Morgunblaðið - 17.08.2004, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 17.08.2004, Blaðsíða 2
FRÉTTIR 2 ÞRIÐJUDAGUR 17. ÁGÚST 2004 MORGUNBLAÐIÐ VÍSAÐ TIL HAAG Halldór Ásgrímsson utanrík- isráðherra hyggst leggja til á rík- isstjórnarfundi í dag að Svalbarða- deilunni verði vísað til Alþjóða- dómstólsins í Haag. Halldór segir að það taki nokkurn tíma að undirbúa málið áður en það fari fyrir dóm- stóla. Kveðst hann þó vonast til þess að hægt verði að leysa málið við samningaborðið. Geðrækt fær viðurkenningu Verkefnið Geðrækt hefur verið út- nefnt sérstaklega af Alþjóðaheil- brigðismálastofnuninni (WHO) og Alþjóðageðheilbrigðissamtökunum (WFMH) sem fyrirmyndarverkefni á sviði geðræktar. Héðinn Unn- steinsson, fyrrverandi verkefn- isstjóri Geðræktar, fer til Nýja- Sjálands í september til að taka á móti viðurkenningunni. Aðstand- endur verkefnisins vonast til þess að viðurkenningin verði til þess að auka áherslu á geðheilbrigðismál á Ís- landi enn frekar. Hermenn heim Bandaríkjaforseti tilkynnti í gær að á næstu tíu árum yrðu um sjötíu þúsund bandarískir hermenn í her- stöðvum erlendis fluttir til Banda- ríkjanna. Væru þessar breytingar í samræmi við breytta heimsmynd, og myndu gera herinn „snarari í snún- ingum“. Chavez sigraði Hugo Chavez, forseti Venesúela, fagnaði í gær sigri í þjóðaratkvæða- greiðslu er efnt var til um það hvort svipta ætti hann embætti. Sam- kvæmt opinberum niðurstöðum voru 58% kjósenda andvíg embættissvipt- ingu. Alþjóðlegir eftirlitsmenn stað- festu úrslitin, en stjórnarandstaðan segir brögð hafa verið í tafli. Y f i r l i t Í dag Fréttaskýring 8 Forystugrein 24 Úr verinu 12 Viðhorf 26 Viðskipti 12 Minningar 26/33 Erlent 14/15 Dagbók 36 Höfuðborgin 17 Víkverji 36 Akureyri 18 Velvakandi 37 Austurland 19 Staður og stund 38 Landið 19 Menning 39/45 Daglegt líf 20/21 Veður 46 Umræðan 22/23 Staksteinar 54 Bréf 23 Ljósvakamiðlar 47 * * * Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri, olafur@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfull- trúi, orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@ .is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl                                  ! " #            $         %&' ( )***                               SJÖ sóttu um embætti ráðuneytis- stjóra í félagsmálaráðuneytinu, en umsóknarfrestur rann út 10. ágúst sl. Þeir sem sóttu um eru: Anna Guðrún Björnsdóttir, sviðs- stjóri hjá Sambandi íslenskra sveit- arfélaga, Gylfi Kristinsson, skrif- stofustjóri í félagsmálaráðuneytinu, Helga Jónsdóttir borgarritari, Her- mann Sæmundsson, settur ráðu- neytisstjóri félagsmálaráðuneytis- ins, Kristín Einarsdóttir, fram- kvæmdastjóri miðborgar Reykja- víkur, Ragnhildur Arnljótsdóttir, fulltrúi félagsmálaráðuneytisins og heilbrigðis- og tryggingamálaráðu- neytisins í sendiráði Íslands í Bruss- el og Sigurður Snævarr borgarhag- fræðingur. Gert er ráð fyrir því að skipað verði í embættið til fimm ára, frá og með 1. september 2004. Áhugi á félagsmálaráðuneytinu Sjö sóttu um embætti ráðuneytisstjóra VERKEFNIÐ Geðrækt hefur verið útnefnt sérstaklega af Alþjóðaheil- brigðismálastofnuninni (WHO) og Alþjóðageðheilbrigðissamtökunum (WFMH) sem fyrirmyndarverkefni á sviði geðræktar. Verður viður- kenning vegna þess veitt á alþjóð- legri ráðstefnu á Nýja-Sjálandi í næsta mánuði, sem haldin er í tengslum við alþjóðlega útgáfu bók- ar um slík verkefni. Landlæknir seg- ir viðbúið að önnur lönd taki verk- efnið til fyrirmyndar. Mjög ánægjulegt Á ráðstefnunni verða kynnt 35 geðræktarverkefni alls staðar að úr heiminum. Þau voru valin úr 60 verk- efnum sem bárust. Fimm voru tekin sérstaklega út úr og hlaut Geðrækt hæstu einkunn bæði hvað varðaði framkvæmd og hugmyndafræði. „Þetta er mjög ánægjulegt og líka það að hugmyndafræðin sem slík skyldi hafa verið verðlaunuð,“ sagði Héðinn Unnsteinsson, fyrrverandi verkefnisstjóri Geðræktar, en hann mun fara til Nýja-Sjálands til að taka á móti viðurkenningunni. Hann sagði að hugmyndafræði verkefnisins hefði falist í því að taka þessa þrjá geira samfélagsins – rík- isvaldið, borgaralegt samfélag og markaðinn og fá þá til að spila sam- an. Stuðst hefði verið við markmið ríkisstjórnarinnar og heilbrigðis- ráðuneytisins við stefnumótun í verkefninu. Fjármagn hefði fengist á markaðnum, frá fimm stórum fyrir- tækjum, Landsbankanum, Actavis, Eimskip, Skeljungi og Íslenskri erfðagreiningu og síðan hefði slag- kraftur borgaralegs samfélags verið nýttur, Geðhjálpar, Landlæknis- embættisins, geðsviðs Landspítalans og Heilsugæslunnar í Reykjavík. Að auki hefði verkefnið verið byggt upp út frá notendasjónarmiði og hann teldi að það væri fyrst og fremst það hvernig þessir ólíku samfélagsþættir ynnu saman í verkefninu sem hefði gert það að verkum að það hefði hlot- ið þessa alþjóðlegu viðurkenningu. Sigurður Guðmundsson landlækn- ir segir það ánægjulegt að verkefnið skuli fá þessa viðurkenningu, ekki síst að það skuli vekja athygli fyrir aðferðafræðina og hugmyndafræð- ina. Kvað hann mega búast við að fleiri lönd tækju upp þessar hug- myndir sem stefndu að fordómalaus- ari og opnari umræðu um geðheilsu. Fyrirmynd annarra þjóða Í tilkynningu frá Landlæknisemb- ættinu af þessu tilefni kemur fram að aðstandendur verkefnisins og þeir sem að því hafi komið geri sér vonir um að þessi alþjóðlega viðurkenning á Geðrækt verði til þess að auka áherslu á geðheilbrigðismál á Íslandi enn frekar. Fyrirmynd annarra landa Verkefnið Geðrækt fær viðurkenningu Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar MIKIL gleði ríkti í myndveri Latabæjar í Mið- hrauni í Garðabæ í gær, þegar aðstandendur þátt- anna um Latabæ fylgdust með frumsýningu fyrstu tveggja þáttanna á bandarísku sjónvarps- stöðinni Nick Jr. í gegnum gervihnött. Kvik- myndagerðarfólk og leikarar klöppuðu og hlógu þegar þeir fylgdust með frumsýningunni og var aðalleikkonu þáttanna, Julianna R. Mauriello sem leikur Stephanie (Sollu stirðu), klappað lof í lófa fyrir söng og dansatriði sín í þáttunum. Fyrirtækið Latibær hefur nú skilað af sér tíu af þeim fjörutíu þáttum sem Nickelodeon-fyrirtækið samdi um að kaupa. Nú er tökum að ljúka á tutt- ugasta þættinum. Að sögn Raymond Le Gué, eins af framleiðendum þáttanna, hefur hópurinn þjappast mjög vel saman og vinnur nú mjög skipulega og af mikilli skilvirkni. „Afköstin hafa aukist mjög mikið, því við erum farin að vinna hér eins og ein stór fjölskylda og góð tilfinning komin fyrir vinnubrögðum og vandvirkni. Þetta er allt komið í mjög góðan farveg,“ segir Raymond og bætir við að það sé líka mjög gott að allt efni sé framleitt innan fyrirtækisins. Frumsýningu Latabæjar fagnað Morgunblaðið/Árni Torfason Aðstandendur Latabæjar fylgjast spenntir með fyrstu útsendingunni. EKKI eru mörg ár síðan kaffihúsaeigendur fengu góðfúslegt leyfi opin- berra yfirvalda til að bera nokkra stóla og borð út á gangstétt svo þreyttir vegfarendur gætu drukkið þar kaffi. Nú telst það til undantekninga ef kaffihús býður ekki gestum sæti utandyra í blíðviðri. Þá hafa yfirvöld einn- ig heimilað afgreiðslu bjórs út á gangstétt. Það hefur lagst vel í jafnt þyrsta ferðamenn sem heimafólk að tylla sér á stól og sötra mjöðinn. Und- anfarna daga hefur bekkurinn verið þétt setinn á gangstéttum Reykjavík- urborgar eins og myndin frá Hafnarstræti ber með sér. Morgunblaðið/Jim Smart Þétt setinn bekkurinn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.