NT - 13.12.1985, Page 21

NT - 13.12.1985, Page 21
w Myndí viw/e núnie\ár ve/t- ö& ^e- tfOLDum jfw t=Re f/e Re viKrt riLftH’ 'ruj sot ÆPfl pyei/? höfu/v^. - Hugsaðu ekki um þetta eins og það sé verið að segja þér upp vinnunni... heldur að nú sértu laus við þessi smáhlé sem urðu á milli katTitímanna hjá þér. - Það má segja að þetta hafi verið sameiginlegt átak, ....hann hrærði límið. iagtÐtí 1ÍFIÐ V ' Nýunglingabók eftirÁrmann ■ Ný unglingabók eftir Ár- mann Kr. Einarsson er komin út hjá útgáfunni Vaka-Helgafell. Hún heitir Lagt út í lífið. Þessi nýja unglingasaga met- söluhöfundarins Ármanns Kr. Einarssonar er lífsævintýri ungs manns. Lífið er óráðið og áhugavert. Bjart framundan. Æskuár hans eru þrungin ævintýrum og spennandi at- burðum og allt í kringum hann er fjölskrúðugt mannlíf. Ung- ingsárin taka við; hann fer að veita stelpunum í kringum sig meiri athygli, en er eins og fleiri á því sviði heldur óframfærinn gagnvart þeim. Framtíðaráform og draumar eru ofarlega á baugi, en fyrstu sporin í átt að því sem hugurinn stendur til, reynast erfið í fyrstu, en allt fer vel. Skemmtileg atvik frá ferli Ármanns hafa orðið kveikja að ýmsum spaugileg- ustu uppákomum bókarinnar og ekki er aðalpersónan alls óskyld honum. Þetta er ein skemmtilegasta saga Ármanns Kr. Einarssonar til þessa, hlaðin lífi og spennu ekki munu dulrænir atburðir draga úr áhuga lesenda. Lagt út í lífið er sett, filmu- unnin og prentuð í Prentstofu G. Benediktssonar, en bundin í Bókfelli hf. ------------------------s yujgERO*, Heimsfrægtævin- týri á íslensku ■ Hið heimsfræga ævintýri Galdrakarlinn frá Oz eftir Frank Baum er nú komið út á ís- lensku í þýðingu Þorsteins Thorarensens. Fyrir nokkrum árum voru kaflar úr sögunni í leikgerð sýndir í Þjóðleikhúsinu og víðar um land, en sagan sem telst til frægustu sígildra verka í barnabókmenntum, hefur aldrei áður komið út á íslensku. Höfundurinn Frank Baum samdi ævintýrið fyrst fyrir börn sín, meðan hann sat á rúm- stokknum hjá þeim. Svo datt honum í hug að reyna að fá það gefið út í bókarformi, en það ætl- aði ekki að ganga vel, hann fór bónleiður frá hverjum útgef- andanum á fætur öðrum. Loks varð hann að gefa bókina út á eigin kostnað, en jafnskjótt og hún kom fyrir augu almennings aldamótaárið, hófst sigurför ævintýrisins um allan heim. M.a. er alkunn kvikmyndin sem gerð var eftir henni með Judy Garland í aðalhlutverki. Sagan segir frá litlu stúlkunni Dóróteu, sem var ásamt hundi sínum Todda hrifin af hvirfil- vindi og komu þau niður í ævin- týralandinu Oz. Dórótea leggur svo af stað í langa ferð um Oz- land í þeirri von að finna ein- hvern sem geti vísað henni leið- ina heim. Á flakki sínu eignast hún þrjá ferðafélaga, sem síðan hafa orð- ið heldur en ekki frægir, Fugla- hræðan, Pjáturkarlinn og Hug- lausa ljónið og mun hvert barn kannast við þá félaga. Saman ganga þau á fund hins ógurlega Galdrakarls Oz, sem reynist þó annar en hann er séður. Það er Fjölvaútgáfan sem gef- ur bókina út. Galdrakarlinn frá Oz er 120 bls. í stóru broti og skreytt með litmyndum í hverri opnu. Föstudagur 13. desember 1985 21 DENNIDÆMALA USI „Vertu ekki að eyða tíma í hann, Jói. Hann lofar þér öllu, en eftir jólin getur þú ekki einu sinni fundið hann.“ ■ Talsverðspennaríkti íloka- umferð Aðalsveitakeppni Bridgefélags Reykjavíkur. Fyr- ir hana hafði sveit’Delta 5 stiga forskot á sveit Samvinnuferða og 8 stiga forskot á sveit Karls Logasonar. Tvær síðarnefndu sveitirnar spiluðu saman í síð- ustu umferðinni meðan Delta spilaði við sveit Páls Valdimars- sonar. Og í hálfleik var Páll 25 impum yfir og Karl 24 impum yfir. Ef sama staða héldist út leik- inn hefði Karl unnið mótið. Það var því ljóst að barist yrði um impana í seinni hálfleik, en þeir vildu samt glutrast niður eins og gengur. Alslemmur eru alltaf erfiðar í sögnum, og þessi, sem kom fyrir í leik Páls og Delta, var engin undantekning: Norður + 754 ¥ AKD ♦ AD64 4> AG5 N/Enginn Vestur Austur + G3 ♦ 962 ¥ 96432 ¥ 7 ♦ - ♦ 1097532 4» KD10742 4» 983 Suður ♦ AKD106 ¥ G1085 ♦ KG8 + 6 Við annað borðið sátu NS Guð- mundur Hermannsson og Björn Eysteinsson í sveit Delta en AV sátu Oddur og Hrólfur Hjalta- synir: Vestur Norður Austur Suður 1 4* 2 ♦ 2 ♦ pass 2Gr pass 3 ¥ pass 3 ♦ pass 4 4» dobl redobl pass 4 ♦ pass 4 ¥ pass 6 ♦ Guðmundur í norður gat nag- að sig í handarbökin því hann hefði með góðri samvisku getað sagt 5 grönd yfir 4 tíglum til að spyrja um trompið. Björn hefði varla sýnt svona mikinn slemmu- áhuga nema vegna þess að hann átti þéttan spaða. Ekki átti hann háspil í hjarta og hvorugan lág- litaásinn og vestur hafði síðan sennilega sýnt laufkónginn með doblinu á 4 lauf, þó það væri ekki öruggt. Síðan hefði Guð- mundur líka getað hækkað 6 spaða í 7 því stökk Björns í slemmu hlaut að byggjast á þéttu trompi. Björn var fljótur að renna heim 13 slögum og NS bjuggust við að tapa á spilinu. En við hitt borðið misstu NS slemmuna, spiluðu 4 spaða, svo Delta græddi 11 impa í stað þess að tapa 11. Það kom síðan í Ijós að spilið skipti ekki máli. Delta vann seinni hálfleikinn með 42 imp- um og leikinn 18-12, og Sam- vinnuferðir unnu sinn leik 17- 13. Á hinum vængnum í sigur- sveitinni spiluðu Þórarinn Sig- þórsson og Þorlákur Jónsson. 4743. Lárétt 1) Hljóðfæris. 5) Gubba. 7) Hreinn. 9) Söngfólk. 11) Hreyfing. 12)Ferásjó. 13) Egg. 15) Tré. 16) Dýr. 18) Eldstæði. Lóðrétt 1) Mjólkurmatinn. 2) Lið- inn tími. 3) Fæði. 4) Draup. 6) Föðurland. 8) Kast. 10) Gruni. 14) Mál. 15) Svardaga. 17) Fljót. Ráðning á gátu No. 4742 Lárétt 1) Njálga. 5) Már. 7) Góa. 9) ÁU. 11) LI. 12) Jó. 13) Art. 15) Ráp. 16) Ári. 18) Glaður. Lóðrétt 1) Naglar. 2) Áma. 3) Lá. 4) Grá. 6) Glópur. 8) Óir. 10) Ljá. 14) Tál. 15) Rið. 17) Ra.

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.