Morgunblaðið - 14.09.2004, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 14.09.2004, Blaðsíða 32
Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Lalli lánlausi © LE LOMOMBARD Í FRAMTÍÐINN FÆ ÉG KANNSKI AÐ HEIMSÆKJA AÐRA PLÁNETU LÁTTU ÞAÐ VERA JÓN... ÞÚ ÁTT EKKI EFTIR AÐ KOMAST Á SEFNUMÓT ÞAR HELDUR HÚN ER DÁLDIÐ LÚMSK ÞESSI, EN ÉG NÆ HENNI FYRR EÐA SÍÐAR ÞAÐ LÍTUR ÚT FYRIR AÐ ÉG SKIPTI MINNA MÁLI EN FLUGA OG HÚN SEM SEGIR AÐ ÞÚ HJÁLPIR EKKI TIL Á HEIMILINU VIÐ UNNUM! ÉG SAGÐI ÞÉR AÐ ÉG VÆRI MEÐ GOTT LIÐ LÁTTU KALLA FÁ HANSKANN SINN TOMMI NEI NEI? PÆLDU Í ÞVÍ! HANSKINN ÞINN VAR Í VINNINGSLIÐINU... LÁTTU KALLA FÁ HANSKANN ÉG SKAL SLÁST UP Á HANN GAT VERIÐ! ÞAÐ ERU FJÓRAR ÁRSTÍÐIR Á HVERJU ÁRI. VORIÐ ER TÍMI BLÓMANNA OG FUGLANNA. BÖRNIN LEIKA SÉR Í GARÐINUM OG ANDA AÐ SÉR FERSKU VORLOFTINU SUMARIÐ ER TÍMI UPPSKERUNNAR OG ÁVAXTA. BÖRNIN LEIKA SÉR Á STRÖNDINNI OG BAÐA SIG Í GEISLUM SÓLARINNAR HAUSTIÐ ER TÍMI VINDANNA, FALLANDI LAUFBLÖÐ OG ELDUR Í ARNINUM. BÖRNIN LEIKA SÉR Í DAUÐUM LAUFBLÖÐUM OG DAUFU DAGSLJÓSINU LOKS ER VETURINN TÍMI FJÖLSKYLDUNNAR FYRIR FRAMAN ARININN. BÖRNIN LEIKA SÉR Í SNJÓNUM MJÖG GOTT LÁRA, ÞÚ FÆRÐ 10 NÚNA SKULUM VIÐ SJÁ HVORT LALLI HEFUR LÆRT EITTHVAÐ UM ÁRSTÍÐIRNAR ÞAÐ ERU BARA TVÆR ÁRSTÍÐIR Á HVERJU ÁRI. RIGNINGARTÍMINN ER TÍMI RIGNINGAR OG KVEFS. BÖRNIN LEIKA SÉR DÖPUR HEIMA Í PLAYSTATION OG ANDA AÐ SÉR MENGUÐU LOFTI SVO HÆTTIR AÐ RIGNA. ÞAÐ ER GLEÐILEGUR TÍMI ÞAR SEM BÖRNIN LEIKA SÉR Í BLAUTU GRASINU ÞVÍ MIÐUR STENDUR SÁ TÍMI STUTT YFIR OG ÞAU FARA FLJÓTLEGA AFTUR INN, ÞAR SEM ÞAU VERÐA KOMANDI MÁNUÐI. ÞAR STUNDA ÞAU LEIÐINLEGA LEIKI ? EFTIR ALLT SAMAN HEF ÉG ÁKVEÐIÐ AÐ GEFA LALLA 10 EN LÁRU 0 EN HERRA, ÞÚ SAGÐIR RÉTT ÁÐAN AÐ... KÆRI NÁGRANNI, MÉR SÝNIST KENNARINN VERA JAFN ÓÚTREINAN- LEGUR OG VEÐRIÐ Dagbók Í dag er þriðjudagur 14. september, 258. dagur ársins 2004 Víkverji átti dásam-lega síðustu helgi. Hann lék tónlist sína fyrir gesti kaffihúss í miðbæ Reykjavíkur og hafði afar gaman af. Eftir að tónleik- unum lauk fór Vík- verji ásamt kollega sínum og unnustu hans í átt að bílastæð- inu við Íslandsbanka með það í huga að skutla vinum sínum heim. Þegar að bílnum (Saab 9000i ’86) var komið, blasti við nokk- uð ófögur sjón, sem helst minnti á Grimmsævintýrin. Inni í bílnum, í bílstjórasætinu, lá Gullbrá nokkur, ljóshærð stúlka í kringum lögræðisaldurinn, sofandi af áfengisneyslu. Þótti Víkverja og vinum hans þetta í senn spaugilegt og sorglegt og upplifði Víkverji sig sem bangsapabba þegar hann opn- aði varlega dyrnar á bílnum, ýtti gætilega við Gullbrá og bað hana um að vinsamlegast rýma bílinn. Kom þá fát á Gullbrá og reyndi hún að ræsa bílinn, en sem betur fer voru lyklarnir í vasa Víkverja. Hljóp stúlkan þá út úr bílnum og þusti að næsta bíl og hóf leit að opinni hurð til að fá ódýrt gistirými. Það var meira út af örvæntingu en fálæti, sem Víkverji ákvað að leyfa þessu örvænting- arfulla dýri að hlaupa út í nóttina en ekki að koma henni í skjól. Víkverji á erfitt með að skilja af hverju unglingar byrja til- raunir sínar með áfengi með því að sturta ofan í sig heilu pelunum af þessu og hinu. Væri ekki vit- urlegra, ef það er ekki hægt að sleppa því að drekka, að prófa tak- mörk sín frá smáum skömmtum og upp í stærri, til að koma í veg fyrir svona viðbjóðslegar uppákomur? Drykkja unglinga er að mati Vík- verja nokkuð óumflýjanlegur hluti menningarinnar. Þau vilja brjótast út úr venjum samfélagsins og prófa nýja hluti. Þau vilja brjóta boð og bönn. En er ekki reynandi að gefa þeim góð ráð, þó ekki sé verið að dæla í þau áfengi? Víkverji vonar að þessi stúlka hafi komist klakklaust heim til sín, eins og svo ótal margar aðrar stúlkur, en hann vonar um leið að hún sjái villu síns vegar og reyni að nálgast drykkjuna frá hinum endanum næst. Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is              Salurinn | Grunnskólabörn frá Kópavogi og Reykjavík fengu svo sannarlega að kynnast framandi menningu, þegar þrír Yolngu-frumbyggjar frá Ástralíu kynntu fyrir þeim tónlist, dansa og hugmyndafræði frumbyggja. Frömdu frumbyggjarnir mikinn tónlistar- og dansseið og léku m.a. á Yidaki, sem er heilagt hljóðfæri frumbyggja og virðist vera upprunnið frá Norðaustur- Arnemlandi. Yidaki er einnig stundum kallað Didgeridoo. Frumbyggjarnir þrír munu halda tónleika á föstudagskvöld kl. 20.30 í salnum ásamt íslenskum tónlistarmönnum úr fremstu röð, þar á meðal Hilm- ari Erni Hilmarssyni, Didda fiðlu og Eþos-strengjakvartettinum. Morgunblaðið/Þorkell Frumbyggjar í Salnum MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug- lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.400 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. Orð dagsins: Finnið og sjáið, að Drottinn er góður, sæll er sá maður er leitar hælis hjá honum. (Sl. 34, 9.)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.