NT - 13.12.1985, Qupperneq 11
Föstudagur 13. desember 1985 11
Stærðfræðikeppni framhaldsskóia:
Yfir hundrað nem-
endur tóku þátt
■ Stærðfræðikeppni framhalds-
skólanema veturinn 1985-'86 er í
tveimur stigum. Þriðjudaginn 12.
nóvember sl. fór fram keppni í
lægra stigi sem er ætlað nemendum
á fyrri tveimur árum framhalds-
skólanna, og fyrri hluti keppni í
efra stigi sem ætlað er nemendum á
seinni tveimur árunum.
Alls tóku 414 nemendur frá 15
skólum þátt í keppninni. Þar af
tóku 220 nemendur frá 14 skólum
þátt í lægra stigi keppninnar og 194
nemendur frá 14 skólum í fyrri
hluta efra sfigs. Viðurkenningar-
skjöl verða veitt 20 efstu keppend-
um á hvoru stigi.
í efstu sætum á lægra stigi keppn-
innar voru eftirtaldir nemendur í
þremur fyrstu sætunum, Ari Krist-
inn Jónsson, Hörður H. Helgason
og Helga Þdrhallsdóttir, • öll frá
Menntaskólanum í Reykjavík.
í efstu sætunum á fyrri hluta efra
stigs voru eftirtaldir nemendur í
fyrstu þremur sætunum, Kristján
Magnús Arason, Ágúst S. Egilsson
og Einar Már Júlíusson, einnig all-
ir í Menntaskólanum í Reykjavík.
Öllunt tuttugu efstu keppendum
á fyrri hluta efra stigs og þrentur
efstu keppendum á lægra stigi
verður boðið að taka þátt í úrslita-
keppni sem fer fram við Háskóla
íslands í mars 1986.
Átta hlutu
NATÓstyrk
- þar af sex til náms í Bandaríkjunum
■ Áttamannshlutuvísindastyrki
Atlantshafsbandalagsins sem
menntamálaráðuneytið úthlutaði
nýlega. Umsækjendur voru alls 27
og fjárhæðin sem kom í lilut fs-
lendinga var 835 þúsurtd krónur.
Þeir sem hlutu styrki: Ágústa
Guðmundsdóttir, B.S. hlaut
110.000 kr. til framhaldsnárns í ör-
verufræði og lífefnafræði við Un-
iversity of Virginia í Bandaríkjun-
um. Björgvin S. Gunnlaugsson,
B.S. hlaut 70.000 kr. til framhalds-
náms í tölvunarfræði við McGill
University í Kanada. Fjalar Krist-
jánsson, cand. pherm., 110.000 kr.
til framhaldsnáms í lyfjaefnafræði
við University of Kansas, í Banda-
ríkjunum. Gestur Valgarðsson,
M.S. 110.000 kr. til framhalds-
náms í vélaverkfræði við Univer-
sity of Tennessee í Bandaríkjun-
um. GuðmundurStefánsson, B.S.,
110.000. kr. til framhaldsnáms í
matvælafræði við Leeds University
í Bretlandi. Guðrún Marteinsdótt-
ir, M.S. 110.000 kr. til framhalds-
náms í vistfræði í Rutgers Univer-
sity í Bandaríkjunum. Hans Kr.
Guðmundsson, Ph. D. 145.000 kr.
til 4 mánaða dvalar við University
of Illinois í Urbana-Campaign í
Bandaríkjunum til að vinna að
rannsóknum á framleiðslu og eig-
inleikum málmglerja og örfínt
kristallaðra efna og Kolbeinn Ar-
inbjarnarson, B.S. 70.000 kr. til
framhaldsnáms í aðgerðagreiningu
við Stanford University í Banda-
ríkjunum.
Kveiktá Hamborgarjólatré
■ Hamborgarjólatréð, hátt ogsnjallt... Umsíðustu helgi var kveikt á
jólatrénu og þetta er ■ 20. sinn sem Hringborðsvíkingamir í Hamborg
senda Reykjavíkurhöfn jólatré að gjöf. Hringborðsvíkingarnir nefnist
félagsskapur fyrrverandi sjómanna, blaða- og verslunarmanna í Ham-
borg og nágrenni. Rúmlega þriðjungur „víkinganna“ sem eru um 35
talsins komu til Reykjavíkur í tilefni dagsins og afhentu tréð sem hafn-
arstjóri veitti móttöku að undangengnum lúðrablæstri.
NT-mynd Róbert.
—• .ju •■ ■ ■■—m
■ Frá „bás“ Kosta Boda og Búkaupa á svölum Garöakaups í Garðabæ, en þar opnuöu scx nýjar vcrslanir nýlega
Sex nýjar verslanir
opna í Garðakaupum
■ Nýlega opnuðu sex nýjar versl-
anir á efri hæð (svölum) stórmark-
aðsverslunarinnar Garðakaup að
Garðatorgi 1 í Garðabæ.
Garðbæingar hafa þar með feng-
ið ýmsa þá verslunarþjónustu í bæ-
inn sem lengi hefur vantað.
Þær verslanir sem opnuðu eru
þessar:
Zikk-Zakk, álnavöruverslun
sem Sigrún Gunnlaugsdóttir á og
rekur. í versluninni fæst allt til
sauma ásamt nýjustu tískublöðum
og sniðum. Þar fást líka sængur og
sængurfatnaður og seinna verður á
boðstólum úrval gluggatjaldaefna.
Viktoría, tískuvöruverslun fyrir
dömur og herra, rekin af þeim
Gísla Sigurðssyni og Jónínu Lárus-
dóttur. Verslunin selur víðkunn
merki eins og t.d. Henrietta, Blitz,
For You, Fais og Dodge.
Vöruval, skóverslun, barna-
vöruverslun og sportvöruverslun
og reka þeir Gústaf, Hallgrímur og
Andrés Valberg verslunina og er
þetta stærsta verslunarplássið á
hæðinni.
í versluninni Vöruval er mikið
úrval af fyrrgreindum vöruflokk-
um m.a. íþróttavara frá Svíþjóð,
Lejon.
Kosta Boda, hin kunna gjafa-
vöruverslun og er þessi útibú frá
versluninni í Bankastræti. Þar
verða á boðstólum allar sömu vörur
og þar. Kaupmenn útibúsins eru
þau Guðrún Steingrímsdóttir og
Már Egilsson.
Búkaup, búsáhaldaverslun og
býður hún upp á fjölbreytt úrval af
hverskonar heimilisvörum, raf-
magnstækjum og minni tækjum.
Eigandi Búkaupa er Rósa Þór-
hallsdóttir.
Radíóbær, hljómtækjaverslun
og hefur sama fyrirtæki lengi starf-
að við Ármúla í Rcykjavík. Kaup-
maður er Hans Kragh og í verslun-
inni er að finna fjölbreytt úrval af
hljómtækjum, sjónvörpum og
vídeótækjum. Fyrirtækið llyturinn
og selur merkin, Aiwa, Steeple-
ton, Binaton og Xenon. Þá er úr-
val af hljómplötum og kasettum.
Allar innréttingar á hæðinni
koma frá Matkaupum hf. en þau
eru jafnframt umboðsaðilar fyrir
Beanstilk-hillubúnað og verslana-
innréttingar.
Stórmarkaðurinn Garðakaup
opnaði fyrir réttu ári og hafa bæjar-
búar nýtt sér þá þjónustu í miklum
mæli.
Námsstjóri í félags-
málum nauðsynlegur
að mati æskulýðsmálanefndar
■ Nefnd sú sem menntamála-
ráðuneytið skipaði árið 1981 til aö
fjalla um oggera úttekt á æskulýðs-
■' starfi í landinu, aðstöðu þess, skip-
an og fjármögnun hefur nú skilað
áliti sínu og tillögum til mcnnta-
málaráðherra og telur að ekki þurfi
að gera grundvallarbreytingar á
þeirri skipan sem nú er við lýði.
Nefndin leggur þó til að æsku-
lýðsstarfsemi eigi að vera sem mest
í höndum æskulýðsfélaga og sam-
taka og að ríki og sveitarfélög efli
stuðning sinn við þessi samtök og
setji sér ákveðnari reglur um fjár-
veitingar til þeirra t.d. með því að
stofna sérstakan sjóð, Æskulýðs-
sjóð sem hafi það hlutverk að veita
styrki til æskulýðsstarfscmi eftir
því hvar þörfin er mest.
Nefndin telur mikilvægt að
skipaður verði námsstjóri eða um-
sjónarmaður félagsstarfs og félags-
málafræðslu í skólum og að gerð
verði ýtarleg könnun á samnýtingu
skólahúsnæðis til kcnnslu annars
vegar og til félags- og tómstunda-
starfs hins vegar.
í framhaldi af því telur nefndin
að ríkið þurfi að cfla fræðslu og
námskeiðahald fyrir leiðbeinendur
félags- og æskulýðsmála svo völ
verði á vel menntuðu og hæfu fólki
til þessara starfa á hverjum tíma.
Þá telur nefndin afar mikilvægt
að stjórnvöld marki ákveðnari
stefnu í baráttu gegn hvers konar
vímuefnum og auki stuðning sinn
viö þau félög, samtök og stofnanir
sem vinna að fyrirbyggjan.di að-
gerðum gegn þeim í samræmi við
mótaða stefnu.
Nefnd þessa skipuðu Reynir
Karlsson formaður, Unnar Stef-
ánsson, Ómar Einarsson, Arnald-
ur Bjarnason, Níels Árni Lund,
Kristján Valdemarsson. Guð-
mundur Guðmundsson og Arn-
finnur Jónsson og hélt hún samtals
40 fundi.
Borgin
breiðir
úrsér
■ 100 hektara landssvæði
við Úlfarsfell hefur bæst við
landssvæði í eigu Reykja-
víkurborgar því borgarráð
hefur staðfest samning um
kaup á þessu landssvæði fyr-
ir 35 milljónir króna.