Morgunblaðið - 14.09.2004, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 14.09.2004, Blaðsíða 16
MINNSTAÐUR 16 ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ Kringlumýrarbraut | Framkvæmdir eru nú hafnar við ný gönguljós yfir Kringlumýr- arbraut við Hamrahlíð í Reykjavík, gegnt verslunarmiðstöðinni Suðurveri. Að sögn Þórs Gunnarssonar hjá Gatnamálastofu er stefnt að því að ljúka uppsetningu ljósanna fyrir lok september. Samhliða gönguljósunum verða settar upp grindur svipaðar þeim sem settar hafa verið upp á gangbrautum á mótum Kringlumýrar- brautar og Miklubrautar, svo vegfarendur þurfi ekki að komast yfir allar akreinarnar á einum ljósum. Gangbrautar- ljós undirbúin Morgunblaðið/Árni Sæberg EINN, tveir og nú er yfirskrift heilsuátaks sem heilsueflingarráð Akureyrar efnir til ásamt Lands- bankanum en það hófst formlega í gær. Markmið þess er að hvetja bæjarbúa til aukinnar hreyfingar og samveru en einkanlega er því ætlað að virkja börn á grunnskólaaldri og foreldra þeirra til reglulegrar hreyf- ingar. Liður í átakinu er að svonefndu „Fjölskyldukorti“ er dreift til allra grunnskólanemenda í bænum, eins konar almanaki fyrir hvern mánuð þar sem korthafar færa skilmerki- lega inn reglulega hreyfingu allra í fjölskyldunni, gönguferðir, þátttöku í íþróttum, leiki, sund, golf, hvort gengið er í/úr vinnu eða blöð borin út svo dæmi séu tekin. Kristján Þór Júlíusson bæjar- stjóri sagði við setningu átaksins að það væri liður í fjölskyldustefnu Akureyrarbæjar sem hrint var í framkvæmd fyrir tveimur árum, en í stefnunni lýsa bæjaryfirvöld yfir „að þau vilji leggja sérstaka áherslu á að gera allar kringumstæður sem hag- stæðastar fyrir börn og uppalendur þeirra.“ Friðrik Vagn Guðjónsson læknir sagði við upphaf átaksins að marg- sannað væri að ýmsar hættur steðj- uðu að lifnaðarháttum nútímafólks, m.a. streita og hreyfingarleysi. Búið væri að rannsaka afleiðingar þess nægilega, „og tími til að gera eitt- hvað,“ sagði hann og bætti við að ef átakið Einn, tveir og nú skilaði því að meðalaldur einnar vísitölufjöl- skyldu hækkaði um eitt ár í kjölfar aukinnar hreyfingar hefði verið til einhvers unnið. Fjölskyldukortinu verður dreift nú í vikunni og geta nemendur grunnskólanna skilað því inn til rit- ara skólans fyrir 10. hvers mánaðar. Dregið verður úr öllum innsendum kortum og fá 10 korthafar vegleg verðlaun í hverjum mánuði. Heilsueflingarátak sem stendur fram á vor hafið Einn, tveir og nú, Akur- eyringar! Morgunblaðið/Kristján Holl hreyfing: Strákar í Lundarskóla takast á í körfubolta á lóð skólans. AKUREYRI Lögfræðitorg | Í erindi sínu á Lögfræðitorgi í dag, þriðjudaginn 14. september, ætlar Francesco Milazzo að fjalla um hvernig sam- spil laga, gilda og efnahagslífs stuðlaði að því að móta hugmynd- ina um að gera eitthvað í góðri trú þannig að hún mætti koma að sem mestum notum hvort sem það hafði réttarlega þýðingu eður ei. Fyrir- lesturinn nefnist Law, values, economics and good faith. Francesco Milazzo er prófessor í Rómarétti við lagadeild háskólans í Catania, en skólinn var stofnaður árið 1434. Hann gegnir einnig kennarastöðu við háskólann í Cat- anzora. Milazzo hefur lagt stund á fræðilegar rannsóknir á Rómarétti við háskólann í Freiburg, Þýska- landi. Fyrirlesturinn hefst kl. 16.30 í stofu 14 í húsakynnum háskólans við Þingvallastræti. AKUREYRARHLAUP Ungmenna- félags Akureyrar verður næsta sunnudag, 19. september. Keppni í hálfmaraþoni, 21,1 km er að þessu sinni Íslandsmeistaramót. Megintilgangur Akureyrarhlaups er að hvetja unga sem aldna til hreyfingar og heilbrigðra lífs- hátta og gefa fólki tækifæri til að vera sjálft í aðalhlutverki í skemmtilegum íþróttaviðburði eins og segir í frétt um hlaupið. Hálfmaraþonhlauparar verða ræstir kl. 11, en skemmtiskokk- arar og 10 km hlauparar kl. 12. Ný hlaupaleið hefur verið lögð í 10 km hlaupi og er hún slétt og því vel til þess fallin að bæta tíma sinn í þeirri vegalengd. Hlaupa- leiðin í hálfu maraþoni þykir með þeim bestu á landinu og dregur góða keppendur að segir enn fremur í frétt frá UFA. Verðlaun verða veitt fyrir fyrstu karla og konur í hverjum flokki og eins eiga allir þátttakendur jafna möguleika á að hreppa útdráttar- verðlaun. Félag eldri borgara aðstoðar félagið með því að sjá um að hlauparar fái vatn og orkudrykki á drykkjarstöðvum. Eftir hlaupið, teygjur og verðlaunaafhendingu hefst pitsuveisla. Hægt er að skrá sig í hlaupið á www.hlaup.is og í Sportveri á Glerártorgi, en nánari upplýsingar um hlaupið er að finna á slóðinni www. ufa.is.    Akureyrarhlaup MANNRÉTTINDA- og þróunar- málasetur hefur verið sett á stofn við félagsvísinda- og lagadeild Háskól- ans á Akureyri. Markmið með stofn- un setursins er að vera vettvangur mannréttinda- og þróunarmála sem tengjast sérstaklega námi og rann- sóknum nemenda Háskólans á Akur- eyri og rannsóknum kennara og fræðimanna skólans. Setrið mun leggja sérstaka áherslu á samstarf við mannréttinda- og þróunarstofn- anir á Akureyri og víðar á lands- byggðinni í þeim tilgangi að styrkja starfsemi þeirra. Markmiðunum ætlar setrið að ná með því að koma á fót safni bóka og tímarita um mannréttinda- og þróun- armál sem koma munu almenningi á landsbyggðinni sérstaklega að gagni auk þess að þjóna nemendum, kenn- urum og fræðimönnum háskólans. Þá verður stuðlað að fræðslu á þessum vettvangi, rannsóknum, staðið fyrir útgáfu og dreifingu efnis um mann- réttinda- og þróunarmál sem og einn- ig fyrirlestrum og umræðum. Einnig verður komið á fót samstarfi við sam- bærilegar stofnanir annars staðar. Félagsvísinda- og lagadeild Háskólans Mannréttinda- og þróunar- málasetur TVEIR lionsklúbbar, Lionsklúbbur Akureyrar og Lionsklúbburinn Vit- aðsgjafi í Eyjafjarðarsveit hafa gef- ið Heilsugæslustöðinni á Akureyri tæki að andvirði tæplega 600 þús- und krónur. Annars vegar er um að ræða myndbandstökuvél, sjón- varpstæki og myndspilara sem not- uð verða við kennslu og þjálfun í samtalstækni og sjúklingavinnu unglækna sem eru í námi á heilsu- gæslustöðinni og hins vegar skoð- unartæki fyrir húðkvilla með fylgi- hlutum. Þau eru notuð við skoðun og greiningu á húðkvilla og eins við upplýsingaöflun og varðveislu upp- lýsinga um ástand. Myndir verður hægt að geyma á rafrænu formi til seinni tíma samanburðar og eins verður hægt að senda þær rafrænt landshorna á milli ef leita þarf sér- fræðiálits. Héðinn Jónasson lionsmaður af- henti gjafirnar og sagði féð sem notað var til tækjakaupanna vera afrakstur hagyrðingakvölds í fyrrahaust. „Við vonum að tækin komi að góðum notum,“ sagði hann við afhendinguna. Margrét Guð- jónsdóttir, framkvæmdastjóri Heilsugæslustöðvarinnar á Akur- eyri, sagði ómetanlegt að eiga svo sterka bakhjarla sem lionsklúbb- arnir væru. Þeir hefðu gegnum ár- in lagt sitt af mörkum til tækja- kaupa á vegum stöðvarinnar og gert þannig kleift að bjóða upp á bestu þjónustu sem völ væri á. Lionsklúbbar gefa Heilsugæslustöðinni tæki Morgunblaðið/Kristján Sýnikennsla á stöðinni: Jón Torfi Halldórsson læknir sýndi notkun bún- aðarins sem lionsklúbbarnir gáfu Heilsugæslustöðinni á Akureyri. Reykjavík | Félag jarðvinnuverktaka og Félag byggingarverktaka hafa samþykkt ályktun þar sem fagnað er þeirri stefnu Reykjavíkurborg- ar að fjölga þeim verkþáttum sem boðnir eru út á hennar vegum. Félögin lýsa hins vegar yf- ir miklum áhyggjum vegna „sýndarútboða Reykjavíkurborgar og stofnana í hennar eigu.“ Nýverið bauð Sorpa, fyrirtæki sem er í meirihlutaeigu Reykjavíkurborgar, út rekstur þriggja söfnunarstöðva. Vélamiðstöðin ehf. bauð í verkið en fyrirtækið er í 75% eigu Reykjavíkurborgar og 25% í eigu Orkuveitu Reykjavíkur. „Nú stendur yfir útboð á snjómokstri og hálkueyðingu fyrir Reykjavíkurborg. Í því út- boði eru skilmálar útboðsins eins og sérsniðnir fyrir Vélamiðstöðina og Malbikunarstöðina Höfða, fyrirtæki sem eru í meirihlutaeigu Reykjavíkurborgar. Fyrirtæki þessi hafa fram á þennan dag sinnt sjómokstri fyrir borgina og í útboðinu gildir fyrri reynsla 70% en verð ein- ungis 30%. Reykjavíkurborg hyggst færa fyr- irtækjunum þessi viðskipti á silfurfati til 8 ára í nafni útboðs. Félög jarðvinnu- og byggingarverktaka hafa miklar áhyggjur af þessari stefnubreytingu Reykjavíkurborgar og stofnana hennar. Fyr- irtækin eru að nafninu til með aðskilinn og sjálfstæðan rekstur en stjórnunarlega eru þau í einni sæng. Kaupendur sitja í stjórnum bjóð- enda og slíkt kann ekki góðri lukku að stýra og telst tæpast nútímaleg og vönduð stjórnsýsla.“ Segja borgina standa fyrir sýndarútboðum Höfuðborgarsvæðið | Strætó bs. undirritaði nýverið samning við B&L um kaup á 30 stræt- isvögnum frá Irisbus. Þetta er stærsti kaup- samningur sinnar tegundar sem Strætó bs. hefur undirritað og sá stærsti sem gerður hef- ur verið frá árinu 1968 þegar Strætisvagnar Reykjavíkur keyptu 30 vagna er hægri umferð var tekin upp. Nýju vagnarnir verða afhentir á næstu fjór- um árum og fimm fyrstu vagnarnir verða af- hentir í desember nk. Að sögn Ásgeirs Eiríks- sonar, framkvæmdastjóra Strætó bs., kostar hver vagn á bilinu 18–19 milljónir króna. Að- spurður segir Ásgeir töluvert hafa munað á lægsta tilboðinu, sem Irisbus átti, og því næst- lægsta, eða sem samsvarar andvirði eins vagns. Með þriðjungshlut á alþjóðamarkaði Irisbus hefur starfað frá árinu 1999 þegar al- menningsvagnaframleiðsla Renault og Ivago var sameinuð. Fyrirtækið er einn stærsti fram- leiðandi almenningsvagna í heimi, með tæp- lega þriðjungshlut á alþjóðamarkaði. Á myndinni eru þau Ásgeir Eiríksson fram- kvæmdastjóri Strætó bs., Erna Gísladóttir for- stjóri B&L, Guðjón Ólafur Jónsson stjórnar- formaður Strætó bs. og Heiðar J. Sveinsson forstöðumaður sölusviðs B&L að undirritun lokinni. Morgunblaðið/Sverrir Strætó kaupir 30 nýja strætisvagna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.