þá á Jóa sem hótaði
honum öllu illu ef hann færi
aftur út að næturlagi. Eftir
þetta varð Jói æ grunsamlegri
í augum krakkanna.
Leikendur í 4. þætti eru:
■ Steindór Hjörleifsson leik-
stýrir Ævintýraeyjunni.
Árni Tryggvason, Halldór
Karlsson, Kristín Anna Þórar-
insdóttir, Ásgeir Friðsteins-
son, Póra Friðriksdóttir,
Steindór Hjörleifsson, Valdi-
mar Lárusson og Jónas Jónas-
son.
Diana Ross og
The Supremes á
svörtu nótunum
Framtíðarsýnin er
spilavíti á Hawaii
■ Enn heldur Pétur Steinn
Guðmundsson áfram að leika
á svörtu nótunum á Rás 2. Nú
ætlar hann reyndar að taka
upp nýtt snið á þáttunum og
kynna einstaka listamenn i
hverjum þætti. í þættinum
annað kvöld, scm stendur yfir
kl. 20-21, verður fyrsti þáttur-
inn af þreni þar senr fjallað er
um feril söngkonunnar Diana
Ross og stallsystra hennar í
The Supremes, en þær voru
feikilega vinsælar á árunum
milli 1960 og 1970 og áttu hvert
topplagið á fætur öðru á vin-
sældalistum.
■ Diana Ross hóf söngferil sinn með The Supremes. Hún er sú
eina þeirra þriggja sem enn hcldur áfrain að syngja viö góðar
undirtektir aðdáenda sinna.
■ Starfsmenn utanríkisþjónustunnar þurfa að bregða sér í mörg líki. f norska þættinum í kvöld
sjá sjónvarpsáhorfendur hvernig þeim tekst upp í þeim erfiða leik. .
■ Kóngur í ríki sínu (The
King of Marvin Gardens),
bandarísk bíómynd frá 1972 er
föstudagsmynd sjónvarpsins
og hefst sýning á henni kl. 23.
Leikstjóri er Bob Rafelson og
með aðalhlutverk fara Jack
Nicholson, Bruce Dern, Ellen
Burstyn og Julia Anne Robin-
son.
Útvarpsmaðurinn David
(Jack Nicholson) hefur til-
hneigingu til að rugla saman
raunveruleikanum og því sem
gerist í hugarheimi hans sjálfs
í spjalli sínu við hlustendur.
Hann fær skyndilega tilmæli
um að skella sér til spilavítis-
borgarinn.ar Atlantic City, þar
sem eldri bróðir hans Jason
(Bruce Dern) situr í fangelsi
ákærður fyrir rán. Það er yfir-
maður Jasons í undirheimalíf-
inu sent David á að hitta, en sá
vill ekkert með David hafa.
Þegar Jason sleppur úr fang-
elsinu kynnir hann David fyrir
vinnufélögum sínum - Sally
(Ellen Burstyn) og stjúpdóttur
hennar Jessicu (Juíia Anne
Robinson). Jason er nú kom-
inn með hugann fullan af fram-
tíðaráformum, hann ætlar að
setja upp spilavíti á Waikiki
ströndinni í Honolulu, en þar
er sjaldan skortur á skemmti-
ferðamönnum í leit að ævintýr-
um. David hefur litla trú á
fyrirtækinu, en vill þó fylgjast
með framvindunni.
Það eru sem sagt ekki hvers-
dagslegar persónur sem koma
við sögu í myndinni í kvöld og
afburða leikarar fara þar með
hlutverk. Þeim,sem geta haldið
sér vakandi fram til kl. 23,ætti
því varla að leiðast að fylgjast
með draum og raunveruleika
óvenjulegra bræðra og lags-
kvenna þeirra. Þýðandi er
Björn Baldursson.
Sjónvarp föstudag kl. 21.25:
Utvarp laugardag kl. 17.
i
Föstudagur
1. nóvember
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn.
7.15 Morgunvaktin.
7.20 Morguntrimm.
7.30 Fréttir. Tilkynningar.
8.00 Fréttir. Tilkynningar.
8.15 Veðurfregnir.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
„Litli tréhesturinn" eftir Ursulu
Moray Williams. SigríðurThorlac-
ius þýddi. Baldvin Halldórsson les
(5).
9.20 Morguntrimm. Tilkynningar.
Tónleikar, þulur velur og kynnir.
9.45 Þingfréttir.
10.00 Fréttir.
10.05 Daglegt mál. Endurtekinn
þáttur frá kvöldinu áður í umsjá
Sigurðar G. Tómassonar.
10.10 Veðurfregnir.
10.25 Lesið úr forustugreinum dag-
blaðanna.
10.40 „Sögusteinn" Umsjón: Har-
aldur I. Haraldsson. (Frá Akureyri)
11.10 Málefni aldraðra. Umsjón:
Þórir S. Guðbergsson.
11.25 Morguntónleikar. Tónlist eftir
Verdi, Vaughan Williams, Offen-
bach og J.S. Bach.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Fréttir.
12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar.
Tónleikar.
14.00 Miðdegissagan: „Skref fyrir
skref“ eftir Gerdu Antti. Guðrún
Þórarinsdóttir þýddi. Margrét
Helga Jóhannsdóttir les (9).
14.30 Sveiflur-Sverrir Páll Erlends-
son. (Frá Akureyri)
15.40 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá.
16.15 Veðurtrégnir.
16.20 Sinfónía nr. 1 í c-moll eftir
Edward Grieg. Sinfóniuhljóm-
sveitin i Björgvin leikur. Karsent
Andersen stjórnar.
17.00 Helgarútvarp barnanna.
Stjórnandi: Vernharður Linnet.
17.40 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir.
19.40 Tilkynningar.
19.50 Daglegt mál. Guðvarður Már
Gunnlaugsson flytur þáttinn.
20.00 Lög unga fólksins. Þóra Björg
Thoroddsen kynnir.
20.40 Kvöldvaka. a. Gamlar endur-
minningar frá Hornströndum
Torfi Jónsson les frásögn Jóns Kr.
Lárussonar frá Arnarbæli. b.
Vísnaþáttur um tilhugaiíf og
hjónaband Jóhanna Björnsdóttir
tók saman. Jóna I. Guðmundsdótt-
ir flytur. c. Tveir þættir af Brynjólfi
Jónssyni Guðríður Ragnarsdóttir
les frásögn Ásmundar Helgasonar
frá Bjargi. Umsjón: Helga Ágústs-
dóttir.
21.30 Frá tónskáldum. Atli Heimir
Sveinsson kynnir „Gloríu" eftir
Hjálmar Ragnarsson.
22.00 Fréttir. Dagskrá morgundags-
ins.
22.15 Veðurfregnir. Orð kvöldsins.
22.25 Kvöldtónleikar. Tónlist eftir
P.E. Lange-Múller við leikritið „Det
var engang..."
22.55 Svipmynd. Þáttur Jónasar
Jónassonar. (Frá Akureyri)
24.00 Fréttir. Dagskrárlok.
00.05 Jassþáttur. - Jón Múli Árna-
son.
01.00 Dagskrárlok.
Næturútvarp á RÁS 2 tll kl. 03.00.
Föstudagur
1. nóvember
10.00-12.00 Morgunþáttur Stjórn-
endur: Ásgeir Tómasson og Páll
Þorsteinsson
14.00-16.00 Pósthólfið Stjórnandi:
Valdís Gunnarsdóttir
16.00-18.00 Léttir sprettir Stjórn-
andi: Jón Ólafsson
20.00-21.00 Hljóðdósin Stjórnandi:
Þórarinn Stefánsson.
21.00-22.00 Djassspjall Stjórnandi:
Vernharður Linnet.
22.00-23.00 Rokkrásin Stjórnendur:
Snorri Már Skúlason og Skúli
Helgason.
23.00-03.00 Næturvaktin Stjórnend-
ur: Vignir Sveinsson og Þorgeir
Ástvaldsson
Rásirnar samtengdar að lokinni
dagskrá rásar1
Föstudagur
1. nóvember
19.15 Á döfinni Umsjónarmaður
Maríanna Friðjónsdóttir.
19.25 Norsk æska Tvær barna- og
unglingamyndir frá Noregi sem
heita Hár og Bjarni og tónlistin.
Þýðandi Jóhanna Jóhannsdóttir.
(Nordvision - Norska sjónvarpið).
19.50 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.40 Þingsjá Umsjónarmaður Páll
Magnússon.
20.55 Kastljós Þáttur um innlend
málefni. Umsjónarmaöur Einar
örn Stefánsson.
21.25 f þjónustu föðurlandsins
(Diplomatix) Norskur gamanþáttur
um utanrikisþjónustuna og starfs-
menn hennar heima og erlendis.
22.05 Derrick Þriðji þáttur. Þýskur
sakamálamyndaflokkur. Aðalhlut-
verk: Horst Tappert og Fritz
Wepper. Þýðandi Veturliði Guðna-
son.
23.00 Kóngur í ri'ki sínu (The King
of Marvin Gardens) Bandarisk bíó-
mynd frá 1972. Leikstjóri Bob Ra-
felson. Aðalhlutverk: Jack Nichol-
son, Bruce Dern, Ellen Burstyn og
Julia Anne Robinson. Vinsæll út-
varpsmaður tekur sér fri frá störf-
um og dvelst með bróður sinum
um hrið. Bróðirinn hefur komist í
kast við lögin en hyggst nú stofna
spilavíti á Hawaii. Þýðandi Björn
Baldursson.
00.45 Fréttir í dagskrárlok.