NT - 16.11.1985, Blaðsíða 14
Laugardagur 16. nóvember 1985 14
Ofsaveður gekk yfir vestan og sunnanvert landið í gær:
„Alltfauksemfokið
gat út um allan bæ“
- sagði aðalvarðstjóri Reykjavíkurlögreglu
■ Kröpp lægð fór yfir ísland í
gærdag. Veðurofsi fylgdi í kjöl-
farið. Strax klukkan átta um
ntorguninn var allt lögreglulið
Reykjavíkur kallað út. Ástæðan
var sú að skólabörn á aldrinum
sex til tólf ára höfðu lagt af stað
í skólann klukkan átta. Lögreglu-
bílar smöluðu saman þeim
börnum sem urðu á vegi þeirra
og keyrðu í skólann.
Allan daginn hringdi síminn
á varðstofunni í Reykjavík og
var ekki hægt að sinna öllum
útköllum. Járnplötur hvassar
sem eggjárn IJugu um loftið í
Breiðholti og var mildi að ekki
hlaust slys af. í Kötlufelli fór
þak af fjölbýlishúsi, svo að segja
í heilu lagi og flokkaði Rúnar
Guðmundsson aðalvarðstjóri
ástandiö undir, alvarlcgt. Rúnar
sagði í samtali við NT í gær-
kvöldi að heima hjá honum, í
Grænuhlíö hefði veriö mesta
rriildi að ekki varð slys, þegar
járnplata fauk í gegnum stofu-
rúðuna. „Ég hef ekki kynnst
foki jafn víða. í Reykjavík síðan
ég byrjaði í lögreglunni fyrir 35
árum,“ sagði Rúnar.
Kona slasaðist á Kleppsvegin-
um, þegar þakplata fauk áhana,
þegar veðrið var á hápunkti í
gær. Meiðsli hennar urðu ekki
alvarleg. Samkvæmt upplýsing-
um veðiírstofunnar var vind-
hraðinn mest um 83 hnútar í
hryðjunum í gærdag. Víða fuku
bílar í Reykjavík og er viðbúið
að eignatjón hafi veriö mikið.
Kópavogur
„Pað fauk allt sem fokið gat
'út um allan bæ,“ sagði Sævar
Finnbogason lögregluþjónn í
samtali við NT í gærkvöldi.
Hann sagði að björgunarsveitir
hefðu verið í viðbragðsstöðu.
tilbúnar til þess að bjarga þök-
um og öðru þess háttár sem
talið var að væri í hættu vegna
veðurs. Járnplötur voru víða á
fcrðalagi vegna vindsins, sem
lcysti hreinlega upp mörg þök.
Engin slys voru skráð hjá lög-
reglunni í Kópavogi og eins og
Sævar orðaði það: „Það var
mesta mildi.“
Hafnarfjörður
Veðurofsinn sneiddi ekki hjá
þeim Hafnfirðingum. Á lög-
regluvaröstofunni fengust þær
upplýsingar seint í gærkvöldi,
að björgunarsveitir hefðu unnið
baki brotnu að því að aðstoða
borgara. Garðar Kristjáns-
son varðstjóri hjá lögreglunni í
Hafnarfirði sagði að þakplötur
og allskyns dótarí hefði verið á
faraldsfæti í gærdag, og vildi
hann þakka forsjánni fyrir að
enginn varð á vegi þeirra
stykkja sem ferðuðust um loftin
blá í gær. „Við sjáum ekki fram
úr þeim verkefnum sem hafa
skotið upp kollinum í dag,“
sagði Garðar.
Rétt þcgar NT lauk samtalinu
við hann hringdi síminn á fullu.
Verið var að tilkynna um bíl
sem hafði fokið inn í garð og
annan sem valt. „Þetta lítur vel
út,“ sagði Garðar, og greinileg-
ur áhyggjuhreimur var í rödd-
inni.
Keflavík
„Það er nóg af drasli fjúkandi
■ Barónsstígnum var lokað í gser, vegna þess að járnplötur af þaki losnuðu. Með aðstoð
björgunarsveita tókst að forða því að þakið fyki.
hér um allt. Bæði járnplötur og
annað drasl sem fólk hefur ekki
hugsað um að festa niður,“
sagði Pálmi Aðalbergsson varð-
stjóri í Keflavík þegar NT sló á
þráðinn í gærkvöldi. Hjólhýsi
fór um koll, rétt fyrir utan
bæinn. „Þetta er bara þetta
venjulega þegar hann rýkur upp
svona snögglega," sagði Pálmi.
Hann sagði að sjómenn hefðu
verið snöggir að bregða við í
morgun, þegar veður fór að
versna, og hefðu þeir gengið frá
bátum sínum á skömmum tíma.
Akranes
Þar fauk enginn; og var
greinilegt að lögregla var ánægð
með þann þátt málsins. Hins-
vegar var hvasst með afbrigð-
um, og mikið um fok á járnplöt-
um og var mesta mildi að ekki
hlaust slys, á meðan á því stóð.
Friðrik Björgvinsson hjá lög-
reglunni á Akranesi sagði að
tilkynnt hefði verið um eitt
gróðurhús sem hefði skemmst
vegna veðurs. Björgunarmenn
lögðu sig alla fram um að koma
fólki til hjálpar, og var umtals-
verðum verðmætum bjargað
með aðstoð björgunarsveitar-
innar.að sögn lögreglu.
Borgarnes - sem Nagasaki
Veðurofsinn var einna mestur
í Borgarnesi, enda staðurinn
opinn einmitt fyrir suð-vestan
átt. „Síðan ég man eftir mér
hefur veður ekki verið jafn
slæmt og í gær sagði Björn
Þorbjörnsson lögregluþjónn í
Borgarnesi í gærkvöldi í samtali
við NT. Bílskúrarsplundruðust,
bílar fuku og fólk hlaut meiðsli
meðan veðrið var sem verst.
Fólksbiðreið fauk á hliðina á
Brákarbrú í Borgarnesi í
gærdag. Ökumaðurmeidistlítil-
lega. Þá fauk flutningabíll á
hliðina á einni af aðalgötum
bæjarins. Ökumaður slapp ó-
meiddur. Björn lögregluþjónn
sagði að bílskúrar hefðu orðið
fyrir sérstökum skakkaföllum,
■ Það var vissara að vera í vatns og vindheldu í gær, þegar mestu
lætin voru í veðurguðunum.
NT-myndir: Róbert.
og hefði meðal annars einn
skúr, nýbyggður lagst saman.
„Ég var sjálfur búinn að slá upp
fyrir skúr. Það lagðist allt
saman. Ég held að það sé of
mikið að líkja þessu við Nagsaki
á sínunt tíma, en það fer í
áttina," sagði Björn.
Búist var við því að veður
myndi ganga niður í nótt, en
Unnur Ölafsdóttir á Veðurstofu
íslands sagði í gær í samtali við
NT að viðbúið væri að lægð sú
sem myndi ganga yfir landiö í
kvöld yrði ekki síður kröpp.
Sem sagt vissara að huga að
þakinu.
„Frábært hvað fólk gerir“
Brynhildur Sigurðardóttir tók
strætisvagn upp í Breiðholt að
loknum vinnudegi. Hún býr í
Smyrilshólum. Þegar Brynhild-
ur kom með barnabarn sitt í
biðskýlið í Þrastarhólum, trcysti
hún sér ekki til þess að fara með
barnið út úr skýlinu, svo ntikill
var veðurofsinn. í stað þess að
ganga vegalengd, sem vanalega
tekur þrjár mínútur, þá beið
Brynhildur eftir næsta vagni og
fór með honum niður í bæ. Þar
tók hún leigubíl, og fór með
honum heim til sín. Brynhildur,
sem vinnur á Barnaspítala
Hringsins, sagði í samtali við NT
í gær, að hún mætti ýmsu í sínu
starfi, en í þetta skipti varð ég
hrædd sagði Brynhildur. „Það
var eftirtektarvert hversu allir
voru hjálplegir í gær, þegar
veðrið var sem verst. Það var
alveg frábært hvað fólk gerir
fyrir mann,“ sagði hún
Garðyrkjubóndi í Borgarfirði:
Fauk af þaki og
rifbeinsbrotnaði
■ Garðyrkjubóndi á Klepp-
járnsreykjum í Borgarfirði rif-
beinsbrotnaði og marðist þegar
hann fauk ofan af þaki gróður-
húss í ofviðrinu í gær. Maðurinn
ar að reyna við annan mann að
loka opnanlegum glugga á baki
gróðurhússins þegar glugginn
opnaðist og þeytti manninum
niður af þakinu. Annar milli-
lenti á þakskegginu og slapp
með skrámur en hinn skall beint
á jörðina og rifbeinsbrotnaði
eins og áður sagði.
Margar rúður í gróðurhúsum
á Kleppjárnsreykjum brotnuðu
í veðrinu, þakplötur fuku víða
af húsum og hesthús í Reykholts-
dal skekktist á grunninum.
Skólabílstjóri í Hálsasveit, sem
ekið hefur skólabörnum í all-
mörg ár, sagði NT að hann
myndi ekki eftir jafn hvössu.
Rafmagnslaust varð á Hvann-
eyri í gær og urðu bændaskóla-
nemar að handmjólka allar kým-
ar á staðnum.
Landeyjar:
Refabúi bjargað
■ Naumlega tókst að bjarga
refabúi á bænum Eystra Fífl-
holti í Landeyjum í gærkvöldi,
þegar ofsaveður gekk yfir stóran
hluta landsins. Dráttarvélar
voru fengnar til þess að strengja
niður búið og er talið að ekkert
dýranna hafi sloppið út. Erfitt
var að eiga við viðgerð, þar sem
Búrfellslína var slitin, og raf-
magn var skammtað. Lögreglan
á Hvolsvelli sagði í samtali við
NT í gær að veður hefði verið
mikið, og m.a. fuku útihúsin á
bænum Múlakoti í Rangárvalla-
sýslu í einu lagi og eru talin
gerónýt.
Unnið var að viðgerð á Búr-
fellslínu í gærkvöldi, og á með-
an var rafmagn skammtað. Þeg-
ar NT fór í prentun seint í
gærkvöldi var verið að leita að
biluninni, en hún hafði ekki
fundist.