NT - 08.12.1985, Blaðsíða 9
NT Sunnudagur 8. desember 9
um. Gera ýmis prakkarastrik eins
og er von og vísa en sinna skyldu-
störfum sínum af mikilli kost-
gæfni...
Kvikmyndin er nýjasta fram-
leiösla kvikmyndafyrirtækisins
Nýs lífs Þráins Bertelssonar sem
þarf sko ekki aö kynna fyrir íslend-
ingum, ekki fremur en Þór og
Danna. Þráinn leikstýrirog skrifaöi
handritiö ásamt Ara Kristinssyni
sem að auki sá um kvikmyndunina
og klippingu myndarinnar. Aö auki
komu fjöldi annarra valinkunnra
manna nálægt gerö myndarinnar.
Myndin veröur frumsýnd 19.
desember og væntanlega eiga
kvikmyndahúsagestir eftir aö taka
bakföll af gjallandi hlátri.
Þrumur í
Austurbæjarbioi
Þaö hefur nokkuö færst í tísku
aö gera framhaldsmyndir um
kempur sem áhorfendum hafa fall-
iö í geö. Stjörnustríð og Súper-
menn, Rambóarog Harrison Ford-
arar, birtast meö reglulegu millibili
á hvita tjaldinu og draga alltaf aö
jafn marga aödáendur. Einn þess-
ara kappa er ástralska fyrirbæriö
Mad Max, sem Mel Gibson leikur.
Nú hefur þriöja myndin í rööinni
veriö framleidd og veröur hún jóla-
mynd Austurbæjarbíós i ár. Nefn-
ist hún Beyond the thunderdom og
gengur undir nafninu Wlad Max í
þrumuhvolfi hjá forráöamönnum
kvikmyndahússins. Myndin er
framleidd í samvinnu Astrala og
Bandaríkjamanna og er Charles
Miller bæði leikstjóri og framleið-
andi. Kyntákniö og söngkonan
Tina Turner leikur stórt hlutverk í
myndinni en titillag hennar We
don't need another Hero hefur
trónaö ofarlega á vinsældalistum.
I litlu sölunum verða kvikmynd-
irnar Gremlins og Protokoll meö
Goldie Hawn.
Afturtil
framtíðarinnar
Jólamynd Laugarásbfós er enn
ein mestölukvikmynda úr smiöju
Spielbergs. Hér er um aö ræða
Aftur til framtíðarinnar (Back to
the future), sem Robert Zemeckis,
leikstýrir og Steven Spielberg
framleiöir. Mynd þessi sló öll að-
sóknarmet í Bandaríkjunum sl.
sumar, enda er hér um fyrirtaks
unglingamynd aö ræöa, stór-
skemmtilega og fulla af mannlegri
hlýju. Segir hún frá unglingspilti
sem er góðkunnugur rugluðum
uppfinningamanni. Uppfinninga-
maöurinn hefur búiö til tímavél,
sem gerir mönnum kleift aö feröast
fram og aftur í tímanum. Fyrir
slysni ferðast unglingurinn aftur til
þess tíma er foreldrar hans voru á
svipuðum aldri og hann sjálfur.
Mamma hans fellur fyrir þessum
ókunnuga gesti og stráksi á í
mestu erfiðleikum meö að láta for-
eldra sína ná saman.
Laugarásbíó hefur fengiö tvær
kópíur af kvikmyndinni og veröur
hún sýnd í báöum sölum kvik-
myndahússins til að byrja meö.
Upp úr áramótum er svo ætlunin
að senda annað eintakið út á land,
en meö því er verið aö bregöast
viö þeirri þróun sem átt hefur sér
staö á landsbyggðinni, en hún er sú
aö fólk er einfaldlega hætt aö fara á
bíó, enda berast kvikmyndir yfir-
leitt fyrr á myndböndum út um hin-
ar dreifðú byggðir landsins.
Kabojmynd
í Stjörnubíói
Silverado heitir jólamyndin í
Stjörnubíói. Þetta er hörkuspenn-
andi, glænýr stórvestri. Framleiö-
andi og leikstjóri er Lawrence
Kasdan. Hann er íslenskum kvik-
myndaáhorfendum ekki ókunnur
því hann skrifaði handritiö aö stór-
myndum eins og Raiders of the
Lost Ark, The Empire Strikes
Back, Return of the Jedi o. fl. en
leikstýrði Body Heat og The Big
Chill. Margir frægir leikarar leika í
myndinni m.a Danny Glover (Plac-
es in the Heart) Linda Hunt (sem
fékk Óskarsverölaun fyrir leik sinn
í The Year of Living Dangerously)
Scott Glenn (Apocalypse Now,
The Right Stuff) og Rosanna Arqu-
ette (Desperately Seeking Susan).
En nú hefur sumsé Lawrence
Kasdan vestrann til vegs og virð-
ingar. Og djúpa röddin sem kynnir
myndina segir: „Þegar engin lög
eru í gildi og lífið lítils virði, riöufjór-
ir félagar á vit hins ókunna.“
Spennandi, ekki satt?
Svart og sykurlaust
í Regnboganum veröa tvær
jólamyndir. Ber þar fyrst að telja
splunkunýja islensk-þýska kvik-
mynd Svart og sykurlaust sem
leikhópurinn Svart og sykurlaust
geröi í samvinnu viö v-þýska kvik-
myndaleikstjórann Lutz Koner-
mann og v-þýska kvikmyndafyrir-
tækiö Optische Werke. Og vænt-
anlega kemur þessi kvikmynd til
meö aö slá i gegn, því brotin sem
fréttamönnum voru sýnd nýlega
lofa mjög góöu ...
Myndin er í svarthvítu, gerist aö
mestu leyti á Ítalíuogfjallarannars
vegar um islenskan leikhóp sem
er í leikferð á Ítalíu og hins vegarv-
þýskan kennara sem er í fríi á svip-
uöum slóöum. Örlagaríkir atburöir
gerast og fyrir tilstuölan einkenni-
legra afla tvinnast saga þeirra
saman. Grín, glens og gaman og
ástin blossar upp, lífið iöar og
draumar rætast. Meö helstu hlut-
verk fara: Edda Heiðrún
Bachmann, Guöjón Ketilsson,
Guöjón Pedersen, Hanna María
Karlsdóttir, Kolbrún Halldórsdóttir,
Lutz Konermann, Þröstur Guö-
bjartsson auk Skúla gamla og
ítölsku leikkonunnar sem grét
tveimur, tveimurog hálfu og þrem-
ur tárum eftir pöntun. Myndin er aö
mestu leikin á íslensku og ensku
en þó má einstöku sinnum greina i
henni ítölsk orö.
Myndin hefur þegar verið seld til
tveggja þýskra sjónvarpsstöðva.
Og viö bíöum spennt...
Hlátrasköll og tár
Hláturinn lengir lífiö en sjálfur
hláturinn er líka lífsseigur, sumir
segja eilífur. Svipaö er hægt að
fullyrða um grátinn og þaö sem kitl-
aöi hláturtaugar og grátkirtla fyrir
50 árum gerir þaö enn. í Regnbog-
anum veröur hiö sígilda meistara-
stykki Chaplins, The Kid, eöa
Drengurinn, tekið til endursýning-
ar. í þeirri kvikmynd spilar Chaplin
á viökvæmt strengjakerfi áhorf-
andans og laðar fram tár úr augn-
krókum samtímis brosviprum viö
munn. Á stundum viröist viö-
kvæmnin keyra úr hófi en í næstu
andrá er þaö gleymt en hláturs-
krampi í maga ætlar aö gera út af
viö áhorfandann.
Með fínu fólki (Idle class) sem
er 15 mínútna meistaragrín um
yfirstéttina eftir Chaplin verður viö-
auki viö Drenginn.
Olkelduvatn
í Tónabíói
Gamli bítillinn George Harrisson
á stóran þátt í jólakvikmynd Tóna-
bíós Vatnið. Hann erframleiöandi
kvikmyndarinnar og semur tónlist-
ina ásamt gítarsnillingnum Eric
Clapton og fleirum. Myrd þessi
gerist á eyju í Karabíska hafinu og
erá léttari nótunum. Eyjaskeggjar,
sem búa við þröngan kost finna
ölkelduvatn í jöröu sem gerir þá á
svipstundu auðuga. Aöalhlutverk
er í höndum Michael Caine.
MZEROWATT
tilboð -
tíminn!
Þrátt fyrir lítið þvottaherbergi er örugglega
gólfpláss bæði fyrir Zerowatt þvottavél og
þurrkara því nú er hægt að setja þurrkarann
ofan á þvottavélina. Með verð og gæði í huga er
þetta ekki spurning. Það er öruggiega pláss
fyrir Zerowatt.
nM{OKp
nwtaww
^ SAMBANDSINS
ÁRMÚLA3 SÍMAR 6879/0-8(266