NT

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

NT - 08.12.1985, Qupperneq 23

NT - 08.12.1985, Qupperneq 23
NT Sunnudagur8. desember 2 3 ÁRIÐ 1984 gervir og er menn komu fram sáu þeir aö selshöfuð kom upp úr eld- grófinni. Heimakona ein kom fyrst fram og sá þessi tíðindi. Hún tók lurk einn er lá í dyrunum og laust í höfuð selnum. Hann gekk upp við höggið og gægðist upp á ársalinn Þórgunnu. Þá gekk til húskarl og barði selinn. Gekk hann upp við hvert högg þar til að hann kom upp við hreifana, þá féll húskarl í óvit. Urðu þá allir óttafullir þeir er við voru. Þá hljóp til sveinninn Kjartan og tók upp mikla járndrepsleggju og laust í höfuð selnum og varð það högg mikið en hann skók höfuðið og litaðist um. Lét Kjartan þá fara hvert að öðru en selurinn gekk þá niður við sem hann ræki hæl. Hann barði þar til selurinn gekk svo niður að hann lamdi saman gólfið fyrir ofan höfuð honum og svo fór jafn- an um veturinn að allir fyrirburðir óttuðust mest Kjartan. Um morguninn, er þeir Þóroddur fóru utan af Nesi með skreiðina, týndust þeir allir út fyrir Enni. Rak þar upp skipið og skreiðina undir Ennið en líkin fundust eigi. En er þessi tíðindi spurðust til Fróðár buðu þau Kjartan og Þuríð- ur nábúum sínum þangað til erfis. Var þá tekið jólaöl þeirra og snúið til erfisins. En hið fyrsta kveld er menn voru að erfinu og menn voru í sæti komnir, þá gengur Þóroddur bóndi í skálann og förunautar hans allir alvotir. Menn fögnuðu vel Þóroddi því að þetta þótti góður fyrirburður því að þá höfðu menn það fyrirsatt að þá væri mönnum vel fagnað að Ránar ef sædauðir menn vitjuðu erfis síns. En þá var enn lítt af numin forneskjan þó að menn væru skírðir og kristnir að kalla. Þeir Þóroddur gengu eftir endi- löngum setaskálanum en hann var tvídyrður. Þeir gengu til eldaskála og tóku einskis manns kveðju. Settust þeir við eldinn en heima- menn stukku úr eldaskálanum en þeir Þóroddur sátu þar eftir þar til eldurinn var fölskaður. Þá hurfu þeir á brott. Fór þetta svo hvert kveld, meðan erfið stóð, að þeir komu til eldanna. Hér var mart um rætt að erfinu. Gátu sumir að þetta mundi af taka er lokið væri erfinu. Fóru boðsmenn heimeftirveisluna en þar voru híbýli heldur daufleg eftir. Það kveld er boösmenn voru brottu voru gervir máleldar að vanda. En er eldar brunnu kom Þóroddur inn með sveit sína og voru allir votir. Settust þeir niður við eldinn og tóku að vinda sig. Og er þeir höfðu niður sest kom inn Þórir viðleggur og hans sveitungar sex. Voru þeir allir moldugir. Þeir skóku klæðin og hreyttu moldinni á þá Þórodd. Heimamenn stukku úr eldhúsinu sem von var að og höfðu hvorki á því kveldi Ijós né steina og enga þá hluti að þeir hefðu neina veru af eldinum. Annað kveld eftir var máleldur ger í öðru húsi. Var þá ætlað að þeir mundu síður þangað koma. En það fór eigi svo því að allt gekk með sama hætti og hið fyrra kveldið. Komu þeir hvorirtveggju til eldanna. Hið þriðja kveld gaf Kjartan það ráð til að gera skyldi langeld mikinn í eldaskála en máleld skyldi gera í öðru húsi. Og svo var gert. Og þá endist með því móti að þeir Þór- oddur sátu við langeld en heima- menn við hinn litla eld og svo fór fram um öll jólin. Þá var svo komið að meir og meir lét í skreiðarhlaðanum. Var þá svo að heyra nætur sem daga að skreiðin væri rifin. Eftir það voru þær stundir að skreiðina þurfti að hafa. Var þá leitað til hlaðans og sá maður er upp kom á hlaðann sá þau tíðindi að upp úr hlaðanum kom rófa, vaxin sem nautsrófa sviðin. Hún var snögg og selhár. Sá maður er upp fór á hlaðann tók í rófuna og togaði og bað aðra menn til fara með sér. Fóru menn þá upp á hlaðann, bæði karlar og konur, og toguðu rófuna og fengu eigi að gert. Skildu menn eigi ann- að en rófan væri dauð. Og er þeir toguðu sem mest strauk rófan úr höndum þeim svo að skinnið fylgdi úr lófum þeirra er mest höfðu á tek- iö en varð eigi síðan vart við róf- una. Var þá skreiðin upp borin og var þar hver fiskur úr roði rifinn svo að þar beið engan fisk i þegar nið- ur sótti í hlaðann en þar fannst engi hlutur kvikur i hlaðanum. Næst þessum tíðindum tók sótt Þorgríma galdrakinn, kona Þóris viðleggs. Hún lá litla hríð áður hún andaðist og hið sama kveld sem hún var jörðuð sást hún í liði með Þóri bónda sínum. Þá endurnýjaði sóttina í annað sinn þá er rófan hafði sýnst og önduðust þá meir konur en karlar. Létust þá enn sex menn í hríöinni. En sumt fólk flýði fyrir reimleikum og afturgöngum. Um haustið höfðu þar verið þrir tigir hjóna en átján önduðust en fimm stukku í brott en sjö voru eftir að gói. En þá er svo var komið undrum þeim var það einn dag að Kjartan fór inn til Helgafells að finna Snorra goða móðurbróður sinn og leitaði ráðs við hann, hvað að skyldi gera undrum þeim er yfir voru komin. Þá var kominn prestur sá til Helgafells er Gissur hvíti hafði sent Snorra goða. Sendi Snorri prestinn út til Fróðár með Kjartani og Þórð kausa son sinn og sex menn aðra. Hann gaf þau ráð til að brenna skyldi ársal Þórgunnu en sækja þá menn alla í dyradómi er aftur gengu, bað prest veita þar tiðir, vígja vatn og skrifta mönnum. Síðan riðu þeir út til Fróðár og kvöddu menn af næstum bæjum með sér um leið og komu til Fróðár um kveldið fyrir kyndilmessu í þann tíma er máleldar voru gervir. Þá hafði Þuríður húsfreyja tekið sótt með þeim hætti sem þeir er látist höfðu. Kjartan gekk inn jDegar og sá að þeir Þóroddur sátu við eld sem þeir voru vanir. Kjartan tók ofan ársal- inn Þórgunnu, gekk síðan í elda- skála, tók glóð af eldi og gekk út með. Var þá brenndur allur rekkju- búnaðurinn er Þórgunna hafði átt. Eftir það stefndi Kjartan Þóri við- legg en Þórður kausi Þóroddi bónda um það að þeir gengju þar um híbýli ólofað og firrðu menn bæði lífi og heilsu. Ollum var þeim stefnt er við eldinn sátu. Síðan var nefndur dyradómur og sagðar fram sakir og farið aö öllum málum sem á þingadómum. Voru þar kviðir bornir, reifð mál og dæmd. En síðan er dómsorði var á lokið um Þóri viðlegg stóð hann upp og mælti: „Setið er nú meðan sætt er.“ Eftir það gekk hann út þær dyr sem dómurinn var eigi fyrir settur. Þá var lokið dómsorði á sauða- mann. En er hann heyrði það stóð hann upp og mælti: „Fara skal nú og hygg eg að þó væri fyrr sæmra.“ En er Þorgríma galdrakinn heyrði að dómsorði var á hana lok- ið stóð hún upp og mælti: „Verið er nú meðan vært er.“ Siðan var sóttur hver að öðrum og stóð svo hver upp sem dómur féll á og mæltu allir nokkuð er út gengu og fannst það á hvers orð- um að nauðigur losnaði. Síðan var sókn felld á Þórodd bónda. Og er hann heyrði það stóð hann upp og mælti: „Fátt hygg eg hér friða enda flýjum nú allir.“ Gekk hann þá út eftir það. Síðan gengu þeir Kjartan inn. Bar prestur þá vígt vatn og helga dóma um öll hús. Eftir um daginn syngur prestur tíðir allar og messu hátiðlega og eftir þaö tókust af all- ar afturgöngur að Fróðá og reim- leikaren Þuríði batnaði sóttarinnar svo að hún varð heil. Um vorið eftir undur þessi tók Kjartan sér hjón og bjó að Fróðá lengi síðan og varð hinn mesti garpur. Stórvíðburðír í mYndum og málí með íslenskum sérkafla Hefur nú komíð út í tuttugu ár Þetta frábæra bókmenntaverk er samsett af 480 fréttagrein- um og eru þær áréttaðar með jafnmörgum atburðamyndum og er helmingur þeirra prentað- ur í Iitum í heilsíðustærðum á köflum. Artnáll ársins skiptist í 12 aðalkafla. Auk þess Qallar verkið um einstök sérsvið, syo sem alþjóðamál - efhahags- mál - víslndl og tsekní Þessi bókaflokkur er orðinn ómissandi öllum þeim er láta sig samtíðina einhveiju skipta og vilja eiga möguleiká á því að geta flett upp í óyggjandi heimildum um atburði hér á landi og um heim allan. Eldri árgangar eru á þrotum. Frábaert bókmenntaverk fyrir alla fjölskylduna. Öll bókakauD hfð pófeaútgáíanjlóööaga Þingholtsstræti 27, 101 Reykjavík. Símar 13510—617059. Pósthólf 147. ÚRVALS AMERÍSK HEIMILISTÆKI ELECTRIC SSSSiáí""1™' WS4 EunocAna HEIMILIS- OG RAFTÆKIADEILD

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.