Morgunblaðið - 22.07.2004, Blaðsíða 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. JÚLÍ 2004 11
FEMÍNISTAFÉLAG Íslands fagn-
ar þeirri ákvörðun Knattspyrnusam-
bands Íslands að jafna verðlaunafé
milli kynja í meistaradeildum kvenna
og karla og hrósar Landsbanka Ís-
lands fyrir sitt framlag.
„Í samfélagi sem vill senda þau
skilaboð til ungra iðkenda knatt-
spyrnu að tækifærin í lífinu séu jöfn
óháð kyni skiptir máli að standa við
þau loforð þegar unga fólkið vex úr
grasi. Jöfnun á verðlaunafé gegnir
þar stóru hlutverki og sýnir að árang-
ur þeirra kvenna sem ná verðlauna-
sæti er metinn til jafns við árangur
þeirra karla sem eru fremstir í sínum
flokki,“ segir í ályktun frá félaginu.
Femínstafélagið segir að með
þessu sé stórum áfanga náð í jafnrétt-
isbaráttu í knattspyrnu.
Fagna jöfnun
verðlaunafjár
í fótbolta
UNNT verður að halda áfram sér-
stöku átaki til leitar að jarðhita til
húshitunar á svokölluðum köldum
svæðum með breytingu á lögum um
niðurgreiðslu húshitunar sem nýverið
voru samþykkt. Samkvæmt 5. gr. lag-
anna verður iðnaðarráðherra heimilt
að ákveða að sérstakt jarðhitaleitar-
átak á köldum svæðum fái allt að 5%
af árlegri fjárveitingu til niður-
greiðslu á húshitunarkostnaði og til
nýrra hitaveitna. Köld svæði kallast
þau svæði þar ekki eru hitaveitur og
segir Benedikt Guðmundsson tækni-
fræðingur hjá Orkustofnun að verið
sé að leita að heitu vatni á stöðum eins
og Austfjörðum, við Kolgrafarfjörð á
Vesturlandi og við Hornafjörð.
Leitað að
heitu vatni
fyrir austan
♦♦♦
♦♦♦
BJÖRN Bjarnason, dóms- og
kirkjumálaráðherra, er sammála
Bertel Haarders, innflytjendaráð-
herra Dana, um að álit mannrétt-
indafulltrúa Evrópuráðsins sé póli-
tísk ráðgjöf en ekki lögfræðileg
niðurstaða. Eins og áður hefur
verið greint frá gagnrýndi mann-
réttindafulltrúi Evrópu dönsku út-
lendingalögin og þá sérstaklega þá
reglu að fólk undir 24 ára aldri
geti ekki fengið dvalarleyfi í Dan-
mörku á grund-
velli fjölskyldu-
tengsla en
sambærilegar
reglur tóku ný-
lega gildi hér á
landi.
Í Morgun-
blaðinu í gær
kom fram það álit
lögfræðings Al-
þjóðahúss og prests innflytjenda að
nauðungarhjónabönd hafi ekki ver-
ið stórt vandamál hér á landi.
Björn bendir á að á undanförnum
árum hafi Útlendingastofnun sent
mál 24 einstaklinga til rannsóknar
hjá lögreglu vegna gruns um nauð-
ungarhjónaband eða hjúskap í
þeim tilgangi einum að afla dval-
arleyfis. „Stofnunin hefur haft mál
50–60 einstaklinga til umfjöllunar á
seinustu þremur árum vegna grun-
semda um slík hjónabönd en vegna
ágalla á lögum hefur ekki þótt fært
að aðhafast frekar í þeim málum.
Ég veit ekki hvað lögfræðingur Al-
þjóðahúss eða prestur innflytjenda
telja að þessi tilvik þurfi að vera
mörg til að réttlæta hinar hertu
reglur sem Alþingi samþykkti í
vor,“ segir Björn og bætir við að í
skýrslunni um mannréttindamál í
Danmörku sé ekki sagt að 24-ára
reglan brjóti í bága við mannrétt-
indasáttmála Evrópu.
Björn Bjarnason um gagnrýni á dönsku útlendingalögin
Felur í sér pólitíska ráðgjöf
Björn Bjarnason
ÁLYKTUN þar sem hvatt er til
þess að þróaðar verði mannúðlegri
aðferðir við hvalveiðar en nú er
beitt var samþykkt á ársfundi Al-
þjóðahvalveiðiráðsins í gær. Var til-
lagan lögð fram af Nýsjálendingum.
Umhverfisverndarsinnar fögnuðu
þessari niðurstöðu en fulltrúar hval-
veiðiþjóða segja að þeir sprengju-
skutlar, sem nú eru notaðir, séu
mannúðlegir og hraðvirkir.
Ályktunin var samþykkt með 29
atkvæðum gegn 22. „Þetta er mikill
sigur fyrir velferð hvalanna,“ sagði
Peter Davies, forsvarsmaður sam-
taka sem kalla sig Hvalavaktina.
„Of margir hvalir hafa þjáðst og
munu halda áfram að bíða þjáning-
arfullan dauðdaga af völdum skutla
hvalveiðimannanna.“ Rune Frovik,
framkvæmdastjóri Norðurskauts-
samtakanna, sagði að hvalveiðar
væru stundaðar á mannúðlegan
hátt og veiðiaðferðir væru mjög
áhrifaríkar. Þeir hvalir sem ekki
dræpust samstundis misstu meðvit-
und og fyndu ekki til sársauka. Seg-
ir Frovik að eini tilgangur álykt-
unarinnar sé að reyna að láta líta
svo út að hvalveiðar séu grimmd-
arlegar.
Tvær tillögur, sem vörðuðu stofn-
un hvalverndarsvæða, voru felldar á
fundinum í dag. Fyrst var afgreidd
tillaga frá Nýsjálendingum um að
skilgreina hvalverndarsvæði á Suð-
ur-Kyrrahafi. 26 greiddu atkvæði
með tillögunni og 21 var á móti en
3⁄4 hluta atkvæða þurfti til að til-
lagan teldist samþykkt. Þá var felld
tillaga frá Japönum um að afnema
hvalverndarsvæði í Suðurhöfum
með 19 atkvæðum gegn 30.
Þróa mann-
úðlegri
aðferðir
Fundur Alþjóðahval-
veiðiráðsins í Sorrento