NT - 01.11.1985, Page 28

NT - 01.11.1985, Page 28
 LÚRIR ÞÚ Á FRÉTT? - HRINGDU ÞÁ í SÍMA 68-65-62 Við tökum við ábendingum um fréttir allan sólarhringinn. Greiddar verða 1000 krónur fyrirhverja ábendingu sem leið ir tii fréttar i blaðinu og 10.000 krónur fyrir ábendingu sem leiðir til bitastæðustu fréttar mánaðarins. Fullrar nafnleyndar er gætt NT, Síðumúla 15, Reykjavík, slmi: 686300, auglýsingar 18300 Kvöldsímar: áskrift og dreifing 686300 • ritstjórn 686392 og 687598 • íþróttir 686495 Þingflokkur Alþýðuflokksins: Olöglegar eignaupptökur - engar reglur um útreikning dráttarvaxta I „Viö viljum bjarga þeim sem eru að missa eignir sínar á uppboöi, e.t.v. vegna ólöglegra okurvaxta sem lagðir eru á skuldir,“ sagði Sighvatur m.a. á fundinum. NT-mynd: Ami Bjarna ■ „Pað leikur ekki nokkur vafi á að í dag eiga sér stað eignaupptökur sem eru beinlín- is ólöglegar vegna þess að við- skiptabankarnir fylgja ekki regl- um um hvernig dráttarvextir reiknast á skuldir enda eru þær mjög á reiki," sagði Sighvatur Björgvinsson alþingismaður á biaðamannafundi sem þing- flokkur Alþýðuflokksins boðaði til í gær þar sem kynnt var tillaga flokksins um hvernig draga má úr ríkjandi neyðar- ástandi í húsnæðismálum hér á Iandi. I tillögu flokksins til þings- ályktunar stendur m.a.: „Al- þingi ályktar að fela félags- málaráðherra að sjá svo um að sett verði á stofn sérstök deild við Húsnæðisstofnun ríkisins til þess að veita húsbyggjendum ráðgjöf s.s. með því að áætla fyrir þá greiðslubyrði og greiðslu- getu, kanna lögmæti greiðslu- krafna eins og útreikninga á dráttarvöxtum og innheimtu- kostnaði, aðstoða við endur- skipulagningu lána og gefa ráð og ábendingar um aðstoð sér- fróðra manna." Sighvatur sagði ennfremur að ef ekki fengjust ákveðin svör um stofnun þessarar ráðgefandi deildar myndi flokkurinn leggja fram frumvarp til laga um málið. Á fundinum kom einnig fram að enn vantar 389 milljónir króna af þeirri lögbundnu fjár- hæð sem er tæpir 2 milljarðar króna og renna á til húsnæðis- mála. Vilja þingmenn Alþýðu- flokksins halda fund með félags- mála-, fjármála- og forsætisráð- herra þar sem þessi mál verða rædd og reynt að fá skýringu á hversvegna svo stóra fjárhæð vantar ennþá. í framhaldi af þessu sagði Jóhanna Sigurðar- dóttir alþingismaður að enn hefði ekkert komið út úr starfi milliþinganefndar sem sett hefði verið til þess að reyna að finna lausn á húsnæðisvandanum. Vildi Jóhanna ekki segja um hvort Alþýðuflokkurinn hygðist segja sig úr nefndinni, en af- staða yrði tekin eftir að áður- nefndur fundur með ráðherrun- um hefði verið haldinn. Kolbeinsey seld í gær ■ Togarinn Kolbeinsey frá Húsavík var í ga:r sleg- inn Fiskveiðasjóði íslands fyrir 176 milljónir króna. Uppboðið sem haldið var í gær var seinna uppboðið á togaranum. Sigurður Gizurarson bæjarfógeti á Húsavík hélt uppboðið og tók það snöggt af. Tíu mínútur og Fiskveiðasjóð- ur fékk Kolbeinsey. Aukafjár- veitingar Alberts ■ Listi yfir aukafjárveitingar á síðustu dögum Alberts Guð- mundssonar, fyrrv. fjármála- ráðherra, í embætti, var lagður fram á þingi í gær, sem svar við fyrirspurn Guðrúnar Helgdótt- ur og Svavars Gestssonar. t ljós kemur að á síðustu 15 dögum Alberts í fjármálaráðu- neytinu voru veittar um 45 aukafjárveitingar, af rúmlega 200 það sem af er árinu. Á árinu hafa alls um 1100 milljónir verið veittar sem aukafjárveitingar, og í 60 skipti hefur fjárveiting verið án milligöngu viðkomandi fagráðherra. Skál Hafnfirðingar: Vínveitingaleyfi Hafnarfiarðar ■ Nú um helgina geta Hafn- firðingar lyft glasi með góðri samvisku og nærst á gómsætum réttum á nýju veitingahúsunum við Akurgerðislóðina í miðbæ Hafnarfjarðar. Samkvæmt heim- ildum NT hefur dómsmálaráðu- neytið ákveðið að úthluta Ridd- aranum og F. Hansen takmörk- uðu vínveitingaleyfi og er það gert í samráði við áfengisvarnar- nefnd Hafnarfjarðar, sem fram til þessa hefur lagst harðlega gegn því að nokkur vínveitinga- leyfi verði veitt í Hafnarfirði. Bæði þessi veitingahús höfðu sótt um vínveitingaleyfi án nokk- urra takmarka og þegar áfeng- isvarnarnefnd fjallaði um þau, lagðist hún gegn þeim og vísaði til samþykktar Heilbrigðis- nefndar Sameinuðu þjóðanna, um að besta ráð til að berjast gegn áfengisbölinu væri að hafa sem fæsta útsölustaði áfengis á hverjum stað. í Hafnarfirði háttaði því aftur á móti svo til að enginn útsölustaður áfengis var í bænum og þótti mönnum því þessi röksemd ansi veik. Munu bæjaryfirvöld og jafn- framt menn úr dómsmálaráðu- neytinu hafa beðið nefndina að endurskoða afstöðu sína. Sl. þriðjudag kom svo nefnd- in aftur saman og ræddi málin. Engin bókun var gerð á þeim fundi en á fundi með dómsmála- ráðherra féllst nefndin á að veita þessum veitingahúsum takmarkað vínveitingaleyfi, sem þýðir að leyfilegt er að veita matargestum létt vín með mat og koníak með kaffinu og aðra sterka og bragðmikla ■ Jón Helgason, dómsmála- ráðherra. drykki á meðan meltingar- færin eru að jafna sig. Kökubankinn: Lögbann á sjálfan sig ■ Lögbann hefur verið sett á alla brauðsölu og aðrar fram- leiðsluvörur brauðgerðarhúsa í Kaupfélagi Hafnfirðinga á Miðvangi. Það er Kökubank- inn í Hafnarfirði sem lagði fram 200.000 krónur til að fá þetta sölubann sett á og kom það til framkvæmda á miðviku- daginn. Að sögn Guðbjarts Vil- helmssonar, verslunarstjóra í Kaupfélaginu, þá er Köku- bankinn einnig að setja lög- bann á sölu á sínum eigin vörum, þó líkast til hafi slíkt ekki verið ætlunin, því að í lögbannsúrskurðinum er kveð- ið á um lögbann á sölu á. daglegri framleiðslu brauð- gerðarhúsa. Ástæðan fyrir þessu lög- banni er gamall samningur milli Kaupfélagsins og móður Valdimars Bergssonar, eig- anda Kökubankans, en hún keypti verslunarhúsnæði af Kaupfélaginu 1977, tveim árum áður en Kaupfélagið opnaðií núverandi húsnæði. Þá var gerður samningur um að Kaupfélagið seldi eingöngu brauð frá Kökubankanum. Viðskiptavinum verslunarinn- ar líkaði þetta fyrirkomulag illa og söfnuðu undirskriftum sl. sumar þar sem farið var fram á að Kaupfélagið hefði meira úrval af brauði og var ákveðið að verða við því og láth reyna á þetta mál, en Guðbjartur telur að þarna sé um að ræða brot á lögum um frjálsa verslunarhætti. Brauðsala mun hafa aukist um helmiftg við að úrvalið jókst en nú verður sem sagt ekkert brauð á boðstólum og viðskiptavinir Kaupfélagsins því að leita annað þar til kveð- ið hefur verið upp úr þessu máli, sem gæti tekið þó nokk- urn tíma.

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.