Morgunblaðið - 17.08.2004, Blaðsíða 40
MENNING
40 ÞRIÐJUDAGUR 17. ÁGÚST 2004 MORGUNBLAÐIÐ
VÁKORT
Eftirlýst kort nr.
4741-5200-0002-4854
4507-4300-0029-4578
4741-5200-0002-5562
4507-4500-0033-0867
4543-3700-0047-8167
Afgreiðslufólk, vinsamlegast takið
ofangreind kort úr umferð og
sendið VISA Íslandi sundurklippt.
VERÐLAUN kr. 5000
VISA ÍSLAND
Álfabakka 16,
109 Reykjavík.
Sími 525 2000.
MIÐASALAN er opin á fame.is,
á þjónustuborði Smáralindar
og í síma 528 8008
JÓNSI
SVEPPI
ÓSÓTTAR PANTANIR SELDAR DAGLEGA
Fim. 19. ágúst kl. 19.30
Fös. 20. ágúst kl. 19.30
Sun. 22 ágúst kl. 19.30
15 þúsund miðar seldir
ATH ! ATRIÐ I Í SÝNINGUNNI
ERU EKKI FYRIR V IÐKVÆMA
ÓSÓTTAR PANTANIR SELDAR DAGLEGA
M iðnætursýning á menningarnótt
Lau . 21.08 24.00
Fös . 20 .08 20 .00 ÖRFÁ SÆTI
Fös . 27 .08 20 .00 NOKKUR SÆTI
Lau . 28.08 20 .00 ÖRFÁ SÆTI
Lau . 04.09 20 .00 LAUS SÆTI
MIÐASALA: 552 3000
Miðasalan er opin frá kl. 10-18
SELJAVEGI 2 • 101 REYKJAVÍK
BEINT FRÁ SVÖRTU NEW YORK
SÖNGSKEMMTUNIN
HARLEM SOPHISTICATE
Föstud. 20. ágúst kl. 20.00
Laugard. 21. ágúst kl. 19.00
Ath. breyttan sýningartíma
AÐEINS
ÞESSAR
TVÆR
SÝNINGAR!
Munið Miðasasöluna á netinu
www.borgarleikhus.is
RÓMEÓ OG JÚLÍA e. Shakespeare í samstarfi við VESTURPORT
Fi 19/8 kl 20, Fö 20/8 kl 20, Lau 21/8 kl 20, Su 22/8 kl 20
Miðasala: 568 8000
Miðasalan er opin frá kl 10-18,
og framað sýningu sýningardaga.
www.borgarleikhus.is midasala@borgarleikhus.is
KEITH Reed, söngvari og söng-
kennari, hefur verið ráðinn sem
listrænn stjórnandi til KFUM og
KFUK og hefur störf um næstu
mánaðamót. Keith hefur um átta
ára skeið verið ein aðallyftistöng
sönglífs á Austurlandi og er einn
af stofnendum Óperustúdíós Aust-
urlands sem vakið hefur verð-
skuldaða athygli fyrir spennandi
og stórhuga óperuuppfærslur.
„Ég hef haft mikil og góð kynni
af starfi KFUM og K í gegnum
konu mína, Ástu Bryndísi Schram,
en hún ólst upp við
þetta starf,“ segir
Keith, og kveðst full-
ur tilhlökkunar að
takast á við þetta
verkefni.
Þetta er í fyrsta
sinn sem samtökin
ráða til sín listrænan
stjórnanda en sönglíf
hefur um langt skeið
verið með miklum
blóma innan samtak-
anna. Keith segir að
meginbreytingin með
ráðningu sinni sé að
nú verði ekki lengur
allt traust sett á
sjálfboðaliðastarf
enda séu samtökin
orðin það fjölmenn og
starfsemin það umfangsmikil að
nauðsynlegt sé að hafa launaða
starfskrafta til að halda utan um
það.
„Ég mun skipuleggja starf í
fimm greinum lista og menningar,
leiklist, söng, dansi,
myndlist og fjöl-
miðlun. Eitt af mark-
miðum mínum er að
ná inn í starfið aftur
fólki sem starfaði með
KFUM og K sem börn
og unglingar og vildi
gjarnan vera með
áfram en hefur
kannski ekki haft vett-
vang til þess. Ég ætla
því að byrja á að
stofna tvo kóra, einn
fyrir ungmenni á aldr-
inum 16–30 ára þar
sem unnið verður með
samtímatónlist, dans
og hreyfingu. Í hinum
kórnum verða 25 ára
og eldri og þar verður
lögð áherslu á flutning skemmti-
legrar tónlistar, gospel o.þ.h. Leið-
arljósið er að það er gaman að
taka þátt í svona starfi. Þetta er
ein leið til að leiða fólk til Guðs
með því að skapa gleðilega um-
gjörð í kringum það andlega starf
sem unnið er í KFUM og K og
leyfa fólki að njóta hæfileika
sinna, gjafanna sem guð hefur gef-
ið og verða sjálfum sér og öðrum
til blessunar.“
Keith kveðst ekki hafa uppi
áform um að efna til óperuupp-
setningar á vegum KFUM og K en
segir þó að kannski verði Óperu-
stúdíó Austurlands orðið að óp-
erustúdíói Íslands áður en varir.
„Ég hef alltaf haft gaman af að
safna saman skemmtilegu fólki og
sjá hvað gerist,“ segir hann að lok-
um.
Keith Reed hefur verið
ráðinn hjá KFUM og K
sem listrænn stjórnandi
með áherslu á tónlist.
Ráðinn listrænn stjórn-
andi KFUM og K