Morgunblaðið - 22.07.2004, Side 10

Morgunblaðið - 22.07.2004, Side 10
FRÉTTIR 10 FIMMTUDAGUR 22. JÚLÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ ar gegn ofríkisfullri ríkisstjórn eins og nú situr. Og ég held því fram að við vissar aðstæður, eins og þær sem sköpuðust á síðustu þremur mánuð- um, sé málskotsréttur forseta eina tækið sem þjóðin og borgararnir hafa gegn ráðherraræðinu sem hefur hel- tekið Alþingi og í reynd tekið löggjaf- ann í gíslingu. Það er lærdómurinn sem ég dreg af málinu,“ sagði Össur. Djúpar efasemdir Steingrímur J. Sigfússon sagðist hafa djúpar efasemdir um að hægt væri að afturkalla lögin án þess að þjóðaratkvæðagreiðsla færi fram. Það væri verið að skapa fordæmi um leið og ný skref væru tekin í mótun stjórnskipunarhefða. Rök Steingríms fyrir því að hæpið væri að fara þessa leið, þótt „brellu- frumvarpinu“ yrði kastað fyrir róða, voru þau að hann hefði efasemdir um „RÍKISSTJÓRNIN hefur tapað sínu 100 daga stríði gagnvart þjóðinni,“ sagði Össur Skarphéðinsson, formað- ur Samfylkingarinnar, í framsögu með nefndaráliti minnihluta allsherj- arnefndar við stjórnarfrumvarp um eignarhald fjölmiðla. Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri-grænna, sagði að með viðbrögðum ríkisstjórn- arinnar, að láta þjóðaratkvæða- greiðslu ekki fara fram, væri verið að færa forsetanum meiri völd en ætlast var til með stjórnarskránni. Hann hefði eingöngu átt að vera milligöngu- maður milli þings og þjóðar. Össur sagði að ríkisstjórnin væri þrotin kröftum og logandi í innbyrðis deilum. „Hún hefur tapað þessu máli vegna þess að hún beitti gerræðisleg- um vinnubrögðum enn einu sinni og þjóðin hafnaði þeim. Það var órofa samstaða stjórnarandstöðunnar sem studdist við alls kyns ólík öfl úti í sam- félaginu sem knúði þessa ríkisstjórn til undanhalds. Og undanhaldið mun halda áfram,“ sagði hann. Firra væri að halda því fram að ríkisstjórnin stæði sterkari en áður. Hún skylfi af ótta við þjóðina og átök milli stjórn- arflokkanna tveggja. „Það þarf kraftaverk svo hæstvirt ríkisstjórn lifi af þetta kjörtímabil.“ Dýrmætt varnartæki Össur sagði þetta óumdeildan sigur fyrir þá sem hefðu barist gegn laga- frumvarpi ríkisstjórnarinnar um fjöl- miðla. Í sjö daga hefði líf ríkisstjórn- arinnar hangið á bláþræði og upplausn orðið í Framsóknarflokkn- um. Nú ríkti nákvæmlega sami stjórnskipulegi vafi um það, eins og sagt væri í nefndaráliti meirihluta allsherjarnefndar, hvort hægt væri að kippa frumvarpinu út úr þjóðarat- kvæðagreiðslu. Það hefðu komið rök- studd lögfræðiálit, sem sýndu fram á það með ákaflega sterkum rökum, að það færi í bága við stjórnarskrána að hætta við þjóðaratkvæðagreiðslu eft- ir að forsetinn hefði synjað þeim stað- festingar. „Kúvending ríkisstjórnarinnar og ekki síst hæstvirts forsætisráðherra undirstrikar um leið með glöggum hætti það mikilvæga hlutverk sem stjórnarskráin hefur í stjórnskipun landsins. Ég tel að reynsla þjóðarinn- ar af fjölmiðlalögunum hafi leitt í ljós að málskotsrétturinn sé ákaflega dýr- mætt varnartæki í baráttu þjóðarinn- að það stæðist 26. grein stjórnar- skrárinnar. Þar stæði að þjóðarat- kvæðagreiðsla skyldi fara fram og hvergi væru jafnréttháar eða skýrar heimildir sem Alþingi gæti gripið til og sagt að svona mætti bregðast við og ýta til hliðar ákvæði 26. greinar- innar. „Í öðru lagi hef ég miklar efasemd- ir um að það megi fara þessa leið vegna þess að ég tel það ganga gegn hugsun stjónarskrárgjafans á sínum tíma,“ bætti Steingrímur við. Fór hann í ýtarlegu máli yfir aðdraganda samþykktar stjórnarskrárinnar og fjallaði um þau álitaefni sem þá voru uppi og skýrðu að hans mati að sú leið, sem nú væri valin, stæðist ekki. Sterkari staða forsetans „Í þiðja lagi hef ég miklar efasemd- ir um þessi viðbrögð vegna þess að þau færa forsetanum meira vald en stjórnarskráin ætlast til. Og það gengur gegn þeirri hugsun, sem var alveg kristaltær niðurstaða árið 1944, að forsetinn væri eingöngu milli- göngumaður milli þingsins og þjóðar- innar í þeim tilvikum að hann synjaði frumvörpum staðfestingar,“ sagði Steingrímur. Það kæmi fram í um- ræðum þingmanna á þessum tíma. Hvorki meiri né minni völd átti forset- inn að fá. Verið væri að virkja synj- unarvaldið og stöðva það hjá forset- anum sjálfum. Hann væri því í sterkari stöðu í þessu tilviki. Jafn- framt taldi Steingrímur nauðsynlegt að ræða í hvaða farveg samskipti Al- þingis og forseta færu með þessum viðbrögðum. Það kæmi dagur eftir þennan dag og væri þetta það for- dæmi sem þingmenn vildu setja; að frumvörp hentust á milli þings og for- seta? Efasemdir hans væru því bæði af lögfræðilegum og pólitískum toga. Stöðvaðist hjá þjóðinni Guðjón Arnar Kristjánsson, for- maður Frjálslynda flokksins, dró það líka mjög í efa að þessi málsmeðferð fengi með nokkru móti staðist. Mál- skotsrétturinn hefði tryggt að málið stöðvaðist og færi ekki aftur til Al- þingis. Vegna málskotsréttarins hefði rík- isstjórnin gjörtapað þessu máli. Meirihluti íslensku þjóðarinnar myndi örugglega fella málið í þjóð- aratkvæðagreiðslu. Það gætu stjórn- arflokkanir alls ekki hugsað sér. Því væri þessi leið valin sem allsherjar- nefnd legði til. „Sú stjórnlagakreppa, sem stjórn- armeirihlutinn telur vera, hún er heimatilbúin. Algjörlega heimatilbú- in,“ sagði Guðjón. Þingmenn væru að hengja sig á mismunandi túllkanir, að það væri vandi að fara eftir 26. gr. stjórnarskrárinnar. Hann teldi svo ekki vera og ekki heldur erfitt að ná sátt í fjölmiðlamálinu hefðu allir stjórnmálaflokkar komið að undir- búningsvinnunni. Við þá málsmeðferð hefði forsætisráðherra ekki getað sætt sig. Fjölbreytni í fjölmiðlum „Ég verð að segja alveg eins og er, hæstvirtur forseti, að mér hefur sýnst ríkja fjölbreytni í íslenskum fjölmiðl- um að undanförnum. Ég get ekki séð þessa geysilegu hættu sem hefur skapast af þeirri þróun sem hefur orðið hér að undanförnu,“ sagði Guð- jón. Það breytti þó ekki þeirri skoðun hans að skoða mætti hvort og hvernig eignarhald á fjölmiðlum yrði tak- markað. Það yrði þá gert varlega og í skrefum með löngum aðlögunartíma. Það þyrfti líka að ræða fleira en eign- arhald eins og ritstjórnarlegt frelsi. Einnig þyrfti að huga að því af hverju menn mættu ekki eiga í dagblaði um leið og í ljósvakamiðli. Hann sæi ekki nokkur rök fyrir þeirri takmörkun. Stjórnarandstaðan sagði að málskotsrétturinn væri dýrmætt varnartæki Forsetanum færð meiri völd með þessum viðbrögðum Morgunblaðið/Þorkell Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstrihreyfingarinnar, undirbýr ræðu sína á Alþingi í gær. Hart var sótt að Bjarna Benediktssyni, formanni allsherjarnefndar, sem svaraði spurningum þingmanna á Alþingi í gær. ÞRÁTT fyrir að allsherjarnefnd telji heimilt að setja ný lög um fjölmiðla samhliða því að fella niður lögin frá liðnu vori hefur skapast ágreiningur um stjórnskipulegar heimildir handhafa ríkisvaldsins við hinar afbrigðilegu aðstæður undanfarinna vikna, sagði Bjarni Benediktsson, formaður allsherjarnefndar, þegar hann mælti fyrir nefndaráliti meirihlut- ans á Alþingi í gær við stjórnarfrumvarp um eignarhald fjölmiðla. Lauk annarri umræðu um frumvarpið í gærkvöldi. „Dregur það með öðru fram þann vafa sem í öllu tilliti er á beit- ingu og framkvæmd 26. gr. stjórnarskrár- innar og því hver sú stjórnskipulega hugsun í raun var sem á sínum tíma bjó henni að baki,“ sagði hann. Skoðanamunur um beitingu grein- arinnar endurspeglaði grundvallarmun á af- stöðu til stjórnskipunar og valdmarka hand- hafa ríkisvaldsins. Með hliðsjón af þeim stjórnskipulega ágreiningi sagði Bjarni að meirihluti allsherjarnefndar legði til að fjöl- miðlalögin, sem samþykkt voru í vor, yrðu felld brott en aðrar breytingar skoðaðar nán- ar. Í málflutningi þingmanna stjórnarandstöð- unnar komu fram efasemdir um að hægt væri að fella lög úr gildi sem forsetinn hefði synjað staðfestingar. Með því að beita 26. grein stjórnarskrárinnar hefði hann skotið málinu til þjóðarinnar. Þar lægi málið nú og án nokk- urs vafa væri eðlilegast að fram færi þjóð- aratkvæðagreiðsla um lögin til synjunar eða samþykkis. Enginn deildi um að það stæðist ákvæði stjórnarskrárinnar. Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylk- ingarinnar, spurði Bjarna eftir framsögu hans hver sá stjórnskipulegi vafi væri sem yrði til þess að meirihluti allsherjarnefndar legði til að fjölmiðlalögin, sem samþykkt voru í vor, yrðu felld brott. Heimilt að setja ný lög Bjarni sagðist halda að það væri öllum ljóst, sérstaklega þeim sem hefðu setið í allsherj- arnefnd, um hvað þessi stjórnskipulegi vafi hefði verið. Málið snerist um það hvort þinginu væri stætt á að setja efnislega sambærileg lög í sama frumvarpi og fyrri lögin væru felld brott. Meirihlutinn hefði komist að þeirri nið- urstöðu að það væri stjórnskipulega hægt en vegna ágreinings um málið – og því hefði verið teflt fram sem sérstakri sáttagjörð af hálfu ríkisstjórnarinnar og engin sátt tekist um mál- ið – legði nefndin til að lögin yrðu afturkölluð. Össur benti á að nákvæmlega sami vafi léki á því hvort unnt væri að kippa lögum, sem for- setinn hefði synjað staðfestingar og skotið til þjóðarinnar, úr ferli þjóðaratkvæðagreiðslu. Þungavigtarmenn teldu það ekki hægt og ef ríkisstjórnin væri samkvæm sjálfri sér léti hún stjórnarskrána njóta vafans og málið ganga sinn eðlilega veg í þjóðaratkvæðagreiðslu. Tveir ólíkir fletir Bjarni sagði þetta tvo ólíka fleti á málinu. Annars vegar að fella lögin brott og hins vegar að setja ný lög. Nefndin væri algjörlega sann- færð um að það væri hægt samkvæmt stjórn- skipunarrétti að afturkalla núgildandi fjöl- miðlalög. Um síðara atriðið væru ekki færð ýtarleg rök um að hægt yrði að setja ný lög í sama frumvarpi vegna þess að meirihluti alls- herjarnefndar legði það ekki til. Hann væri þeirrar skoðunar að það væri klárlega tækt samkvæmt stjórnlögum. Ástæðan fyrir því að sú leið væri ekki farin væri að ekki náðist sú sátt sem að var stefnt. Formaður allsherjarnefndar mælti fyrir áliti meirihluta nefndarinnar Ágreiningur um heimildir handhafa ríkisvaldsins Morgunblaðið/Þorkell Bjarni Benediktsson efaðist ekki um að Al- þingi væri heimilt að setja ný lög í sama frumvarpi og eldri lög væru felld úr gildi. ÖSSUR Skarphéðinsson, for- maður Samfylkingarinnar, sagði að 26. gr. stjórnarskrár- innar hefði verið þaulrædd fyr- ir setningu hennar árið 1944 og merking ákvæðisins alveg skýr. „Ég verð að segja að mér finnst þetta tær snilld, þetta ákvæði. Þetta er þrauthugsað og það hefur heldur betur sýnt sig að þetta er nauðsynlegur nauðhemill þegar ríkisstjórn, eins og þessi, tapar sjónar á því sem rétt er í lýðræðislegu sam- félagi og lendir utan vegar,“ sagði Össur á Alþingi í gær. Fluttar hefðu verið þrjár breyt- ingartillögur sérstaklega við 26. greinina. Allar hefðu þær verið felldar því að þingmenn vildu nákvæmlega þennan far- veg, að málið færi til þjóðarinn- ar. Afhjúpa vanþekkingu Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri-grænna, sagði að það hefði verið sómi að því hvernig staðið var að setn- ingu stjórnarskrárinnar 1944. Sagði hann það afhjúpa gríðar- lega vanþekkingu í þessu máli að halda því fram að mönnum hefði legið svo mikið á til Þing- valla lýðveldisárið, að ekki hefði verið hægt að standa vandlega að setningu stjórnar- skrárinnar. Verja yrði heiður þeirra manna sem þarna áttu í hlut. Kláruðu sitt verk með sóma Skoðun stjórnarskrárinnar hefði hafist 1941 og henni hefði lokið áður en til lýðveldisstofn- unarinnar 17. júní 1944 kom. Rétt væri að ágreiningur hefði verið um málið en þeir sem stóðu að þessari vinnu, meðal annars í milliþinganefnd, hefðu útkljáð hann. „Þeir kláruðu sitt verk með sóma, þeir sem stóðu að setningu stjórnarskrárinn- ar. Þeir gerðu út um ágreining- inn eins og menn, greiddu um hlutina atkvæði og gengu frá málinu. Það lá kristaltært fyrir þeim hvernig þetta skyldi vera,“ sagði Steingrímur. 26. grein- in tær snilld Söguleg upprifjun

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.