Morgunblaðið - 22.07.2004, Side 37

Morgunblaðið - 22.07.2004, Side 37
MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. JÚLÍ 2004 37 Hvað er það sem knýr sjón-varp til þess að vera stöð-ugt að setja sig í hlutverk skemmtimiðils? Jú, sennilega er það ósk okkar flestra að sjónvarp sé af- þreyingarmiðill, en það er engin höfuðkrafa. Sjónvarpi – ekki síst ríkissjónvarpi –ber líka skylda til að vera upplýsandi. Það er ríkjandi tilhneiging í sam- félaginu að gera allt skemmtilegt; jafnvel hluti sem í eðli sínu eru ekk- ert sérstaklega skemmtilegir. „Ert’ekkí stuði?“-menn- ingin tröllríður auglýsingum, um skemmti- legar nýjungar, skemmtilegar lausnir og staðina þar sem ein- hverjum finnst ekki bara skemmti- legt, heldur skemmtilegast að versla. Fyrir suma eru innkaup hrein og klár nauðsyn, ekkert skemmtileg, og kannski svo sem ekkert leiðinleg heldur; mest þó bara tími sem maður myndi vilja verja í eitthvað allt annað. Varning- urinn sjálfur er svo auðvitað bráð- skemmtilegur. Þið getið nú varla gleymt margauglýsta klósetthreins- inum sem verður alltaf svo leið- inlegur, að maður verður bók- staflega að henda honum og fá sér þann sem mælt er með – sem hlýtur þá að vera verulega skemmtilegur. Smám saman lokast eyrun fyrir skrumi af þessu tagi. Einstöku sinn- um leyfir maður sér þó að njóta pirr- ingsins yfir þessum leiðinda skemmtilegheitum. Þegar sjónvarpsefni sem í eðli sínu er annars eðlis, eins og til dæm- is fréttir, fer að lúta lögmálum skemmtilegheitanna, er hins vegar nóg komið. Það er eitthvað verulega óeðlilegt og jafnvel rangt við það að þar skuli krafan um skemmtilegheit oft og tíðum byrgja mönnum svo sýn að venjulegu fólki, sem er ekki alltaf skemmtun í hug þegar það sest fyrir framan sjónvarpið, blöskrar.    Á dögunum var haldin hér ráð-stefna um byggilega hnetti og skilyrði fyrir lífi í geimnum. Á þriðja hundrað vísindamanna hvaðanæva úr heiminum hélt um 90 fyrirlestra á ráðstefnunni og sannast sagna fannst mér þetta forvitnilegt. Þegar kynning á Kastljósi kvöldsins hófst með kynningu á þessari ráðstefnu var því kjörið að flengja sér í sófann og fá innsýn í það sem þar hafði ver- ið rætt. En viti menn, í stað þess að gefa forvitinni manneskju innsýn í efni og niðurstöður ráðstefnunnar ákvað Sjónvarpið að tralla upp með skemmtilega manninn, Magnús Skarphéðinsson, til að tala um þann aragrúa fólks sem hugsanlega skrökvar því ekki að það hafi séð al- vöru geimverur. Hvers vegna í ósköpunum var verið að tengja þá umræðu við ráð- stefnu fagmanna um alvarlegt og af- ar forvitnilegt mál; líf á öðrum hnöttum. Með fullri virðingu fyrir sí- gildum ævintýrum Magnúsar hefði ég frekar kosið að heyra í ein- hverjum þeirra vísindamanna sem höfðu eitthvað raunverulega bita- stætt og nýtt að segja, af eða á, eða bara kannski, um þetta efni. Það hefði mátt vera hrútleiðinlegur vís- indamaður mín vegna. Ég hef sterkan grun um að það sé af sömu ástæðum sem sjónvarps- menn draga gjarnan Gunnar í Krossinum inn í umræðu um sam- kynhneigð. Hefur hann virkilega eitthvað merkilegt til þeirra mála að leggja? Varla. Það finnst bara ein- hverjum svo ferlega skemmtilegt að sjá hann æsa sig upp í einhvern stór- skemmtilegan einstrengingsham. Þeir eru reyndar ótrúlega margir skemmtilegu spaugararnir ef að er gáð, sem stíft er sótt í, hvort sem um er að ræða stjórnmál, hvalveiðar, bókmenntir eða eitthvað annað, þótt þeir hafi ekkert vitrænt til málanna að leggja. Skemmtilegheit af þessu tagi eru auðvitað ekkert annað en móðgun við sjónvarpsáhorfendur, sem margir hverjir vilja líka vita … ekki bara láta skemmta sér. Skemmti- menning ’Sjónvarpið ákvað aðtralla upp með skemmti- lega manninn, Magnús Skarphéðinsson, til að tala um þann aragrúa fólks sem hugsanlega skrökvar því ekki að það hafi séð geimverur.‘ AF LISTUM Bergþóra Jónsdóttir begga@mbl.is Frábær tilboð fyrir verslunarmannahelgina Kauptu gæðavörur hjá fagmönnum á frábæru verði Öll tjöld fyrir ferðalagið fást í Tjaldalandi við Umferðamiðstöðina. T J Ö L D : S V E F N P O K A R : D Ý N U R : Kúlutjöld Kúlutjöld í útileguna á frábæru tilboði. Dæmi: High Peak Bonito Pro 2 Verð áður: 9.990 kr. Tilboð: 5.990 kr. Mountain Eagle 4 season Góður svefnpoki í sumarútileguna. Mesta kuldaþol: -12°C. Verð áður: 5.990 kr. Tilboð: 2.990 kr. Vindsæng Tvíbreið með velúráferð. Verð áður: 4.990 kr. Tilboð: 2.990 kr. Buffalo Viper 1400 Dúnpoki á fiberpokaverði. Fyrirferðarlítill og léttur dúnpoki í gönguferðina. Þyngd: 1,4 kg. Mesta kuldaþol: -23°C. Verð áður: 16.990 kr. Tilboð: 10.990 kr. High Peak Dakota 5 Frábært fjölskyldutjald með stóru fortjaldi sem opnast á tvo vegu. Mesta hæð: 200 sm. Verð áður: 34.990 kr. Tilboð: 19.990 kr. Smáralind Sími 545 1550 Glæsibæ Sími 545 1500 Kringlunni Sími 575 5100 www.utilif.is ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S U TI 2 53 75 07 /2 00 4

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.