NT

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

NT - 08.12.1985, Qupperneq 13

NT - 08.12.1985, Qupperneq 13
NT Sunnudagur 8. desember 1 3 orðin lítt bærileg, og matarlystin rokin út í veður og vind. Samt sner- um við okkur að því að fá skammt* inn okkar. En nú brá svo við að konan blessuð sem áður var svo alúðleg var orðin eins og steingerv- ingur í framan og skellti á diskana okkar smáslettu af kássunni, rétt nægilegt til að óhreinka þá. Það var ekki hátt á okkur risið þar sem við sátum og átum hina dönsku herglás. Við heyrðum pískrið allt í kringum okkur og vissum engan veginn hvernig við áttum að vera. Á skrifstofu offiserans urðum við að gefa upp nöfn og heimilisföng. Gera grein fyrir hvaðan við kæmum, hvert við værum að fara og hvað við værum hér að gera. Við urðum að sýna ökuskírteini og farmiðana með skipinu. Foringinn virtist loks sannfærður um að danska hernum stafaði engin hætta af furðufuglum þessum. Við vorum jafnvel ekki grunlaus um að hann væri farinn að hafa gaman af. Fegin höfðum við verið er við kom- um inn á „hótelið". Hálfu fegnari gengum við þaðan út. Þá varð mér líka Ijóst hvers vegna jepparnir voru málaðir svo ósmekklega. Það voru felulitir herbíla. Nú, við höfðum þó fengið að borða. Sirrý og Þröstur þrefaldan skammt, við Haukur einn þriðja úr skammti. Það er einn' skammtur á mann ef jafnt er deilt. Við komum niður að höfn í þann mund er Norröna var að leggjast að. Það var ekki fyrr en um.borð að við gátum farið að hlæja að ævin- týrinu. Það mátti með sanni segja að dagurinn okkar í Færeyjum hafði orðið viðburðaríkur. Ennþá getum við velst um af hlátri þe'gar við minnumst inngöngu okkar í danska herinn. Við erum enn að útmála hvert fyrir öðru hve við vor- um hamingjusöm yfir þessum ódýra, góða mat í byrjun. Hvað danski yfirforinginn var óðamála og hneykslaður yfir „innrásinni" og hve lúpuleg við svældum í okkur kássuna þá hina dönsku. Siqrún Biörgvinsdóttir 'frU gejum gooar vœiuir og menning

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.