NT


NT - 08.12.1985, Side 7

NT - 08.12.1985, Side 7
Þú virðist hafa mörg járn í eldinum, þú hefur staðið að tveimur þremur myndum á ári undanfarið. Ég var duglegur í fyrra, í ár kem ég sennilega ekki til meö aö leika í nema einni mynd, hugsanlega leikstýra annarri. Honkytonk man hlaut dræma aðsókn, kanntu nokkra skýringu áþví? Nei, ég gerði mér að vísu aldrei vonir um aö hún hlyti mjög mikla aösókn, Honkytonk man er ekki þannig mynd. Staða þín innan bandaríska kvikmyndaiðnaðarins er með nokkuð sérstökum hætti... Já að vissu leyti, ég hef engan áhuga á stóru Holly- wood myndunum, þó ég hafi unnið þar annaö slagiö. Nýjasta mynd mín Pale Rider er klassísk kúrekamynd en hún á ekkert er- indi til Hollywood. Hversvegna snýrðu þér aftur að vestranum? Innsæið ræður ferð- inni, ég er búinn aö velta þessari sögu fyrir mér í fjögur ár og núna er rétti tíminn til aö hrinda henni í framkvæmd. Rætur bandarísku kvikmynd- arinnar er kúrekamyndin. Er þér kannski nauðsynlegt að gera kúrekamynd annað slagið? Það er rétt, ég á rætur mínar aö rekja til kúreka mynd- arinnar. Hins vegar er ég ekki bundinn henni einum óleysan- legum böndum og þaö er fátt sem fer meir í taugarnar á mér en sífelldar spurningar um hvenær ég ætli aö gera næst vestra. Ég tek eitt verkefni fyrir í einu, svo ræöur löngun mín feröinni um hvað ég geri næst. Ertu með eitthvað fleira á prjónunum? Já, ég er með sögu um tvær systur í New York, í henni verö ég bakvið myndavélina. teíSlii

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.