NT - 24.12.1985, Síða 4
Þriðjudagur 24. desember 1985 4
■ í veislu Orlofskís fursta er jjlatt á hjalla og mikið sungið, eins og vera ber.
Leðurblakan í Islensku óperunni:
Kristján Jóhannsson
gestur um hátíðarnar
■ íslenska óperan frumsýndi Leð-
urblökuna, hina si'gildu óperu cftir
Jóhann Slrauss síðastliðið vor við fá-
dæma góðar viðtökur. Nú er lyrir-
hugað aö taka þráðinn upp aítur og
það með pompi og pragt; kampavíni
og konfekti. Sérstakur gestur á sýn-
ingum milli jóla og nýjárs verður
Kristján Jóltannsson sem syngur lög
að eigin vali. Gestir á Nýjársgleði
verða Kristinn Sigmundsson og
Ólafur frá Mosfelli.
I óperuhúsum vt'ða um heim er það
gamall og góður siður að flytja Leð-
urblökuna unt áramót. f*að er ekki
að ósckju, því söguþráður óperett-
unnar sþinnst um stórkostlega veislu
í höll Orlofskís, lursta nokkurs.
Vcisluglaumur Leðurblökunnar er
vel til þess fallinn að koma fólki í há-
tíðarskap, tónlistin er smitandi
fjörug, söguefnið glettið og grátbros-
legt. búningar og annar umbúnaður
glæsilegur. Óperan veitir kampavín í
báðum hléum á öllum sýningum.
Sumum kann að þykja þetta ærið,
en auk þess bauö Óperan til sín sér-
stökum gesti, Kristjáni Jóhannssyni
ópcrusöngvara sem kemur Iram og
syngur á öllum sýningum milli jóla
og nýjárs. Kristján tók boðinu, cins
og hans var von og vísa og inun
syngja endurgjaldslaust, Óperunni
til stuðnings.
Á nýjársdag og laugardaginn 4.
jan. verða gestir Óperunnar Kristinn
Sigmundsson og Ólafur frá Mosfelli.
Kóngarnir fjörir, allt valinkunnir
söngvarar verða leynigestir á nokkr-
um sýningum. Hljómsveitarstjóri
Leðurblökunnar er Garðar Cortes,
leikstjóri cr Þórhildur. Þorleifsdóttir
og leikmynd og búninga gerði Una
Collins en hún er fcngin hingað sér-
staklega til að færa sýninguna í há-
tíðarbúning. Lýsingu annast Ás-
mundur Karlsson. Með helstu lilut-
vcrk fara: Ólöf Kolbrún Harðardótt-
ir, Sigurður Björnsson, Ásrún Dav-
íðsdóttir, Siguröur Gröndal, Guð-
mundur Jónsson, Halldór Vilhclms-
son, John Speight, Júlíus Vífill Ingv-
arsson, Elísabet Waage, Hrönn
Hafliðadóttir, Sverrir Guðjónsson,
Eggert Þorlcifsson, ásamt kór og
hljómsveit. Alls koma 8ð manns
fram á sýningunni.
Miðasala er opin alla daga frá kl.
15-19, sími 11475.
Viö óskum landsmönnum gleðilegra jóla,
árs og friðar og þökkum samstarfið
á árinu sem er að líða.
IBRunminiF&nc fsumos
LÍFTRYGGING
GAGNKWEMT TRYGGINGAFELAG
Hana-nú í
hörkustuði
- félagar skrái sig í áramótafagnað 3. jan.
■ Félagar í frístundahópnum
Hana-nú hafa haft mikið fyrir stafni
en skráðir félagar eru nú hátt á
fjórða hundrað. Fjórir frístunda-
klúbbar starfa sj-álfstsætt innan
Hana-nú, en það cru bókmennta-
klúbbur, hljómplötuklúbbur, nátt-
úruskoðunarklúbbur og göngu-
klúbbur.
Heimir Pálsson bókmennta-
fræðingur hefur leitt starf bók-
menntaklúbbsins og hópurinn fór
m.a. að sjá sýningu á Reykjavíkur-
sögum Ástu Sigurðardóttur, og tóku
þátt í umræðum á eftir með leik-
stjóranum Helgu Bachmann og leik-
urunum í sýningunni. Þorsteinn
Hannesson óperusöngvari kom á
lundi með félögum í hljómplötu-
klúbbnum í haust, valdi plötur og
rabbaði um íslenska söngvara.
Klúbbfélagar hafa þegar haldið jóla-
fund með öllu tilheyrandi og spilað
jólalög. Náttúru skoðunarklúbbur-
inn sem starfar undir leiðsögn Arna
Waag fór í grasaferð í haust og tíndi
fjallagrös sértil heilsubótar. Göngu-
klúbburinn hittist alla laugardags-
morgna kl. 10 að Digranesvegi 12 og
trimma um bæinn. Nýlega er lokið
myndlistarnámskeiði og eftir áramót
hefst námskeið í framsögn og
túlkun. En næsti stórviðburður hjá
frístundaklúbbnum er að fagna sam-
eiginlega nýju ári, þann 3. janúar
1986 í Félagsheimilinu, Fannborg 2.
Á fagnaðinn verður boðið gestgjöf-
um Hana-nú frá Höfnum á Suður-
nesjum sem tóku rausnarlega á móti
honum í sumar.
Vegna mikillar þátttöku á síðasta
ári eru félagar alvarlega minntir á að
láta vita um þátttöku sína í símatíma
Hana-nú. Síminn er 46863. Það er
mjög áríðandi að láta skrá sig á ára-
mótafagnaðinn því takmarkaður
fjöldi kemst fyrir í húsnæðinu.
■ Nefnd sú sem skipuð hefur verið í tilefni af því að næsta ár 1986 mun verða
ár bindindis og heilbrigðis, t.v. Páll Daníelsson, Helgi Seljan, Hilmar Jónsson,
María Pétursdóttir, Ólafur Ólafsson og Jón Bjarman. NT-mynd: Ámí Bjarna
Árið 1986:
Ár bindindis
og heilbrigðis
■ Nefnd skipuð biskupi íslands,
landlækni, íulltrúum frá Átaki gegn
áfengi, Landsambandi gegn áfengis-
bölinu, Áfengisvarnaráði, Stórstúku
íslands, ÍSÍ. UMFÍ og Kvenfélaga-
sambandi íslands hefur ákveðið að
næsta ár, árið 1986 skuli verða ár
heilbrigðis og bindindis.
Höfuðtilgangur slíks árs mun vera
að vekja athygli á áfengis- og eitur-
lyfjabölinu og hvetja landsmenn til
heilbrigðra lífshátta.
í tilefni ársins munu verða haldnar
þrjár ráðstefnur á árinu undir forystu
landlæknis í Reykjavík, Akureyri og
á Egilsstöðum. Þá er í bígerð að
halda samkomur í þessu sambandi á
Suðurlandi, Vesturlandi, Vestfjörð-
um og á Suðurnesjum.
Nefndin mun leita eftir samvinnu
við menntamálaráðherra um aukna
fræðslu um vímuefni og baráttu gegn
þeim í skólum landsins og öllum
sveitarstjórnum munu verða send
bréf þess efnis að skipa þriggja
manna nefndir til að vinna að mál-
inu.
Þá mun ncfndin beita sér fyrir
skrifum í dagblöð og erindaflutningi
í öðrum fjölmiðlum og upp hefur
komið hugmynd um að halda vímu-
lausa viku en ekkert ákveðið
hvenær. Gert verður plakat með
merki ársins en ekki er enn búið að
ákveða hvernig það verður.
Desemberuppboð:
Verðlækkun á skinnum
■ Lækkunj gengi dollarans hefur
haft í för með sér verðlækkun á loð-
dýraskinnum miðað við Evrópu-
myntir á skinnauppboðum í Finn-
landi og Danmörku nú í desember.
Þannig var verð á minkaskinnum nú
26% lægra í dönskum krónum talið
en á desemberuppboðinu í fyrra að
því er fram kemur í frétt frá SÍS. Alls
voru 1.3 milljónir danskra minka-
skinna til sölu á uppboðinu, auk
skinna frá Svíþjóð og víðar. Meðal-
verð á selt skinn var 243 kr. danskár
eða 1.112 íslenskar.
Frá desember í fyrra hefur dollar-
inn lækkað um 17-18% miðað við
danskar krónur. Sú lækkun sem þar
var umfram er talin vegna mikils
framboðs og er ekki sögð koma á
óvart, þar sem síðasta sölutíniabil
hafi verið óvenjulega gott og skilað
metverði fyrir minkaskinn.
Rúmlega 300 þús. íslensk refa-
skinn voru seld á uppboði í Finnlandi
í desember. Blárefur seldist á svip-
uðu verði í dollurum og á desember-
uppboðinu í fyrra. en 10% verð-
hækkun varð á Shadow.