Morgunblaðið - 14.09.2004, Blaðsíða 19
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn
DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 2004 19
w
w
w
.c
lin
iq
ue
.c
om
www.lyfja.is
GJÖF
100% ilmefnalaust
í dag, þriðjudag Lyf & heilsu Melhaga
á morgun, miðvikudag Lyf & heilsu Austurstræti
fimmtudag Lyf & heilsu Austurveri
Ráðgjafi frá CLINIQUE verður í Lyf og heilsu kl. 13-17
• Clarifying lotion 2 - 60 ml
• Repairwear dagkrem - 7 ml
• Nýr farði: Perfectly Real - 7 ml
• Nýr varalitur: Colour surge Brilliance
*Meðan birgðir endast
Kaupauki 4 hlutir!
Ef þú kaupir tvo hluti eða fleiri frá CLINIQUE er þessi gjöf þín.*
GÓÐ
föstudag Lyf & heilsu Glerártorgi Akureyri
þriðjudaginn 21. sept. Lyf & heilsu Mjódd
miðvikudaginn 22. sept. Lyf & heilsu Kjarnanum Selfossi
Frábærar, fjörugar og fjölbreyttar
ævintýraferðir fyrir fyrirtæki
jafnt sem vinahópa.
Upplýsingar í síma 562-7700
www.travel-2.is
Vilt þú komast frá amstri hversdagsleikans?
Sumarbústaðir með heitum potti, aðeins
klukkustundarakstur frá Reykjavík.
Stærra hús sem hentar fyrir
hópa og starfsmannafélög.
Stórbrotið umhverfi, hestaleiga á
Löngufjöru
s. 435 6628, 863 6628
Ferðaþjónusta Snorrastaða
s. 435 6627, 899 6627
Við höfum
svarið.
Stutt í
berjamó.
Reykjavík v/ Ægisgarð • S. 555 3565 • www.elding.is
Hvalaskoðun
Þrjár ferðir daglega – fróðleg skemmtun
fyrir alla fjölskylduna!
Ferðir alla þriðjudaga kl. 18:00 og
laugardaga kl. 13:30. Einnig sérferðir
fyrir hópa, tímar eftir samkomulagi.
Sjóstangaveiði á sjó
Ævintýri
FERÐALÖG
Ínorskum og sænskum fjöl-miðlum kemur fram að hal-ógenlampinn Espressivo frá
Ikea hefur valdið nokkrum slysum
a.m.k. í Svíþjóð og Noregi. Um-
ræddur lampi getur staðið á borði
en ekki er hægt að festa hann niður
eða á vegg. Á vef norska Dagbladet
kemur m.a. fram að brunablettir
hafi myndast í sófa og sæng út frá
lampanum. Sagt er frá stúlku sem
vaknaði við vonda lykt og í ljós kom
að sængin hennar hafði runnið yfir
lampann sem stóð á gólfinu. Sæng-
urverið var brunnið að hluta og
plastið á lampanum hafði bráðnað.
Ikea hefur prófað Espressivo-
lampann og tilkynnt að hann verði
ekki innkallaður. Talsmenn Ikea
segir að betri upplýsingar verði
látnar fylgja lampanum og varað
við því að nota hann í barna-
herbergjum. Rafmagnsörygg-
isdeild Löggildingarstofu er ekki
kunnugt um að svipuð atvik hafi
komið upp hér á landi varðandi
þennan tiltekna lampa, að sögn
Birgis Ágústssonar, sem hefur eft-
irlit með öryggi raflagna hjá Lög-
gildingarstofu.
Bæði Birgir og Herdís L.
Storgaard, forstöðumaður Árvekni,
samstarfshóps um forvarnir gegn
slysum, leggja áherslu á að lausir
lampar eigi ekki að vera í barna-
herbergjum, hvorki halógenlampar
né hefðbundnir glóperulampar.
Herdís segir að börn hafi fundið
upp á því að setja eitthvað yfir
lausa lampa og slíkt geti valdið
bruna. Hún segir að mikilvægt sé
að smábörn geti ekki togað lausan
lampa yfir sig í barnarúmið því
venjuleg 40 w pera geti skaðbrennt
lítið barn. „Það sama er að segja
um vegglampa við rúm. Það þarf að
gæta þess að hafa lampann ekki
svo neðarlega að sæng geti lagst
yfir hann því slíkt getur valdið
bruna. Flestir halógenlampar
verða mjög heitir og mun heitari en
venjulegir lampar. Halógenpera
virkar best við 200 gráðna hita. Í
Noregi hafa halógenlampar þó ekki
valdið fleiri slysum en venjulegir
lampar, að því er fram kemur á vef
Dagbladet. Bandarísk yfirvöld vör-
uðu við notkun halógenlampa í lok
tíunda áratugarins og var notkun
lausra halógenlampa bönnuð í þar-
lendum skólum. Bandarísk rann-
sókn sýndi fram á að 300 vatta
halógenpera varð 520 gráðna heit á
yfirborðinu en yfirborð 150 vatta
venjulegrar ljósaperu varð 171
gráðna heitt. Athugað var hversu
hratt ólík efni brunnu þegar þau
komust í snertingu við 300 vatta
halógenperu. Á 17 sekúndum
kviknaði í pappír, bolur úr 80%
pólyester og 20% bómull brann eft-
ir 24 sekúndur og viðarkubbur úr
furu logaði eftir 1 mínútu og 43 sek-
úndur.
Birgir segir að fylgst verði með
framhaldi málsins varðandi
Espressivo-lampann í Svíþjóð en
hér á landi gilda sömu reglur og í
Noregi og Svíþjóð og á öllu Evr-
ópska efnahagssvæðinu varðandi
öryggi lampa.
Lampi
veldur
slysum
NEYTENDUR