Morgunblaðið - 17.08.2004, Side 1
STOFNAÐ 1913 222. TBL. 92. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 17. ÁGÚST 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Barbie í for-
setaframboð
Nú mega Georg Bush og John Kerry
fara að vara sig Daglegt líf 21
Hljóðfæri sem
allir elska
Olivier Manoury leikur í Sigur-
jónssafni í kvöld Menning 41
Íþróttir í dag
Getum sigrað Ítali á góðum
degi Keyrt of mikið á sömu mönn-
unum Gamall draumur að rætast
ÞAU leyna sér ekki, von-
brigðin í andlitum Íslending-
anna á áhorfendapöllunum á
Ólympíuleikunum í Aþenu.
Allt hefur gengið á afturfót-
unum hjá strákunum okkar í
handknattleikslandsliðinu.
Þrátt fyrir ágæta baráttu
framan af í báðum leikj-
unum hingað til, gegn
heimsmeisturum Króata og
þó einkanlega gegn Spán-
verjum í gær, hefur leikur
liðsins riðlast á lokamín-
útunum og tvö töp eru stað-
reynd.
Þegar veður skipast svo
snöggt í lofti er jafnan
taugatrekkjandi að vera Ís-
lendingur, ekki síst þegar
maður á son í miðri mar-
tröðinni og þarf að horfa
upp á hann og félaga hans í
landsliðinu missa flugið í
hverri sókninni á eftir ann-
arri. En nú er bara að bíta í
skjaldarrendurnar. / Íþróttir
Morgunblaðið/Golli
Foreldrar Sigfúsar Sigurðssonar, sem og systir hans og mágur, fylgdust með á pöllunum og áttu erfiðar stundir.
Von-
brigði
FLUGÞJÓNUSTAN á Keflavíkurflugvelli
(IGS), dótturfélag Flugleiða, hefur átt í
miklum erfiðleikum í sumar með að fá fólk
til starfa, þrátt fyrir umtalsvert atvinnu-
leysi á svæðinu. Ger-
ist þetta á sama tíma
og uppsagnir hafa
verið hjá varnarlið-
inu og lýst hefur ver-
ið yfir áhyggjum yfir
atvinnuástandinu.
Í júnímánuði
mældist 3,2% at-
vinnuleysi á Suður-
nesjum og 3% í síð-
asta mánuði. Var
atvinnuleysi hvergi
meira utan höfuðborgarsvæðisins.
„Það hefur gengið mjög illa að finna fólk
hér á svæðinu og manna stöður í mörgum
deildum hjá okkur,“ segir Gunnar Olsen,
framkvæmdastjóri Flugþjónustunnar.
„Þegar við fórum að átta okkur á að það
stefndi í óefni við að manna störf í fyrirtæk-
inu fórum við að auglýsa meira á Reykja-
víkursvæðinu og náðum þar í starfsfólk.“
Illa hefur gengið að fá fólk í tugi starfa
hjá Flugþjónustunni yfir sumarið og er m.a.
um að ræða störf hlaðmanna, störf í flug-
eldhúsi og við þrif á flugvélum o.fl.
Að sögn Gunnars er alveg ljóst að þetta
ástand getur ekki gengið svona til lengri
tíma litið. „Það hefur verið horft mest til
þess að setja upp rútuferðir í bæinn og aug-
lýsa og sækja meira inn á það atvinnusvæði
eftir fólki. Það verður að leysa þetta því að
öðrum kosti getum ekki verið hér með stór-
an rekstur ef ekki er nægur mannskapur til
staðar, sem þarf sinna því sem þarf að gera
hér á svæðinu,“ segir hann.
Í nýju yfirliti Vinnumálastofnunar voru
63 laus störf í boði á Suðurnesjum í síðasta
mánuði en voru 14 í júlí á síðasta ári.
Flugþjónustan á
Keflavíkurflugvelli
Mikill
skortur á
vinnuafli
MIÐSTJÓRN bandaríska Demókrataflokksins
gagnrýndi í gær fyrirhugaðan tilflutning um sjö-
tíu þúsund bandarískra hermanna frá stöðvum í
Evrópu og Asíu til Bandaríkjanna. Sagði Wesley
Clark, fyrrverandi yfirmaður herafla Atlants-
hafsbandalagsins, að brottflutningur liðsins
myndi „grafa alvarlega undan þjóðaröryggi“ í
Bandaríkjunum. Sagði Clark ennfremur, að
„þessi óheppilega fyrirætlan, og tímasetningin á
henni“ virtist af pólitískum rótum runnin, fremur
en vera ætlað að styrkja varnir Bandaríkjanna.
Innan við þrír mánuðir eru til forsetakosninga í
Bandaríkjunum.
George W. Bush forseti greindi í gær frá áætl-
ununum um tilflutninginn. Sextíu til sjötíu þús-
und bandarískir hermenn yrðu á næstu tíu árum
fluttir frá bandarískum herstöðvum víða í heim-
inum til bækistöðva innan landamæra Bandaríkj-
anna. Hét Bush því, að framvegis yrði bandaríski
heraflinn „snarari í snúningum“.
Í ræðu sem Bush hélt á samkomu fyrrverandi
hermanna kom ennfremur fram, að um eitt
hundrað þúsund ástvinir hermanna og óbreyttir
starfsmenn hersins yrðu fluttir til Bandaríkj-
anna. Þessar áætlanir hefðu verið í undirbúningi
undanfarin þrjú ár, og hefðu bandalagsþjóðir
Bandaríkjamanna og bandaríska þingið verið
með í ráðum. Spáði Bush því, að tilflutningurinn
myndi styrkja tengslin við bandalagsþjóðir
Bandaríkjamanna.
„Heimurinn er breyttur, og við verðum að
breyta stöðu okkar í samræmi við það,“ sagði for-
setinn. Hann bætti við að lítið vit væri í að herinn
væri í stöðu sem ákvörðuð hefði verið á tímum
kalda stríðsins þegar Sovétríkin hefðu verið
stærsti óvinurinn. Hryðjuverkastarfsemi væri nú
alvarlegasta ógnin. Bush greindi ekki frá áætl-
uninni í smáatriðum, en CNN hefur eftir hátt-
settum embættismönnum, að mest verði fækkað í
liði Bandaríkjamanna í Evrópu, en einnig í Asíu.
Fréttaritari breska ríkisútvarpsins, BBC, í
Bandaríkjunum, segir að með ræðunni í gær hafi
Bush viljað sýna væntanlegum kjósendum að
hann hefði fastmótaðar hugmyndir um hvað gera
þyrfti til að tryggja öryggi bandarísku þjóðarinn-
ar í framtíðinni.
„Grefur undan þjóðaröryggi“
Demókratar gagnrýna
áætlanir Bandaríkja-
stjórnar um heimflutn-
ing 70.000 hermanna
LIÐSMENN íraska klerksins Moqtada al-Sadr voru í gær við-
búnir árás bandaríska hersins í borginni Najaf, þar sem átök
hafa geisað undanfarna daga. Sögðu sjónarvottar að banda-
rískir skriðdrekar væru í um 500 metra fjarlægð frá helsta
vígi al-Sadrs og manna hans, grafhýsi imamsins Alis, sem er
helgasti staður sjíamúslíma í Írak.
Reuters
Búist við árás í Najaf
Leikstjórinn
og kvik-
myndagerð-
armaðurinn
Spike Jonze
er væntan-
legur hingað
til lands á
næstunni en
hann mun
leikstýra nýjasta myndbandi
Bjarkar Guðmundsdóttur af
plötu hennar, Medúlla.
Spike Jonze leikstýrði
jafnframt frægu myndbandi
við lag Bjarkar „It’s Oh So
Quiet“. Hann á einnig að
baki umtalaðar kvikmyndir;
Að vera John Malkovich og
Aðlögun (Adaption). /42
Gerir nýj-
asta mynd-
band Bjark-
ar á Íslandi
Spike Jonze
JIMMY Carter, fyrrverandi
forseti Bandaríkjanna, stað-
festi í gær opinber úrslit at-
kvæðagreiðslu sem fram fór
í Venezúela í fyrradag um
það hvort svipta bæri for-
seta landsins, Hugo Chavez,
embætti. Samkvæmt opin-
berum tölum voru um 58%
kjósenda andvíg því að
svipta forsetann embætti.
Formaður Samtaka Am-
eríkuríkja (OAS), Cesar
Gaviria, tók undir með Cart-
er, og sagði að niðurstöður
athugana eftirlitsmanna
samtakanna væru í sam-
ræmi við opinber úrslit
kosninganna. Carter sagði
að menn á sínum vegum
hefðu unnið
með eftirlits-
mönnum
OAS. Ljóst
væri, að
meirihluti
kjósenda
hefði tekið
afstöðu með
Chavez og
stjórn hans.
Stjórnarandstaðan í
Venezúela segir brögð hafa
verið í tafli og hefur skipu-
lagt götumótmæli í Caracas.
Hefur stjórnarandstaðan
ennfremur farið fram á end-
urtalningu atkvæða.
Staðfestir
sigur Chavez
Caracas. AFP.
Chavez hrósaði sigri/14
Jimmy Carter
JOHN Kerry, forsetafram-
bjóðandi demókrata í Banda-
ríkjunum, hefur blátt blóð í
æðum og rekur ættir sínar til
allra helstu konungsfjöl-
skyldna Evrópu. Á Kerry
fleiri konungborna ættingja
en keppinautur hans, George
W. Bush forseti.
Þetta er niðurstaða rann-
sókna breska ættfræðifyrir-
tækisins Burke’s Peerage.
Framkvæmdastjóri fyrirtæk-
isins segir, að í forsetakosn-
ingum í Bandaríkjunum hafi
sá frambjóðandi sem átti fleiri
konungborna forfeður alltaf
borið sigur úr býtum. Því sé
ljóst, að Kerry muni sigra í
kosningunum 2. nóvember.
Bláa
blóðið
sigursælt
London. AP.