Lesbók Morgunblaðsins - 13.11.2004, Blaðsíða 20

Lesbók Morgunblaðsins - 13.11.2004, Blaðsíða 20
20 | Lesbók Morgunblaðsins ˜ 13. nóvember 2004 Æskan er dásamlegt fyrirbæri. Því-líkur glæpur að sóa henni á börn,“sagði breskur rithöfundur, nokkuðfarinn að reskjast. Eins og menn vita getur sannleikurinn verið mótsagnakenndur, samanber þá grundvallarstaðreynd að um leið og líf kviknar ber það dauðann í sér. Ég skrifa þetta ekki til að vera hátíðlegur, aldr- ei þessu vant, heldur í tilefni af óvæntu og dálítið sérkennilegu innleggi í umræðuna um stöðu ís- lenskra kvikmynda á heimamarkaði. Þetta inn- legg kom frá The New York Times. Blaðið hafði sent fulltrúa sinn hingað til lands til að fjalla um meintan makalausan kvik- myndaáhuga Íslendinga, þjóðar sem fari oftar í kvikmyndahús en Ameríkanar eða 5,4 sinnum á ári. Fulltrúinn fór svo í bíó eitt laugardagskvöldið hér í Reykjavík og varð fyrir merkri opinberun um hinn makalausa bíóáhuga. Hann hitti tvær 14 ára stúlkur sem hugðust fara á ameríska spennu/ hryllingsmynd, sem ekki hefur verið mikils metin hjá gagnrýnendum. Myndin var bönnuð innan 16 ára og því urðu þær stöllur frá að hverfa. Í sama kvikmyndahúsi voru tvær íslenskar kvikmyndir á boðstólum, hvorug bönnuð innan 16 ára. Í stað þess að velja aðra hvora þeirra vildu stúlkurnar frekar fara heim á ný og horfa á sjónvarpið. Þær sögðu bandaríska fulltrúanum að lítið væri varið í íslenskar kvikmyndir og unglingar færu ekki á þær. Íslenskar kvikmyndir væru fyrir eldra fólk. Nú kemur ekki fram í frásögn fulltrúans um hvaða íslenskar myndir var þarna að ræða, en all- ar líkur benda þó til að þær hafi verið Dís, eftir samnefndri metsölubók, og Blindsker, heimild- armyndin um Bubba Morthens. Án þess að þær myndir teljist „unglingamyndir“ í venjulegri merkingu hlýtur meginhöfðun þeirra þó að vera til einmitt yngri kynslóða frekar en hinna eldri. Samt telja stúlkurnar tvær þær til marks um að íslenskar kvikmyndir séu fyrir eldra fólk. Það kæmi mér ekki á óvart að þetta viðhorf stúlknanna tveggja sé nokkuð dæmigert fyrir þeirra kynslóð, og jafnvel fleiri kynslóðir, því miður. Ég hef áður nefnt það á þessum vettvangi: Það þykir einfaldlega ekki nógu spennandi, hvað þá nauðsynlegt að fylgjast með því sem er að ger- ast í íslenskum bíómyndum núna. Þessi tilvist- arkreppa er áreiðanlega að stórum hluta ímynd- arkreppa. Það þarf að skerpa og breyta ímynd íslenskra bíómynda. Það þarf að gera það ekki aðeins spennandi og eftirsóknarvert heldur einn- ig eðlilegt og sjálfsagt að fara á íslenska bíómynd. Það á ekki að vera fjarlægt og framandi að horfa á íslenskt. Þetta er ekki auðvelt verkefni og lausnin liggur ekki í augum uppi. En hvoru tveggja þarf að ræða af einurð og skoða marga samverkandi þætti. Ég er sannfærður um að einn af lykilþátt- unum snúi hins vegar ekki að íslenskri kvik- myndagerð heldur að íslenskum sjónvarps- stöðvum. Stúlkurnar tvær vildu frekar fara heim að horfa á sjónvarpið en sjá íslenska bíómynd. Þær reiknuðu áreiðanlega með því að á dagskrám hinna ýmsu stöðva væru leiknir bandarískir þætt- ir eða bíómyndir, ekki leikið íslenskt efni. Nú er svo komið að frumsýnt leikið íslenskt sjónvarpsefni er álíka óalgengt og frumsýning leikinnar íslenskrar bíómyndar. Ég geri ekki lítið úr grínsyrpum á borð við Svínasúpu eða Spaug- stofuna; þær eru ómissandi, jafn ólíkar og þær eru að efni og efnistökum. Það vantar einfaldlega miklu meira og fjölbreyttara leikið efni þar sem Íslendingar sjá sjálfa sig, sitt líf og sitt umhverfi við mismunandi dramatískar aðstæður. Og liggur við að ég þori að veðja: Væri slíkt efni reglulega en ekki stopult á boðstólum yrði smám saman bæði sjálfsagt og eðlilegt, jafnvel spennandi og nauðsynlegt, að fara í bíó til að sjá sams konar efni í öllu viðameiri og stærri umbúðum. Þetta sannast í öðrum norrænum löndum; þar helst gróskan í innlendri bíómyndaframleiðslu og áhugi innfæddra á henni í hendur við gróskumikla framleiðslu leikins innlends sjónvarpsefnis og áhuga innfæddra á henni. Í vetur eigum við sem betur fer von á íslensk- um sjónvarpskrimma og íslenskri gamansápuröð. En það er svo miklu meira sem þarf að gera á þessu sviði; það vita allir sem vilja vita. Og núna þurfa stjórnvöld að sýna áhuga sinn og vilja til breytinga í verki en ekki aðeins orði. En þversagnirnar eru margar. Á þessum stað í síðustu Lesbók skrifaði Hávar Sigurjónsson at- hyglisverða hugleiðingu um erindi íslenskra bíó- mynda við íslenska áhorfendur. Þar sagði hann m.a.: „Íslenskar kvikmyndir eru einnig því marki brenndar margar hverjar – þó ekki allar – að erf- itt er að átta sig á því fyrir hvern þær eru ætl- aðar, frásagnarmátinn hentar börnum og ung- lingum en efnið er ætlað eldri áhorfendum.“ Ef þetta er rétt, sem vel má vera, er ljóst að þessi frásagnarmáti dugir ekki til að koma í veg fyrir að stúlkurnar sem fulltrúi The New York Times hitti í bíó fari heim til að horfa á sjón- varpið. Þær „eru ekki að fíl’ann.“ Honum er, eins og æskunni, sóað á börn. Hvað, hvernig og fyrir hvern? ’Það vantar einfaldlega miklu meira og fjölbreyttara leikiðefni þar sem Íslendingar sjá sjálfa sig, sitt líf og sitt umhverfi við mismunandi dramatískar aðstæður.‘ Sjónarhorn Eftir Árna Þórarinsson ath@mbl.is Jehane Joujaim, bandarískur leikstjóri afegypsku bergi brotin, sýnir tvær gjör-ólíkar hliðar á sama stríði. Hér er jafnvelekki nógu djúpt tekið í árinni. Í Stjórn- stöðinni (Control Room, 2004) birtir Joujaim tvö ólík stríð, hvorugt stríðið er raunverulegt en bæði vísa til sama heimssögulega atburðar: innrásar Bandaríkjanna í Írak. Misvísandi fréttaflutningur Noujaim var umkringd af fréttamönnum í Doha, í Qatar, þegar styttunni af Saddam Hussein var velt um koll í Bagdad. Hún var örugg í fjölmiðla- miðstöðinni sem bandaríski herinn hafði komið á fót, með eigin tökumann sér við hlið, og þaðan fylgdist hún með vestrænu fjöl- miðlafólki fagna atburðinum. Viðbrögðin voru önnur hjá al-Jazeera, arabísku fréttastöðinni sem nær til áhorfenda um gervöll Mið-austurlönd. Þar var spurt hvað orðið hefði um íraska herinn og sérsveitirnar. „Jafnvel þótt okkur líki illa við Saddam er vandræðalegt að stytta af honum sé rifin niður frammi fyrir heimsbyggðinni,“ sögðu fréttamenn stöðvarinnar. Það er einmitt þessi fréttastöð, al-Jazeera, sem er helsta viðfang Stjórnstöðvarinnar, einstakrar heimildarmyndar sem varpar ljósi á skekkju- áhrifin sem fylgja fjölmiðlun líðandi atburða. Myndin reynir að miðla þeim fjölmörgu og flóknu venslum sem tengjast miðlun veruleikans. Hún sýnir hversu grátbroslega kjánalegt það er að vísa til hugtakanna „hlutleysi“ eða „veruleiki“ þegar fréttaflutningur af stríðinu er annars vegar. Það eina sem hægt er að segja er að stríð hafi átt sér (og sé ennþá að eiga sér) stað – handan þess er fátt að finna sem hægt er að kenna við stað- reyndir. Stríðið sem áhorfendur bandarískra fjöl- miðla þekkja er af allt öðrum toga en stríðið sem áhorfendur arabískra fjölmiðla þekkja. Og vafa- laust er stríðið sem íraskir borgar upplifa eitthvað enn annað og óþekkjanlegt. Þannig er mikilvæg- asti boðskapur Stjórnstöðvarinnar ekki pólitísk baráttuyfirlýsing, heldur sú staðreynd að áhorf- endur fá að fylgjast með tilraun til að nálgast eða festa hendur á þeirri ógnarstóru gjá sem skilur milli heimssýnar Vestur- og Austurlandabúa. Rótgróin sannindi? Joujaim er sjálf ekki undanskilin frásagnarlegum lögmálum: hún byggir mynd sína umhverfis nokkrar aðalpersónur sem í framrásinni reynast eins konar vitundarlegir hornsteinar verksins. Samir Khader er einn þeirra, yfirmaður í al- Jazeera. Einnig Hassan Ibrahim, glaðlyndur en skarpur fréttamaður fyrir sjónvarpsstöðina og svo Josh Rushing liðsforingi sem er tengiliður kvikmyndagerðarfólksins við bandaríska herinn. Persónur þessar verða ekki einungis áhorfendum góðkunnar heldur lýsir myndin samskiptum þeirra innbyrðis, andstæðum sjónarhornum og hægfara vinskap. Í tilviki hins síðastnefnda, Rushing liðsforingja, er næstum um þroskasögu að ræða. Í hans tilviki fylgjast áhorfendur með heragaðri þjóðhollustu lenda í árekstri við nýjan menningarheim, þeir fá að kynnast liðsforingj- anum þar sem hann byrjar að draga í efa „rótgró- in“ sannindi og smám saman taka mið af dýr- keyptri reynslu sem gefur í skyn að fyrirframgefin sannindi séu oft tálsýnir. Og þegar myndin kom út var hann rekinn úr hernum. Líkja má myndinni við ljósmyndirnar frá Abu Ghraib fangelsinu: spurningarnar sem vakna við áhorf myndarinnar eru einfaldlega þessar: hvers vegna vissi ég þetta ekki? Og svarið er svo sem ekki flókið. Sjónvarpsskjárinn er glugginn að um- heiminum. Glugginn sem við horfum út um er hins vegar ekki gagnsær, hann er eins og kirkjurúð- urnar þar sem vandlega málaðar myndir skerða útsýni og afmynda það sem fyrir ber. Og nú þegar nýafstaðnar kosningar í Bandaríkjunum hafa komið í veg fyrir skynsamlega lausn á Íraks- ævintýrinu er jafnvíst að kvikmynd Joujaim á er- indi við áhorfendur. Íraksstríðið átti sér (oft) stað Eftir Björn Þór Vilhjálmsson Skyggnst inn í stjórnstöð arabísku fréttastöðvarinnar al-Jazeera. Stjórnstöðin verður sýnd á dagskrá Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík 17.–25. nóvember næstkomandi. Fréttaflutningur vestrænna fjölmiðla og arabísku stöðv- arinnar al-Jazeera af Íraks- stríðinu hefur verið afar ólíkur. KvikmyndagerðarmaðurinnMichael Moore ætlar að gera framhald af Fahrenheit 9/11, heim- ildarmynd sem beint er gegn rík- isstjórn George W. Bush Banda- ríkjaforseta. Áætlað er að framhaldsmyndin komi út á svip- uðum tíma og baráttan fyrir næstu forsetakosningar fer af stað. Framhaldið gengur undir nafninu Fahr- enheit 9/11 og ½ og ætlar Moore að fjalla um svip- uð málefni og í fyrri myndinni. „Við ætlum að koma myndatöku af stað og hafa myndina tilbúna eftir tvö til þrjú ár,“ sagði Moore í samtali við Daily Variety. „51% Bandaríkjamanna skorti upplýsingar í síðustu kosningum og við viljum fræða fólk. Þeim var ekki sagður allur sannleikurinn.“ Bush var endurkjörinn í síðustu viku og fékk 51% atkvæða og John Kerry, fékk 48%. „Opinberi sorgartíminn er liðinn í dag og hér koma góðu fréttirnar – George W. Bush er bannað sam- kvæmt lögum að bjóða sig fram aft- ur,“ bætti Moore við. Fahrenheit 9/11 fékk aðalverðlaun Cannes-kvikmyndahátíðarinnar og hefur tekið inn 120 milljónir dala, um 8,4 milljarða króna, frá því að hún var frumsýnd í júní, sem er met fyrir pólitíska heimildarmynd.    DreamWorks staðfesti í vikunniað fyrirtækið hafi keypt rétt- inn að gera kvikmynd eftir Strand- vörðum (Baywatch). Þættirnir nutu mikilla vinsælda á tíunda áratugnum og þegar stóð sem hæst voru þeir sýndir í 142 löndum. Höfundar þáttanna, Michael Berk, Doug Schwartz og Greg Bon- ann framleiða myndina en ekki er ljóst hverjir klæðast baðfötunum. David Hasselhoff, sem lék Mitch Buchanan, leiðtoga strandvarðanna í Malibu, kemur ekki nálægt verkefn- inu. Óvíst er hvort einhverjar reynd- ar baðstranda- gellur taka þátt en þeirra á meðal voru Pamela Anderson, Carm- en Electra, Yasmine Bleeth, Donna D’Errico, Nicole Eggert og Traci Bingham. Þættirnir luku göngu sinni árið 2001 á Hawaii, þangað sem þeir voru fluttir frá Kaliforníu vegna sífellt vaxandi kostnaðar og minnkandi vinsælda. Verið er að leita að handritshöf- undi og búast má við því að Strand- varðamyndin verði frumsýnd árið 2006.    Hugh Grant hefur lýst því yfir aðhann sé búinn að missa áhuga á leiklist og ætli að hætta. Grant, sem leikur hjartaknúsarann Daniel Cleaver í framhaldsmynd Bridget Jones, segir í samtali við Evening Standard að kvikmyndaleikur sé „ömurleg reynsla“. Í Bridget Jones leikur hann á móti Renée Zellweger, sem segist líka ætla að taka sér hlé frá kvikmyndaleik í a.m.k. ár. „Þetta er svo langdregið og leið- inlegt og erfitt að gera hlutina rétt. Ég er hálfpartinn sestur í helgan stein. Ég held áfram að hugsa um að ég ætli að skrifa frábært handrit,“ sagði Grant, sem m.a. hlaut frægð fyrir leik í myndunum Fjögur brúð- kaup og jarðarför og Notting Hill. Erlendar kvikmyndir Renée Zellweger og Hugh Grant. Michael Moore David Hasselhoff

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.