NT - 24.12.1985, Side 7
ffp
LlI Útlönd
■ Ronald Reagan Bandaríkjafor seti og Daniel Ortega forseti Nicar agua. Hvor ætli sé lygnari?
Ortega skorar á
Reagan í lygapróf
Managua-Rcuter
■ Daniel Ortega forseti Nicaragua
hefur skorað á Ronald Reagan for-
seta Bandaríkjanna að gangast undir
lygapróf unt málefni Mið-Ameríku.
Ortega segir að áætlun Reagans
um að láta bandaríska embættis-
menn gangast undir lygapróf með
aðstoð lygamælis til að uppræta
njósnara minni einna helst á aðferöir
nasista í heimsstyrjöldinni síðari.
„En úr því að Reagan trúir á þetta
próf set ég fram þá áskorun að við
göngumst báðir undir það til að
heimurinn viti hvor okkar er lygari,"
sagði Ortega.
Reagan hefur ásakað Sandinista-
stjórnina í Nicaragua um að flytja
byltingu út til nágrannaríkja Miö-
Ameríku og auka harðstjórn og cin-
ræði heimafyrir. Sandinistar harð-
neita þessu og ásaka Bandaríkja-
menn um að reyna að steypa íöglegri
stjórn í Nicaragua meö stuðningi við
hægriskæruliða og innrásarundir-
búningi.
Lygamælir er bandarísk uppfinn-
íng senr sagt er að geti greint lygar
með tiltölulega miklu öryggi. Lyga-
mæling eða lygapróf fer m.a. þannig
fram að blóðþrýstingur, hjartsláttur
og sviti er mældur á fneðan viðkom-
andi svarar spurningum.
Franskt happ:
Tugmilljónir
í jóíavinning
París-Reuter
■ Parfsarbúi nokkur fckk óvænta
jólagjöf urn helgina þegar stærsti
vinningur, sem dreginn hefur verið í
ríkishappdrætti Frakka, kom í hans
hlut.
Jólavinningurinn var hvorki meira
né minna en 17 milljónir franka sem
er um 90 milljónir ísl. kr. Ekki hefúr
enn verið skýrt frá því hvað hinn ný-
ríki milljónamæringur heitiren hann
gctur nú keypt veglegar jólagjafir
handa ættingjunum án þess að grípa
til krítarkorta.
Sviss:
Kornabarni stolið
úr siúkrahúsi
St. Galen, Sviss-Reuter
■ Sjö vikna gömlu stúlkubarni var
Alþjóðlegt
korn fyrir
afganska
flóttamenn
Róm-Reuter
■ Matvæla og landbúnaðarstofn-
un Sameinuðu þjóðanna hefur
ákveðið að greiða fyrir 160.000
tonn af hveiti fyrir afganska flótta-
menn í Pakistan á næsta ári.
Hveitið mun kosta 29,8 milljónir
dollara sem verður tekið úr sjóðum
Alþjóðlegra matvælaáætlunar
Sameinuðu þjóðanna. Sameinuðu
þjóðirnar hafa á undanförnum
árum greitt rúmlega 360 milljónir
dollara fyrir kornsendingar til afg-
anskra flóttamanna sem hafa
neyðst til að flýja til Pakistan vegna
stríðsins í Afganistan.
stolið frá svissnesku sjúkrahúsi í St
Gallen í seinustu viku á ineðan
starfsfólk sjúkrahússins var upptekið
vegna neyðaraðgeröar á öðrum
sjúklingi.
Telpan hvarf af sjúkrahúsinu ein-
um degi áður cn foreldrar hennar
áttu að sækja hana eftir aðgerð sem
hún varð að gangast undir.
Þetta er í annað skipti á þessu ári
sem kornabarni er rænt frá þcssu
sjúkrahúsi.
l/BjícitipurUÉmoi
Afbitinn
vísifingur
vísar á
ræningja
Hon jjkong- Reuter
■ Vísifingur kínversks götu-
ræningja vísaði lögreglunni í
Hongkong á ræningjann eftir
misheppnaða tilraun til að
ræna peningum af 49 ára göml-
um manni í fyrradag.
Fórnarlamb ránstilraunar-
innar gekk inn í lögreglustöð
og tilkynnti að tveir göturæn-
ingjar hefðu reynt að féflctta
sig. Hann lét lögreglunafá fing-
urbrodd af vísifingri sem hann
sagöi að tilheyrði öðrum ræn-
ingjanum. Ræninginn reyndi
að þagga niöur í honum með
því að halda fyrir munninn á
honum en þá komst vísifingur-
inn í tennurnar á fórnarlamb-
inu.
Lögreglan sendi strax lýs-
ingu á ræningjanum til sjúkra-
húsa og lækna og nokkru síðar
handtóku þeir tvítugan mann
sem vildi fá lækna til að laga
styttan víslfingur. Sá vísaði svo
skömmu síðar á samverka-
mann sinn.
Slæm frétt
í „Góðum
fréttum“
l.ondon-Kculer
■ Breska blaðið „Good
News“ (Góðar fréttir), sem hef-
ur lagt metnað sinn í að birta
eingöngu góðar fréttir og
skemmtilegar, hefur birt fyrstu
slæmu fréttina sína: Það mun
hætta að koma út. „Good
News“ er mánaðarrit sem var
dreift ókeypis í breska bænum
Heanor. Astæðan fyrir þessum
slæmu fréttum er sögð vera
stöðugt meiri prentunar-
kostnaður.
Þriðjudagur 24. desember 1985 7
flokksstarf
Grímuball - grímuball
Framsóknarfólki á öllum aldri er boðið að mæta á grímu-
ball á nýársnótt að Hamraborg 5 í Kópavogi. Allir eru
hvattir til að mæta. Húsið opnar kl. 1 og verða veitingar
seldarástaðnum.
FUF í Kópavogi
Frá Vísindasjóði
Vísindasjóður auglýsir styrki ársins 1986 lausa til um-
sóknar. Umsóknarfrestur er til 1. febrúar.
Umsóknareyðublöð, ásamt upplýsingum, fást hjá deild-
arriturum, menntamálaráðuneytinu og hjá sendiráðum
íslands erlendis.
Deildarritarar eru:
Sveinn Ingvarsson konrektor Menntaskólans við
Hamrahlíð fyrir Raunvísindadeild og Þorleifur Jónsson
bókavörður á Landsbókasafni fyrir Hugvísindadeild.
Vísindasjóður
Styrkur til háskólanáms í Noregi
Norsk stjórnvöld hafa tilkynnt að þau bjóði fram styrk handa íslenskum stúd-
ent eða kandidattil háskólanáms í Noregi háskólaárið 1986-87. Styrktímabil-
ið er níu mánuðir frá 1. september 1986 að telja. Til greina kemur að skipta
styrknum, ef henta þykir. Styrkurinn nemur 3.900,- n.kr. á mánuði.
Umsækjendur skulu vera yngri en 35 ára og hafa stundað nám a.m.k. tvö ár
við háskóla utan Noregs.
Umsóknum um styrk þennan, ásamt afritum prófskírteina og meðmælum,
skal komið til menntamálaráðuneytisins, Hverfisgötu 6,101 Reykjavík, fyrir 1.
febrúar n.k. - Sérstök umsóknareyðublöð fást í ráðuneytinu.
Menntamálaráðuneytið,
19. desember 1985
Jólaball starfsmanna Sambandsins
verður haldið föstudaginn2:
kl, 15.00-18.00 áHótelSögu.
Miðaverð
Hljómsveit
Magnúsar Kjartanssonar.
Jólasveinar á staðnum
og fjörug dagskrá..
MIÐAR VERÐA SELDIR HJA
AUGLÝSINGADEILD SAMBANDSINS
LINDARGÖTU 9A, S. 28200, INNANHÚSS 106,'
FYRIR HÁDEGI FÖSTUDAG 27. DES.
OG VIÐ INNGANGINN (SÚLNASAL). /msr
Frítt fyiir fulloröna og gestir velkomnir.
%