NT - 08.12.1985, Blaðsíða 3
Hann sótti aldrei um inngöngu í
framtiðina, lét sig ekki dreyma um
að sín yrði minnst. Né heldur bað
hann bláókunnugt fólk að veifa
pálmum eða smyrja fætur sína.
Óhugur greip hann, er hann sá
æðið í augum þessa fólks. Það yrðu
vandræði ef þessi geggjun yrði
leyst úr læðingi, svo hann bað það
fara. En þróttlítil rödd hans týndist í
fagnaðarlátunum og enginn heyrði
hana. Höfðu þau nokkurn tíma
heyrt hana?, velti hann fyrir sér.
Ógæfa hans var að lifa með sundr-
aðri þjóð á ráðvilltum tímum, þar
sem auðmýkt var nýjung, áhrifamikil
tíska. Með hryllingi minntist hann
sagna um fólk í fjarlægari lands-
hluta, er barið hafði og flegið sjálft
sig í hans nafni. Allt sem hann vildi
var að fá að vera maður, að fá að
hafa mannlega sál. En æstur
múgurinn skildi það ekki og - það
sem verra var - það var önnur sál
innan í sál hans, djúp sem hafið,
víðáttumikil sem himinninn. Hvernig
sem hann reyndi að bæla hana
niður braust hún fram og náði valdi
á honum. Það var þessi innri sál,
sem stjórnaði öllum furðuverkun-
um, ekki hann sjálfur. Hvað var.
hann annað en aumur trésmiður,
skólaður í iðn föður síns, sem ýtt
hafði verið á faraldsfót vegna mis-
skilnings annarra á þessari innri
sál. Náðargáfu kölluðu þeir hana,
en hann formælti henni í hljóði.
Hversu oft, er hann ætlaði að mat-
ast eða ganga til hvílu með kven-
manni, hafði hún ekki brotist úr
böndum sínum og tekið að segja
furðulegar sögur, sem hann skildi
ekki sjálfur? Skelfilegast var þó til
þess að hugsa að fyrst önnur sál
var inni í hans eigin, gat þá ekki
verið enn önnur inni í hinni innri og
enn önnur inni í hinni, og þannig
endalaust? Ef til vill var hann fleiri
en einn maður, ef til vill var hann
allir menn. Bitur óskaði hann þess
að hann ætti sjálfur sína eigin sál,
þeirri sem unni víni og korni og vífi
og bakaðri sléttunni, en hún hvarf
alltaf í móðu líkri þeirri er rómversku
hermennirnir þyrluðu upp er þeir
þrömmuðu um rykuga stígu þessa
gæfusnauða lands. Hvers vegna
fordæmdu öldungarnir og prestarnir
hann? Hann sem aldrei hafði svívirt
Lögmálið. Mæðulegt bros rann fram
á þurrar varir hans, er hann minntist
þeirra trúbrjálæöinga, er sögðu að
hann væri sjálft Lögmálið.
Nokkrum dögum síðar, er hátíð
Lambsins fór í hönd, settist hann að
teiti með vinum sínum, en er vínið
tók að svífa á hina breysku félaga
og væringar gengu í garð fann
hann til þeirrar löngunar að vera
einn. Hann ráfaði út í ferskt nætur-
loftið, numinn af anda vínsins, og
endaði sú gönguför einhvern veginn
í unaðsfögrum garði, þar sem höfgi
seig á hann, svo hann lagðist til
svefns. Þar dreymdi hann hinn dul-
arfyllsta draum. Þótti honum sem í
flöktandi móðu hann sæi jullinn
bikar nálgast hann úr lofti í Ijós-
hnoðu, en er hann rétti fram grannar
hendur sínar til að grípa bikarinn og
teyga hann, breyttist skálin í gálga
líkan þeim er Rómverjarnir kross-
festu þjófa og ræningja á úti á
þjóðvegunum. Og á gálga þessum
hékk ókunnugur, nakinn maður,
sárum drifinn. Óttasleginn ýtti hann
fram lófunum, til að víkja þessari
ógeðfelldu sýn á brott frá sér, en
það reyndist of seint. Snertingin
hafði þegar átt sér stað. Á þeirri
stundu varð hnoðan skerandi skær
og lúðrar miklir gullu, svo hann
hrökk upp í kófi, feginn að vakna til
þessa heims. Þó greip hann einhver
óróleiki, því hann vissi að þetta var
ekki eigin draumur, heldur sálarinn-
ar inni í sálinni. Á sömu stundina sá
hann Ijóskyndlaröð nálgast og
greindi tæran hljóm rómverskra
gjallarhorna, er barst auðveldlega
yfir þunna nóttinai
Daginn eftir, enn undrandi yfir því
réttarmorði, sem á honum hafði
verið framið, enn kvalinn af benjum,
með hendurnar er virtust ógnar-
langar á örmum krossins, fann hann
til bitrar kaldhæðni í garð örlag-
anna. Þeir höfðu logið á hann sakir,
hætt og spottað án nokkurrar
ástæðu. Er dómsorðið var kveðið
hafði enginn orðið meira undrandi
en hann. Ef heimurinn var slíkur
markmiðslaus ærslaleikur var hann
glaður yfir því að kveðja hann. Þá
loks mundi hann losna undan því
bagalega hlutverki, sem áhangend-
ur hans höfðu heimfært upp á hann.
Þá loks mundi hann gleymast.
Tileinkað Martin Buber, verj-
anda hins innra máls.
JOLATILBOÐ NR.1
M ETSÖLUSAMSTÆÐAN FRÁ TECHNICS
SYSTEM Z-100 er mest selda Teclinics
hljómtækjasamstæðan á íslandi í dag. ■
Ástæðumar fyrir vinsældum hennar eru margar
og augljósar.
Plöstuspilarinn er með hinu fullkomna og
nákvæma 4TP pick-up kerfi.
Kröftugur 70 watta magnari, útvarp með
FM-steríó, LB, MB, kassettutækið er með
snertitökkum, nákvæmum fluorcent mælum og að
sjálfsögðu Dolby kerfi.
Tveir 100 watta hátalarar sjá svo um hljóminn.
Ekki spillir glæsilegt útlit en tækin eru í
vönduðum skáp með lituðu gleri og á hjólum.
Nú gefst ykkur enn tækifæri til þess að eignast
þessa frábæru hljómtækjasamstæðu á einstöku
jólatílboðsverðí.
Rétt verð 48.370,-
JÓLATILBOÐ 35.930.-
I
>JAPIS
BRAUTARHOLT 2. SÍMI 27133
Úrskjóðu sögunnar
NT Sunnudagur 8. desember 3
HVER ERMAÐURINN?