Morgunblaðið - 17.08.2004, Blaðsíða 4
VATNSBORÐ í Jökulsá á Dal,
Jöklu, hefur lækkað stöðugt síðustu
daga og hið sama er að segja um
rennslið. Um miðjan dag í gær
sýndu mælar Orkustofnunar við Brú
í Jökuldal rennsli upp á 390 rúm-
metra á sekúndu. Þegar mest lét í
flóðunum á dögunum fór rennslið yf-
ir 900 rúmmetra á sekúndu.
Viðgerð á brúnni á virkjunar-
svæðinu við Kárahnjúka er lokið og
hefur almennri umferð verið hleypt
á hana að nýju. Eru nú allnokkrir
metrar frá brúargólfi niður í ána.
Vatnsborð Jöklu er enn svo hátt að
það nær yfir inntak hjáveitugang-
anna. Ekki er búist við að göngin
verði komin „á þurrt“ fyrr en um og
eftir næstu mánaðamót, að sögn
Þorbjörns Haraldssonar, starfs-
manns Impregilo. Fyrst þá verði
hægt að fara inn í þau, en talið hefur
verið að efri göngin hafi einhverra
hluta vegna stíflast og ekki tekið við
því vatnsrennsli sem þau áttu að
gera.
Jökla lækkar og
brúin opnuð á ný
Morgunblaðið/ÞÖK
Starfsmenn Impregilo við Kárahnjúkavirkjun hafa óhindrað getað unnið
síðustu daga við fremsta hluta aðalstíflunnar eftir flóðin í Jöklu á dögunum.
NEMENDUR framhaldsskóla setj-
ast flestir á skólabekk að nýju í byrj-
un næstu viku og margir þeirra eru
farnir að huga að bókakaupum. Not-
aðar bækur, sem seldar eru á skipti-
bókamörkuðum, eru ódýrari kostur
en að kaupa nýjar bækur. Bókabúðir
taka síður við bókum sem eru útkrot-
aðar eða mjög illa farnar en að sögn
Nínu Kristbjargar Hjaltadóttur,
verslunarstjóra í Griffli, finnst sum-
um betra að kaupa bækurnar með
glósum.
Nína, sem kveðst vera á sinni „ann-
arri vertíð“ í skiptibókunum, segir
markaðinn hafa farið óvenju snemma
af stað. Tekið hafi verið við notuðum
skólabókum framhaldsskólanema frá
því í júní enda hafi sumir skólar birt
sína bókalista snemma sumars. Hún
á engu að síður von á að mest verði að
gera á markaðnum í næstu viku, þeg-
ar flestir framhaldsskólar á höfuð-
borgarsvæðinu verða settir.
„Góða veðrið bara hægði á öllu
þannig að bóksalar bíða eftir rigning-
unni. Það fór allt snemma af stað í júlí
og byrjun ágúst. Eftir versl-
unarmannahelgina voru krakkarnir
mikið farnir að koma en svo þegar
góða veðrið kom þá var enginn að
hugsa um skólann. Það virðist fara
mikið eftir veðri hvenær skipti-
bókamarkaðirnir fara í gang.“
Margir vita ekki af
bókalistum á Netinu
Nína segir það jákvætt fyrir fram-
haldsskólanema og foreldra þeirra að
bókalistar séu birtir á Netinu og því
sé hægt að kaupa bækurnar tím-
anlega. Þó beri á því að fólk viti hrein-
lega ekki af því að þeir séu birtir með
þeim hætti.
Nína segir engan vafa leika á því að
notaðar bækur séu vinsælli en nýjar á
þessum árstíma. „Það kaupa allir not-
aðar bækur ef þeir geta. Ef það er til
notuð bók í búðinni þá er hún keypt.“
Skiptibókamarkaðir eru að sögn
Nínu langt frá því að vera uppspretta
gróða fyrir bókabúðir. „Peningarnir
liggja ekki þarna. Þetta kostar mikla
vinnu í búðunum, t.d. við að taka við
bókum og verðmerkja upp á nýtt. En
skiptibókamarkaðir eru hluti af þjón-
ustunni og þeir eru komnir til að
vera.“
FRÉTTIR
4 ÞRIÐJUDAGUR 17. ÁGÚST 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Dagskrá fundarins er sem hér segir:
1. Venjuleg a›alfundarstörf samkvæmt
14. grein samflykkta félagsins.
2. Önnur málefni, löglega upp borin.
Dagskrá, endanlegar tillögur og reikningar félagsins liggja frammi
á skrifstofu fless a› Skaftahlí› 24, Reykjavík, hluthöfum til s‡nis,
viku fyrir a›alfund.
Stjórn Línu.Nets hf.
A›alfundur hlutafélagsins Línu.Nets hf., kt. 490799-3039,
fyrir starfsári› 2003 ver›ur haldinn mánudaginn 30. ágúst
2004 í húsi Orkuveitu Reykjavíkur, Bæjarhálsi 1 og hefst
hann kl. 16:00.
Lína.Net hf. · Skaftahlí› 24 · 105 Reykjavík · Sími 559 6000 · Fax 559 6099 · www.lina.net
– netlausnir fyrir flitt fyrirtæki
ANDREA Björk Hannesdóttir er að
hefja nám við Menntaskólann við
Sund í haust. Hún ákvað að vera
snemma í því og var búin að tryggja
sér næstum allar skólabækurnar fyrir
veturinn í Griffli í gær. Eina og eina
bók vantaði þó í safnið og kvaðst
Andrea mundu fara í fleiri verslanir til
að geta keypt sem flestar bækur not-
aðar í staðinn fyrir nýjar. Þrátt fyrir
að nýta sér skiptibókamarkaði, sem
selja bækurnar á rétt rúmlega helm-
ing af verði nýrrar bókar, sagðist
Andrea Björk gera ráð fyrir að þurfa
að verja allt að 40 þúsund krónum í
kaup á skólabókum.
Andrea Björk Hannesdóttir ætlar að kaupa sem flestar bækur notaðar.
Fer með hátt í 40 þúsund í bækur
YFIR tvö hundruð manns munu
stunda fjarnám við Háskólann á Ak-
ureyri hjá Námsflokkum Hafnar-
fjarðar á komandi vetri. Byrjað var
að bjóða upp á fjarnám í Firðinum
veturinn 2002-3. Þá voru nemendur
rétt rúmlega tuttugu og hefur fjöldi
þeirra því ríflega tífaldast nú þegar
þriðja námsárið fer í hönd. Fjarnám-
ið er samstarfsverkefni Námsflokka
Hafnarfjarðar – Miðstöðvar Sí-
menntunar og Háskólans á Akur-
eyri.
Að sögn Theódórs Hallssonar,
skólastjóra Námsflokka Hafnar-
fjarðar, sækja flestir nám í rekstrar-
og viðskiptafræði eða liðlega helm-
ingur nemenda í fjarnáminu. Þá seg-
ir hann kennaradeild Háskólans á
Akureyri vera vinsæla, jafnt grunn-
skóla- sem leikskólabraut, sem og
auðlindadeild og iðjuþjálfun. Síðast-
nefnda greinin er raunar kennd í
Hafnarfirðinun, þ.e. nemendur geta
sótt staðbundið nám í iðjuþjálfun en
ekki fjarnám.
Theódór segir að færri komist að
en vilji í fjarnámið. „Við erum að
taka inn um 80 nýnema í haust. Þetta
er alveg nýr valmöguleiki og hentar
sérstaklega vel fyrir þá sem af ein-
hverjum ástæðum þurfa að vinna
með námi.“
Hann segir nemendur ánægða
með þennan valkost. Með samstarfs-
verkefninu er ætlunin að gera Há-
skólann á Akureyri aðgengilegan
fyrir fólk sem búsett er á höfuðborg-
arsvæðinu. Fyrstu nemendur fjar-
námsins voru útskrifaðir sl. vor en
þá lauk hópur nemenda við leik-
skólakennarabraut námi sínu.
Kennslan fer að mestu leyti fram í
gegnum fjarfundabúnað. Með slíkan
búnað í kennslustofunni geta nem-
endur í Hafnarfirði tekið virkan þátt
í kennslustundum á Akureyri.
Kennsluhúsnæðið er gamli Lækjar-
skólinn við Skólabraut í Hafnarfirði.
Theódór segir að þótt kennslan og
námið fari að mestu leyti fram í
gegnum netið og með aðstoð búnað-
arins þá komi það einnig fyrir að
kennslustundir séu haldnar í Hafn-
arfirðinun, einkum ef kennarar eiga
leið um höfuðborgarsvæðið.
Skipulag námsins er í höndum Há-
skólans á Akureyri og skólinn ber á
því faglega ábyrgð, leggur til náms-
efni og annast kennslu. Námsflokkar
Hafnarfjarðar – Miðstöð símenntun-
ar kostar og leggur til náms- og
starfsaðstöðu fyrir nemendur í
Hafnarfirði, sjá um að miðla upplýs-
ingum og gögnum auk þess sem próf
fara fram í Hafnarfirði.
Fjarnám í Firð-
inum vel sótt
Samstarfsverkefni Háskólans á Akureyri
og Námsflokka Hafnarfjarðar um fjarnám
gengur vel og komast færri að en vilja
Morgunblaðið/Árni Torfason
Nína Kristbjörg Hjaltadóttir verslunarstjóri telur að góða veðrið hafi hægt á skiptibókamörkuðum.
Góða veðrið hægði á
skiptibókamörkuðum
Njálu lesa nær allir framhalds-
skólanemar. Ný kostar skólaútgáfa
bókarinnar um 1.700 krónur en
notuð um 1.100. Hagsýnir fram-
haldsskólanemar geta því sparað
sex hundruð krónur á því að kaupa
hana notaða, en geta þurft að sætta
sig við að lesa hana með glósum og
undirstrikunum síðasta eiganda.
LÖGREGLAN á Ísafirði hand-
tók konu og tvo karlmenn á Ísa-
firði um kvöldmatarleytið á
laugardag vegna gruns um
fíkniefnamisferli. Í kjölfarið fór
fram leit í húsnæði annars
mannsins og bíl að fengnum úr-
skurði Héraðsdóms Vestfjarða
og fundust 15 grömm af ætluð-
um kannabisefnum, 3 grömm af
ætluðu amfetamíni og 83 töflur
sem talið er að innihaldi efedrín
og steralyf. Þá var lagt hald á
tæplega 70 þúsund krónur sem
taldar eru vera ágóði vegna
fíkniefnasölu. Játning liggur
fyrir um að fíkniefnaneysla hafi
farið fram í íbúðinni sem leitað
var í. Annar mannanna játaði
að hafa selt fíkniefni á Ísafirði.
Fíkniefnahundurinn Dofri tók
þátt í aðgerðum.
Þrennt hand-
tekið vegna
fíkniefnasölu