Morgunblaðið - 22.07.2004, Side 4

Morgunblaðið - 22.07.2004, Side 4
FRÉTTIR 4 FIMMTUDAGUR 22. JÚLÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ ISO 9001 gæðastaðall er okkar styrkur og þín trygging fyrir gæðavöru Allar TEKNOS vörur framleiddar skv. ISO 9001 gæðastaðli TEKNOS hágæðamálning fæst nú á öllum norðurlöndunum. TEKNOS er ein vandaðasta málningin á markaðnum í dag. M Á LN ING ARTILB O Ð frá kr. 2 98- lt r. Hágæða lakkmálning Gljástig 15, 40 og 80 Hágæða Akrýl innimálning Gljástig 3, 7 og 20 MÖNNUM var nokkuð brugðið þeg- ar klæðning á forsköluðu timb- urhúsi við Hverfisgötu gaf sig í gær og hrundi á gangstétt. Enginn varð fyrir hruninu, en svo virðist sem sprungur í forsköluninni hafi valdið leka, sem síðan hafi leitt til þess að vírnet, sem hélt steypunni, ryðgaði í sundur. Gunnar Þórðarson, einn íbúa hússins, segir að um tveir til þrír fer- metrar af klæðningu hafi hrunið á stéttina. „Ef einhver hefði verið þarna á stéttinni hefði hann hugs- anlega getað meiðst, en sem betur fer varð enginn fyrir þessu,“ segir Gunnar, sem kveðst hafa verið far- inn að hyggja að því að rífa klæðn- inguna af. Nú hafi húsið hins vegar gefið sterklega í skyn nauðsyn slíkr- ar aðgerðar. „Við vorum búin að sjá þetta var að gliðna og vorum að spá í að hjálpa þessu niður, en svo varð þetta á undan. Nú liggur bara fyrir að hreinsa forskölunina af og láta bárujárnsklæðningu nægja. Þetta hefur verið gert í kringum 1940 og búið að hanga svolítið lengi á.“ Morgunblaðið/Árni Torfason Forskölunarklæðning hrynur af húsi NÝ RANNSÓKN hefur leitt í ljós að slysum á börnum á aldrinum 0–4 ára hefur fækkað verulega í heimahúsum og í frítíma fjölskyldunnar. Rann- sóknina gerði Er- ik Brynjar Schweitz Eriks- son læknanemi í samvinnu við Slysaskrá Íslands, Landlæknisemb- ættið og fleiri. Fram kom að árið 2003 var heildarfjöldi þeirra barna sem slösuðust í heima- húsi og frítíma 1.392, sem er um 75% allra slysa sem börn á aldrinum 0–4 ára urðu fyrir. Þessar tölur komu frá slysa- og bráðadeild LSH. Tæp 49% barnanna féllu og slösuðust, en fall er helsta ástæða slysa hjá börnum á þessum aldri. Þroski barnanna er þannig að þau eru mjög óstöðug en á sama tíma eru þau að kanna umhverfi sitt og gera sér ekki á neinn hátt grein fyrir hættunum þar. Því er afar mikilvægt að heimili þeirra og umhverfi séu gerð eins örugg og mögulegt er. Í rannsókninni kemur ennfremur fram að tíðni barnaslysa í yngsta ald- urshópnum hefur greinilega lækkað mjög hér á landi á síðustu tíu árum. Árið 1996 voru 128 slys á hverja þús- und íbúa á þessum aldri en árið 2003 voru heimaslysin aðeins um 78 á hverja þúsund. Þó segir Erik erfitt að gera algerlega beinan samanburð á þessum árum, vegna þess að verið geti að einhver munur sé á úrvinnslu og flokkun gagna sé öðruvísi nú en þá. Engu að síður sé þarna vísbend- ing sem gefi sterklega til kynna að mikil framför hafi orðið í að koma í veg fyrir slys. „Það sem er mjög ánægjulegt og hefur sérstaklega vak- ið ánægju mína er fækkun eitrana hér á landi,“ segir Erik. „Það var gerð rannsókn árið 1986 sem náði yfir árið 1979. Þá voru eitranir 10,6% allra or- saka slysa. Í dag eru eitranir komnar niður í 0,6%. Þetta er talandi dæmi um áhrif forvarna. Meðhöndlun eitur- efna hefur batnað gríðarlega, það er mál manna í þessum forvarnageira.“ Erik segir bruna- og klemmuáverka einnig hafa minnkað gríðarlega. Tíðni frítíma- og heimaslysa er nú lægri en hjá Dönum, en hingað til hef- ur Ísland verið talið með hæstu tíðni barnaslysa á Norðurlöndum og Danir komu þar næst á eftir. Enn sem fyrr er tíðnin lægst hjá Svíum, sem sýnir, að sögn Eriks, að enn má gera betur á þessu sviði. Herdís L. Storgaard, forstöðumað- ur Árvekni, samstarfshóps um for- varnir gegn slysum, segir margt sem foreldrar ungra barna geta gert til að koma í veg fyrir slys. „Fyrst og fremst þarf að gera sér grein fyrir því að frá fæðingu og alveg fram að tólf ára aldri hafa börn ekki þroska og getu til að sjá, þekkja og vita hverjar hætturnar eru í umhverfinu,“ segir Herdís og bendir á að aldurshópurinn sem rannsóknin tekur til, börn upp að fjögurra ára aldri, sé mjög viðkvæm- ur. „Það þarf að passa þau alveg sér- staklega vel. Sem dæmi má nefna að fram að sjö ára aldri bera börn ekki hendurnar fyrir sig þegar þau detta. Þá skiptir t.d. máli hvernig gólfefni eru í íbúðinni.“ Herdís segir fólk þurfa að gera ýmsar ráðstafanir á heimilum sínum. Á heimasíðu Lýðheilsustöðvar, undir slysavarnaverkefninu Árvekni, getur fólk lesið sér til um þroska barna og þar er einnig að finna gátlista sem fólk getur prentað út og gengið með um heimilið. Þar eru taldar upp ýms- ar hættur sem kann að vera að fólk hafi ekki áttað sig á. Erik Brynjar Schweitz Eriksson læknanemi. TENGLAR ..................................................... www.arvekni.is Slysum á ungum börnum fækkar umtalsvertBJÖRN Ingi Sveinsson borgarverk-fræðingur segir óhjákvæmilegt aðhafa umferðarljós á þeim slaufu- gatnamótum sem nú er verið að gera á mótum Hringbrautar, Snorra- brautar og Bústaðarvegar. Tvenn umferðarljós verða á gatnamótunum. Í Morgunblaðinu í gær sagði Árni Friðleifsson, varðstjóri hjá umferð- ardeild lögreglunnar í Reykjavík, að honum litist illa á að hafa umferð- arljós á þessum gatnamótum, þau geti skapað flöskuhálsa og verið slysagildra. Árni sagði reynslu lög- reglunnar af mislægum gatnamótum af þessu tagi vera þá að tjónatíðni aukist oft á tíðum frá því sem áður var. Einnig gagnrýndi hann að sjald- an væri haft samráð við lögreglu við hönnun umferðarmannvirkja. Skapar ekki vandamál Björn Ingi telur að gatnamót af þessu tagi hafi ekki skapað mikil vandamál. Umferðaróhöppum fjölgi hugsanlega eitthvað fyrst eftir að mannvirkin eru tekin í notkun, en það sé ekki viðvarandi ástand. „Um- ferðarljós stýra eðli málsins sam- kvæmt umferð og fólk þarf að hlíta þeim reglum sem gilda hverju sinni. Það eru kannski alltaf einhverjir sem ekki átta sig á því þegar hlutirnir eru nýir, en ég tel ekki að þetta sé ástand sem menn þurfi að hafa áhyggjur af,“ segir hann inntur eftir því hvort um- ferðarljósin séu slysagildra. Björn Ingi segir að ómögulegt sé að komast hjá því að hafa umferð- arljós á gatnamótunum. „Gatnamótin tækju miklu meira pláss og þá þyrfti að veita straumunum í þannig áttir að umferðin krossist aldrei. Gatna- mótalausnirnar þarna eru flóknar út af því að plássið er ekki mikið og við erum að tengja saman nokkra strauma, bæði af Snorrabraut, Bú- staðavegi og Hringbrautinni nýju sem og inn á gömlu Hringbrautina, sem aðgengi að spítalanum. Þetta kallar á þessar lausnir,“ segir Björn Ingi. Annar ekki umferð Hringtorg hefur verið nefnt sem möguleiki í stað mislægra gatna- móta. „Hringtorg var skoðað á sínum tíma, eins og margar aðrar lausnir og það var talið að það myndi ekki anna þeirri umferð sem um þessi gatna- mót þarf að fara,“ segir borgarverk- fræðingur. Inntur eftir því hvort sjaldan sé haft samráð við lögreglu um hönnun umferðarmannvirkja segir hann að allar framkvæmdir sem ráðist sé í á vegum borgarinnar, séu lagðar fyrir samgöngunefnd til endanlegs sam- þykkis. „Á fundum samgöngunefnd- ar situr einn af yfirmönnum lögregl- unnar og hefur bæði málfrelsi og tillögurétt þannig að þeir hafa fullan aðgang að því sem við erum að gera. Ég tel að menn eigi bara að nýta sér það betur ef þeir telja brotalöm á því,“ segir Björn Ingi. Umferðar- ljós óhjá- kvæmileg VARÐSKIPIÐ Ægir er á leið til hafnar og þar með verður ekkert íslenskt varðskip nú á sjó. Sævar Gunnarsson, formaður Sjómanna- sambands Íslands er afar óánægður með þessa stöðu og segir algjört lágmark að tveimur varðskipum sé haldið úti í senn. Hann segir Land- helgisgæsluna í fjársvelti. Sam- kvæmt lögum um Landhelgisgæsl- una er hlutverk hennar að halda uppi almennri löggæslu á hafinu umhverfis Ísland, jafnt innan sem utan landhelgi. Spurður hvort eftirlit með land- helginni sé fullnægjandi um þessar mundir segir Hafsteinn Hafsteins- son, forstjóri Landhelgisgæslunnar, að það hljóti að vera matsatriði hverju sinni. Hann bendir á að gæslan hafi yfir takmörkuðum fjár- munum að ráða. „Við reynum að ráðstafa þeim fjármunum sem við fáum á fjárlögum eins vel og kostur er,“ segir hann. Reynt sé eftir mætti að halda úti eftirliti, ef ekki með skipum þá með flugvél Land- helgisgæslunnar. Aðspurður segir hann að báðar þyrlur gæslunnar séu í lagi. Verið að svelta Gæsluna Samkvæmt upplýsingum frá Til- kynningarskyldunni voru rúmlega 500 íslensk skip og bátar á sjó í gær, bæði innan og utan landhelg- innar. Þá voru 13 erlend skip á veiðum við landhelgislínuna, sam- kvæmt upplýsingum frá Landhelg- isgæslunni. Auk þess eru um 20 önnur erlend skip á loðnumiðunum norður af Horni, á leiðinni þangað eða til hafnar. Öll nema eitt eru norsk. Sævar Gunnarsson, formaður Sjómannasambands Íslands, kveðst ósáttur við að öll varðskipin skuli vera bundin við bryggju og segir al- gjört lágmark að hafa tvö varðskip á sjó. Um þetta hafi sjómenn marg- oft ályktað. Varðskipin sjái jafnt um að verja landhelgina, fylgjast með umferð skipa þar um auk þess sem þau eru til taks ef óhapp verð- ur. „Þeir sem skaffa peninga í þetta eru bara að svelta Gæsluna,“ segir hann. Margoft hafi komið fram að fé vanti til þess að Landhelgisgæsl- an geti uppfyllt lögbundið hlutverk sitt. Sævar segist þó ekki endilega óttast um öryggi sjómanna. Á hinn bóginn hafi varðskipin margsannað gildi sitt þegar óhapp verði á sjó. Þá séu skipin nauðsynleg til að halda uppi eftirliti í og við landhelg- ina. Flugvélar komi að gagni en komi ekki staðinn fyrir varðskipin sem sinni margháttuðu eftirliti sem ekki sé hægt framkvæma úr lofti. Hann segir löngu tímabært að stjórnvöld, yfirmenn Landhelgis- gæslunnar og fulltrúar hagsmuna- aðila setjist niður og skilgreini ná- kvæmlega hvert hlutverk Gæslunnar eigi að vera. Síðan verði stjórnvöld einfaldlega að leggja Gæslunni til nægilegt fé. Sævar Gunnarsson, formaður Sjómannasambands Íslands Algjört lágmark að halda úti tveimur varðskipum Morgunblaðið/Eggert Tvö varðskip er nú í höfn í Reykjavík og það þriðja, Ægir, er á leið til lands.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.