NT - 24.12.1985, Page 5
Vatní
Tónabíó
■ Jólamynd Tónabíós er nú
bresk gamanmynd sem heitir Vatn,
og þar hafa margir t'rægir kappar
lagt hönd á plóginn. Framleiðandi
er bítillinn fyrrverandi George
Harrison. en með aðalhlutverkin
fara Michael Caine, Valerie Perr-
ine og Brenda Vaccaro.
Myndin fjallar um pínulitla eyju.
Cascara í Karibahafi. scm er bresk
nýlenda. Á henni hefur enginn
minnsta áhuga þar til í Ijós kemur
að þar finnst sérkennileg tegund
vatns og þá fer heldur betur að
hitna í kolunum.
Þriðjudagur 24. desember 1985 5
■ Valerie Perrine og Michacl Cainc albúin í slaginn ásamt tveim aðstoð-
armönnuni.
■ Hluti nefndar sem unnið hefur
að sýningunni og dagskrá sem geFin
verður út í tenglsum við hana. Frá
vinstri: Knud Ödegárd for-
stjóri,Guðrún Magnúsdóttir yfir-
bókavörður, Þórdís Þorvaldsdóttir
borgarbókavörður, Þorgerður Ing-
ólfsdóttir, Njáll Sigurðsson og Helga
Jóhannsdóttir. NT-mynd: Sverrir
Norræna húsið:
Viðamikil
tónlistar-
sýning
■ Sverrir Hermannsson mennta-
málaráðherra opnar eina viðamestu
sýningu sem Norræna húsið hefur
gengist fyrir til þessa, laugardaginn
28. desember. Sýningin nefnist Tón-
list á íslandi og reynt hefur verið að
safna saman flestu því sem tengist
þessu efni.
í sýningarsölununt niðri er stiklað
á ýmsum helstu viðburðum tónlistar-
sögu íslands með röð Ijósmynda. Þar
má m.a. sjá elstu Ijósmynd sem til er
á Norðurlöndum en hún erfrá 1848.
Á myndinni sést fyrsti barnaskóli í
Reykjavík, í gamla lóskurðarhús-
inu, þar sent Pétur Guðjohnsen
kenndi söng. í sýningarsölunum eru
einnig sýndir ýmsir sögufrægir
munir sem komið'hafaviðsögutón-
listar. s.s. það sem eftir er af elsta
orgeli Dómkirkjunnar, píanó úr eigu
Péturs Guðjohnsen frá 1855, flauta
Sveinbjörns Sveinbjörnssonar,
konett Helga Helgasonar, ferða-
orgel Jóns Leifs og fl. í innri salnum
niðri verður stiklað á stóru í útgáfu
tónlistarefnis, þar verða m.a.
handrit, prent og hljóðritanir.
Uppi í anddyri og bókasafni verð-
ur sýning á kennsluefni í tónlist, það
elsta undir gleri en yngri gögn má
fólk handfjatla og fletta að vild. Þar
má sjá myndir úr starfi tónlistarskóla
og vísast þekkja margir sjálfa sig á
þeim. Ekki má gleyma því að gestir
sýningarinnar geta hlustað á marg-
vísleg tóndæmi í hljómflutningstækj-
um, t.d. elstu stef sem dæmi eru um,
grallarasöng, einsöngs- og kórlög,
hljómsveitarverk, popptónlist, jazz
og elektróníska tónlist.
Ýmsir hafa lagt hönd á plóg til að
koma þessari sýningu á laggirnar,
nefnd hefur starfað á vegum Nor-
ræna hússins, Reykjavíkurborg og
menntamálaráðuneytið hafa veitt
styrki, mörg söfn, stofnanir og
einkaaðilar hafa góðfúslega lánað
myndir, handrit, bækur og muni og
veitt aðstoð svo sýningin mætti tak-
ast sem best.
Norræna húsið hefur ráðið Þorkel
Sigurbjörnsson til að skrifa kver um
höfuðdrætti íslenskrar tónlistarsögu
og kemur bókin út um leið og sýning-
in verður opnuð. I tengslum við sýn-
inguna verður fyrirlestrarhald um
hverja helgi þar til sýningunni lýkur,
þann 23. febrúar á næsta ári.
Leiðrétting
■ Hér er beðist velvirðingar á
misritun í forystugrein blaðsins í
gær: Fjallað var um nýjungar í
landbúnaði og meðal annars
kennslu í móttöku ferðamanna. Sú
kennsla fer fram á Bændaskólanum
á Hvanneyri, en ekki á Hólum, eins
og misritast hafði.