Morgunblaðið - 09.08.2004, Qupperneq 13
DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. ÁGÚST 2004 13
Samsung SGH-E710Með VGA myndavél
og videoupptöku,
2000 númera
minni,
númerabirting
með ljósmynd.
„Ólympíusíminn“
Skútuvogur 2 :: 104 Reykjavik
Sími: 522-9000 :: Fax: 522-9001
Opnunartími:
Mán-föst 11-18.30
Laugard 10-18
Sunnud 13-17
HÚS & HEIMILI
Íris Tanja Ívarsdóttir æfirballett í Listdansskóla Ís-lands og hefur gert í tólf ár.Móðir hennar segir stúlkuna
hafa fæðst með þráðbeina fætur
og meira að segja rétti hún ræki-
lega úr smávöxnum ristunum í
fæðingunni. Það má því með sanni
segja að hún hafi fæðst sem ball-
ettdansari enda byrjaði hún að
æfa ballett aðeins þriggja ára
gömul.
Íris æfir fimm sinnum í viku,
þrjá tíma í senn í Listdansskól-
anum yfir vetrartímann og hún
segist því óneitanlega ryðga svolít-
ið yfir sumarið, en hún gerir ým-
islegt til að halda sér í formi milli
vetra. „Þegar ég hef ekki verið í
ballett í langan tíma fer mig að
klæja í tærnar og ég finn mjög
sterka þörf til að dansa. Þá set ég
tónlist á fóninn og dansa út um
allt heima hjá mér. Svo teygi ég
og geri upphitunaræfingar þegar
ég er í skapi til þess. Ég fer líka
niður að tjörn og horfi á svanina
af því þeir hafa svo mjúkar og fal-
legar hreyfingar og af þeim má
læra mikið. Þegar ég horfi á svan-
ina hef ég ferðaspilarann minn
með mér og læt hljóma í eyrunum
tónlistina sem Tjaikovsky samdi
við Svanavatnið. Ég held mikið
upp á þessa tónlist og þennan ball-
ett af því að ég dansaði með San
Fransisco-ballettinum þegar hann
kom hingað til lands fyrir nokkr-
um árum og sýndi Svanavatnið.“
Dansar þegar þörfin
segir til sín
Íris lætur það ekki stoppa sig
hvar hún er þegar dansþörfin
grípur hana og henni er minn-
isstætt þegar hún var eitt sinn
stödd við Gullfoss á þeim tíma sem
hún var að æfa fyrir jólaball-
ettsýningu. „Ég réð ekkert við
mig og fór bara að dansa og fólk
starði á mig undrunaraugum, en
mér var alveg sama, ég varð að
dansa.“
Íris segir að vissulega verði hún
stundum þreytt á öllum þessum
æfingum, fimmtán klukkutímum í
hverri viku yfir veturinn. „Sálin
getur líka stundum orðið þreytt á
þessu og þá verð ég að hvíla mig.
Þegar ég sleit vöðva í læri fyrir
jólin í fyrra, þá var það talin
ágætis hvíld fyrir mig og ég fór í
nokkrar vikur til pabba míns sem
býr á Spáni. En ég saknaði samt
ballettsins mest af öllu þegar ég
var úti.“ Íris segir það hafa verið
hræðilega sárt þegar vöðvinn
slitnaði. „Við vorum að æfa fyrir
jólasýningu og vorum að máta
búningana í fyrsta skipti sem er
alltaf rosalega gaman og ég
gleymdi mér alveg, stökk upp og
kom niður í splitt, óupphituð. Ég
heyrði hljóðið þegar vöðvinn gaf
sig og ég fékk krampa í fótinn og
fann nístandi sársauka. Ég var
send beint upp á spítala og gat
ekki gengið í nokkra daga,“ segir
Íris sem finnur enn fyrir stirðleika
í fætinum þó að hún sé að mestu
búin að jafna sig.
Stefnir á konunglega skóla
Íris stefnir hátt í dansinum og
er ákveðin í að mennta sig enn
frekar á því sviði. „Ballettinn er
númer eitt hjá mér og ég sleppi
ekki æfingu þó að mér standi til
boða að fara í bíó eða gera eitt-
hvað skemmtilegt. Vinir mínir
skilja þetta ekki alveg, en ég sé
aldrei eftir því að láta eitthvað á
móti mér til að komast á æfingu.
Mér líður alltaf vel þegar ég hef
klárað tímann minn og er í svita-
baði, þó að ég sé stundum löt að
hafa mig af stað. Þegar ég hef
lokið tíunda bekk næsta vor fer
mamma mín kannski í framhalds-
nám til útlanda og þá ætla ég með
henni og fara í ballettskóla. Ég
hef kynnt mér nokkra skóla í Eng-
landi, Danmörku og Svíþjóð. Þetta
eru virtir skólar þar sem miklar
kröfur eru gerðar til dansara. En
þó það sé líkamlega erfitt og
krefjandi að vera í ballett, þá er
það líka mjög gefandi og það er
frábært að finna árangur alls erf-
iðisins.“
Íris heillast mest af klassískum
ballett „af því að sá dans er á ein-
hvern hátt mýkri og það er svo
gaman að dansa í táskóm,“ segir
ballerínan Íris Tanja sem er á leið
til Spánar í seinni sumarheimsókn
til pabba síns. Hún kemur aftur
heim tveimur dögum áður en vetr-
arstarfið hefst að nýju í Listdans-
skólanum. Hún segist hafa hitt
ballettkennarann sinn í banka um
daginn og fengið fiðring í tærnar
af tilhlökkun.
Dansandi svanur í stúlkuham
BALLETT
Morgunblaðið/Árni Torfason
Íris Tanja blakar vængjum eins og svanirnir með Tsjaíkovskí í eyrunum.
Ljósmynd/Einar Sebastian
Litli svanurinn: Íris Tanja eins og
hálfs árs að athuga fótafimina.
Í félagsskap fugla og með Svanavatnið í eyrunum tekur Íris Tanja mjúka
ballettsveiflu.
Hún skoppar dans-
andi um tún og bala,
stræti og torg. Kristín
Heiða Kristinsdóttir
hitti ballerínuna Írisi
Tönju Ívarsdóttur
sem lærir af hreyf-
ingum fuglanna.
khk@mbl.is