NT - 13.12.1985, Side 2
Frá Borgarskipulagi
Kvosin ’85
Teikningar og líkan af skipulagstillögunni eru til sýnis í
Byggingarþjónustunni, Hallveigarstíg 1, frá kl. 10.00-
18.00 alla virka daga.
Fulltrúar Borgarskipulags og hönnuða verða til staðar á
miðvikudögum kl. 16.00-18.00.
•Æfa Iðnaðarráðuneytið
Æ®,auglýsir
Nýtt símanúmer
6-21-900
Jafnframt er raouneytið enn tengt við aðalsímamiðstöð
stjórnarráðsins 25000
Lóð og hús til sölu
kauptilboð óskast í eftirfarandi eignir
Skútuvogur 7, Reykjavík, grunnbygging að iðnaðarhúsnæði, þ.e. sökklarog
steypt plata að hluta, 43002. Stærð lóðar er 11.155 m2.
Kópavogsbraut 9, Kópavogi, einlyft steinhús með risi og bílskúr. Bruna-
bótamat kr. 3.407.000.- Stærð húss 285m3 til sýnis föstudaginn 13. des. og
laugardaginn 14. des. kl. 13-15.00.
Tilboðseyðublöð liggja frammi í ofangreindri húseign og á skrifstofu vorri í
Borgartúni 7, Reykjavík. Tilboð verða opnuð kl.11.00, föstudaginn 20. des-
ember 1985,1 Borgartúni 7, Reykjavík.
INNKAUPASTOFNUN RIKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844____
w
Frá Borgarskipulagi
Skrifstofur Borgarskipulags Reykjavíkur eru fluttar úr
Þverholti 15, í Borgartún 3,3. hæð, gegnt Skúlatúni 2.
Borgarskipulag Reykjavíkur
VST - ÚTBOÐ
Verkfræðistofa Sigurðar Thoroddsen óskar eftir tilboðum I forsteyptar for-
spenntar holplötur fyrir byggingu Pennans s.f. og Lyfjabúðar Breiðholts aö
Álfabakka 12, Reykjavík. Heildarmagn er áætlað 1280 m2. Útboðsgagna má
vitja hjá undirrituðum gegn 3000.- kr. skilatryggingu frá og meö 12. desember
1985. Tiiboö verða opnuð á sama stað kl. 11.00 föstudaqinn 20. desember
1985.
VERKFRÆÐISTOFA SIGURÐAR THORODDSEN HF
' VERKFRÆÐIRÁOGJAFAR FRV
Jörð óskast í skiptum
óska eftir jörð sama hvar á landinu er, í skiptum fyrir 3ja
herbergja íbúð í góðu standi í Keflavík.
Tilboð leggist inn á auglýsingadeild NT fyrir mánaða'-
mótin des. - jan. merkt 10.
Frá menntamálaráðuneytinu
Staða kennara I tölvufræðum við Menntaskólann við Hamrahlíð er laus frá
næstu áramótum. Til greina kemur hlutastarf eða stundakennsla. Ennfremur
vantar kennara I efnafræði frá sama tíma.
Upplýsingar veitir rektor Menntaskólans við Hamrahlíð.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist mennta-
málaráðuneytinu, Hverfisgötu 6,101 Reykjavík fyrir 20. desember.
Menntamálaráðuneytið
Til sölu
Til sölu Danmax ísskápur í góðu lagi. Selst ódýrt.
Upplýsingar í síma 43259 eftir kl. 4 á daginn.
Föstudagur 13. desember 1985 2
LlL' Fréttír
Þak á niðurskurð
mjólkurframleiðslu
- segir Jón Helgason, landbúnaðarráðherra
■ Jón Helgason landbúnaðar-
ráðherra hefur óskað eftir því við
Stéttarsamband bænda að tillögur
Stéttasambandsins verði lagðar til
grundvallar svæðaskiptingu í
mjólkurframleiðslu en þó þannig
að niðurskurður í mjólkurfram-
leiðslu einstakra svæða verði ekki
meiri en um 6% miðað við fram-
Ieiðslu síðasta árs.
í samtali við NT segir ráðherra
að meðalsamdrátturinn muni
nema um 4% en nauðsynlegt sé að
koma í veg fyrir að niðurskurður-
inn komi ekki of hart niður á ein-
staka búum eða búsvæðum.
„Eftir að Stéttasamband bænda
hafði mótað fyrstu tillögur sínar þá
vorum við sammála um að á þeim
væru ákveðnir agnúar sem yrði að
leiðrétta. Ég óskaði því eftir að
reiknuð yrði út leyfileg framleiðsla
hvers bónda fyrir sig miðað við
svæðaskiptingu og án hennar.
Pessir útreikningar liggja ekki enn
fyrir en niðurstaðna er að vænta nú
öðru hvoru megin við helgina."
Jón Helgason leggur áherslu á
að miðað sé við að þær reglur um
skiptingu, sem nú er unnið að, gildi
fyrst og fremst fyrir þetta verðlags-
ár og þannig skapist tími til að at-
huga nánar hvernig haga beri fram-
leiðslunni eftir að upplýsingar frá
bændum liggja fyrir.
„Ég tel rétt að Stéttasambands-
fundur fjalli um þær reglur sem
gilda eiga í framtíðinni og þar verði
reynt að móta stefnuna til lengri
tíma. Það er einnig ljóst að grund-
vallaratriðið í hinum nýju lögum er
að byggja upp nýja atvinnustarf-
semi í sveitunum sem gefi mönnum
viðunandi afkomu auk hinna hefð-
bundnu búgreina.“
Hvað greiðslur til sauðfjár-
bænda snertir vegna slátrunar í
haust þá kom fram í viðtali við ráð-
herra að þessa dagana er verið að
ganga frá fyrirframgreiðslum ríkis-
sjóðs á niðurgreiðslum og útflutn-
ingsbótum vegna kindakjötsfram-
leiðslunnar og nema þær alls 447
milljónum króna.
„Ég vænti þess að viðskipta-
bankarnir standi við þann samning
sem gerður var í vor um að afurða-
lán væru óbreytt en greiðslur ríkis-
■ Jón Helgason
sjóðs eru miðaðar við það. Með
því móti er tryggt að afurðastöðv-
arnar geta greitt bændum fullt verð
fyrir framleiðsluna á kindakjöti,"
segir landbúnaðarráðherra.
Hitnað í hamsi
■ Þingmönnum getur hitnað í
hamsi eins og öðrum. Reyndar má
fullyrða að þcim hitni hlutfallslega
oftar í hamsi en öðrum starfsstétt-
um vegna starfa síns. Meðfylgjandi
bræði bitnar oftast á pólitískum
andstæðingum en það hcndir ein-
stöku sinnum að þeir ausa úr skál-
um reiði sinnar yfir þá sem yfirleitt
eru samherjar. Þvílíkur atburður
átti sér stað í gær er svokallað
kvótafrumvarp kom til annarrar
umræðu á Alþingi, nánar tiltekið í
neðri deild. Ólafur Þ. Þórðarson 5.
þm. Vestfjarðakjördæmis tók til
máls og var mikið niðri fyrir. Helst
beindi liann orðum sínum að Hall-
dóri Ásgrímssyni sjávarútvegsráð-
herra sem er óneitanlega sam-
flokksmaður þingmannsins. Ólaf-
ur líkti honum við einræðisherra af
verstu sort og varð tíðrætt um bók-
menntalestur og skaplyndi Hall-
dórs þannig að ekki fór á milli mála
að grunnt er á því góða milli þeirra
tvcggja vegna stjórnunar fisk-
veiða.
Hvatning til launþega
■ í tilefni þess að jólin nálgast
óðfluga og launþegar naga sig í
handarbök vegna tómahljóðsins í
sparibauknum langar okkur að
lauma að baráttukveðjum frá stór-
huga ntönnum, sem láta ekki slíka
smámuni sem erfiða efnahags-
stöðu buga sig, heldur rísa upp tví-
efldir og stappa stálinu hver í ann-
an með kristilegum hvatningar-
söngvum. Þessi barst okkur með
flöskupósti frá Belgíu:
Afram kristmenn krossmenn,
á krossgötum stöndum vér.
IHóti straumnum stefnir
strandaður Hafskipaher.
Þvotturinn verður þó allavega hvítþveginn