Morgunblaðið - 17.08.2004, Blaðsíða 10
FRÉTTIR
10 ÞRIÐJUDAGUR 17. ÁGÚST 2004 MORGUNBLAÐIÐ
HVERAVELLIR eru jafnan fjöl-
sóttir yfir sumarið og raunar allt ár-
ið ef svo ber undir. Hveravalla-
félagið ehf. tók haustið 2002 við
rekstri ferðaþjónustu þar af Ferða-
félagi Íslands en félagið er í eigu
Svínavatnshrepps, Bjarka Krist-
jánssonar á Svínavatni og Björns
Þórs Kristjánssonar á Húnsstöðum.
Hreppurinn hafði forgöngu um að
kaupa reksturinn af FÍ og var félag-
ið síðan stofnað í framhaldinu. For-
ráðamenn félagsins íhuga að ráða
mann til vetursetu á Hveravöllum
en Veðurstofa Íslands hætti sem
kunnugt er í sumar að manna veð-
urathugunarstöð sína þar.
Fjórir landverðir starfa í sumar á
Hveravöllum á vegum Hveravalla-
félagsins. Þau eru Auður Inga Ingi-
marsdóttir, Bernt Kerschner,
Carolin Löher og Erla Gunn-
arsdóttir sem jafnframt er
framkvæmdastjóri rekstrarins.
Um 500 manns á dag
Erla segir mikla umferð hafa ver-
ið um Hveravelli í sumar. Margir
hafi þar aðeins viðkomu en aðrir
gisti í skálunum og tjöldum sínum
og skoði sig um. Erlendir ferða-
menn gista einkum í skálunum eða
tjöldum en Íslendingar mest í tjald-
vögnum og fellihýsum. Segir Erla
um 500 manns á dag hafa komið í
heimsókn þegar mest er, oft 5–6
rútur auk einkabíla. Nokkuð dregur
jafnan úr umferð þegar líða tekur á
ágúst. Um 70 gistipláss eru í skál-
unum tveimur og segir Erla þau
hafa verið vel nýtt í sumar. Eldri
skálinn er frá árinu 1938 og er á
tveimur hæðum. Tvö svefnherbergi,
eldhús og forstofa eru á neðri hæð
en á þeirri efri svefnloft. Þar er
rými fyrir 35.
Yngra húsið var reist 1980 og þar
er svefnsalur með 20 tvíbreiðum
kojum og aðstaða fyrir skálaverði.
Húsin eru hituð upp með hveravatni
og gaseldavélar eru í báðum hús-
unum. Þá má ekki gleyma lauginni
við eldra sæluhúsið þar sem ferða-
menn geta látið líða úr sér eftir úti-
vist og gönguferðir.
Þjóna hestamönnum líka
Auk snyrti- og gistiaðstöðu býður
Hveravallafélagið hestamönnum
þjónustu. Tvö hesthús eru á staðn-
um, hnakkageymsla og hægt er að
kaupa hey. Nauðsynlegt er að panta
hey um leið og bókað er húspláss
fyrir hrossin.
Eins og kunnugt er hefur Veð-
urstofa Íslands nú hætt að manna
veðurathugunarstöð sína á Hvera-
völlum og berast veðurupplýsingar
nú sjálfkrafa til Veðurstofunnar.
Erla segir að mikið öryggi hafi verið
fólgið í því að hafa fólk á staðnum
yfir veturinn líka enda sé mikil vetr-
arumferð á Hveravöllum. Er það
ekki síst þegar snjóalög eru góð sem
auðveldar jeppa- og snjósleðaferðir.
Hún segir þetta þrýsta á Hvera-
vallafélagið að manna staðinn yfir
veturinn.
Félagið hefur séð um eldsneyt-
issölu sem ekki síst er þörf á yfir
veturinn. Tankarnir eru við veð-
urathugunarhúsin en Hveravalla-
félagið fékk í sumar inni í húsunum
fyrir starfsmenn sína. Erla segir að
auglýsa eigi á næstunni eftir starfs-
manni fyrir veturinn sem hún segir
ljóst að kosti sitt en fjármögnun er
ekki að fullu tryggð ennþá. Segir
hún reynsluna síðan verða að skera
úr um hvort félagið ræður eitt við
það verkefni eða hvort fleiri verði
kallaðir til.
Mætti hefla oftar
Einn þeirra bílstjóra sem mikið
fara um Kjalveg er Jens Þor-
steinsson, bílstjóri hjá SBA Norð-
urleið. Hann var á Hveravöllum með
hóp Breta á 13 daga ferð um landið.
„Kjalvegur hefur farið batnandi en
hann á að mínu viti ekki að vera
rennisléttur og fær öllum bílum, þá
fer sjarminn af þessu,“ segir Jens
og telur að óbyggðavegir eigi að fá
að vera að mestu eins og þeir eru.
„Það þarf kannski að hefla Kjöl oft-
ar en tvisvar þrisvar yfir sumarið en
hann er til dæmis þokkalega góður
núna.“ Jens segir SBA Norðurleið
halda uppi daglegum áætlunar-
ferðum yfir Kjöl bæði frá Akureyri
og Reykjavík en auk þess sinnir fyr-
irtækið hópferðum um land allt eins
og í þessu tilviki.
Hveravallafélagið ehf. hefur í tvö sumur annast rekstur ferðaþjónustu á Hveravöllum
Brýnt að manna staðinn að vetrinum
Allt að 500 manns
koma við á Hveravöll-
um á góðum degi á
sumrin. Jóhannes
Tómasson staldraði
þar við á dögunum og
fylgdist með ferða-
mönnum.
Morgunblaðið/jt
Heit laugin er vinsæl hjá innlendum sem erlendum ferðamönnum.
Tveir skálavarðanna á Hveravöll-
um. Bernt Kerschner frá Aust-
urríki og Auður Inga Ingimars-
dóttir.
joto@mbl.is
Jens Þorsteinsson, bílstjóri hjá SBA
Norðurleið, aðstoðar líka farþega
með farangur og að tjalda ef svo
ber undir.
SILUNGSVEIÐIN hefur verið döp-
ur á silungasvæði Vatnsdalsár síð-
ustu vikurnar og er það vandamál
enn eitt sumarið, á meðan bleikju-
veiði er góð í nálægum ám. Eftir
ágæt skot í júní og júlí hefur varla
nokkuð veiðst á fornfrægum veiði-
stöðum í Húnavatni, eins og Branda-
nesjum og Akurshólma. Holl sem
lauk veiði um helgina færði til bókar
um 30 silunga, mestmegnis smáa
bleikju og urriða, en þokkalegir
fiskar voru innan um.
Þá er mikið af smáum silungi á
silungasvæðinu inni í dal og höfðu
menn ágæta skemmtun af að veiða
hann á þurrflugur í hitanum, en
mest var það fiskur í kringum hálft
pund sem fékk að synda aftur út í
strauminn.
Laxar í bunkum …
Það sem hefur lyft veiðinni síð-
ustu vikurnar er hins vegar afar góð
laxveiði á svæðinu. Á meðan laxa-
svæði árinnar hefur liðið fyrir hita,
lítið vatn og gríðarlegan gróður í
ánni, hafa laxar verið að stökkva í
rennum í gróðrinum frá brúnni á
þjóðveginum og langt niður eftir á,
og hafa veiðimenn skemmt sér vel
við að finna leiðir til að komast að
laxinum inni í gróðrinum. Og þegar
það hefur tekist hafa sumir lent í
veislu.
Holl sem lauk veiði síðastliðinn
miðvikudag færði til bókar 22 laxa á
stangirnar níu, en þeir tóku allir
maðkinn á svæðinu austan Víði-
hólma. Hollið sem tók við var vopn-
að flugum og þar tókst mönnum að
komast að álum þar sem bunkar
voru af laxi sem var viljugur að taka
smáflugur sem voru strippaðar
hratt eftir yfirborðinu. Hópurinn
setti í hátt í 30 laxa og landaði 13, en
margir töpuðust í gróðrinum. Þetta
var mestmegnis lúsugur smálax, en
innan um myndarlegir tveggja ára
laxar, en þeim var sleppt aftur í ána.
Erfitt í Dölunum
Veiðimenn sem standa vaktina
þessa dagana á laxasvæði Hauka-
dalsár, segja afar erfitt að hreyfa
laxinn. Áin er vatnslítil og laxinn
liggur í bunkum í nokkrum hyljum,
mjög styggur. Tókst þeim að reisa
nokkra fiska og fengu grannar tök-
ur, en lönduðu engum. Þegar rigndi
dagpart í síðustu viku tók veiðin
kipp, en þá lönduðu svissneskir
veiðimenn á öðrum tug laxa á stutt-
um tíma.
Það er líka barningur í Laxá í
Dölum, en þó komnir nærri 400 lax-
ar á land. Áin er hins vegar vatns-
lítil og erfið viðureignar. Allt síð-
asta sumar veiddust í ánni 1.394
laxar, ekki hvað síst fyrir tilstilli
gríðarlegs endaspretts, en síðustu
hollin í ágúst og öll septemberhollin
voru í rosalegu moki eftir álíka erf-
itt hásumar vegna þurrka og vatns-
leysis. Það er því ekki öll nótt úti
enn og menn fyrir vestan samdóma
um að bæði sé mikill lax í ánum auk
þess sem mikið af fiski bíði einnig
úti í þaranum eftir því að haustrign-
ingar taki til við að bæta ástandið.
Rífandi laxveiði á
silungasvæðinu
Morgunblaðið/Einar Falur
Pétur Blöndal glímir við lax við Víðines í Vatnsdalsá. Sölvi Ólafsson er hon-
um til aðstoðar, en á myndinni sjást glöggt hinar erfiðu aðstæður.
ERU
ÞEIR AÐ
FÁ’ANN?
HELGA Hübner og Hans-Wolfgang Knoch frá Þýskalandi hjóluðu í
hlað á Hveravöllum og hófu að koma upp tjaldi sínu. „Við vorum hér
líka í fyrra og hjóluðum þá dálítið um Snæfellsnes og Vesturlandið en
stefnum núna norður og á Austfirðina,“ segir Helga og lét þokkalega
vel af ferðinni bæði hvað varðar umferð og veður.
Þau ráðgera að vera á ferðinni í þrjár vikur, hjóluðu á nokkrum
dögum frá Keflavík um Selfoss, Geysi og Gullfoss til Hveravalla þar
sem ætlunin var að gista í eina eða tvær nætur. Þau sögðust viss um
að á Hveravöllum væri margt að sjá og þau sögðu gott að ferðast og
kynnast landinu á hjóli. Bílstjórar væru yfirleitt tillitssamir og veðrið
hefði verið gott en nokkur strekkingur var þó á Hveravöllum. Heima í
Düsseldorf segjast þau einnig hjóla mikið, bæði sér til skemmtunar og
til vinnu, það sé bæði betra fyrir skrokkinn og umhverfið. Og stefna
þau á Íslandsferð aftur?
„Við komum áreiðanlega aftur, sennilega myndum við ferðast eitt-
hvað um á bíl þá og fara síðan í gönguferðir.“
Betra fyrir skrokkinn
og umhverfið
Helga Hübner og Hans-Wolfgang Knoch eru á Íslandi í annað sinn.
SKÁKFÉLAGIÐ Hrókurinn heldur
opið atskákmót í samvinnu við Við-
skiptanetið og Flugfélag Íslands á
Lækjartorgi dagana 20. til 21. ágúst. Í
fréttatilkynningu frá Hróknum segir
að fjölmargir hafi þegar skráð sig til
leiks. Þar á meðal Helgi Áss Grét-
arsson stórmeistari, Jón Viktor
Gunnarsson, fyrsti VN meistarinn og
Róbert Harðarson, fyrirliði Hróksins.
Yngri skákmenn hafi einnig boðað
þátttöku sína, m.a. Júlía Rós, Hörður
Aron, Svanberg Már Pálsson og
Ingvar Ásbjörnsson.
Í verðlaunapottinum eru 500 þús-
und Viðskiptanetskrónur, sem
skiptast á milli átta efstu manna.
Tefldar verða níu umferðir með
fimm mínútur til umhugsunar. Á
föstudag verður teflt í einum opnum
flokki og komast 32 áfram. Á laug-
ardag verður teflt með útsláttarfyr-
irkomulagi þar til einn keppandi
stendur eftir sem Plúskortsmeistari
Hróksins og Viðskiptanetsins. Einnig
verða veitt sérstök verðlaun fyrir
krakka.
Mótið hefst kl. 14 á föstudag og
geta allir tekið þátt.
Opið
atskákmót á
Lækjartorgi