NT - 16.11.1985, Qupperneq 21
Guðsþjónustur í Reykjavíkurpróf-
astsdæmi sunnudaginn 17. nóvem-
ber 1985.
Árbæjarprestakall. Barnasamkoma
í Foldaskóla í Grafarvogshverfi
Iaugardaginn 16. nóv. kl. llárdegis.
Barnasamkoma í safnaðarheimili
Árbæjarsóknar sunnudag kl. 10.30
árdegis. Guðsþjónusta í safnaðar-
heimilinu kl. 14. Organleikari Jón
Mýrdal. Dagur aldinna í söfnuðin-
um. Allt eldra fólk í sókninni sér-
staklega boðið velkomið til guðs-
þjónustunnar. Samvera með
dagskrá að messu lokinni. Gísli
Sigurbjörnsson forstjóri flytur ræðu
og Unnur Jensdóttir syngur einsöng
við undirleik Vilhelmínu Ólafsdótt-
ur. Kaffiveitingar í boði Kvenfélags
Árbæjarsóknar. Miðvikudag 20.
nóv.: Fyrirbænasamkoma í safnað-
arheimilinu kl. 19.30. Sr. Guð-
mundur Porsteinsson.
Áskirkja. Barnaguðsþjónusta kl.
11. Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Árni
Bergur Sigurbjörnsson.
Breiðholtsprestakall. Laugardag kl.
11 - Kirkjuskóli barnanna. Sunnu-
dag kl. 14 - Guðsþjónusta í Breið-
holtsskóla. Kynning á EXPLO ’85.
Hugleiðing, Ingibjörg Hinrikdóttir
Sr. Lárus Halldórsson.
Bústaðakirkja. Barnaguðsþjónusta
kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Sr.
Sólveig Lára Guðmundsdóttir
messar. Lesari Dagmar Gunnlaugs-
dóttir. Bræðrafélagsfundur mánu-
dagskvöld. Æskulýðsfélagsfundur
þriðjudagskvöld. Félagsstarf aldr-
aðra miðvikudagseftirm. Sr. Ólafur
Skúlason.
Dómkirkjan. Laugardagur. Barna-
samkoma í kirkjunni kl. 10.30. Sr.
Agnes M. Sigurðardóttir. Sunnu-
dag: Messa kl. 11. Sr. Hjalti Guð-
mundsson. Messa kl. 14. Sr. Agnes M.
Sigurðardóttir prédikar og ræðir um
ferminguna. Sr. Þórir Stephensen
þjónar fyrir altari. Fermingarbörn
flytja bænir og ritningartexta. For-
eldrar fermingarbarna eru sérstak-
Iega boðaðir til þessarar messu. Sr.
Pórir Stephensen. Dómkórinn syng-
ur við báðar messurnar. Organleik-
ari Marteinn H. Friðriksson.
Digranesprestakall. Barnasam-
koma í safnaðarheimilinu við Bjarn-
hólastíg kl. 11. Guðsþjónusta í
Kópavogskirkju kl. 14. Kórfólk frá
Angmagssalik syngur stólvers. Sr.
Pórbergur Kristjánsson.
Elliheimilið Grund. Guðsþjónusta
kl. 14. Sr. Árelíus Níelsson prédik-
ar. Félagar fyrrverandi sóknar-
presta.
Fella- og Hólakirkja. Laugardag:
Kirkjuskóli fyrir börn 5 ára og eldri
kl. 10.30. Barnasamkoma í Hóla-
brekkuskóla kl. 14. Sunnudag:
Guðsþjónusta kl. 14. Prestur sr.
Helga Soffía Konráðsdóttir. Organ-
isti Guðný Margrét Magnúsdóttir.
Æskulýðssamkoma mánudaginn 18.
nóv. kl. 20.30. Sr. Hreinn Hjartar-
son.
Grensáskirkja. Barnasamkoma kl.
11. Messa kl. 14. Altarisganga.
Organisti Árni Arinbjarnarson.
Biblíulestur þriðjudag íd. 20.30.
Umræður og kaffisopi á eftir. Sr.
Halldór S. Gröndal.
Hallgrímskirkja. Laugardag 16. nóv.
Basar Kvenfélags Hallgrímskirkju í
safnaðarheimilinu k. 14. Sunnudag:
Messa kl. 11. Sr. Ragnar Fjalar
Lárusson. Bamasamkomaerásama
tíma í safnaðarheimilinu. Samkoma
kl. 17. í minningu sr. Matthíasar
Jockhumssonar. Dr. Sigurbjörn
Einarsson biskup flytur ræðu og
ýmis þekktustu ljóð þjóðskáldsins
verða flutt með söng og upplestri.
Þriðjudag 19. nóv.: Fyrirbænaguðs-
þjónusta kl. 10.30. Miðvikudag 20.
nóv.: Náttsöngur kl. 22. Laugardagur
23. nóv.: Félagsvist í safnaðarheim-
ilinu kl. 15.
Landsspítalinn. Guðsþjónusta kl.
10. Sr. Karl Sigurbjörnsson.
Háteigskirkja. Messa kl. 10. Bama-
guðsþjónusta kl. 11. Sr. Tómas
Sveinsson. Messa kl. 14. Sr. Arn-
grímur Jónsson. Organleikari Ort-
huif Prunner.
Kársnesprestakall. Fjölskylduguðs-
þjónusta kl. 11 í Kópavogskirkju.
Litli kór og miðkór Kársnesskóla
kemur í heimsókn og syngur undir
stjóm Þórunnar Bjömsdóttur. Org-
anisti Guðmundur Gilsson. Sr.
Guðmundur Örn Ragnarsson.
Langholtskirkja. Óskastund barn-
anna kl. 11. Söngur-sögur-leikir.
Þórhallur Heimisson, Jón Stefánsson.
son og Sr. Sigurður Haukur Guð-
jónsson. Organisti Jón Stefánsson.
Guðsþjónusta kl. 14. Prestur sr.
Sigurður HaukurGuðjónsson. Org-
anisti Jón Stefánsson. Sóknarnefnd-
in.
Laugarneskirkja. Fjölskylduguðs-
þjónusta kl. 11. Barnakór Laug-
arneskirkju syngur. Helgileikur í
umsjá Jónu Hrannar Bolladóttur.
Fermingarbörn aðstoða. Þriðjudag
19. nóv.: Bænaguðsþjónusta kl. 19.
Altarisganga. Föstudag 22. nóv.:
Síðdegiskaffi kl. 14.30 í safnaðar-
heimilinu. Sóknarprestur.
Nesprestakall. Laugardagur: Fé-
lagsstarfið kl. 15.00. Ragnar Bjama-
son skemmtir með söng og gaman-
málum. Myndasýning frá Skotlandi
og einnig verða sýndar listskyggnur úr
Þingvallaferðinni. Sr. Frank M.
Halldórson. Sunnudagur: Barna-
samkoma kl. 11. Sr. Guðmundur
Óskar Ólafsson. Guðsþjónusta kl.
14. Orgel og kórstjórn Reynir Jón-
asson.Sr. Guðmundur Óskar Ólafs-
son. Mánudag: Æskulýðsstarfið kl.
20. Miðvikudag: Bænamessa ki.
18.20. Sr. GuðmundurÓskarÓlafs-
son. Föstudág 15. nóv.: Umræða
um guðspjall næsta sunnudags. Sr.
Guðmundur Óskar Ólafsson.
Seltjamamessókn. Guðsþjónusta kl.
11 árdegis í Tónlistarskólanum. Sr.
Frank M. Halldórsson.
Fundur um uppeldismál kl 20.15 í
Bústaðakirkju.
Fríkirkjan í Reykjavík. Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Guðspjallið í
myndum. Barnasálmar og smábarn-
asöngvar. Afmælisbörn boðin sér-
staklega velkomin. Framhaldssaga.
Við píanóið Pavel Smid. Sr. Gunnar
Björnsson.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. Barnasam-
koma kl. 10.30. Guðsþjónusta kl.
14. Skúli Svavarsson kristniboði pré-
dikar. Orgel og kórstjórn Þóra
Guðmundsdóttir. Sr. Einar Eyjólfs-
son.
Óháði söfnuðurinn. Guðsþjónusta
verður í kirkju Óháða safnaðarins
sunnudaginn 17. nóvember kl. 11.
Organisti verður Heiðmar Jónsson.
Sr. Þórsteinn Ragnarsson.
Bessastaðasókn. Messað verður í
Bessastaðakirkju kl. 2. e.h.. Sr.
Flóki Kristinsson þjónar fyrir altari.
Sr. Sigfinnur Þorleifsson prédikar.
Kór Stóra-Núpskirkju syngur, org-
anisti Steindór Zophaníasson. Alt-
arisgana. Sóknarprestur.
ÖLL ALMENN PRENTUN LITPRENTUN
TÖLVUEYÐUBLÖÐ
• Hönnun
• Setning
• Filmu- og plötugerð
• Prentun
• Bókband
PRENTSMIÐJAN ✓ //
C^CICICI H F.
SMIÐJUVEGI 3, 200 KÓPAVOGUR
SÍMI 45000
Laugardagur 16. nóvember 1985 25
50 ára
Magnús Oddsson
fyrrverandi bæjarstjóri
á Akranesi
■ Magnús Oddsson fyrrv. bæjar-
stjóri á Akranesi og nú rafveitustjóri
verður fimmtugur sunnudaginn 17.
nóv. n.k. Hann er fæddur í Reykjavík
17. nóv. 1935. Foreldrar hans eru
Oddur E. Ólafsson verkstjóri hjá
Rafmagnsveitu Reykjavíkur og kona
hans Guðný María Oddsdóttir. Odd-
urfaðirMagnúsarátti m.a. ættirsínar
að rekja vestur í Arnarfjörð.
Magnús lauk rafvirkjanámi í
Reykjavík en fór síðar í rafmagns-
tæknifræði við Tækniskólann í Kaup-
mannahöfn. Þarlauk hannprófi 1964.
Næstu árin vann hann í Reykjavík,
en gerðist rafveitustjóri á Ákranesi
1968. Hann var kjörinn bæjarstjóri á
Akranesi 1974 og gengdi því starfi til
1982 eða í tvö kjörtímabil, en gaf þá
ekki lengur kost á sér. Tók þá aftur
við starfi raíveitustjóra á Akranesi.
Bæjarstjórastarfið er vanþakklátt
og sjaldan metið að verðleikum.
Bæjarstjórinn á að uppfylla óskir
allra og gera allt af engu. Hann á að
framkvæma mikið, en jafnframt á
hann að innheimta sem lægst útsvör.
Þetta er alkunn formúla, en erfið í
framkvæmd. Hinsvegar er vitundin
um það, að málin hafi þokast í rétta
átt og sitthvað hafi verið framkvæmt,
sem hafi varanlegt gildi fyrir bæjarfé-
lagið, hverjum bæjarstjóra nokkur
umbun.
Eftir bæjarstjórnarkosningarnar
1974 urðu bæjarstjóraskipti á Akran-
esi, þar sem þáverandi bæjarstjóri
óskaði að hverfa til annarra starfa.
Vinstri meirihluti sá, sem myndaður
var eftir kosningarnar 1970 var stað-
ráðinn í því að halda áfram, enda hóf
hann margar og umfangsmiklar fram-
kvæmdir á vegum bæjarins á hinu
fyrsta kjörtímabili sínu. Má þar nefna
byggingu Dvalarheimilisins Höfða,
íþróttahúsið, sem þá var rétt að
gægjast upp úr jörðinni eftir 8 ára
byggingartíma, nýtt og veglegt hús
fyrir gagnfræðaskólann, miklar hafn-
arframkvæmdir, bæði við aðal hafnar-
garðinn og ferjubryggjuna, en hin
nýja Akraborg sem bílferja kom
vorið 1974. Auk þess hinar hefð-
bundnu framkvæmdir bæjarins við
vatnsveituna, götur - bæði gamlar og
nýjar - sjúkrahúsið og mörg önnur
verkefni. Það var því mikið í húfi að
vel tækist til um nýjan bæjarstjóra,
þar sem bæjarstjórinn hafði óvenju-
Íega mörg járn í eldinum. Allar
þessar framkvæmdir voru mjög brýn-
ar og hefðu átt að vera komnar
mörgum árum áður, svo Akranes
stæði jafn framarlega og hliðstæð
bæjarfélög.
Starf bæjarstjóra var auglýst 1974.
Nokkrir ágætir menn sóttu, en breið
samstaða náðist ekki um þá og
skoðanir nokkuð skiptar. Þá kom sú
hugmynd upp að leita til manna, sem
ekki höfðu sótt um starfið en þóttu
álitlegir. í þeim hópi var Magnús
Oddsson rafveitustjóri. Við Ólafur
Guðbrandsson - bæj arfulltrúar Fram-
sóknarflokksins - urðum fljótlega
mjög einhuga um það að besti kostur-
inn væri að fá Magnús sem bæjar-
stjóra. Stjórn rafveitunnar hafði farist
honum vel úr hendi. Hann var í nefnd
á vegum bæjarins, sem undirbjó há-
tíðarhöldin 1974 og þótti hafa þar
margt til brunns að bera. Mest var þó
um það vert að hann var þaulkunnug-
ur málefnum bæjarins og það tæki
hann engan tíma að setja sig inn í
þau. Eftir nokkurt þóf varð svo
samkomulag um Magnús, sem kjör-
inn var bæjarstjóri með 5 atkv. sumar-
ið 1974. Við Ólafur urðum ekki fyrir
vonbrigðum. Dugnaður Magnúsar,
hugkvæmni og brennandi áhugi fyrir
starfinu kom strax í ljós. Jafnframt
mikill metnaður um allt sem bæinn
varðaði, bæði innra starf í bænum og
öll samskipti út á við. Næstu ár urðu
hin viðburðaríkustu í sögu bæjarins.
Flest málin áttu lengri áðdraganda,
en hér skipti sköpum um framgang
þeirra, hve röskíega var að verki
gengið um þetta leyti. Skulu um þetta
nefnd nokkur dæmi.
Ferjubryggja Akraborgarinnar var
tekin í notkun sumarið 1975. íþrótta-
húsið í byrjun árs 1976. Dvalarheimil-
ið Höfði snemma árs 1977, Fjölbraut-
arskólinn hóf störf sín haustið 1977 í
húsnæði gagnfræðaskólans. Hér eru
aðeins nefndar 4 framkvæmdir sem
dæmi - þær eru mjög ólt'kar hver
annarri - en hafa allar mikilsvert gildi
fyrir Akraneskaupstað og mun svo
verða á ókomnum árum. Ég tel á
engan hallað þó fullyrt sé, að engum
einstökum manni er það frekar að
þakka en Magnúsi, hve vel tókst til
með framangreind verkefni og hversu
fljótt þau komust í gagnið. Þetta var
okkur ljóst, sem næstir honum stóðu
í bæjarmálunum. Á ég frá þessum
árum mjög ánægjulegar endur-
minningar um samstarfið við Magnús.
Þegar rúmt ár var eftir af kjörtíma-
bilinu slitnaði upp úr vinstra samstarf-
inu, sem staðið hafði í tæp 7 ár og
skilað bæjarfélaginu mikilsverðum
árangri. Hlutu þá leiðir að skilja
málefnalega í bæjarstjórninni, því oft
voru mjög skiptar skoðanir við hinn
nýja meirihluta í mörgum málum,
sem Magnús varð að taka afstöðu til.
Vináttutengslin slitnuðu þó aldrei og
drengilegar leikreglur voru í heiðri
hafðar. Álit okkar Ólafs á hæfni
Magnúsar sem bæjarstjóra breyttist
ekki og höfðum við á margan hátt
gott samstarf við hann. Þetta staðfest-
um við með því að greiða honum
atkv. við kjör bæjarstjóra 1978. Var
hann þá kjörinn með atkv. allra
bæjarfulltrúanna - 9 að tölu. Ég tel
að Magnús hafi vaxið af störfum
sínum sem bæjarstjóri. Hann megi
vera ánægður með árangurinn og
auðvelt sé að færa rök fyrir því að
tímabil hans sé meðal hinna merkari
í meir en 40 ára sögu bæjarins.
Magnús er bjartsýnn dugnaðar-
maður. Maður framfara og fram-
kvæmda. Óragur að takast á við
verkefnin og útsjónasamur fjárafla-
maður, svo sumum þykir jafnvel nóg
um. Hann er mikill félagsmálamaður.
Þetta hefur m.a. komið fram í áhuga
hans fyrir æskulýðsmálum bæjarins
og málefnum íþróttafólksins. Hann
er nú formaður íþróttabandalags
Akraness og stendur þar í stór fram-
kvæmdum. Frá æskudögum hefur
Magnús starfað mikið í K.F.U.M.
Fyrst í Reykjavík og síðar á Akranesi
eftir að hann flutti þangað. Fræðslu-
mál á Vesturlandi hefur hann látið
mjög til sín taka og löngum átt sæti í
Fræðsluráði Vesturlands, enda for-
ustumaður fyrir stofnun Fjölbrautar-
skólans á Akranesi, eins og áður er
vikið að. Þá hefur Magnús verið mjög
virkur í norrænu vinabæjarsamstarfi.
Lengi starfað í Rotaryhreyfingunni
og gengt þar ýmsum trúnaðarstörf-
um. Er þá margt enn ótalið.
Magnús kvæntist 1965 - Svandísi
Pétursdóttur kennara. Mikilhæfri
konu, sem einnig hefur tekið virkan
þátt í félagsmálum á Akranesi. Hún
er m.a. formaður í samtökunum
Þroskahjálp á Vesturlandi og formað-
ur Norræna félagsins á Akranesi.
Sonur þeirra er Pétur - 14 ára grunn-
skólanemi.
Magnús er enn ungur að árum.
Þrátt fyrir aðeins 50 ár sem mér finnst
enginn aldur - getur hann fagnað
starfsamri og viðburðaríkri ævi. Spor
hans sjást víða og munu lengi minna
á göngulag hans. Enn er ævisólin hátt
á lofti og bjart til allra átta. Margra
tíðinda getur því verið að vænta á
ókomnum árum. Það er ósk mín og
von að næstu áratugirnir verði honum
jafn árangursríkir og þeir síðustu. Að
sól hamingjunnar megi jafnan brosa
við honum. Að lokum þakka ég
honum langt og gott samstarf um leið
og ég flyt honum og fjölskyldu hans
innilegar árnaðaróskir á 50 ára afmæl-
*nu Dan. Ágústínusson.
ATH. á afmælisdaginn tekur Magnús
á móti gestum í Öddfellowhúsinu á
Akranesi kl. 3-6.
HANSKAR OG TOSKURIURVALI
Teg.6962
Kr. 2.300.-
Litir: Grátt, svart.
Teg. 6953
Kr. 1.870.-
Litur: Grátt, svart.
Teg.6997
Kr. 2.300.-
Litir: Grátt, svart.
Hanskar^^j^^
Skinn ^^3^^
Frákr. 1.195
Litur: Svart, brúnt, beige.
PÓSTSENDUM Litur: Svartur, brúnt, blátt.
VERSLUNIN JÓJÓ AUSTURSTRÆTI8 sími 13707.