Morgunblaðið - 17.08.2004, Blaðsíða 23
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. ÁGÚST 2004 23
Plúsfer›ir • Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100
Krít
48.330 kr.
Sama sólin - sama fríi›
-en á ver›i fyrir flig!
á mann miðað við að 2 fullorðnir og 2 börn, 2ja-11ára, ferðist saman.
59.120 kr. á mann ef 2 ferðast saman.
Innifalið er flug, gisting í 7 nætur á Skala og ferðir til og frá flugvelli
erlendis.
Netverð
20. og 27. september
MIRALE
Grensásvegi 8
108 Reykjavík
sími: 5171020
Opið:
mán. - föstud.11-18
laugard.11-15
Spennandi
gjafavörur og húsgögn
BRÉF TIL BLAÐSINS
Morgunblaðið, Kringlunni 1, 103 Reykjavík Bréf til blaðsins | mbl.is
Í SEPTEMBER árið 2000 sagði
Elena Bruskova, framkvæmdastjóri
Rússlandsdeildar SOS-barnaþorp-
anna, kollegum sínum frá því þegar
hún heimsótti eina þeirra opinberu
stofnana sem ætlaðar eru mun-
aðarlausum börnum í Moskvu. Hún
gaf sig á tal við tólf ára dreng og
spurði hann m.a. hvort hann ætti
systkini. Jú, hann gat ekki munað
betur en að hann ætti systur á ein-
hverju munaðarleysingjahælinu, en
hvað hét hún aftur, hann var svo lítill
þegar þau voru aðskilin og nú hafði
hann ekki hugmynd um hvar í
kerfinu hún var niður komin. Orð
Elenu voru hvatinn að því að í dag
verður opnað fjórða SOS-barnaþorp-
ið fyrir munaðarlaus börn í Rúss-
landi.
Það var svört skýrsla sem norræn
sendinefnd á vegum SOS-barnaþorp-
anna og utanaðkomandi sérfræðinga
skilaði af sér eftir heimsókn til
Múrmansk í Rússlandi veturinn
2000–2001. Í henni kom í ljós að það
hefur í för með sér varanlegan skaða
fyrir barn að alast upp á einni af þeim
stofnunum sem ætlaðar eru mun-
aðarlausum og 90% barnanna munu
aldrei lifa eðlilegu lífi sem fullorðnir
einstaklingar. Vændi, eitur-
lyfjamisnotkun, alkóhólismi og sjálfs-
morð bíður flestra barnanna. Auk
þess munu börn þeirra, í 65% tilvika,
einnig alast upp á stofnun. Þannig er
ástandið í öllu Rússlandi og brotið er
á börnum daglega. Félagsmála-
yfirvöld í Múrmansk taka svo stórt til
orða að segja að jafna verður bygg-
ingarnar við jörðu, breyta þarf kerf-
inu öllu, aðferðum og uppbyggingu.
Bara í Múrmansk-fylki eru um 4–
5000 börn sem alast upp við aðstæður
sem minna óneitanlega á lýsingu
Aleksanders Solsjenitsyns af
GULAG innan rússnesku leyniþjón-
ustunnar, sem valdi fólk í fangabúð-
um Sovétveldisins til nauðung-
arvinnu. Við slíkar aðstæður alast
börn upp í dag aðeins einni breidd-
argráðu norðar en Ísland.
Í kjölfar skýrslunnar sem nefnd er
að ofan var tekin sú ákvörðun hjá
SOS-barnaþorpunum á Norðurlönd-
unum að sameinast um byggingu
barnaþorps í Múrmansk. Ljóst var að
vandinn var svo stór að ekki var hægt
að bíða eftir byggingu barnaþorpsins
hvað varðaði úrræði fyrir sum börnin.
Því var farið af stað með fósturfor-
eldraverkefni í Múrmansk þegar í
stað, þó svo að það teldist ekki hefð-
bundið fyrir SOS-barnaþorpin að
finna fósturfjölskyldur fyrir börn.
Noregsdeild SOS-barnaþorpanna
hefur haft umsjón með verkefninu en
árið 2005 munu yfirvöld í Rússlandi
taka formlega við því.
Hjá SOS-barnaþorpunum á Íslandi
var strax tekin sú ákvörðun að svara
neyðarkallinu frá Rússlandi og taka
þátt í kostnaði við byggingu barna-
þorpsins. Í kjölfarið var leitað til fjöl-
margra fyrirtækja eftir stuðningi en
því miður létu íslensk fyrirtæki nokk-
uð á sér standa við að hjálpa börn-
unum í Múrmansk en einstaklingar
sýndu hins vegar mikinn áhuga og
þegar upp var staðið fjármögnuðu Ís-
lendingar allar hvítar vörur í barna-
þorpið sem telur 12 fjölskylduhús. Í
dag 15. ágúst opnar síðan SOS-
barnaþorpið sjálft í bænum Kandal-
aksa við Hvíta hafið og þar eignast
100 börn langvarandi heimilisöryggi
og umfram allt móður sem tekur þau
á sína ábyrgð um ókomin ár, alveg
eins og venjulegir foreldrar gera. Þar
eru systkini sameinuð og andleg sár
fjölmargra barna fá að gróa, þó svo að
það taki sinn tíma. Märtha Louise,
prinsessa Norðmanna, opnar þorpið
formlega en auk þess verða fjölmarg-
ir gestir viðstaddir með von í brjósti
og stolt í hjarta yfir framlagi sínu til
þess að veita 100 börnum í viðbót
mannsæmandi líf.
BRYNDÍS ELFA
VALDEMARSDÓTTIR,
kynningarstjóri,
SOS-barnaþorpin.
Börnin í Múrmansk –
nágrannar í austri
Frá Bryndísi Elfu
Valdemarsdóttur: