NT - 24.12.1985, Side 2
Þriðjudagur 24. desember 1985 2
■ Þótt Eiríkur Fjalar sé svo-
lítið feiminn þá elur hann þann
draum með sér að verða mikil
poppstjarna. Og það hefur
honum svo sannarlega tekist
því lagið hans „Tóti tölvukall“
er þaulsætið í öðru sæti vin-
sældarlista Rásar 2. Eiríkur
Fjalar hefur líka nóg að gera
þessa dagana, því platan hans
Ladda selst og selst. A mynd-
inni sjáum við stjörnuna halda á
tveimur gullplötum fyrir tvær
plötur sein selst hafa í 5000 ein-
tökum. Annars vegar plata vin-
ar hans Ladda og hins vegar
platan „Strumpajól“. Eiríkur
Fjalar hefur ástæðu til að vera í
skýjunum enda hylltu áhorf-
endur hann óspart á Lækjar-
torgi á laugardag
NT-mynd: Árni Bjarna
Gleðile
Metsala í Act
og Puffins skóm
■ Á árinu hafa selst 64 þúsund pör
af ACT og PUFFINS skóm frá skó-
deild Sambandsins á Akureyri og er
Vernd:
JÓLA-
FAGN-
AÐUR
ÍDAG
■ Jólafagnaður Verndar
vcrður eins og venjulcga í
Slysavarnahúsinu á
Grandagarði og hcfst hann
kl. 15.00 í dag.
Allir eru velkomnir. Á
boðstólum verða kaffi og
kökur og hátíðamatur um
kvöldið.
söluverömæti þeirra um 58 milljónir,
en það er um 50% söluaukning á
milli ára að sögn Úlfars Gunnarsson-
ar deildarstjóra í skódeildinni.
Hann sagði að eftirspurnin væri
slík að kalla þurfti út aukavakt á
sunnudaginn 22. desember í verk-
smiðjuna svo hægt væri að anna eftir-
spurninni. Þann dag voru framleidd
eitt þúsund pör og er það algjört met
því venjulega er framleitt um 300 pör
á dag.
Úlfar sagði að þessi framleiðsla
væri þegar komin í verslanir og tals-
vert selt afhenni því margarpantanir
lágu fyrir.
Aðspurður um hvað ylli þessari
miklu sölu svaraði Úlfar að þeir
hefðu afbragðs starfsfólk í skódeild-
inni og mjög stöðugt og líka það að
þeir reyndu sífellt að fylgjast vel með
því sem væri að gerast í skófram-
leiðslunni almcnnt og að þeir væru
með úrvalshráefni til að vinna úr.
Úlfar sagði að flestar tegundir af
skóm væru framleiddar hjá skódeild-
inni og má þar nefna spariskó fyrir
dömur og herra, kuldaskó, öryggis-
skó, barnaskó, inniskó og fleiri, og
væru þessir skór seldir um land allt.
Úlfar sagði að lokum að Islending-
ar væru kröfuharðir og vildu aðeins
það besta og það reyndu þeir ævin-
lega að framleiða.
starfsmanna Sambandsins
verður háídið föstudaginn27.des.
kl. 15.00-18.00 áHótelSögu.
Miðaverð
kr. 200
Hljómsveit
Magnúsar Kjartanssonar.
Jólasveinar á staönum
og fjörug dagskrá..
MIÐAR VERÐA SELDIR HJA
AUGLÝSINGADEILD SAMBANDSINS,
LINDARGÖTU 9A, S. 28200, INNANHÚSS 106,^
FYRIR HÁDEGI FÖSTUDAG 27. DES.
OG VIÐ INNGANGINN (SÚLNASAL).
\n/
Frítt fyrir fulloröna og gestír velkomnir.
Bankastjórar:
Bílamálin
óafgreidd
- bankáráðin funda
milli jóla og nýárs
■ Bílafríðindi bankastjóra ríkis-
bankanna eru enn ekki endanlega af-
greidd, en gert er ráð fyrir að þau
verði á dagskrá bankaráðsfunda
milli jóla og nýárs.
í lok apríl var gefin út reglugerð
um bílamál ríkisstarfsmanna, en þar
er meðal annars kveðið á um bíla-
fríðindi ráðherra. Um svipað leyti og
þessi reglugerð var gefin út komu
fyrirntæli til bankaráðanna frá þá-
verandi viðskiptaráðherra um að
fresta greiðslu á svokölluðum launa-
auka upp á 450 þúsund krónur, en
hann hafði verið samþykktur af
bankaráðum í desember á síðasta
ári. Jafnframt mæltist ráðherra til að
bílafríðindi bankastjóra yrðu þau
sömu og bílafríðindi ráðherra eins
og þau voru ákveðin samkvæmt fyrr-
nefndri reglugerð.
Svo sem áður segir hafa bankaráð-
in ekki cndanlega ákveðið með
hvaða hætti bílafríðindi bankastjór-
anna verða afgreidd, en bankastjór-
arnir fá hvorki greiddan 450 þús.
króna launaaukann né firningarféð
samkvæmt reglugerðinni fyrr en það
hefur verið gert.
Sum bankaráðanna hafa tekið
þann valkost í millitíðinni að leggja
bankastjórunum til bíl sem bankarn-
ir eiga og reka, en önnur hafa ein-
ungis greitt rekstrarkostnað einka-
bíla bankastjóranna. Jónas Rafnar
formaður bankaráðs Seðlabankans
sagði í samtali við NT að hann bygg-
ist fastlega við að þetta mál yrði
endanlega afgreitt á bankaráðsfundi
milli jóla og nýárs, og á þann hátt að
farið yrði eftir 10. gr. reglugerðar-
innanSagði hann að afgreiðsla þessa
máls hefði dregist nokkuð á langinn
en ríkisbankarnir hygðust hafa sam-
ræmt kerfi á þessum greiðslum. Stef-
án Válgeirsson formaður bankaráðs
Búnaðarbankans sagði að þeir hefðu
enn ekki formlega afgreitt þetta mál
og svo virtist sem bankarnir væru
hver að bíða eftir öðrum um lausn.
Hann sagði bankaráðið hafa sam-
þykkt í vor að bankinn legði til bíl-
ana fyrir bankastjóra og gerði ekki
ráð fyrir að því yrði breytt.