Morgunblaðið - 14.09.2004, Síða 6
FRÉTTIR
6 ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
TÆPLEGA 4.500 manns eða 2,9% af áætluðum
mannafla voru án atvinnu í ágústmánuði. Vinnu-
málastofnun telur líklegt að atvinnuleysið minnki í
september og verði á bilinu 2,6%–2,9%. Rúmlega
þriðjungur, eða 34% atvinnulausra, var langtíma-
atvinnulaus, þ.e. hafði verið án atvinnu í sex mánuði
eða lengur. Í fyrra voru að meðaltali 26,4% atvinnu-
lausra langtímaatvinnulaus og hlutfallið var 19%
árið 2002 þannig að langtímaatvinnuleysi hefur
aukist umtalsvert á síðustu tveimur árum. Um 19%
allra atvinnulausra voru á aldrinum 16–24 ára á
móti 21% í ágúst í fyrra.
Atvinnuleysi á höfuðborgarsvæðinu mældist
vera 3,5%. Atvinnuleysi kvenna á höfuðborgar-
svæðinu var 4,4% en hjá körlum 2,7%. Atvinnuleysi
á landsbyggðinni var 1,9% af áætluðum mannafla í
ágúst. Atvinnuleysi karla á landsbyggðinni var
1,2% en kvenna 3%. Atvinnuleysi á landsbyggðinni
var mest á Norðurlandi eystra eða 2,8% en minnst
var atvinnuleysið á Norðurlandi vestra eða 1%.
Ískyggilegar tölur um
langtímaatvinnuleysi
Ingunn S. Þorsteinsdóttir, hagfræðingur í hag-
deild ASÍ, segir tölur um langtímaatvinnuleysi vera
ískyggilegar. Þetta séu að vísu hlutfallstölur og at-
vinnuleysi sé að minnka. „En árstíðaleiðrétt at-
vinnuleysi heldur áfram að aukast þrátt fyrir mik-
inn hagvöxt og miklar framkvæmdir. Við höfum
áhyggjur af því en það þarf að greina betur hvað er
að gerast í þessum efnum, þ.e. hvaða hópar þetta
eru sem festast í langtímaatvinnuleysi eins og virð-
ist vera að gerast núna. Þetta eru hópar sem standa
illa fyrir á vinnumarkaðinum, fólk sem hefur litla
grunnmenntun, fólk sem er komið yfir miðjan ald-
ur, einstæðir foreldrar sem eiga erfitt með að taka
hvaða starf sem er.“
Ingunn segir að svo virðist sem einhver kerf-
isbreyting sé að eiga sér stað á vinumarkaði en það
þurfi að skoða það betur hvað valdi því að atvinnu-
leysið minnki ekki. „Það getur verið að það sé að
verða einhvers konar mismunur á framboði vinnu-
afls og eftirspurnar, að vinnuveitendur séu að leita
að annars konar þekkingu eða færni og þá þarf að
taka á því með viðeigandi vinnumarkaðsaðgerð-
um.“
Ingunn segir að hlutfall ungs fólks sem er at-
vinnulaust hafi lækkað en það eigi sér væntanlega
þær skýringar að fólk sé að hverfa af vinumarkaði
og fara í skóla. „Það er samt sem áður áhyggjuefni
hvað þetta hlutfall er hátt eða 19%.“
Veruleg aukning mælist
á langtímaatvinnuleysi
ÚTVEGGUR Þingholtsstrætis 3 var
skrýddur óvenjulegu veggfóðri í
gær er hann var þakinn þúsund
króna seðlum. Það var fasteigna-
félagið Eik sem stóð fyrir þessu
óvenjulega veggfóðri og að sögn
forsvarsmanna fyrirtækisins var
markmiðið að vekja athygli for-
svarsmanna fyrirtækja á þeim kost-
um sem fylgja því að leigja atvinnu-
húsnæði í stað þess að eiga það, auk
þess sem Eik hefur hleypt af stokk-
unum nýrri þjónustuleið sem nefnist
fasteignaráðgjöf og leit.
Garðar Hannes Friðjónsson,
framkvæmdastjóri Eikar, áætlar að
í kringum hálf milljón prýði húsið
við Þingholtsstræti 3. „En sú fjár-
hæð samsvarar opnuauglýsingu í
einum af helstu prentmiðlum lands-
ins eða þremur 30 sekúndna sjón-
varpsauglýsingum eða einum fer-
metra af fullgerðum útvegg. Með
þessari uppákomu vildum við vekja
athygli á því að oft er gríðarlegt
fjármagn fyrirtækja bundið í fast-
eignum þegar mun hagkvæmara
væri að losa það og setja fjármagnið
í sjálfan rekstur fyrirtækisins. Auk
þess vildum við vekja athygli á nýrri
þjónustu sem við bjóðum upp á sem
felst í því að viðskiptavinir geta
fengið ráðgjöf hjá okkur um val á
húsnæði út frá kröfum um stærð,
staðsetningu og rekstur. Við bjóð-
um nú þjónustu sem felst í því að
leita að heppilegu húsnæði, kaupa
það og leigja viðkomandi fyrirtæki
það aftur til lengri eða skemmri
tíma.“
Að sögn Garðars eru peningaseðl-
arnir lauslímdir á húsið. „Við verð-
um með vaktmann á svæðinu í nótt
auk þess sem við höfum gert ráð-
stafanir ef hvessa skyldi.“ Seðlarnir
verða fjarlægðir af húsinu í kvöld
og afhentir Umhyggju, félagi til
stuðnings langveikum börnum.
Nota seðla sem veggfóður
Morgunblaðið/Kristinn
Garðar Hannes Friðjónsson, framkvæmdastjóri Eikar, við veggfóðraða vegginn.
FRUMNIÐURSTÖÐUR rann-
sóknar á andláti rúmlega þrítugs
karlmanns í Keflavík á fimmtudag,
sem lést eftir átök við lög-
reglumenn, benda til að um hjarta-
stopp hafi verið að ræða. Hörður
Jóhannesson, yfirlögregluþjónn í
Reykjavík, segir að dánarorsök sé
ekki rakin til neinna áverka eða of-
beldis. Beðið er niðurstöðu krufn-
ingar.
Lögreglan í Reykjavík rannsakar
tildrög málsins að beiðni ríkis-
saksóknara.
Lést af völdum
hjartastopps
INNKOMNAR umsóknir hjá Íbúða-
lánasjóði voru 275 á tímabilinu 1. til
12. september en 512 umsóknir all-
an septembermánuð í fyrra. Um-
sóknir það sem af er árinu eru
8.303 á móti 8.942 umsóknum á
sama tíma í fyrra eða 2,23% færri.
Bragi Bragason, sérfræðingur á
fjárstýringarsviði hjá Íbúðalána-
sjóði, segir umsóknirnar vera lít-
illega færri það sem af er sept-
ember en menn hefðu reiknað með
því alveg burt séð frá íbúðalánum
bankanna enda hefði verið mikill
hamagangur í sumar. „Þetta er
bara á góðu róli og fólk er greini-
lega að skoða málin hægt og ró-
lega. Það er engar kollsteypur í
þessu,“ segir Bragi.
Engar
kollsteypur
FIMM manns voru í fólksbíl sem
valt á Hafnarfjarðarvegi snemma í
fyrrinótt. Allir farþeganna kvört-
uðu undan eymslum eftir veltuna
og flutti lögregla tvo þeirra á slysa-
deild til skoðunar.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni í Kópavogi var bíllinn á
leið í suður þegar hann valt
skammt frá versluninni Nesti. Allir
í bílnum voru í bílbelti og telur lög-
regla að það hafi sennilega orðið til
þess að ekki fór verr.
Fimm sluppu
vel úr bílveltu
VERÐ á lambakjöti til neytenda er
núna 13,3% hærra en það var fyrir
tólf mánuðum, samkvæmt tölum
Hagstofu Íslands. Á sama tímabili
hefur vísitala neysluverðs hækkað
um 3,7%.
Stjórn Landssambands sauð-
fjárbænda hefur lýst óánægju með
það verð sem sláturleyfishafar hafa
greitt til bænda. Stjórnin telur að
verðið þurfi að hækka um a.m.k.
5%. Bent er á að hækkanir, sem
hafa verið ákveðnar, geri vart bet-
ur en halda í við verðlagsbreyt-
ingar frá síðasta ári og jafnframt
að haustið 2003 hafi verið ákveðnar
mjög verulegar lækkanir á lamba-
kjötsverði til bænda.
Lambakjöt
hækkar í verði
HAFÍSJAKAR lóna nú úti fyrir Grímsey, eins og myndin sem tekin var suður
af Grímseyjarvita ber með sér. Þykir sumum það undarlegt að sjá stóra borg-
arísjaka á siglingu eftir eitt hlýjasta sumar í manna minnum hér á landi.
Ljósmynd/Helga Mattína
Hafís við Grímsey
HÆSTIRÉTTUR hefur stað-
fest gæsluvarðhaldsúrskurð
yfir 19 ára pilti sem framdi
vopnað rán
í Hring-
braut-
arapóteki.
Lögregla
rannsakar
tvö önnur
meint hótunar- og vopnalaga-
brot piltsins sem er fíkniefna-
neytandi og atvinnulaus.
Pilturinn veifaði loft-
skammbyssu, ógnaði starfs-
fólki og krafðist þess að fá
ávana- og fíknilyf þegar hann
rændi apótekið laugardags-
kvöldið 6. september. Í dómi
Hæstaréttar kemur fram að
samkvæmt gögnum málsins
er byssan hættuleg á allt að
205 metra færi. Brot manns-
ins varða allt að 10 ára fang-
elsi en hafi mjög mikil hætta
verið samfara ráninu, getur
refsingin þó orðið allt að 16
ára fangelsi.
Héraðsdómur Reykjavíkur
taldi, með tilliti til eðlis brots-
ins, annarra brota piltsins og
aðstæðna hans, að almanna-
hagsmunir krefðust þess að
hann sæti í gæsluvarðhaldi til
5. október nk. og á það féllst
Hæstiréttur.
Áfram í gæslu-
varðhaldi vegna ráns
Loftbyssan
hættuleg
á 200
metra færi
FALLÞUNGI dilka sem slátrað hef-
ur verið hjá Sláturfélagi Suður-
lands á Selfossi er í mjög góðu með-
allagi að sögn Hermanns
Árnasonar sláturhússtjóra.
Hann segir reyndar að menn séu
ekki enn farnir að slátra fjallfé í
sláturhúsinu á Selfossi. Féð, sem nú
hafi verið slátrað, hafa mestmegnis
verið úr heimahögunum og lágheið-
um. Hermann segist telja fallþung-
ann ekki ósvipaðan og í fyrra.
„Þetta er svona í mjög góðu með-
allagi, yfir meðallagi skulum við
segja, eins og í fyrra. Mér heyrist
almennt að menn búist við lömb-
unum vænum af fjalli.“
Lilja Loftsdóttir, fjalldrottning
Gnúpverja, sem kom úr leitum í síð-
ustu viku, segir hins vegar að lömb-
in komi nokkuð misjöfn af fjalli,
sum séu stór en önnur smá. Í fyrra-
haust hafi lömbin verið vænni.
Kennir hún þurrkatíð um.
Fallþungi dilka
yfir meðallagi