Morgunblaðið - 17.08.2004, Blaðsíða 15
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. ÁGÚST 2004 15
LÆKKA á skatta á sterkt áfengi um
40% í Svíþjóð frá og með 1. janúar
2005, samkvæmt tillögu Kent Här-
stedt, þingmanns Jafnaðarmanna-
flokksins, sem unnið hefur álitsgerð
um málið.
Härstedt afhenti í gær Morgan
Johansson, ráðherra lýðheilsumála í
Svíþjóð, skýrslu sína sem nefnist
„Hvar eru mörkin?“.
Rökin fyrir lækkuninni eru eink-
um þau að með þessu móti megi
tryggja að Svíar kaupi meira af
áfengi í Svíþjóð og þannig geti
stjórnvöld fylgst betur með neyslu
landsmanna. Hátt verð á sterku
áfengi hafi í för
með sér smygl
auk þess sem Sví-
ar kaupi af þess-
um sökum mikið
af áfengi erlendis.
Göran Persson,
forsætisráðherra
Svíþjóðar, hefur
lýst sig fylgjandi
því að áfengis-
skattar verði
lækkaðir í Svíþjóð en jafnframt vísað
til þess að hann bíði eftir niðurstöð-
um Härstedts.
Talið er að verði skattur á sterkt
áfengi lækkaður muni neysla á
sterkum drykkjum aukast um 8% og
heildarneysla áfengis um 2%.
Härstedt leggur til að áfengisút-
sala sænska ríkisins, Systembolaget,
sjái áfram um sölu á áfengi. „Sala á
áfengum drykkjum í verslunum er
hafa tilskilin leyfi, eða í matvöru-
verslunum myndi bæta aðgengi að
áfengum drykkjum og hafa í för með
sér aukna áfengisneyslu,“ segir í
álitsgerðinni. Segist Härstedt telja
að hin félagslega ábyrgð sem
Systembolaget hafi á höndum, vegna
þess að ekki sé um gróðastarfsemi að
ræða, sé af hinu góða og eigi að nýta
hana enn frekar í framtíðinni.
Hann leggur til að áfram verði há-
ar sektir við því að brjóta gegn
áfengislöggjöfinni. „Refsing vegna
grófra brota á áfengislögum verði
hert og verði viðurlög við slíkum
brotum 6 mánaða fangelsi hið
minnsta, en 2 ár hið mesta,“ að því er
Härstedt telur.
Í því skyni að lágmarka þann
skaða er neysla áfengis kann að
valda vill Härstedt að mótuð verði
sameiginleg stefna innan Evrópu-
sambandsins, sem feli meðal annars í
sér að viðvörunarmiðar verði límdir
á allar flöskur sem innihalda áfengi.
Vill lækka áfengisskatta um 40%
Stokkhólmi. AFP.
Kent Härstedt
JULIA Child, „Franski kokkurinn“,
sem kom Bandaríkjamönnum í skiln-
ing um, að góð matargerð væri ekki
bara í því fólgin að
tæma sveppa-
súpudós út í kjöt-
kássu, er látin, 92
ára að aldri.
Child var ekk-
ert sérstaklega
„sjónvarpsvæn“,
kona, mjög stór
vexti og komin yf-
ir fimmtugt þegar
hún byrjaði, árið
1963, á sínum fyrsta þætti, „Franska
kokkinum“, fyrir ríkisrekna sjón-
varpsstöð í Boston, en hún kunni að
gera góðan mat og þá sérstaklega upp
á franska vísu. Áður en lauk voru
þættirnir orðnir 206 og er það met í
bandarísku almenningssjónvarpi.
Síðar var hún með aðra þætti og alltaf
á ríkisreknu stöðvunum. Vann hún til
ýmissa verðlauna, meðal annars
einna Emmy-verðlauna, og þótt hún
væri bandarísk, var hún gerð að fé-
laga í frönsku heiðursfylkingunni.
Þættirnir hennar Child voru ólíkir
þeim, sem nú tíðkast, að því leyti, að
henni urðu stundum á mistök „eins og
alla hendir“, missti kannski niður
matarskál eða eyðilagði ábætinn, en
þá minnti hún áhorfendur á, að oftast
væri fólk eitt við eldhússtörfin og það
væri útkoman en ekki aðdragandinn,
sem máli skipti.
Julia Child
látin
Julia Child
BOBBY Fischer, fyrrverandi heims-
meistari í skák, ætlar að kvænast
Miyoko Watai, formanni japanska
skáksambandsins, en þau hafa búið
saman frá árinu 2000. Kom þetta
fram í tilkynningu frá Masako Suz-
uki, lögfræðingi Fischers, sem sagði,
að Fischer hefði skorað á bandaríska
sendiráðið í Tókýó og á Colin Powell,
utanríkisráðherra Bandaríkjanna,
að viðurkenna formlega, að hann
hefði afsalað sér bandarískum borg-
ararétti.
Masako sagði, að þau hjónaleysin
hefðu nú þegar skrifað undir nauð-
synlega pappíra og til stóð að fram-
vísa þeim hjá réttum yfirvöldum
strax í gær.
Fremur fátt er vitað um Watai en
hún segist hafa verið vinur Fischers í
30 ár og heldur úti vefsíðu honum til
stuðnings. Í tilkynningu Suzuki
sagði, að Watai myndi tjá sig nánar
um málið síðar.
Miklar annir í
bandaríska sendiráðinu
Fischer hefur verið í fangelsi í
Japan frá 13. júlí en hann var hand-
tekinn er hann ætlaði að fara þaðan
til Filippseyja og sú ástæða nefnd, að
Bandaríkjastjórn hefði ógilt vega-
bréf hans. Suzuki sagði, að Fischer
hefði óskað eftir því að ræða við full-
trúa bandaríska sendiráðsins í Tók-
ýó en fengið það svar, að þeir hefðu
ekki tíma til þess sökum mikilla
anna.
Bandaríkjastjórn segist vilja
koma lögum yfir Fischer vegna þess,
að hann braut gegn alþjóðlegum
refsiaðgerðum gegn Júgóslavíu er
hann tefldi einvígi við Borís Spasskí í
Svartfjallalandi 1992. Af þeim sökum
gæti hann átt yfir höfði sér 10 ára
fangelsi í Bandaríkjunum.
Fischer
ætlar að
kvænast
Konuefnið er
Miyoko Watai, for-
maður japanska
skáksambandsins,
en þau hafa búið
saman í fjögur ár
Tókýó. AFP.
♦♦♦