NT - 24.12.1985, Blaðsíða 6
T Þriðjudagur 24. desember 1985 6
út 1 öncfl
§
s
Ui
s
Ul
s
s
«/>
'NEWSIN BRIEF
23. december Reuter
JOHANNESBURG - Black
nationalist lcader Winnic
Mandcla was rclcascd on bail
and hcr lawyer said shc would
go back to Soweto in defiance
of an ordcr barring hcr froni
thc black township and Jo-
liannesburg. Policc arrcstcd
Mandcla, 51, yesterday. Shc
was ordered by a court today
to appcar again on January
22.
DURBAN - SOUTH AFR-
ICA - Six whites werc killed
and 24 pcoplc wcrc injiired
whcn a bonib cxplodcd in a
rcsort crowdcd witli Clirist-
nias holidaymakers near thc
port ol' Durhan, policc said.
MOSCOW - Thc Sovict Un-
ion accuscd thc Unitcd Statcs
of working sccrctly on ways
to pcnctratc anti-ballistic
niissilc shiclds. An armcd
l'orccs spokcsinan citcd U.S.
prcss reports tliat thc Pen-
tagon was developing l'ast-
llying, low-altitudc Cruise
Missilcs capable of cvading
cncmy licani wcapons.
PEKING - Several hundrcd
studcnts from Chinu's rcmotc
Xinjiang provincc dcmon-
stratcd illcgally in Pcking in
wliat was thought to bc thc
country’s first public protcst
against nudcar tcsts. Such
tcsts arc hcld in thc province.
ISLAMABAD - Prcsidcnt
Mohammad Zia-ui-Haq kcpt
Pakistan guessing ahout
whcn lic would cnd martial
law. Thcrc was speculation
this could come at any timc
bctween tomorrow and mi-
dnight on Ncw Year’s Eve.
BAHRAIN - At least 32 pe-
oplc have died in thc worst
floods for 50 years in the nort-
hwcst corner of Saudi Ar-
abia, a senior official in Ri-
yadh rcportcd.
COLOMBO — Five Tamil
scparatist gucrrillas wcrc kill-
cd and 600 suspects arrcstcd
as the govcrnment accuscd
onc rebel group of showing
no interest in a political solut-
ion to Sri Lanka’s ethnic
conflict.
PAMPI.ONA, SPAIN -
Uj Suspectcd Basque guerrillas
shot dcad a retired civil guard
gcncral following widcsprcad
protests over the death of a
Basquc who disappearcd
while in the custodv of the
Ui civil guard, police sourccs
^ said.
LONDON - Britain has ask-
ed Anglican cliurch envoy
Tcrry Waite to try to securc
the release of British journal-
ist Alec Collett during his
mission to Beirut aimcd at
Freeing four American hos-
tages, the Foreign OfTice
said.
BAMAKO — A flare-up of
tension between the West
African states of Mali and
Burkina Faso appeared to
have subsided after Burkina
Faso’s troops withdrcw from
a disputcd border arca.
NEWSIN BRIEF—
Alþjóðlegar handtökur:
Kreppt að eitur-
lyfjasmyglurum
Newark-Keuter.
■ Bandarískir embættismenn
skýrðu frá því að í seinustu viku
helðu bandarískir og evröpskir lög-
reglumcnn handtekið lykilmenn í
einum stærsta eiturlyfjahring heims-
ins með samræmdum aðgerðum.
Judi Russcl aðstoðarríkissaksókn-
ari segir að eiturlyfjahringurinn hafi
stundað viðskipti fyrir milljaröa doll-
ara (hundruði milljarða ísl. kr.).
Handtaka margra leiðtoga hringsins
sé því mikilvægur sigur í baráttunni
við eiturlyí.
Russell sagði Bandaríkjamenn bú-
ast við miklum samdrætti í framboði
á heróíni og hassi á Bandaríkja-
markaöi í kjölfar handtakanna sem
eru afleiðing tíu ára rannsóknar á
starfsemi hringsins.
Lögreglumenn í Newark í New
jersey í Bandaríkjunum handtóku
m.a. hollenskan lögfræðing, Marten
Roeffen og líbanskan lækni, Aham-
ad Salehel., fyrir að ætla að smygla
500 kílóum af heróíni inní Bandarík-
in. Starfsmenn alríkislögreglunnar
komu upp um þá með því að þykjast
vera eiturlyfjakaupmenn og bjóða
1,5 milljón dollara og 100 kíló af
kókaíni í staðinn fyrir heróínið.
Á myndbandsupptökum, sem
teknar voru á meðan á samningavið-
ræðum milli njósnara alríkislögregl-
unnar og eiturlyfjasmyglaranna
stóð, sjást hinir síðarnefndu m.a.
grobba sig af því að þeir geti útvegað
eiturlyf fyrir allt að 1,5 milljarða
dollara (60 milljarða ísl. kr.) á einu
bretti.
Leiðtogi hringsins, Stanley Esser,
sem var handtekinn í Amsterdam, er
sagður stærsti hasskaupmaður heims-
ins. Það er talið að hann eigi alltaf að
minnsta kosti 160 tonn af hassi í
flutningum með skipum á milli
landa.
Suður-Afríka:
Winnie Mandela
laus úr fangelsi
Hún lætur lagaboð ekki halda sér frá heimili sínu
Jóhannesarborg-Rcuter.
■ Winnie Mandela hútar blóð-
hefnd fyrir þá blökkumenn sem
lögrcgla hvíta minnihlutans í Suð-
ur-Afríku hcfur myrt. Hún lætur
hótanir stjórnvalda um fangelsun
sem vind um eyrun þjóta.
■ Suðurafríska baráttukonan
Winnie Mandela var látin laus úr
fangelsi í gær einum degi eftir að
hún var handtekin fyrir að brjóta
bann yfirvalda við því að hún tæki
þátt í opinberum mótmælaaðgerð-
um, gæfi út opinberar yfirlýsingar
og dvcldist í Soweto útborg Jó-
hannesarborgar.
Winnie Mandela, sem er 51 árs,
cr ciginkona blökkumannaleiðtog-
ans Nelsons Mandela sem hefur
vcrið áratugum saman í fangelsi í
Suður-Afríku.
Winnie segist staðráðin í því að
fara aftur til Soweto, þar sem heim-
ili hennar er, þrátt fyrir bann
stjórnvalda. Lögfræðingur hennar
segir að þegar hún var látin laus
hafi ekkert verið sagt um bannið
við því að hún færi aftur heim til
sín.
Hún á að mæsta aftur fyrir rétti
þann 22. janúar næstkomandi.
Hún var dæmd í útlegð til Brand-
forts árið 1977 en heimili hennar
þar brann til grunna eftir sprengju-
tilræði í ágúst og eftir það flutti hún
til Soweto.
■ Andsovéskur áróður:
„Rocky“ lemur „sovéskt ofur-
menni“ sundur og saman og
„sannar“ yfirburði bandarísks
frelsis yfir sovéskum sósíalisma.
Sovétmenn
hellasér
yfir Rocky
Moskva-Reuter:
■ Sovéska menningarblaðið So-
vietskaya Kultura réðst unt lielg-
ina harkalega á bandarísku kvik-
myndina Rocky IV sem Sylvester
Stallone er aðalleikari í.
Blaðið segir Stallone reyna að
breiða yfir eigið hæfileikaleysi
með hatri á kommúnisma og Sov-
étríkjunum.
í kvikmyndinni er boxhetjan
„Rocky” látinn sigra svívirðilegt
sovéskt ofurmenni. Sovietskaya
Kultura segir auglýsingar um
kvikmyndina þess eðlis að
það sé eins og verið sé að hvetja
fólk til að búa sig undir þriðju
heimsstyrjöldina.
Sovétmenn eru ekki einir um að
finna að gæðum myndarinnar,
kvikmyndagagnrýnendur hafa
margir tætt hana í sig. En þrátt
fyrir það slær hún öll aðsóknarmet
í Bandaríkjunum þannig að svo
virðist sem bandarískur al-
menningur kunni vel að meta
andsovéskan áróður hennar.
Glæpaalda í Japan
Tokyo-Kcutcr:
■ Japönsk lögregluyfirvöld scgja
að mik.il alda smáglæpa hafi gengið
yfir Japan á þessu ári oghafa glæpir
aldrei verið fleiri frá því árið 1948.
Við lok nóvembermánaðar
hafði japanska lögreglan skráð
tæplega 1,5 milljónir glæpa. Þar af
voru 86% glæpanna þjófnaöir en
um helmingur þeirra var framinn
af piltum sem fiktuðu við sjálfsala
og mótorhjól.
Alvarlegum glæpum fækkaði
nokkuð en svaladrykkjaeitramr,
sent drápu 13 menn, vekja sérstak-
an óhug. Að sögn lögregluyfir-
valda var 13.300 krítarkortum stol-
ið á fyrstu tíu mánuðum ársins og
töpuðust þannig sem svarar 160
milljónum ísl. kr.
Vændi virðist líka vera að aukast
í Japan en það er bannað með
lögum. Lögreglan handtók alls
9.329 vændiskonur frá því í janúar
þar til í október sem er svipað og
allt árið í fyrra.
Listrænn morðingi:
Málaði sig út
úr fangelsinu
Tel Aviv-Reutcr:
■ ísraelskur lífstíðarfangi
notaði listræna hæfileika sína
til að verða sér úti um tæki-
færi til að laumast úr fangels-
inu síðastliðinn föstudag.
Strokufanginn, sem heitir
Zvi Gur. fékk það verkefni að
mála veggmyndir í fangelsinu
þar sem hann dvaldist.
Veggmyndirnar þóttu svo
góðar að fangelsisyfirvöld
höfðu ákveðið að fá hann til
að mála öll fangelsi t ísrael
sem hefði sjálfsagt enst hon-
um út fangavistina.
Zvi Gur, sem er 38 ára, var
dæmdur í lífstíðarfangelsi
fyrir fimnt árum vegna ráns
og morðs á átta ára gömlunt
dreng. Hann var fyrirmynd-
arfangi og það var ekki talin
ástæða til að fylgjast með
honum þar sem hann vann við
að mála útveggi fangelsisins
að utan.
En frelsisástin varð fang-
elsisástinni yfirsterkari á
föstudag og Zvi Gur stakk af
frá ókláraðri veggmyndinni.
■ Islenskur saltfiskur bíður óþreyjufullur eftir að komast í portúgalskan
jólamat.
Portúgal:
Saltfiskur í
jólamatinn
Lissabon-Reuter:
■ Margir Portúgalar sjá ekki ást-
æðu til að að belgja sig upp af kjöti
um jólin heldur háma þeir í sig salt-
fisk að gömlum sið. Kaupmenn
segja saltfisksölu tvöfaldast um jól-
in og salan í ár sé síst verri en oftast
áður.
Portúgalar framreiða saltfiskinn
sem gómsætt „bacalhau" með
lauk, eggjum, kartöflum og fleira
góðgæti. Þaðersagt aðtilséumörg
þúsund aðferðir til að búa til bacal-
hau.
Joao da Silva Ramalho, sem rek-
ur saltfiskbúð í Lissabon. segir að
saltfiskskortur myndi leiða til
hungursneyðar í Portúgal. Ein-
ræðisstjórnin, sem steypt var árið
1974, lagði metnað sinn í að
tryggja nægjan saltfisk um jólin á
48 ára valdaferli sínunt.
Einu sinni komst af stað orðróm-
ur um að saltfiskurinn væri að selj-
ast upp sem leiddi til þess að fólk
hamstraði saltfisk.