Morgunblaðið - 01.02.2004, Blaðsíða 16
16 | 1.2.2004
Þ egar Vigdís Finnbogadóttir var kjörin forseti Íslands árið 1980 opn-uðust augu kvenna, bæði hér heima og erlendis, fyrir því að konur ættumöguleika – og ekkert nema möguleika. Ef konu gat hlotnast forseta-
embætti í lýðræðislegum kosningum, var allt hægt. Þau sextán ár sem Vigdís
gegndi embættinu var gaman að vera íslensk kona, því það var sama hvaða land í
heiminum var heimsótt, alls staðar snerust fyrstu spurningar um „konuna sem var
forseti“ þegar spurt var um land og þjóð.
Þessu hafa íslenskar konur ekki gleymt. Til marks um það – og til þess að minna
íslenskar konur á mikilvægi þess að konur gegni leiðtogastarfi – veitti Félag
kvenna í atvinnurekstri Vigdísi þakkarviðurkenningu félagsins í hófi sem haldið
var í vikunni. Sú viðurkenning er veitt þeirri konu sem verið hefur félagskonum
fyrirmynd og hvatning en þetta er í fyrsta sinn sem þakkarviðurkenningin er veitt
konu sem ekki er starfandi í viðskiptalífinu.
Þegar Vigdís er spurð hvort hún hafi orðið vör við þann kipp sem jafnréttisbar-
átta kvenna tók við kjör hennar, játar hún því. „Eftir að ég tók þeirri ögrun að
bjóða mig fram til forsetaembættisins, þá gladdi það mig ósegjanlega að sjá að það
L
jó
sm
yn
d:
G
ol
li
KONUR ERU GULLNÁMA HEIMSINS
Eftir Súsönnu Svavarsdóttur
Félag kvenna í atvinnurekstri veitti Vigdísi Finnbogadóttur, fyrrverandi forseta, þakkarviðurkenningu
í vikunni fyrir að minna íslenskar konur á mikilvægi þess að konur gegni leiðtogastarfi.