NT - 24.12.1985, Blaðsíða 11
Þriðjudagur 24. desember 1985 15
Hann tók um hönd hennar.
- En hvaö þér eruð góöar. Hefði ég átt systur,
eins og yöur, hefði ég orðið betri maður.
- Þér getið orðið það ennþá.
- Ég vona að svo verði. Verið þér systir min,
ráðleggið mérog leiðbeinið.ég ersvo ístöðulítill
og veikurfyrir.
- Ég skal reyna að vera það.
- Þakka yður fyrir. Hann laut niður að henni
og kyssti hana á ennið.
Hun fölnaði og studdi sig við borðið.
- Svona, farið þér nú, flýtið yður, annars
verður bankanum lokað. Því fyrr, sem þér hafið
komið þessu í lag, því betra.
- Það er satt. Nú fer ég. í Guðs friði. Hann
þrýsti hönd hennar og flýtti sér út.
Hún horfði á eftir honum.
- Systir! Aðeins systir. Hún beygði höfuð, en
lyfti því strax aftur. Andlitið Ijómaði og bros lék
um varirnar. - Hann er mér þakklátur og stund-
um getur þakklæti orðið að ást, með tímanum.
Daginn eftir kom Hrafn í heimsókn. Hann var
flunkunýr frá toppi til táar. í hárfínum fötum og
frakka, með hvíta hanska og rósótt slifsi. I stað-
inn fyrir gamla hattinn með páfuglsfjöðrinni, var
hann með nýmóðins silkihatt. Hildur virti hann
fyrirsérmeð aðdáun.
- Hvað þér eruð fallegir.
- Það er yður að þakka, sagði hann fjörlega
og hló. Hann stoð stutt við, hjá Hildi. Hann fór
niðurtil md. Sólveigar. Emilía, Annaog kærast-
inn sátu í stofunni. í stóru herbergi þar inn af
sást hópur af straukonum - og maddaman sjálf.
- Ný aðdáun! Maddaman kom þjótandi fram í
stofuna og skellti aftur hurðinni, rétt við nefið á
forvitnum straukonunum. Emilíu svelgdist álin-
sterkjunni og fékk ákafan hósta.
- Ó, ég varð svo - mér brá svo. - Ég þekkti
yður ekki.
- Gættu þin, barnið mitt, mundu eftir hjart-
veikinni.
Hansen tautaði eitthvað um krampa.
•- En hvað þér eruð breyttur, sagði Emilía
vandræðalega.
- Svo dæmalaust flott, sagði maddaman. -
Hefir stúdentinum hlotnast arfur?
- Það væri ekki óhugsandi. En nú skuluð þér
hætta að kalla mig stúdent. Ég er búinn að
leggja bækurnar á hilluna. Það er seintekinn
gróði í bóknáminu. Ég er farinn að versla. Það
er að segja: ég er orðinn meðeigandi í verslun-
arfyrirtæki. - Tómas og Hrafn hf. heitir það.
- Óska til hamingju, þetta er verulega
skemmtilegt.
Það var ákveðið, að Hrafn skyldi búa áfram
hjá maddömu Sólveigu, - vera þar að öllu leyti.
Kvisturinn var endurbættur, aö miklum mun og
prýddur nýjum húsgögnum. Svo sótti maddam-
an portvín til þessað skála við nýja kaupmann-
inn - og það var drukkið og hlegið og daðrað, en
enginn mundi eftir Hildi, sem sat uppi á kvistin-
um sínum og saumaði - alein.
Saumavélarhjólið snerist með venjulegum
hraða - en hugur Hildar var ekki við saumana.
Hana dreymdi áfram fagra drauma.
- Mánuður leið, fullur gleði og gamans. Það
leit út fyrir að verslun Hrafns gengi prýðilega.
Hann lifði í vellystingum, borgaði húsaleiguna
og allt annað skilvíslega, gaf dýrar gjafir, hélt
smáveislur, bauð í sleðaferðir, leikhús o.s.frv.
En hann gleymdi ekki vinum maddömu Sól-
veigar. Maddama Þóra, Anna, Hansen og Hild-
ur voru alltaf boðin með, og allir voru í sjöunda
himni.
Og maddama Þóra sagði: - Já, þessi Hrafn!
Hann er mesti indælis maður, svo alúðlegur og
hugulsamur, meira að segja viö Hildi, sem þó er
bara bláfátæk saumastúlka, sem aldrei getur
endurgoldið honum í neinu. Það sýnir best,
hvað hann hefir göfugan hugsunarhátt.
Tómas, félagi Hrafns, sást hins vegar aldrei.
Hann var svo sérvitur og ómannblendinn, sagði
Hrafn.
Dag nokkurn kom Emilía á harðaspretti upp
lil Hildar. Hún hélt stífuðum pilsunum upp með
báðum höndum og gægðist inn.
- Má ég koma inn?
- Gjörið þér svo vel.
Hún hneig niöur á stól. - Ó, góða Hildur! Ég
er svo hamingjusöm. Hjartað í mér ætlar alveg
að springa.
- Það væri hræðilegt.
- Ég er trúlofið.
í fjórða sinn?
- Já, og það er áreiðanlega í síðasta sinn. Ég
hefi verið í svo mikilli geðshræringu í dag. Ég
hefi ekki bragðað línsterkju.
- Hver er sá hamingjusami?
- Hvernig spyrjið þér? Auðvitað er það Hrafn!
Ó, hann er svo sætur. Ég sagði yður það, að ég
yrði áreiðanlega ástfangin af honum.
Ó, þessi hjartveiki! Hildur færði líka hendi til
hjartans ósjálfrátt. - Ég óska til hamingju!
- Hjartans þökk! Við ætlum að opinbera í
kvöld. Þór gjörið svo vel að koma niður og
drekka með okkur kaffi.
- Þakka yður fyrir, en ég er ekki vel frísk og -
- Ó, það verður batnað þá. Verið þér sælar!
Velkomnar í kvöld.
Það dimmdi óðum. Saumavélin stóð óhreyfð.
Iðna höndin hennar Hildar lá máttvana i kjöltu
hennar. Hún sat þarna þögul og niðurlút. Hun
gat ekki grátið nú. Það heyrðist fótatak í stigan-
um. Hún þekkti það vel, þó það væri óvenju
þungt og reikult. Það var drepið á dyr, hikandi,
næstum biðjandi, „kom“. Hrafn kom inn. Það
var óviðfelldinn glampi í augunum og hann reik-
aði.
- Þér hafið sjálfsagt fengið fréttina. Ég er bú-
inn að veiða gullfiskinn. Ætlið þér ekki að óska
mértil hamingju?
- Þér eruð kátur í kvöld?
- Já, alveg hryllilega kátur. Mér liggur við að
segja: drukkinn. Ekki mikið. Má ég hvíla mig hér
örlitla stund.
- Þér þurfið þess víst með.
- Já, ég þarf að hvíla - á mínum rósum.
- Þetta eru ágætar tengdir. - Vitið þér til
hvers ég kom til yðar í kvöld?
- Nei.
- Viljið þér lána mér 20 krónur?
- Ég á þær ekki til.
- Þér megið til með að útvega mér þær.
- Þurfið þér að taka lán, þér sem eigið þessa
ágætu verslun?
- Hafið þér nokkurn tíma verið á grímuballi,
Hildur?
- Nei, aldrei.
- Þá vitið þér ekki hvað það er kæfandi að
hafa hlýja flauelsgrimu fyrir andlitinu, og hvað
það er mikill léttir, að laumast út i horn og taka
af sérgrímuna, eitt augnablik, og ná andanum.
- Ég skil ekki.
- Gríman ætlar að kæfa mig. Ég verð að losa
mig við hana eitt augnablik. Ég er enginn kaup-
maður. Ég er uppskafningur, lygari, óþokki.
Svona er ég grímulaus.
- Guð hjálpi mér!
- Já, það er von að þér segið það. Hann færði
sig nær henni. - Nú skal ég segja yður eins og
er. Ég ákvað strax að giftast Emilíu, eða réttara
sagt heimilinu, en til þess að fá hana, varð ég að
koma dálítið ríklátlega fram. Svo þegar ég
komst að því hjá maddömu Sólveigu, að þér
ættuð peninga, gerði ég svohljóðandi áætlun:
Ég fæ peningana hjá Hildi, svo ég geti litið út og
komið fram eins og snyrtimenni. Svo giftist ég
litlu gæsinni þarna niöri og get þá bráðlega
borgað ungfrúnni peningana aftur. Var þetta
ekki skrambi smellin hugmynd?
Hildur svaraði engu, en sneri sér frá honum
með viðbjóði.
- Nú er ég búinn að eyða öllum peningunum,
hefi ekki grænan eyri til þess að borga trúlofun-
arhringinn handa Émilíu. Þér megið til með að
lána mér 20 krónur.
Hiidur svaraði ekki.
Hann stökk á fætur. - Heyrið þér ekki hvað ég
segi. Ég verð að fá þessa peninga-strax. Komi
ég ekki með hringinn í kvöld, verður allt vitlaust.
Giftingin fer út um þúfur og þér fáið aldrei pen-
ingana .yðar aftur. Þér megið til að lána mér
þessar 20 krónur, þá skuluð þér fá alla pening-
ana yðar með vöxtum.
- Þér fáið ekki einn eyri.
- Ég skil! Þú vilt ekki að ég trúlofist Emilíu. Þú
vilt eiga mig sjálf, dúfan mín. Ég erfyrirlöngu bú-
inn að sjá, að þú ert bálskotinn í mér. Það eru
allar stelpur vitlausar í mér. Hann laut ofan að
henni, svo hún fann áfengisþefinn fram úr
honum. - Geturðu imyndað þér að ég elski
þennan línsterkjuböggul, þarna niðri? Nei, því
ferfjarri. En sjáðu nú til. Viðerum bæði allt of fá-
tæk til þess að giftast. En þegar ég er giftur Emi-
líu - þá - Hann vafði handleggjunum utan um
hana og þrýsti henni að sér.
Hún sleit sig af honum í ofboði. - Varmenni!-
Hún þreif sjal, sveipaði því um sig, þaut ofan
stigann og út á götuna.
Hann stóð kyrr, utan við sig og starði á
saumavélina. Eldurinn í ofninum varpaði flögr-
andi bjarma um herbergið og þaö glampaði á
maskínuhjólið í skímunni.
Þá heyrðist rödd Emilíu neðan við stigann.
- Hrafn! Ertu þarna uppi?
Hann opnaði dyrnar.
- Ertu búinn að sækja hringinn?
- Nei ekki ennþá.
- Það er skammarlegt af þér að vera svona
kærulaus. Gestirnir geta komið á hverri stundu,
bg ég hefi engan hring og verð svo að athlægi.
Hún fór inn í stofuna og skellti hurðinni.
Litlu síðar fór Hrafn út og hélt þá á einhverju
þungu undir hendinni.
Hildur rölti fram og aftur um göturnar. Hún
vissi varla hvert hún fór. Hugsaði aðeins um að
komast sem lengst burtu frá Hrafni. Titrandi af
kulda laumaðist hún loksins heim. Inni hjá
maddömuni var allt uppljómað og þaðan barst
söngur, hlátur og glasaglam. Hildur læddist
hægt upp stigann. Þaö var dimmt og kalt í her-
berginu. Eldurinn í ofninum var kulnaður. Hún
kveiktfá lampanum. Svo litaðist hún um. Henni
fannst svo undarlega tómlegt í herberginu.
Eitthvað vantaði. Henni varð litið á borðið. Það
var autt. Saumavélin var horfin. Hildur rak upp
lágt hljóð, svo hneig hún niður yfirkomin af
geðshræringu, þreytu og kulda.
Hjá maddömunni var gleðskapurinn á hæsta
stigi. Þau nýtrúlofuðu sátu í sófanum og sver
gullhringur glóði á hönd Emilíu og augu hennar
Ijómuðu þegar hún leit á Hrafn. Hans augu voru
aftur á móti óvenjulega sljó, glaðværð hans var
óeðlileg og ástaratlotin frekjuleg.
Hansen mælti fyrir minni þeirra og allir sungu
hástöfum: „Nú drekkum við ungra elskenda
skál.“
Lampinn á kvistinum hennar Hildar reykti og
varpaði daufrj glætu á hana, þar sem hún lá á
gólfinu, meðvitundarlaus. Blóð rann úr skurði á
hnakkanum, dökka hárið féll laust niður um axl-
irnar og andlitið var náfölt, eins og dauðinn væri
þegar búinn að setja merki sitt á það. Þarna var
kalt, dimmt og ömurlegt.
Hrafni varórótt. Hildur varekki ennþá komin.
Hún var auðvitað bálreið og svo kæmi hún á
morgun og segði frá öllu. Hann varð að tala við
hana og grátbæna hana um að þegja. Hann fór
upp. Honum dvaldist undarlega lengi. Emilía
varð óróleg og bað Hansen að fara og sækja
hann. Hansen fór upp. Hann staðnæmdist í
ganginum, óttasleginn og undrandi. Herbergi
Hildar stóð opið. Hrafn lá á hnjánum á gólfinu,
með Hildi meðvitundarlausa í fanginu.
Húner dáin. dáinkveinaði hann.
Eg hefði drepið hana.
Hansen heyrði eKki meira. Hann þaut niður
stigann og stamaði eitthvað um morð og hljóp
svo upp aftur, með alla gestina í halarófu á eftir
sér. Emilía þaut til Hrafns:
- Ó, hefir Hildur verði myrt? Hver getur hafa
gert þetta? æpti hún.
- Ég! hrópaði Hrafn. Ég drap hana, bestu og
göfugustu stúlkuna, sem sem ég nokkurn tíma
hefi þekkt.
Emilía greip um handlegg hans.
- Þú ert ekki með sjálfum þér.
- Snertu mig ekki, hrópaði hann. Forðastu
mig eins og næmustu drepsótt. Ég er auðviröi-
legasta kvikindið á guðsgrænni jörðu. Til þess
að geta leikið snyrtimenni, gagnvart ykkur,
eyddi ég sparipeningunum hennar, sem hún
var buin að þræla fyrir, og til þess að kaupa
hringinn handa þér, stal ég saumavélinni
hennar. Með þessari djöfullegu framkomu, hefi
ég drepið hana. Nú vitið þið hvernið ég er. Sláið
mig, hendið mér út - út um gluggann svo ég
drepist; það væri best fyrir mig og aðra.
Hann stóð þarna náfölur, beit tönnunum fast
saman og tárin hrundu niður andlitið. - Emilíu lá
við yfirliði. Móðir hennar leiddi hana burtu og
gestirnir fylgdust með þeim. Maddama Þóra,
Anna og Hansen urðu eftir ásamt Hrafni. Madd-
aman tók Hildi í fangið og lagði hana i rúmiö.
- Hún er ekki dáin. Þaö hefir liðið yfir hana.
Hansen, náðu í lækni meðan við komum henni
i rúmið. Farið þér líka Hrafn, þér hafið ekkert að
gera, við Anna sjáum um Hildi.
- Ég fer inn í herbergið mitt. Látiö mig vita ef
nokkur lífsvon er.
- Já, það skal ég gera.
Hildur fékk meðvitundina aftur, en var fárveik
og talaði óráð. Læknirinn kom og rannsakaöi
hana. Þegar hann fór sat Hrafn í stiganum.
- Er hún lifandi?
- Já.
- Haldið þér að hún lifi?
- Það er ekki gott að segja. Hér getur hún
ekki legið. Hún verður að fá góða hjúkrun.
Hrafn vakti yfir Hildi um nóttina. Hann sat
þarna yfirkominn af iðrun og sjálfsásökun.
Hann vætti varir Hildar með vatni og reyndi á all-
an hátt að hjálpa henni og róa hana, en hún
hafði afarmikið óráð og háan hita. Morguninn
eftir kom maddama Þóra. Þá fór hann út, seldi
trúlofunarhringinn og fínu fötin og allt annaðfrá
dýrðardögunum. Svo sótti hann saumavélina,
sem hann hafði veösett, kvöldinu áður, og setti
hana á sinn stað. Svo yfirgaf hann húsið. Önnu
bað hann fyrir kveðjubréf til Emilíu. - Nú stóð
hann aftur úti á götunni, í gömlu fataræflunum
og með hattkúfinn með páfuglsfjöðrinni. Hann
sá fallegan vagn við húsdyrnar. Hildur átti i
fyrsta og - líklega síðasta - sinni að aka í fínum
vagni. Hún varflutt í honum á sjúkrahúsiö. Með
hitaveikisroða í kinnunum lá hún þarna, vafin
teppum og í óráðinu fannst henni hún vera að
aka til kirkjunnar, sem brúður.
„Ódýr hjúkrun," nefndist það á sjúkrahús-
máli. Stór, björt og loftgóð stofa. Borð þakið
meðalaglösum og ýmsum áhöldum og sterk
meðalal ykt. Meðfram veggjunum, háfætt rúm,
með hvítum lökum. í hverju þeirra sjúk kona.
Sumar fárveikar, aðrar í afturbata. Hjúkrunar-
kona útbýtir meðölum og svaladrykk. Gengur
milli sjúklinganna, blíð eins og engill, hug-
hreystirog hjálpar, eftirföngum.
Það er heimsóknartími. Við hvert rúm situr
einn eða fleiri, ættingjarog vinir, með hluttekn-
ingu og uppörfun. Upp úr vösum og töskum
gægjast ávextir, sælgæti o.fl. sem tekist hefir
að fela fyrir hjúkrunarkonunni. í einu rúminu
liggur Hildur. A stólnum við rúmið hennar situr
Hrafn og horfir með ánægju á grönnu fingurna
hennar, sem eru að skræla appelsínu. Hann
hefir ekki bragðað mat allan daginn til þess að
geta fært henni þessa einu appelsínu. Hildur er
búin að liggja þarna í mánuð. Síðustu 14 dag-
ana hefir hún haft ráð og rænu og það eru gleði-
legustu dagarnir, sem hún enn hefir lifað. Á
hverjum degi kemur Hrafn og situr við rúmið
hennar og færir henni ávexti eða eitthvað ann-
að til að gleðja hana. Hann er löngu búinn að
biðja um og fá fyrirgefningu hennar. Þarna ligg-
ur hún föl og falleg, kryppan sést ekki, og augun
Ijóma af hamingju.
- Finnur þú mikið til? spyr hann áhyggjufullur.