Lesbók Morgunblaðsins - 11.12.2004, Page 1
Morgunblaðið/Jim Smart
Vélar tímans nefnist nýjasta skáldsaga Péturs Gunnarssonar sem
er jafnframt þriðja bindið í sagnaflokki hans Skáldsaga Íslands. Í
þessari grein er varpað ljósi á samhengið í höfundarverki Péturs en
þar kemur sagnaflokkurinn í rökréttu framhaldi af eldri verkum. Í
honum hefur Pétur sett sér það verkefni að gera okkur Íslend-
ingum kleift að skilja betur hver við erum.
Sagnaskáld
Íslands
F
yrir örfáum misserum hlotnaðist mér sú ánægja að
lesa allt höfundarverk Péturs Gunnarssonar frá
upphafi. Tilefnið var að bandarísk ritröð um rithöf-
unda heimsins ákvað að helga eitt af bindum sínum
íslenskum bókmenntum. Var mér falið að fjalla um
bækur Péturs og skrifa nokkuð langa ritgerð um
höfundarferil hans. Það er ekki oft sem tækifæri
gefst til að skoða allt verk höfundar sem þegar hef-
ur afkastað miklu. Greip ég það fegins hendi því mér lék forvitni á að
sannreyna grun minn um að Pétur væri einn af athyglisverðustu iðk-
endum skáldsöguformsins sem skrifa á íslensku um þessar mund-
ir.Pétur kvaddi sér hljóðs árið 1976 sem skáldsagnahöfundur með bók-
inni Púnktur, púnktur, komma, strik. Síðan eru skáldsögurnar orðnar
tíu talsins, að ónefndum þýðingum, ritgerðasöfnum og ljóðabókum. Í öll
þessi ár hefur hann verið óþreytandi við að prófa nýjar leiðir í ritun og
samningu verka sinna. Nýlega kom út eftir hann Vélar tímans, þriðja
bókin í flokknum Skáldsögu Íslands, sem er ekki síður frumlegur en
fyrri sögur Péturs. 4
Eftir Torfa H. Tulinius | tht@hi.is
Pétur
Gunnarsson
Laugardagur 11.12. | 2004
[ ]Myndlist á Listahátíð | Dieter Roth, On Kawara, Ólafur Elíasson, Thomas Hirschhorn | 6Trú og vísindi | Líffræði mannsins gerir hann móttækilegan fyrir trú | 10Bækur | Dómur um ævisögu Halldórs Laxness, samtal við Einar Má og fleira | 11–19
LesbókMorgunblaðsins