NT - 13.12.1985, Síða 18

NT - 13.12.1985, Síða 18
líGolfverslun /\ John Drummond Gjöfina handa golfaranum fáiö þiö hjá okkur! Stórkostlegt úrval af kylfum, pokum, kerrum, skóm og fatnaöi í öllum verö- flokkum. fvluniö líka gjafakortin vinsœlu. í desember er opiö frá kl. 16:00 til 20:00 mánudaga til föstudaga og frá kl. 10:30 til 16:00 á laugardögum. Látiö atvinnumanninn velja meö ykkur gjöfina. jTGolfverslun s\ John Drummond Golfskálanum Grafarholti Simi:82815 Heima:40189 nr? Föstudagur 13. desember 1985 18 LlL Minraing Mundína F. Þorláksdóttir Fædd 8. aprfl 1899 Dáin S. desember 1985. Þeir hverfa nú óðum af sjónar- sviðinu sem slitu barnsskónum um aldamótin síðustu og nefndir hafa verið aldamótakynslóð. Þeir hafa á margan hátt þótt skera sig úr öðr- um þjóðfélagsþegnum því á þeirra herðum skullu öldur umróts og byltingar í þjóðfélagsháttum, er þeir voru að komast til fulls þroska upp úr nítján hundruð og tuttugu. Þessi aldurshópur varð að takast á við nýbreytni í lífs- og menning- arháttum. Hafna mörgu því eldra, en velja úr það besta af því sem að ströndum barst og taka í þjónustu sína það sem ætla mátti að yrði þjóðlífinu til blessunar og lyfti þjóðinni í röð menningarþjóða og þjóðlífinu á göfugra svið, frá fá- tækt og vonleysi. Aldamótakynslóðin varð á margan hátt hamingjusöm og margir fagrir draumar hennar hafa ræst, þótt margt hafi farið á annan veg en vonir stóðu til, en börn þeirra og barnabörn blessa þau nú fyrir baráttu þeirra og framsýni. Ég sting niður penna til að minn- ast konu úr aldamótakynslóðinni. Tengdamóður minnar Mundínu Freydísar Þorláksdóttur á Ytri Á í Ólafsfirði. Ég veit hún muni ekki kæra sig um langt mál og málskrúð enda mun ég ekki gera svo, en um ævi- starf hennar mætti þó rita langt mál. Hún var ekki nema meðalkona að vexti, hún Mundína, en faðmur hennar var stór, og faðmur hennar var hlýr og faðmur hennar var mildur og mjúk var höndin, og eins hvort hún strauk burt tár af ungum vanga, eða reiddi fram veitingar fyrir sjóhrakta eða göngumóða. Álltaf sama jafnvægið þótt ekki væri ávallt logn á hennar leiðum. Ung að árum giftist hún sveit- unga sínum Sigurbirni Finni Björnssyni á Ytri Á, og hófu þau bú skap þar og bjuggu alla sína bú- skapartíð. Bæði áttu þau ættarrætur í hin- um afskekktu byggðum við vestan- verðan Eyjafjörð, og þar var lífs- baráttan háð frá vöggu til grafar. Þeim hjónum fæddust tuttugu börn. Fjögur létust á ungum aldri en níu synir og sjö dætur náðu full- orðinsaldri, hafa stofnað heimili sjálf og fylgja öll móður sinni til hinstu hvílu og leggja nú verð- skuldaða þökk og blessun yfir hvíl- una hennar. En húsfaðirinn þrek- mennið Finnur Björnsson dvelur nú á sjúkrahúsi í Ólafsfirði, ör- þreyttur eftir glímuna við elli kerl- ingu, oggeturþví ekki fylgt ástvinu sinni síðasta spölinn en bíður endurfunda bak við tjaldið sem skilur heimana. Finnur lét aldrei sinn hlut eftir liggja að afla fanga til heimilisins og til framfærslu sínum stóra barnahóp, var heppinn og harð- fengur við sjósókn, nærfærinn við skepnur og á margan hátt framsýnn, svo sem sýnir þátttaka hans í byggingu rafstöðvar fyrir Kleifaþorpið 1933, og jarðrækt- armál lét hann líka til sín taka og jók heyfeng á ræktuðu landi á ábýl- isjörð sinni að stórum mun að ógleymdum húsabótum. Húsfreyj- an lagði fram þrek sitt svo sem verða mátti og gladdist við hvern sigur sem vannst í framfaramálum og fylgdist með af áhuga. Börnin uxu úr grasi og urðu myndarleg og vinnufús, en eins og þeir þekkja sem kynnst hafa upp- eldi margra systkina, þá annast eldri systkinin á margan hátt sín yngri systkin og létta foreldrunum þannig lífsstarfið. En alltaf er það húsfreyjunnar, móðurinnar að halda utanum hóp- inn og sjá fyrir fæði og klæðum. Mýkja sár á líkama og sál, og miðla þessu ómetanlega, ástúðinni og umhyggjunni, sem hvert ungviði býr að ævina á enda. Mundína var komin á sextugs- aldur þegar ég giftist dóttur þeirra hjóna og kom fyrst á heimili þeirra. Vel var mér tekið þá, sem ávallt síðan, alltaf mætti ég umhyggju og hlýju, og nú að leiðarlokum langar mig að þakka Mundínu öll blessun- arorðin í minn garð. Ávallt sagði hún er komið var að kveðjustund, og haldið skyldi úr hlaði: Ég kem út og kveð ykkur. Hún gekk út á bæjarhólinn og bað vegfaranda blessunar og velfarn- aðar og „farið varlega í Múlan- um,“ ef leiðin lá um þann vara- sama veg. Umhyggja hennar var sérstök, í því sambandi minnist ég þess að ef einhver þurfti að vakna á óvenju- legum tíma til starfs eða ferðar. Þá var oft sagt. „Mamma þú vekur mig.“ Og ekkert var henni ljúfara, þótt svefntími hennar væri oft rof- inn við þá bón. Þakklát var hún fyrir hverja gefna gleðistund og veitta hjálp þegar aldurinn færðist yfir. Nú kemur Mundína ekki lengur út á bæjarhólinn að biðja vegfar- anda blessunar, nú er hún sjálf lögð upp í ferðina löngu sem allra bíður, en er kannski styst allra leiða. Og bærinn hennar geymir ekki lengur neina manneskju, nema þá um stundar sakir. Byggð hefir lagst þar af. Ég veit að Mundína biður fyrir þakkir og kveðjur til sambýlis- konunnar Guðrúnar Sigurjóns- dóttur sem nú dvelur háöldruð hjá dóttur sinni í Ólafsfjarðarbæ, og til systranna sinna á Hofi sem ávallt voru henni tryggir vinir og hjálpar- hellur. Öllum sveitungunum skulu sendar þakkir fyrir samstarf á langri liðinni ævi. Þau hjónin Mundína og Finnur hafa dvalið á hjúkrunarheimilinu Hornbrekku í Ólafsfirði síðan vor- ið 1983, og notið þar vináttu og umönnunar svo sem unnt hefur verið, en lífsorka hennar smá dvín- aði en rúmliggjandi var hún ekki nema síðasta mánuðinn, en þrekið var alveg búið og hvíldin síðasta kærkomin. Hún var falleg kona hún Mund- ína og hélt sínu formi undra vel til endadægurs. Ég sá hana síðast tuttugasta og þriðja nóv. síðastliðinn og fögur var birtan sem þá hvíldi yfir henni, og falleg var höndin og óhnýtt sem ég þrýsti þá í síðasta sinn. Snotra fagurskapaða höndin hennar hélt lögun sinni undra vel, þrátt fyrir strit og starf langrar ævi. Þökk og hlýhugur okkar hjóna fylgir henni yfir á ströndina ó- kunnu. Hjartans þökk fyrir allt 'Mund- ína. Guð blessi þig. Segið það móður minni að mold sé farin að anga svali leiki um sali og sólbrennda vanga Býst eg nú brátt til ferðar brestur þó vegnesti. En þar bíða vinir í varpa sem von er á gesti. D.St. Gunnar S. Sigurjónsson Einar Eggertsson Fæddur9. ágúst 1925 Dáinn 13. nóvember 1985. Hann Einar varð bráðkvaddur þann 13. nóv, Hannvarlengi búinn að þjást af hjartasjúdómi, sem hann barðist við af karlmennsku á meðan stætt var og hneig að síð- ustu í valinn á vinnustað. Hann var fæddur á Akureyri og voru foreldr- ar hans Eggert Guðmundsson trésmíðameistari, skagfirskrar ætt- ar og Stefanína Sigurðardóttir frá Kamphóli við Eyjafjörð, valin- kunn sæmdarhjón. Ungur fór Einar til sumardvalar í sveit, enda varð hann fljótt ötull og vinnufús. Meðal annars var hann á Sigurðarstöðum á Melrakka- sléttu í tvö sumur. Þaðan rakti hann margar ljúfar minningar og við Sig- urðarstaðafólk battst hann traust- um vináttuböndum, sem entust til endadægurs. Sveitastörf vóru Ein- ari mjög að skapi og eitthvað mun hann hafa hugleitt að gerast bóndi þótt ekki yrði sá draumur að veru- leika. Einar lauk námi í Gagn- fræðaskóla Akureyrar og síðar námi í húsasmíðum og stundaði hús og brúarsmíði um árabil. Var oft kjörinn verkstjóri við erfið og vandasöm verkefni, og skilaði þeim að jafnaði með ágætum, enda úrræðagóður og kjarkur brást hon- urn aldrei. Snemma hneigðist hugur Einars að félagsmálum og skyldi hann gjörla mátt samtaka og sameining- ar, og varð strax á sínum iðnnema- árum virkur félagi í Iðnnemafélagi Akureyrar, var og um tíma for- maður í því félagi og stóð þá fast á rétti iðnnema. Síðar var hann kjör- inn formaður í Trésmíðafélagi Akureyrar og sýndi þá málefnum trésmiða mikinn áhuga. Vegna samdráttar í byggingaiðnaði og minnkandi atvinnu í þeirri grein hætti Einar að mestu smíðum en stofnaði hjólbarðaverkstæði sem hann rak um árabil við gott gengi. Þó að Einar væri starfsamur og vinnufús gaf hann sér góðan tíma til þess að sinna sinni eftirlætis tómstundaiðju, sem var hestar og hestamennska. Það voru miklar sólskinsstundir í lífi hans að sitja á góðum hesti með hæfilega brjóst- birtu að veganesti. Þá fór hann mildum höndum um vini sína, hestana og maður og hestur urðu samstilltir og einhuga. Einar kvæntist Helgu Brynjólfs- dóttur, bónda í Efstalandskoti, hinni ágætustu konu, sem bjó hon- um og börnum þeirra hlýlegt og gott heimili. Ég sendi Helgu og börnunum innilegar samúðarkveðjur og þakka Einari áratuga vináttu. Far þú í friði kæri vinur og hafðu heila þökk fyrir samfylgdina. Sveinbjörn Magnússon

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.