NT - 16.11.1985, Blaðsíða 11

NT - 16.11.1985, Blaðsíða 11
Laugardagur 16. nóvember 1985 11 Guðmundur og Magnús unnu fyrsta Húsavíkurmótið Guðmundur Pétursson og Magnús Torfason urðu sigurvegarar í fyrsta Opna mótinu á Húsavík. sem Sam- vinnuferðir/Landsýn og Bridgesam- band íslands gangast fyrir. Alls verða mótin þrjú, hið næsta helgina 6.-8. desember og þriðja mótið helgina 14.-16. febrúar ’86. Eins og áður sagði, unnu þeir Guðmundur og Magnús fyrsta mótið, sem fór fram um síðustu helgi. Fyrir vikið fengu þeir Lundúnaferð í auka- verðlaun. Pórarinn Sigþórsson og Þorlákur Jónsson hrepptu 2. sætið, eftir mikinn endasprett og fá fyrir það frítt á tvö næstu helgarmót, sem aukaverðlaun. Röð efstu para varð þessi: Guðmundur Pétursson - Magnús Torfason Reykjavík 1521 Þórarinn Sigþórsson - Þorlákur Jónsson Reykjavík 1498 Jónas P. Erlingsson - Kristján Blöndal Reykjavík 1425 Rúnar Magnússon - Sigfús Ö. Árnason Reykjavík 1414 Sigfús Þórðarson - Vilhjálmur Þ. Pálsson Self. 1413 Jakob Kristinsson - Júlíus Sigurjónsson Rvík 1412 Birgir Þorvaldsson - Jóhann Jónsson Reykjavík 1398 Pétur Skarphéðinsson - Þóra Sigmundsson Húsavík 1383 Grettir Frímannsson - Hörður Blöndal Akureyri 1372 • Alls komu 15 pör af Suðurlandi, önnur 15 pör frá Akureyri, 9 pör frá Húsavík og 1 par af Héraði. Keppnisstjóri var Ólafur Lárusson en Vigfús Pálsson annaðist tölvuút- reikning spila. Mótið þótti takast vel, enda aðstæður á Hótel Húsavík með því besta sem hér gerist á landinu. í næsta móti verða aukaverðlaunin ferð til Amsterdam fyrir efsta sætið, og peningaverðlaun fyrir annað sætið. Athygli er vakin á því, að stigaút- reikningur til heildarverðlauna er eftirfarandi: Besti árangur í tveimur mótum af þremur sem haldin verða, fundinn út eftir prósentuskor hvers spilara í hverju móti. Sem dæmi, þá var skor þeirra Magnúsar og Guð- mundar í fyrsta mótinu 60.357 prós- ent/40 pör (prósenta miðað v/þátt- töku hverju sinni). Þannig fást sann- gjarnir sigurvegarar, óháð því hvort 40 pör eða 30 pör eru að keppa hverju sinni. Stofnanakeppnin 1985 Mjög góð þátttaka er í Stofnana- keppni (fyrirtækjakeppni) Bridge- sambands {slands og Bridgefélags Reykjavíkur. 28 sveitir taka að þessu sinni þátt í keppninni. Spilaðar verða 9 umferðir eftir Monrad-fyrirkomu- lagi. Lokið er 6 umferðum, og er staða efstu sveita þessi: Ríkisspítalar A 114 Börkur hf. 110 ÍSAL-skrifstofa 109 ístak 109 Suðurlandsvideó hf. 105 SÍS-sjávarafurðadeild 104 ÍSAL-flutningadeild 102 Iðnaðarbankinn 100 SÍS-búvörudeild 99 Flugleiðir B 98 Keppni lýkur á mánudaginn í Dom- us Medica. Keppnisstjóri er Hermann Lárusson. Þetta er annað árið sem þessi keppni er spiluð, en síðasta ár tóku 26 sveitir þátt í Stofnanakeppni. Sig- urvegari þá, varð Sendibílastöðin hf. Þeir eru ekki með að þessu sinni. Bridgefélag Siglufjarðar Aðalfundur félagsins var haldinn mánud. 14. okt. '85. Stjórn félagsins skipa nú: Bogi Sigurbjörnsson form., Þor- steinn Jóhannsson ritari. Stefanía Sig- urbjörnsdóttir gjaldkeri, Þorleifur Haraldsson meðstjórnandi, Haraldur Árnason meðstj. Vetrarstarfið byrjaði að venju með einmenningskeppni, svokölluðu Egg- ertsmóti, úrslit urðu: Jóhann Halldórsson 71 Stefán Benediktsson 68 Anton Sigurbjörnsson 65 Mánudagana 28. okt og 4. nóv. var spilaður hausttvímenningur, úrslit urðu: Stefán Benediktsson - Reynir Pálsson 278 Jón Sigurbjörnsson - Ásgrímur Sigurbjörnsson 274 Birgir Björnsson - Þorsteinn Jóhannesson 254 Næst á dagskrá er 2ja kvölda fyrir- tækjakeppni og er búist við þátttöku 11 eða 12 sveita. Bridgefélag Hafnarfjarðar Nú er tölvu-Mitchell-tvímenningn- urn lokið. Tölvan fylgdist náið með gangi mála síðasta kvöldið og spýtti út úr sér stöðunni af og til. Um 5 mínútum eftir að spilamennsku lauk kom svo lokaútskriftin. Halldór Einarsson - Óskar Karlsson 905 Guðni Þorsteinsson - Kristófer Magnússon 887 Bjarni Jóhannsson - Magnús Jóhannsson 884 Ásgeir Ásbjörnsson - Guðbrandur Sigurbergsson 877 Friðþjófur Einarsson - Þórarinn Sófusson 869 N.k. mánudag, þ. 18. nóv., verður spilaður einskvöldstvímenningur, þar sem ekki þótti fært að hefja sveita- keppni félagsins, þar sem margir félagar verða þá að spila í sveitakeppni stofnana. Opið hús Sl. laugardag mættu 24 pör til leiks. Að venju var spilað eftir Mitchell- fyrirkomulagi, í tveimur áttum N/S og A/V. Úrsliturðuþessi (efstupör): N/S: Sverrir - Óskar 287 Bragi Björnsson - Þórður Sigfússon 264 Hermann Lárusson - Sveinn Þorvaldsson 249 Albert Þorsteinsson - Sigurður Emilsson 240 Murat Serdar - Þorbergur Ólafsson 226 A/V: Hrannar Erlingsson - Kristján Ólafsson 284 Jón Þ. Hilmarsson - Oddur Hjaltason 264 Guðjón Jónsson - Friðrik Jónsson 235 Óskar Sigurðsson - Róbert Geirsson 229 Spilamennska hefst kl. 13.30 að Borgartúni 18 (húsi Sparisjóðsins) og er öllum heimil þátttaka. Umsjónar- menn eru þeir Ólafur og Hermann Lárussynir. Bridgedeild Skagfirðinga Eftir 8 umferðir af 13 í aðalsveita- keppni deildarinnar, er staða efstu sveita þessi: Björn Hermannsson 162 Magnús Torfason 148 Hjálmar S. Pálsson 130 Sigmar Jónsson 126 Sigurður Ámundason 126 Bridgeklúbbur Tálknafjarðar Eftir 3 kvöld af 4 í tvímennings- keppni félagsins, er staða efstu para þessi: Egill Sigurðsson - Jón H. Gíslason Þórður Reimarsson - 526 Ævar Jónasson Böðvar - 524 Sigurður Guðlaug Friðriksdóttir - 522 Steinberg Ríkharðsson Kristín Ársælsdóttir - 513 Kristín Magnúsdóttir 496 Tvímenningskeppninni lýkur næsta mánudag. Næsta keppni klúbbsins, sem verður hraðsveitakeppni, hefst svo mánudaginn 2. desember. Frá Bridgefélagi Akureyrar Að loknum 8 umferðum (hálfnað mót) í Akureyrarmótinu í sveita- keppni, er sveit meistaranna frá fyrra ári, sveit Gunnars Berg með forystu. Á hælum hennar koma síðan fjöl- margar sveitir. Staða efstu sveita er þessi: Gunnar Berg 151 Kristján Guðjónsson 144 Örn Einarsson 142 Páll Pálsson 139 Gunnlaugur Guðmundsson 139 Haukur Harðarson 137 Stefán Sveinbjörnsson 131 Stefán Vilhjálmsson 129 Bridgefélag Breiðholts Sl. þriðjudag var spilað eins kvölds tvímenningur í tveimur 10 para riðlum. Úrslit urðu þessi: A-riðill. Guðjón Jónsson - Gunnar Guðmundsson 135 Jóhannes O. Bjarnason - Þórhallur Gunnl. 124 Magnús Gunnarsson - Guðmundur Georgsson 119 B-riðill. Ólafur Kjartansson - Haraldur Guðjónsson 124 N/'agnús Þorkelsson - Sigbert Hannesson 120 Guðmundur Baldursson - Jóhann Stefánsson 116 Pálmi Pétursson - Leifur Karlsson 116 Næsta þriðjudag hefst þriggja kvölda Butler-tvímenningur. Öllum spilurum heimil þátttaka. Spilað er í Gerðubergi kl. 19.30 stundvíslega. Bridgedeild Breiðfirðinga Eftir 12 umferðir af 19 er staða efstu sveita í aðalsveitakeppninni þannig: Ólafur Valgeirsson 234 Jóhann Jóhannsson 229 Alison Dorosh 228 Örn Scheving 218 Hans Nielsen 218 Stjórnandi er ísak Örn Sigurðsson og er spilað er í húsi Hreyfils við Grensásveg. Bridgefélag Hvolsvailar Staðan eftir fjórar umferðir í Ás mótinu sem er barometer með þátt- töku 15 para. Helgi Hermannsson - Óskar Pálsson Bryrijólfur Jónsson - 63 Haukur Baldvinsson Ólafur Ólafsson - 63 Jón Kristinsson Guðmundur Jónsson - 46 Gísli Kristinsson Magnús Bjarnason - 41 Arni Sigurðsson 40 Fimmta og síðasta umferð verður spiluð mánudaginn 18. nóvember í Félagsheimilinu Hvoll. Reykjavíkurmótið í tvímenning: Skráning í Reykjavíkurmótið í tví- menning, undanrásir, er hafin hjá öllum bridgefélögunum. Undan- keppnin verður spiluð sunnudaginn 24. nóvember (tvær umferðir) og sunnudaginn 1. desember (ein umferð) í Hreyfils-húsinu v/Grens- ásveg og hefst kl. 13 báða dagana. Spilað verður eftir Mitchell-fyrir- komulagi í undanrásum (tölvuút- reiknað af Vigfúsi Pálssyni) en 27 efstu pörin komast í úrslitakeppnina, sem verður barometer, 4 spil milli para, helgina 14.-15. desember n.k., einnig í Hreyfli. Keppnisstjóri er Agnar Jörgensson. Einnig mun skrifstofa Bridgesam- bandsins (Ólafur) taka við skráningu, fram til fimmtudagsins 21. nóvember. Bikarkeppni á Norðurlandi Fyrirhugað er að halda á vegunt Bridgesambanda Norðurlands, Bikar- keppni sveita, með útsláttarfyrir- komulagi, rneð santa sniði og Bridge- samband íslands gengst fyrir á hverju sumri. Reiknað er með að spila 5 umferðir og hluti sveita sitji þannig yfir í 1. umferð. Að öðru leyti gilda eftirfarandi reglur: Þátttaka tilkynnist til umsjónar- manna (Hörður Blöndal 96-23124 - Örn Einarsson 96-21058) fyrir 1. desember n.k., sem veita allar nánari upplýsingar. Þátttökugjald pr. sveit er kl. 1.000.- Dregið verður í hverja umferð af skrifstofu Bridgesambands íslands (Ólafur Lárusson). Úrslitaleikurinn verður ekki spilaður á heimavelli annarra hvorrar sveitarinnar, nema báðar séu á heimavelli. Um keppnina gilda reglur Bridge- sambandsins, um bikarkeppnir. Spil- að er um silfurstig í hverri umferð. Keppninni lýkur 20. apríl, en 1. umferð skal vera lokið fyrir 1. janúar 1986. Síldarverksmiðjan í Krossanesi v/Eyjafjörð gefur veglegan farand- bikar til keppninnar, cn auk þess verða veitt eignarverðlaun fyrir tvö efstu sætin. Formenn allra félaganna á svæðunum ntunu taka við skráningu fram til 1. desember. Bridgesambönd Norðurlands (vestra og eystra) hvetja allt félagsfólk innan sambandanna að vera með. Tilvalið er fyrir hvert bæjarfélag - sveitarfélag að senda eina sveit til keppni (eða fleiri) og stuðla þannig að ánægjulegum sam- skiptum, innan héraðs og utan. Tafl- og Bridgeklúbburinn: Eftir tvö kvöld í „Aðalsveitarkepp- ni" T.B.K. er fjórum umferðum lokið og er staðan sem hér segir: Gestur Jónsson 87 Sigfús Sigurhjartar 81 Herntann Erlingsson 78 Þórður Sigfússon 71 Björn Jónsson 68 Keppninni verður fram Italdið n.k. fimmtudagskvöld kl. 19.30 að Domus Medica. Kcppnin vcrður eins og oft áður undir öruggri stjórn Antons Gunnarssonar. Bridgedeild Rangæinga Þegar þrem umferðum er lokið í hraðsveitakeppni félagsins er staða efstu sveita þessi: Gunnar Helgason 238 Lilja Halldórsdóttir 188 Sigurleifur Guðjónsson 186 Finnskar veggskápasamstæður Bæsuð eik og mahony Verð kr. 36.900,- Með glerhurðum beggja megin kr. 38.900.- HUSGOGN OG * INMRÉTTINGAR fio eQ QH .SUDURLANDSBRAUT 18 OO OíJ UU

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.