Morgunblaðið - 22.07.2004, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 22.07.2004, Blaðsíða 8
FRÉTTIR 8 FIMMTUDAGUR 22. JÚLÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ Á síðustu 2–3 árumhefur kjötmarkað-urinn á Íslandi gengið í gegnum mikla erf- iðleika. Verð á kjöti lækk- aði mikið í kjölfar offram- boðs og afleiðingarnar urðu gjaldþrot stórra framleiðenda. Markaður- inn er nú að ná auknu jafn- vægi, en segja má að menn séu ekki búnir að jafna sig á afleiðingum þeirrar nið- ursveiflu sem varð á árun- um 2002–2003, sem sumir hafa lýst sem „mjög dýru námskeiði“. Það ójafnvægi sem varð á kjötmarkaðinum skapað- ist fyrst og fremst af stór- auknu framboði á kjúklingum og svínakjöti. Auk þess hefur verið mikið framboð á lambakjöti, en út- flutningur á því var aukinn til muna í fyrra og verður áfram mik- ill í ár. Um síðustu áramót urðu stórir aðilar á kjötmarkaðinum gjald- þrota og má þar nefna Móakjúk- ling, Íslandsfugl á Dalvík, Svínabúið í Brautarholti og Fersk- ar afurðir á Hvammstanga. Fleiri gengu í gegnum fjárhagslega end- urskipulagningu eins og t.d. kjúk- lingaframleiðandinn Reykjagarð- ur. Segja má að þessi umskipti hafi ásamt fleiru orðið til þess að meira jafnvægi komst á markaðinn. Dregið hefur verulega úr fram- leiðslu á svínakjöti. Framleiðslan á síðustu 12 mánuðum er 6% minni en 12 mánuðina þar á undan. Ef horft er á framleiðslu síðustu mán- aða er samdrátturinn enn meiri. Þetta hefur leitt til verulegrar verðhækkunar á svínakjöti. Verðið var í algjöru lágmarki í desember í fyrra, en samkvæmt mælingum Hagstofu Íslands hefur verðið hækkað frá áramótum um 53%. Það kann að hljóma sem gríðarleg hækkun, en hafa verður í huga að verðið á svínakjöti núna er svipað og það var um mitt ár 2002. Frá því í ágúst 2002 fram til ársloka 2003 lækkaði svínakjötsverð um rúmlega 50%. 35% lækkun á kjúklingum á tveimur árum Ennþá er hins vegar ójafnvægi á markaði fyrir kjúklinga. Undan- farna mánuði hefur framleiðslan verið heldur meiri en salan. Verð á kjúklingum hefur því haldist lágt allt þetta ár. Verð á kjúklingum er núna um 35% lægra en það var fyrir tveimur árum, samkvæmt tölum Hagstofunnar. Ekkert bendir til að kjúklingaverð sé að hækka. Verðið hefur t.d. lækkað um 10,7% frá áramótum. Framleiðsla á kjúklingum hefur þó heldur dregist saman. Fram- leiðslan á síðustu 12 mánuðum er t.d. 4,1% minni en hún var 12 mán- uðina þar á undan. Þessi samdrátt- ur virðist hins vegar ekki vera nægur því að markaður virðist ekki vera fyrir allt þetta kjöt. Það bætir svo ekki stöðu kjúk- lingaframleiðenda að verð á inn- fluttu fóðri hefur verið að hækka. Afkoma í greininni er því ennþá slök þó að fyrirtækin séu búin að afskrifa mikið af gömlum skuldum í tengslum við gjaldþrot og fjár- hagslega endurskipulagningu. Góð sala á lambakjöti Sala á lambakjöti hefur gengið vel að undanförnu. Salan síðustu þrjá mánuðina er 11% meiri en sömu mánuði í fyrra. Markaðs- staða lambakjötsins styrkist eðli- lega eitthvað þegar svínakjöt er ekki lengur boðið til sölu á hálf- virði eins og var í fyrrasumar. Það er hins vegar framleitt miklu meira af lambakjöti en markaður er fyrir innanlands. Ársframleiðslan nemur um 8.800 tonnum en salan er um 6.500 tonn. Það sem ekki selst innanlands er selt úr landi á ábyrgð bænda. Vel gekk að selja lambakjötið úr landi, en verðið hefur hins vegar ekki verið hátt, eða á bilinu 150–200 krónur á kíló til bænda. Stærstur hluti kjötsins fór á um 150 kr. Verð á lambakjöti til bænda lækkaði um 8% í fyrra vegna al- mennrar lækkunar á kjötverði. Óljóst er hvort verð til bænda hækkar aftur í haust til samræmis við það sem var haustið 2002. Steinþór Skúlason, forstjóri Slát- urfélags Suðurlands, telur raunar ólíklegt að sláturleyfishafar hækki verðið svo mikið í einu skrefi. Þetta sé til skoðunar þessa dag- ana. Hann telur þó að verð fyrir útflutt lambakjöt hækki um 10–15 kr/kg. Sala á nautakjöti er jafnan nokkuð stöðug þó að mikið gangi á á öðrum kjötmörkuðum. Að und- anförnu hefur heldur vantað kjöt inn á markaðinn. Framleiðslan hefur líka verið að aukast, en hún jókst um tæplega 8% í síðasta mánuði. Ef horft er á kjötmarkaðinn í heild þá hefur sala á síðustu 12 mánuðum minnkað um 0,4%, en framleiðslan hefur dregist saman um 2,4%. Þar munar mest um minni framleiðslu á svínakjöti og kjúklingum. Verð á kjöti hefur hækkað um 6,5% frá áramótum, en neysluverðsvísitala hefur hækkað um 2% á sama tíma. Ef horft er 18 mánuði aftur í tímann hefur kjötverð hins vegar hækkað um 2,5% á meðan vísitalan hefur hækkað um 4,5%. Fréttaskýring | Kjötmarkaðurinn er að færast til aukins jafnvægis Kjúklingar lækka og lækka Verð á kjúklingum hefur lækkað um 10% frá áramótum og svínakjöt hækkar Enn er talsverð offramleiðsla á kjúklingum. Svínakjöt kostar í dag svipað og í ágúst 2002  Verð á svínakjöti hefur hækk- að um meira en 50% frá áramót- um, en þá var það í sögulegu lág- marki. Verðið er núna svipað og það var um mitt ár 2002. Verð á kjúklingum hefur hins vegar haldið áfram að lækka. Lækk- unin frá áramótum er rúmlega 10%. Ástæðan er fyrst og fremst of mikil framleiðsla. Verð á inn- fluttu fóðri hefur hækkað sem hefur haft áhrif á afkomu í greininni. egol@mbl.is „HILLURNAR breyta um útlit á hálftíma fresti,“ seg- ir Guðrún L. Guðmundsdóttir sem heldur risaútsölu þessa dagana við Langholtsveg og hefur í nógu að snúast. Allt á að seljast á 100 krónur og er vöruúr- valið afar fjölbreytt. Hún segist vera með einn og hálfan gám af ýmiss konar varningi, t.a.m. páska- skraut, leikföng og verkfæri. „Fólk tekur þessu bara rosa vel og nágrannarnir eru alveg alsælir,“ segir Guðrún um framtakið en útsalan stendur fram á sunnudag. Morgunblaðið/RAX Allt á hundrað kall

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.