Lesbók Morgunblaðsins - 13.11.2004, Blaðsíða 15

Lesbók Morgunblaðsins - 13.11.2004, Blaðsíða 15
Lesbók Morgunblaðsins ˜ 13. nóvember 2004 | 15 R itstjórn bókarinnar skipa Helgi Björns- son, formaður, Egill Jónsson og Sveinn Runólfsson. Þeir segja, að hvergi sé sambýli Íslendinga við jökla svo náið sem sunnan Vatna- jökuls. Þetta sjáist greinilega í bók- inni, sem sé ekki bara jöklafræði, heldur þverfaglegt verk um náttúru og mannlíf á landræmunni milli sjávar og jökla í A-Skaftafellssýslu. Bókinni má skipta í þrjá efnisflokka. Sá fyrsti geymir fróð- leik um sögu og náttúru eftir að land byggðist. Egill Jónsson skrifar um landgæði í Austur-Skaftafells- sýslu á landsnámstíð, Páll Berg- þórsson skrifar um loftslag allt frá landnámi, Páll Imsland fjallar um landsig og landris í Hornafirði, Helgi Björnsson og Finnur Pálsson lýsa nýjum rannsóknum á landslagi undir jöklum í A-Skaftafellssýslu og Sveinn Runólfsson ritar um land- kosti og landbætur í Austur- Skaftafellssýslu. Í miðkafla bókarinnar fjalla tveir jarðfræðingar; Jón Jónsson og Guð- mundur Ómar Friðleifsson, um jarðsögu svæðisins, en Jón, sem er aldursforseti íslenzkra jarðfræð- inga, hóf langan rannsóknaferil sinn á þessum slóðum fyrir meira en hálfri öld. Í þriðja hlutanum rekja fræðimenn minningarbrot frá störf- um í A-Skafafellssýslu; þeir Sverrir Scheving Thorsteinsson og sænski Íslandsvinurinn Gunnar Hoppe og bókinni lýkur með endurminningum frá samvinnu Íslendinga og Svía á Vatnajökli 1936–38. Carl Mann- erfelt lifir enn í hárri elli einn þátt- takenda, en auk endurminninga hans, birtast minningarbrot úr ferð- um Sigurðar Þórarinssonar um Austur-Skaftafellssýslu 1934–39, sem sonur hans Sven Þ. Sigurðsson hefur tekið saman. Þeir félagar segja, að fyrsta hug- myndin að þessari bók hafi kviknað eina góða morgunstund, þegar Helgi og hans menn fóru að lýsa landinu undir Hoffellsjökli, sem þeir höfðu verið að mæla. Þar var þá strax ákveðið að gefa út bók og höfundarnir ellefu valdir til hennar. Helgi Björnsson tók að sér að vera ritstjóri bókarinnar og „síðan skip- uðum við félagarnir okkur þrjá í rit- nefnd og höfum í sameiningu unnið að framgangi verksins,“ segir Egill. „Aðal þessarar bókar tel ég vera myndirnar; þær eru bæði margar og merkar,“ segir Sveinn. „Við höf- um farið í flugvélum og fótgangandi um fjöll og firnindi,“ bætir Egill við og „grafið í gömlum myndasöfnum og bjargað þeim frá glötun,“ botnar Helgi. Málverkin komu á óvart Egill Jónsson er heimamaðurinn og ég spyr hann, hvernig breyting- arnar hafi horft við honum af hlaðinu á Seljavöllum. „Ég ólzt upp á Hoffelli og var ná- inn afa mínum; Guðmundi í Hoffelli, sem þekkti til breyttra tíma í veð- urfari og náttúru allt aftur til 19ndu aldar. Síðan er ekki síður víðsýnt til jökla af hlaðinu á Seljavöllum. Það- an sjást vel breytingar á jöklum í Hornafirði og þótt hægt fari, þekkja menn á mínum aldri verulega rýrn- un jökla og landvinninga. Graslendið á undirlendinu tók miklum breytingum á síðustu öld og því meiri sem lengra leið. Jöklar og jökulár voru ekki eins aðgangshörð og landið var varið, bæði vegna vegagerðar og landgræðslu, sem hvort tveggja er góður undirbún- ingur fyrir landið til að taka á sig aðra sýn; ræktunar í stað gróð- urleysis. Einn þáttur í starfi okkar við bókina, hefur verið að skoða og bera saman málverk af jöklum. Við birtum í bókinni málverk frá byrjun 20ustu aldar eftir Ásgrím Jónsson við hliðina á ljósmynd frá sama sjónarhorni, sem Magnús Reynir Jónsson tók nærri öld síðar. Mun- urinn á jöklinum er gífurlega mikill. Til eru mörg falleg málverk, sem lýsa náttúrufari í Austur-Skafta- fellssýslu, sem vert væri að kynna. Við myndöflunina safnaðist að okkur svo mikill fjöldi ljósmynda, að það er vel hægt að gefa út aðra bók, bara með myndum!“ Undraverð gróðurbylting Sveinn Runólfsson segir, að oft trúi fólk því ekki, þegar því er sagt hvernig ástandið var, til dæmis fyr- ir einni öld, og það borið saman við þann árangur, sem náðst hefur í landgræðslunni. Hann segir, að af dönsku herfor- ingjaráðskortunum frá 1903 í Aust- ur-Skaftafellssýslu, megi lesa dýr- mætar upplýsingar um gróðurfar landsins og sjá, hvað landið var þá orðið hart leikið af óblíðum nátt- úruöflum; jöklum, ám og eldfjöllum. „Það er óvíða sem land hefur ver- ið leikið jafn grátt á sögulegum tíma. Hins vegar er óhætt að fullyrða að í Austur-Skaftafellssýslu hefur gróður tekið hvað mestum stakka- skiptum og framförum síðustu 50 ár, sem ég hef orðið vitni að nokk- urs staðar á landinu. Ég tek sem dæmi ástandið á Skógeyjasvæðinu í Hornafirði. Þar hófst landgræðsla á 9nda áratug tuttugustu aldarinnar. Það þurfti að beita mjög sérstæðum aðferðum, því Skógeyjasvæðið var ýmist þurrt og sandi orpið eða vötnin flæmdust um það. Því urðu að haldast í hendur varnaraðgerðir gegn ágangi fljót- anna og síðan mikið átak í upp- græðslu, þegar landið þornaði. Það hefur verið afar athyglisvert að sjá hvernig sáðgrösin viku fyrir inn- lendum gróðri; fyrst svokölluðum landnemaplöntum og nú sjást víða víðir og birki, sem gefa fyrirheit um að Skógey beri aftur nafn með rentu. Nú er Skógeyjasvæðið, sem fyrir þremur áratugum var gróðurvana eyðimörk, orðið iðjagrænt gróð- urlendi. Árangur sandgræðslu og tún- ræktar í A-Skaftafellssýslu hefur verið undraverður og mikilvægt er að stuðla að því, að sú gróðurbylting haldi áfram.“ Landslagið afhjúpað „Kaflaskipti urðu í jöklarann- sóknum, þegar okkur tókst með íssjá að afhjúpa landslagið undir Vatnajökli, þar á meðal upp af Hornafirði,“ segir Helgi Björnsson. „Á þessu landsvæði ber fyrst að nefna að við fundum undir Hoffells- jökli 10 kílómetra langa rennu, sem nær niður fyrir sjávarmál; allt að 300 metra. Þessi renna er upphafið að hinum forna Hornafirði, sem ís- aldarjökullinn gróf og síðar fylltist af sandi, þegar sá ísskjöldur hvarf. Þegar núverandi Hoffellsjökli er svipt af, kemur í ljós landslag, sem kemur heim og saman við gamlar frásagnir og fornar sögur frá A-Skaftafellssýslu og hjálpar okkur að lesa Íslandssöguna allt aftur til landnáms, þegar ferðaleiðir lágu yf- ir fjöll, sem síðan huldust jökli. Nú þekkjum við landslagið undir jöklinum hærra uppi. Það vekur at- hygli, hversu lágt það er. Jökullinn hvílir á hálendi, sem er að jafnaði í 800 metra hæð og er 560 metra þykkur, þar sem mest er. Aðeins um 10% af fjalllendinu undir jöklinum nær upp fyrir nú- verandi snælínu, sem er í um 1100 metra hæð. Því er ljóst að jökullinn hefur orðið til við mun kaldara lofts- lag en nú er og þegar snælínan var lægri.“ Þegar Ísland var numið, voru jöklar minni en nú. Snælínan við sunnanverðan Vatnajökul var þá í um 1100 metra hæð, eins og nú, en síðan féll hún niður fyrir 800 metra um 1500 og hélzt í 700 metrum til loka 19ndu aldar. Þá settust snjó- fyrningar á alla fjallshæðina upp af Hornafirði og Mýrum og stórir jökl- ar uxu og skriðu niður á láglendi. Undir Hoffellsjökli eru 70% af flat- armáli botnsins yfir 800 metra hæð. Hoffellsjökull var orðinn 234 fer- kílómetrar árið 1890, en síðan tók hann að rýrna, einkum frá 1930 til 1960 og árið 2001 var hann 212 fer- kílómetrar. Hoffellsjökull hefur við hlýindi síðustu tíu ára hopað enn hraðar en áður og nú þarf hann að draga sig lengra til baka til þess að ná nýju jafnvægi sem heldur honum á lífi. Helgi Björnsson segir að hann muni að óbreyttu loftslagi ná jafn- vægi norður við Tungur, Múla og Gæsaheiði, en gangi spár eftir um að framundan sé enn hlýrra loftslag „munu barnabörn okkar sem mið- aldra erum sigla eftir jökullóni til Nýju-Núpa.“ Margmiðlunardiskur með Með bókinni Jöklaveröld fylgir margmiðlunardiskur, þar sem efnið er kynnt á myndrænan hátt: lýst er landsháttum í Austur-Skaftafells- sýslu á fyrri tímum og sýndar þær breytingar sem orðið hafa með landgræðslu og hlýnandi veðráttu. Landslagi undir jöklum er lýst. Margmiðlunardiskurinn er einnig til í enskri útgáfu. Landvinningar undir jökli Mælingar á undirlagi Vatnajökuls suðaustanverðum ríma vel við sög- ur í byggðinni sunnan Vatnajökuls. Á fyrstu öldum eftir landnám náðu jöklar ekki niður á láglendi, en við kólnandi loftslag eftir 1300 tóku jöklar að vaxa og skríða niður frá hálendinu. Þar sem Hoffellsjökull- inn hvílir nú riðu forfeður okkar rennisléttan og gróinn Hoffellssand til Nýju-Núpa. Frá þessu segir bók- in Jöklaveröld, en hún er ekki ein- asta frásögn um það, hvernig land- ið leit út, þegar landnámsmenn komu fyrst fyrir meira en 1100 ár- um, heldur fjallar hún um náttúru og mannlíf allar götur síðan og þær gríðarmiklu breytingar, sem hafa orðið á útliti byggðarinnar í Aust- ur-Skaftafellssýslu. Eftir Freystein Jóhannsson freysteinn@mbl.is Morgunblaðið/RAX Jöklaveröld er ekki bara jöklafræði, heldur þverfaglegt verk um náttúru og mannlíf á landræmunni milli sjávar og jökla í Austur-Skaftafellssýslu. Ritnefndin; Helgi Björnsson, Egill Jónsson og Sveinn Runólfsson. Stóralág. Málverk Ásgríms Jónssonar frá 1912. Ljósmynd/Magnús Reynir Jónsson Stóralág 2002.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.