Morgunblaðið - 14.09.2004, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 14.09.2004, Blaðsíða 13
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 2004 13 CHARLES Robert Jenkins fékk sér í gær klippingu að hætti banda- rískra hermanna en fyrr um daginn hafði hann mætt til skyldustarfa í fyrsta skipti í tæpa fjóra áratugi. Jenkins gaf sig fram við bandarísk hermálayfirvöld í Zama-búðunum í Japan á laugardag. Með honum í för voru japönsk eiginkona hans, Hitomi Soga, og tvær dætur þeirra hjóna sem báðar eru um tvítugt. Jenkins er 64 ára gamall. Hann hvarf er hann var við skyldustörf í Suður-Kóreu í janúarmánuði árið 1965. Var hann sakaður um að hafa gerst liðhlaupi en vitað er að hann dvaldist í Norður-Kóreu þar til í júlímánuði í ár þegar hann hélt til Indónesíu til fundar við fjölskyldu sína sem fengið hafði leyfi til að fara frá Norður-Kóreu árið 2002. Eiginkona Jenkins er 45 ára gömul. Hún var í hópi Japana sem stjórn- völd í Norður-Kóreu létu ræna árið 1978 og var fólkið notað til að að- stoða við þjálfun njósnara þar. Talsmaður herstjórnar Banda- ríkjamanna í Japan sagði að mál Jenkins fengi nú hefðbundna með- ferð. Þar til myndi hann dveljast í Zama-herstöðinni og sinna þar ótil- greindum störfum. Honum og fjöl- skyldunni yrði fengið húsnæði. Vit- að er að stjórnvöld í Japan hafa þrýst á Bandaríkjamenn um að taka vægt á máli Jenkins og er það ekki síst vegna eiginkonu hans, sem nýtur mikillar samúðar í Jap- an. Er talið hugsanlegt að Jenkins verði ekki leiddur fyrir herrétt heldur verði látið nægja að vísa honum úr hernum. Jenkins kom á sínum tíma fram í norður-kóresk- um áróðursmyndum en hann er formlega sakaður um liðhlaup. Hann kann að eiga ævilangt fang- elsi yfir höfði sér verði hámarks- refsingu beitt. Liðhlaupi snýr aftur Reuters AÐ MINNSTA kosti 20 manns biðu bana og 29 særðust í loftárásum Bandaríkjamanna á meintar bæki- stöðvar al-Qaeda-hryðjuverka- manna í borginni Fallujah í Írak í gær. Mikið mannfall var einnig í Írak í fyrradag, þá er talið að 78 hafi dáið í árásum vígamanna á íraskar stjórnarbyggingar og bæki- stöðvar Bandaríkjahers. Talsmenn Bandaríkjahers skýrðu aðgerðir sínar í gær með því að segja að þeir hefðu haft heimildir um að Abu Mussab al-Zarqawi, Jórdaníumaður sem grunaður er um að stjórna einum virkasta upp- reisnarhópnum í Írak, væri staddur á tilteknum stað í Fallujah. Hópur Zarqawis, sem er sagður hafa tengsl við al-Qaeda, hafði lýst ódæðisverkunum á sunnudag á hendur sér. Íbúar í hverfinu, sem varð fyrir sprengingum Bandaríkjahers, brugðust hins vegar ókvæða við og sögðu ekkert til í þeim staðhæf- ingum, að þeir sem létust hefðu allir verið fylgismenn al-Zarqawis. „Eins og stendur erum við búnir að fá til okkar fimmtán lík. Meðal látinna er sjúkraflutningabílstjóri og tvær hjúkrunarkonur,“ sagði Falal Abd- ullah, útfararstjóri í Fallujah. Tyrkir hóta að hætta samstarfi Tyrknesk stjórnvöld hótuðu í gær að hætta allri samvinnu við Banda- ríkjaher í Írak ef hann hætti ekki árásum á bæinn Tall Afar, sem er einkum byggður Túrkmenum, að sögn fréttastofunnar Anatolia. Árásirnar á bæinn hafa kostað yfir 50 manns lífið síðustu daga. Írösk hreyfing kvaðst í gær hafa rænt tveimur Áströlum og tveimur Austur-Asíubúum og hótaði að myrða þá ef stjórn Ástralíu kallaði ekki herlið sitt frá Írak innan sólar- hrings. Ástralska stjórnin kvaðst vera að kanna hvort Áströlum hefði verið rænt. Ófremdarástand í Írak síðustu vikur hefur gefið mönnum tilefni til að efast um að hægt verði að halda kosningar í landinu í janúar eins og að hefur verið stefnt. Ayad Allawi, forsætisráðherra írösku bráða- birgðastjórnarinnar, staðhæfði þó í gær að kosningarnar yrðu haldnar en hann viðurkenndi að hugsanlega myndu ekki allir Írakar geta tekið þátt í þeim. „Ef 300.000 manns geta einhverra hluta vegna ekki tekið þátt í kosningum, geta ekki greitt atkvæði vegna þess að hryðjuverka- menn hafa tekið ákvörðun í þá veru, þá segi ég einfaldlega að 300.000 manns […] munu ekki koma í veg fyrir að 25 milljónir manna gangi að kjörborðinu,“ sagði Allawi. Tók hann sem dæmi að ef íbúar Fallujah gætu ekki tekið þátt í kosningunum myndu þeir einfald- lega fá að kjósa síðar. Tuttugu féllu í loft- árásum á Fallujah Fallujah, Bagdad. AFP, AP.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.